Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1999, Blaðsíða 34
34
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 1999
Afmæli__________________
Stefán B. Thors
Stefán Björnsson
Thors, arkitekt og skipu-
lagsstjóri ríkisins, Öldu-
götu 30A, Reykjavík, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist í
Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR
1969, stundaði nám í
arkitektúr við Kunstaka- stefán B. Thors.
demiets Arkitektskole í
Kaupmannahöfn, lauk
þaðan prófum frá skipulagsdeild
1976 og stundaði framhaldsnám við
Nord-plan 1978.
Stefán starfaði hjá Skipulagi rík-
isins á námsárunum og 1976-79,
var forstöðumaður Skipulagsstofu
Austurlands á Egilsstöðum 1979
-81, starfrækti eigin teiknistofu í
Reykjavík 1981-85 og hefur verið
skipulagsstjóri ríkisins frá 1985.
Stefán vann áður aðalskipulags-
áætlanir fyrir fjölda sveitarfélaga
hér á landi. Hann hefur skrifað
fjölda greina í blöð og tímarit.
Stefán var gjaldkeri Arkitektafé-
lags íslands 1984-85, var formaður
leikvallanefndar Reykjavíkurborg-
ar 1978-80, formaður Foreldra- og
kennarafélags Vesturbæjarskóla
1981- 85 og sat í skipu-
lagsstjórn ríkisins
1982- 85.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 1970
Guðrúnu Ingibjörgu
Gunnarsdóttur, f. 6.12.
1948, myndlistarmanni
og textílhönnuði. Hún
er dóttir Gunnars Ólafs-
sonar, framkvæmda-
stjóra, búsettur á Sel-
tjamarnesi, og k.h., Dýr-
leifar Hallgrímsdóttur húsmóður.
Synir Stefáns og Guðrúnar eru
Stefán Gunnar, f. 4.8. 1970, hag-
fræðingur hjá VSÓ-Ráðgjöf, búsett-
ur í Reykjavík, kvæntur Sigríði
Ólafsdóttur arkitekt og era börn
þeirra Snorri Steinn og Ágústa Sól;
Valtýr, f. 18.7.1975, læknanemi, bú-
settur í Reykjavík en kona hans er
Margrét Edda Guðmundsdóttir
háskólanemi og er sonur þeirra
Guðjón Gunnar.
Systkini Stefáns eru Kjartan, f.
14.7. 1945, jarðfræðingur í Reykja-
vík; Kristín, f. 3.2. 1948, förðunar-
fræðingur í Reykjavík; Björn, f. 3.9.
1950, tölvufræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Stefáns voru Björn
Thors, f. 28.2. 1923, d. 26.3. 1997,
blaðamaður í Reykjavík, og Helga
Valtýsdóttir, f. 22.9. 1923, d. 24.3.
1968, leikkona.
Ætt
Björn var sonur Kjartans Thors,
forstjóra Kveldúlfs og aðalræðis-
manns í Reykjavík, bróður Thors
sendiherra og Ölafs Thors forsætis-
ráðherra, föður Thors, forstjóra Is-
lenskra aðalverktaka, og Mörtu,
móður Guðrúnar Pétursdóttur, for-
stöðumanns sjávarútvegsdeildar
HÍ. Þriðji bróðir Kjartans var
Hilmar lögmaður, faðir Ólafs B.
Thors, forstjóra Sjóvár-Almennra.
Fjórði bróðir Kjartans var Haukur
forstjóri, afi Péturs Hafsteins
hæstaréttardómara. Systir Kjart-
ans var Kristín, móðir Thors Vil-
hjálmssonar rithöfundar, föður
Guðmundar Andra rithöfundar og
Örnólfs bókmenntafræðings. Kjart-
an var sonur Thorss Jensens,
kaupmanns og útgerðarmanns í
Reykjavík, sonar Jens Christians
Jensens, húsasmiðs og múrara-
meistara í Kaupmannahöfn, og
Andreu Louise Jensens, f. Mart-
ens. Móðir Kjartans var Margrét
Þorbjörg, systir Steinunnar, móður
Kristjáns Albertssonar rithöfund-
ar. Margrét Þorbjörg var dóttir
Kristjáns, b. í Hraunhöfn í Staðar-
sveit, Sigurðssonar og Steinunnar
Jónsdóttur.
