Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
Viðskipti_____________________________________________________________________________pv
Þetta helst: ... Viðskipti á Verðbréfaþingi, alls 1.114 m.kr. ... Mest með húsbréf 401 m.kr., húsnæðisbréf 255
m.kr. ... Spariskírteini, 343 m.kr. ... Hlutabréf, 88 m.kr. ... Mest með bréf Flugleiða, 18 m.kr. og lækkaði gengið um
1,9% ... Marel og Delta 10 m.kr. ... Delta hækkar um 6,9% ... Karfaviðskipti á Kvótaþingi, 1621 á 42 kr. kg. ...
Nýtt hugbúnaðarfyrirtæki á Sauðárkróki:
Stefnir á að ná árangri á
alþjóðlegum markaði
DV, Sauðárkróki:
Nýlega var formlega opnað á
Sauðárkróki nýtt fyrirtæki. Það
heitir Origo og mun starfa á sviði
hugbúnaðar. „Nýtt íslenskt þekk-
ingarfyrirtæki, sem starfar að ný-
sköpun í upplýsingatækni fyrir
matvælaframeiðendur,“ eins og seg-
ir í kynningu á fyrirtækinu. Þarna
hafa margir aðilar safnað saman
þekkingu í eitt fyrirtæki og ljóst að
eignaraðilar ætla sér stóra hluti. í
máli manna var talað um framsæk-
ið fyrirtæki sem stefnir að árangri á
heimsmælikvarða og að fylgja þar í
kjölfar íslenskra fyrirtækja sem
hafa gert það gott á alþjóðamarkaði.
Origo er stofnað á grunni lausna
og þekkingar 20 starfsmanna sem
koma frá Kerfi hf., Element -
Skynjaratækni hf. og Tæknival hf.
Til Origo hefur flust starfsemi tengd
Seascape og Hafdísar-kerfum, ásamt
skynjaratækni Elements. Þar á
meðal eru viðskiptasambönd og
verkefni hjá ríflega 50 íslenskum
viðskiptavinum í matvælaiðnaði,
auk rannsóknar- og þróunarverk-
efna á íslenskum og evrópskum
grunni.
Origo stefnir á náið samstarf við
rannsóknarstofnanir í matvælaiðn-
aði jafnt á íslandi sem erlendis.
Stoftiendur Origo eru Kerfi hf.,
Element hf„ Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins og Iðntæknistofnun
íslands. Heimilisfang fyrirtækisins
Delta ræður nýj-
an fram-
kvæmdastjóra
Lyfiafyrirtækið Delta hefur
ráðið sér nýjan framkvæmda-
stjóra. Hann heitir Róbert Wess-
mann og hefur gegnt ýmsum
stjórnunarstörfum hjá Samskip-
um hf„ nú síðast sem fram-
kvæmdastjóri Bruno Bischoff
Group í Bremen. Róbert er
kvæntur Ýr Jensdóttur lækni og
eiga þau eina dóttur.
Delta hf. er stærsta lyfiafram-
leiðslufyrirtæki landsins með í
kringum 140 starfsmenn. -EIS
Frá opnun Origo á Sauðárkróki. Gunnar Leó Gunnarsson framkvæmdastjóri lengst til vinstri. DV-mynd Þórhallur
verður á Sauðárkróki þar sem þrír
starfsmenn verða. Einnig verða
starfsstöðvar á Akureyri og Reykja-
vík en til að byrja með starfa rúm-
lega 20 manns hjá fyrirtækinu.
Nokkur ávörp voru flutt við opn-
unina. Meðal ræðumanna voru
Rúnar Sigurðsson stjómarformað-
ur, Hjörleifur Einarsson frá Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins, Karl
Friðriksson frá Iðntæknistofnun,
Gunnar Leó Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Origo, Bjarki Jó-
hannesson, forstöðumaður þróunar-
sviðs Byggðastofnunar og Herdís
Sæmundardóttir, formaður byggða-
ráðs Skagafiarðar. Herdís fagnaði
því að svo framsækið, nútímalegt
fyrirtæki, hæfi starfsemi á svæðinu
og óskaði því vegs hins mesta. Aðr-
ir þeir er töluðu tóku í sama streng.
-ÞÁ
Jenið upp en evran niður
Tilgátur um að Seðla-
banki Japans myndi
selja jen í fimmta skipt-
ið í röð hækkaði gengi
dollars töluvert í gær.
Gengið náði hæst 122,36
á móti jeni en endaði í
121,8 undir lok við-
skiptadags. Þetta kom
fram á 1/2 5 fréttum
Búnaðarbankans í gær.