Helga var systir Huldu, blaða-
manns, fyrrv. borgarráðsmanns og
stjómarformanns Árvakurs. Helga
var dóttir Valtýs, ritstjóra Morgun-
blaðsins, bróður Huldu skólastjóra,
móður Guðrúnar Jónsdóttur, arki-
tekts og fyrrv. forstöðumanns
Borgarskipulagsins. Valtýr var
sonur Stefáns, skólameistara og
alþm. á Akureyri, bróður Sigurðar,
pr. og alþm. í Vigur, föður Bjarna,
hreppstjóra í Vigur, föður Baldurs,
hreppstjóra í Vigur, Sigurlaugar,
fyrrv. alþm., og Sigurðar, fyrrv.
alþm., ritstjóra Morgunblaðsins og
sendiherra. Bróðir Bjama var Sig-
urður, sýslumaður á Sauðárkróki,
faðir Snorra skógfræðings og
Áma, fyrrv. pr. í Skagafirði. Systir
Sigurðar i Vigur var Þorbjörg,
móðir Haralds Björnssonar leik-
ara. Stefán var sonur Stefáns, b. á
Heiði, Stefánssonar og Guðrúnar
Sigurðardóttur, b. á Heiði, Guö-
mundssonar. Móðir Valtýs rit-
stjóra var Steinunn Frímannsdótt-
ir.
Móðir Helgu var Kristín listmál-
ari Jónsdóttir, útvegb. í Arnarnesi
við Eyjafjörð, Antonssonar og Guð-
laugar Sveinsdóttur.
Sveinn Ólafur Sveinsson
Sveinn Ólafur Sveinsson húsa-
smiður, Sævangi 41, Hafnarfirði,
er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Sveinn fæddist að Nýlendu und-
ir Austur-Eyjafjöllum og ólst þar
upp tO fjórtán ára aldurs. Þá flutti
hann til Hafnarfjarðar þar sem
hann hefur búið síðan.
Sveinn hefur stundað ýmis störf,
m.a. verkamannavinnu, sjó-
mennsku og leigubílaakstur. Hann
lærði húsasmíði hjá Páli Jónssyni
húsasmiðameistara 1954-58 og
stundaði síðan smíðar að námi
loknu en Sveinn starfaði hjá
Hrafnistu í Reykjavík í átta ár.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 8.7. 1956
Rebekku Helgu Aðalsteinsdóttur, f.
10.7. 1926, húsmóður. Hún er dóttir
Aðalsteins Jónassonar, bónda að
Laugarbóli í Ögurhreppi, og k.h.,
Ólafar Ólafsdóttur húsfreyju.
Böm Sveins og Rebekku eru
Ólöf Brynja, f. 8.11. 1949, bóndi að
Svelgsá í Helgafellssveit, gift
Bjarna R. Guðmundssyni bónda og
eiga þau þrjú böm, Bjama Þór,
Svein Aðalstein og Berglindi Krist-
ínu; Aðalsteinn, f. 22.2. 1951, dýra-
læknir, kvæntur Stefaníu Skarp-
héðinsdóttur húsmóður og eiga
þau tvö böm, Brimar og Rebekku
Helgu; Gunnar Örn, f. 22.3. 1956,
verkamaður, búsettur í
Hafnarfirði; Jónína
Björk, f. 7.12. 1957, hús-
móðir i Hafnarfirði, gift
Sveini Vilhjálmssyni
bátasmið og eiga þau
þijú böm, Rebekku
Helgu, Vilhjálm Árna og
Ástu Björk; Þorbjörg
Sandra, f. 7.9. 1959, hús-
móðir í Hafnarfirði, gift
Heiðari Bergi Jónssyni
sjómanni og eiga þau
fimm börn, Hjalta Snæ,
Erlu Rós, Fjólu Ósk,
Ómar Smára og Lilju Dögg.
Systkini Sveins eru Guðlaug Sig-
ríður, f. 8.4.1921, nú látin, húsmóð-
ir í Reykjavík; Guðmunda Guð-
laug, f. 29.4. 1923, hús-
móðir í Reykjavík; Elín
Sigríður, f. 2.7.1925, hús-
móðir á Akranesi; Sig-
urður Ólafur, f. 8.6.1926,
vinnumaður á Þorvalds-
eyri undir Eyjafjöllum;
Vilhjálmur Guðjón, f.
9.9. 1927, nú látinn,
verkamaður við Álverið
í Straumsvík; Lovísa, f.
4.11. 1928, húsmóðir í
Grindavík; Kristján, f.
13.4. 1931, dó ungur.
Foreldrar Sveins voru
Sveinn Guðmundsson, f. 2.6. 1891,
d. 8.2. 1992, og Jónína Sigurbjörg
Jónsdóttir, f. 31.3.1890, d. 14.7.1936.
Sveinn Ólafur
Sveinsson.
Jón Björnsson
Jón Björnsson, fyrrv.
frystihússtjóri á Kirkju-
bæjarklaustri, til heimil-
is að Klausturvegi 7,
Kirkj ubæj arklaustri,
verður áttatíu og fimm
ára 29.6. nk.
Starfsferill
Jón fæddist í Svínadal
í Skafíártungu og ólst þar
upp. Hann byrjaði ungur
að vinna með Bjarna
Runólfssyni í Hólmi við
að afla smíðajáms úr skipsströnd-
, um á skaftfellskum fjörum, var síð-
an bílstjóri er hann ók með kjöt frá
sláturhúsinu í Hólmi til Reykjavík-
ur. Þá stundaði hann fólksflutninga
á vegum Klaustursbræðra frá
Klaustri til Reykjavíkur í nokkur
ár.
Jón tók við vélgæslu frystihúss
Sláturfélags Suðurlands á Klaustri
--1942 og var jafnframt við afgreiðslu
úr frystigeymslum, auk þess sem
Jón Björnsson.
hann sá um rafstöðina á
Klaustri. Þá sá hann
lengi um akstur lækna á
svæðinu milli sanda áður
en bílar urðu almennir.
Jón hætti störfum fyrir
aldurs sakir eftir rúm-
lega fjörutíu ára starf hjá
Sláturfélaginu 1985. Þó
fylgdist hann með og
hafði umsjón með raf-
stöðinni þar til á síðasta
vetri.
Fjölskylda
Jón kvæntist 21.10. 1939 Ingi-
björgu Jónínu Ásgeirsdóttur, f.
20.11.1916, d. 4.3. 1983, húsmóður og
matráðskonu. Hún var dóttir Ás-
geirs Stefánssonar og Þóru Jóns-
dóttur.
Böm Jóns og Ingibjargar Jónínu
era Björn Vignir Jónsson, f. 9.1.
1941, flugvirki hjá Flugleiðum, bú-
settur i Reykjavík, var kvæntur
Hildi Davíðsdóttur og eru börn
þeirra Ingibjörg Elín og Jón Þórir,
en kona Björns Vignis er Þóra Sen;
Ásgeir Jónsson, f. 30.4. 1945, starfs-
maður hjá íslenskum matvælum,
búsettur í Hafnarfirði, kvæntur
Drífu Ingimundardóttur og era
börn þeirra Þóra Bima og Ingi
Björn; Birgir Jónsson, f. 5.4. 1947,
vörubílstjóri á Kirkjubæjarklaustri,
kvæntur Bryndísi Guðgeirsdóttur
og eru börn þeirra Jón Geir og Sig-
rún Inga; Gunnar Þór Jónsson, f.
1.5. 1952, rafvirkjameistari hjá
RARIK á Kirkjubæjarklaustri,
kvæntur Sveinbjörgu Pálsdóttur og
eru börn þeirra Hrafnhildur Rós,
Tinna Lind og Atli Þór.
Hálfbróðir Jóns, samfeðra, var
Björn Bjömsson, f. 6.12.1887, d. 14.5.
1984, skeifusmiður í Vík í Mýrdal.
Alsystkini Jóns: Valmundur
Björnsson, f. 2.11. 1897, d. 30.7. 1898;
Valmundur Bjömsson, f. 4.12. 1898,
d. 17.7. 1973, brúarsmiður 1 Vík í
Mýrdal; Eiríkur Björnsson, f. 5.12.