Vísbendingar um að næststærsta
hagkerfi heims, Japan, sé að ná sér
á strik hefur hvatt erlenda fiárfesta
til að kaupa jen undanfarið til að
fiármagna kaup á japönskum hluta-
bréfum. Auk þess hafa japanskir
fiárfestar í auknum mæli verið að
færa fiárfestingar sínar aftur til
Japans. Þetta tvennt hefur stuðlað
að þeirri styrkingu jensins sem
raun ber vitni. Þessu hefúr Seðla-
banki Japas verið aö berjast á móti
því stjórnmálamenn þar telja að
efnahagur landsins sé ekki enn til-
búin fyrir styrkingu jensis.
Misheppnuð ummæli
Evran hefur verið að styrkjast
nokkuð undanfarið en tók dýfu í lok
gærdagsins vegna misheppnaðra
ummæla seðlabankastjóra Frakk-
lands. Hann sagði að evran ætti
mikla möguleika á að styrkjast að
nýju en svo virðist sem fátt hafi
verið þessum ummælum til stuðn-
ings. Svo virðist því sem evrópskir
fiárfestar séu orðinir hundleiðir á
ummælum evrópskra ráðamanna
og vilji einfaldlega sjá árangur í
þeim efnahagsaðgerðum og umbót-
um sem verið er að stuðla að með
vaxtalækkunum og skattalækkun-
um. Fyrr fara þeir ekki að hafa trú
á varanlegri styrkingu evrunnar.
BGB og Hólmadrangur sam-
einast
Sfiómir BGB hf. og Hólmadrangs
hf. hafa undirritað viljayfirlýsingu
um að stefnt skuli að sameiningu fyr-
irtækjanna. í yfirlýsingunni, sem
undirrituð
var í fyrradag,
segir að stefnt
skuli að
áframhald-
andi rekstri í
landi á þeim stöðum sem fyrirtækin
reka í dag, þ.e. fiskvinnslu á Ár-
skógssandi og Drangsnesi, fiskþurrk-
un á Dalvík og rækjuvinnslu á
Hólmavík. Jafnframt segir að stefht
skuh að því að samræma skipastól
félagsins þeim veiðiheimildum sem
félagið hefur en sameiginleg úthlut-
un þeirra við upphaf yfirstandandi
kvótaárs nam um 7.000 þorskígild-
um. Þetta kom fram í Viðskiptavef
Vísis.
Þyngri fjármögnun
Ávöxtunarkrafa skuldabréfa í
Bandaríkjunum hefur vaxið töluvert
að undanfómu. Helsta ástæðan er
ótti við vaxtahækkanir. Þetta hefur í
fór með sér þyngri og erfiðari fiár-
mögnun fyrir fyrirtæki. Ávöxtunar-
krafa ríkisskuldabréfa fór í 6,14% í
gær sem er hærri krafa en lengi hef-
ur sést.
Asíukreppan brátt á enda
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagði á
fúndi í gær að asísk hagkerfi ættu að
ná sér á strik innan árs. Hubert
Neiss, Asíusfióri Aiþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sagði að aðgerðir sjóðsins
væm greinilega að virka en sagöi
jafnframt að hagvöxturinn væri
brigðull. Hann hvatti til frekari
framfara í banka- og lagakerfum.
Slíkt gæti leitt til stöðugs hagvaxtar.
Yfirtekur
Volkswagen
Scania?
Nú er talið
líklegt að þýski
bílaframleið-
andinn Volkswagen AG muni gera
yfirtökutilboð í sænska trukkafram-
leiðandann Scania AB. Þjóðverjamir
em þegar famir að ræða við helstu
hluthafana í Svíþjóð.
Góð afkoma Strengs
Afkoma hugbúnaðarfyrirtækisins
Sfrengs hf. var mjög góð á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs en 22,5
milljóna króna hagnaður varð af
starfsemi félagsins eftir skatt. Hagn-
aður sem hlutfall af veltu var þvi
tæplega 14% á fyrstu þremur mánuð-
um ársins. Hagnaður tímabilsins er
ívið meiri en allt árið í fyrra þegar
Strengur var rekinn með 29,8 millj-
óna króna hagnaði. Þetta kom fram á
viðskiptavef Vísis í gær.
Viltu öruggan sparnað sem er
eignaskattsfrjáls?
Sjóður 5 er sérsniðinn fyrir þá sem vilja spara til
lengri tíma á öruggan, þægilegan og hagkvæman
hátt. Hann fjárfestir einungis í ríkisskuldabréfum og
er því eignaskattsfrjáls. Hann er alltaf innleys-
anlegur og nafnávöxtun undanfarin 2 ár hefur verið
9,3% að meðaltali. Hægt er að kaupa í honum í
áskrift eða fyrir hvaða upphæð sem er. Kostir Sjóðs
5 eru fjölmörgum fjárfestum kunnir enda er hann
næststærsti verðbréfasjóður landsins með 7.270
milljónir kr. (VÍB Sjóður 7 er stærstur).
VIB
VERÐBREFAMARKAÐURISLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi • 155 Reykjavík
Sími: 560 89 00 • Myndsendir: 560 89 10
Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is
1