1900, d. 1998, bóndi og þekktur hag-
leikssmiður í Svínadal; Kjartan
Bjömsson, f. 11.12. 1901, nú látinn,
verkamaður i Vík í Mýrdal; Kristín,
f. 13.1. 1903, d. 31.3.1981, húsmóðir í
Reykjavík; Sumarliði Bjömsson, f.
7.2. 1906, d. 1998, bóndi í Litluhlíð í
Skaftártungu; Sæmundur Bjöms-
son, f. 21.2. 1907, d. 1999, lengst af
bóndi í Múla í Skaftártungu; Sveinn
Björnsson, f. 28.6. 1908, d. 24.8. 1993,
húsasmiður og lengst af bóndi á
Fossi á Síðu; Sigurjón Bjömsson, f.
9.9. 1909, nú látinn, rennismiður í
Vík í Mýrdal; Þórunn Bjömsdóttir,
f. 18.8. 1911, húsfreyja að Giljum í
Mýrdal; Jón Björnsson, f. 19.8. 1912,
bóndi í Svínadal í Skaftártungu;
Sigurlaug Bjömsdóttir, f. 11.5. 1919,
húsfreyja í Rifshalakoti.
Foreldrar Jóns vora Björn Eiríks-
son, f. 2.1 1861, d. 26.12.1922, bóndi í
Svínadal, og k.h., Vigdís Sæmunds-
dóttir, f. 22.8. 1872, d. 21.7. 1955, hús-
freyja.
í tilefni afmælisins verður Jón
með heitt á grillinu að heimili sínu
laugard. 26.6. frá kl. 18.00.
Tll hamingju
með afmælið
24. júní
85 ára
Guðrún Jónasdóttir,
Skúlagötu 7, Stykkishólmi.
Óskar Gíslason,
Hornbrekku, Ólafsfirði.
80 ára
Bára Kjartansdóttir,
Byrgisholti, Húsavík.
Hrefna Líneik Jónsdóttir,
Sólbyrgi við Laugarásveg,
Reykjavík.
Þórunn Ingólfsdóttir
Flygenring,
Garðstíg 5, Hafnarfirði.
75 ára
Jensína Finnbjörg Waage,
Furugerði 1, Reykjavík.
70 ára
Erna Vigfúsdóttir,
Hafnargötu 36, Keflavík.
60 ára
Alda Erla
Sigtryggsdóttir
hjúkrunar-
fræðingur,
Grenimel 15,
Reykjavík.
Amgrímur
Jónsson
skipstjóri,
Hafnartúni 2,
Siglufirði.
Erla Karlsdóttir,
Innri-Fagradal, Dalabyggð.
Helga Guðmundsdóttir,
Sólheimum 28, Reykjavík.
Kristinn Guðmundsson,
Vatnsnesvegi 24, Keflavík.
Lýdía Thejll,
Fífuseli 4, Reykjavík.
Þorvaldur Guðmundsson,
Vogabraut 3, Akranesi.
50 ára
Kjartan
Þórðarson,
viðskipta-
fræðingur og
endurskoðandi,
Lindarflöt 16,
Garðabæ.
Guðmundur Guðbjömsson,
Víðigrund 29, Kópavogi.
Herdis Jóna
Hermannsdóttir,
Setbergi 31, Þorlákshöfn.
Hólmfríður Elín Meldal,
Dalhúsum 48, Reykjavík.
Hreinn Haraldsson,
Silurigakvísl 33, Reykjavík.
Jóhann Arnfinnsson,
Borgarholtsbraut 31,
Kópavogi.
Júlía Petra Andersen,
Laugateigi 16, Reykjavík.
Ólöf S. Valdimarsdóttir,
Leirutanga 19, Mosfellsbæ.
40 ára
Birgir Sigurðsson,
Álfaheiði 20, Kópavogi.
Guðný Pálsdóttir,
Sólvallagötu 38D, Keflavík.
HaUdór V. Sveinbjörnsson,
Hellisbraut 9, Hellissandi.
Magnús Smári Kristinsson,
Suðurhúsum 7, Reykjavík.
Ólafur Þór Ólafsson,
Hvanneyrarbraut 63,
Siglufirði.
Ólöf Guðbrandsdóttir,
Kelduhvammi 14, Hafnarfirði.
Þorsteinn M. Gunnarsson,
Lyngbrekku 14. Kópavogi.