Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
7
Fréttir
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Sveigjanlegur opnunartími:
Tóm þvæla
hjá Helga
Hjörvari
Pólskar fiskvinnslukonur á Þingeyri. Þær óttast að þurfa að leita sér að nýrri vinnu.
DV-mynd Teitur
- segir Guölaugur Þór
Þingeyri:
Heimafólk óttast um
afdrif byggðarlagsins
DV, Þingeyri:
„Viö vitum ekki hvað er að gerast
hjá stjóm fyrirtækisins eða hvort hún
kann að hafa einhver úr-
ræði til að'halda áfram
rekstri frystihússins. Ég
get ekki neitað því að ég
er ansi svartsýnn," sagði
Guðmundur Ingvarsson,
stöðvarstjóri íslandspósts
á Þingeyri, í samtali við
DV á Þingeyri í fyrradag
um stöðvun frystihússins
á staðnum. Þingeyringar
eru að vonum slegnir yflr
ástandi atvinnumálanna
í kjölfar þess að rekstur
Rauðsíðu á frystihúsinu
hefur stöðvast. Um tvö ár
em síðan Rauðsíða hóf
vinnslu á Rússafiski í
frystihúsinu en fram til
þess tíma hafði það verið
lokað í hátt í eitt ár í kjöl-
far þrots kaupfélagsins á staðnum. Að-
eins um 200 tonna kvóti er í eigu út-
gerða á Þingeyri. Heimamenn óttast að
ef engar aðgerðir fara í gang þegar í
stað til að tryggja áframhaldandi rekst-
ur frystihússins með einhvetjum hætti
flosni fólk einfaldlega upp og hverfi al-
farið á brott úr þorpinu og því blæði
hratt út. Nokkrir húseigendur hafa
sett húseignir sínar á söluskrá og ný-
lega seldi ein flölskylda einbýlishús
sitt fyrir sem svarar fjórðung þess
verðs sem sambærilegt hús kostar á
höfúðborgarsvæðinu.
Stór hluti vinnuaflsins i frystihús-
inu hefúr verið Pólverjar og um 50
ar færi allt á versta veg á Þingeyri.
Margir Pólveijanna sögðust vera á leið
í sumarfri sem þeir ættu inni en
myndu leita á ný mið þegar því lyki,
hefði þá ekki greiðst úr málum frysti-
hússins á Þingeyri. -SÁ
„Þetta er tóm þvæla hjá Helga.
Menn hafa ekki unnið heima-
vinnuna sína,“ segir Guðlaugur
Þór Þórðarson um skýringar
Helga Hjörvars á töf á fram-
kvæmd þess veitingastaða hafi
opið sveigjanlega. Helgi sagði að
ástæðan væri að mikill fjöldi um-
sókna um slík vínveitingaleyfi
hefði borist.
„Það var ákveðið í vinnuhópi
sem ég sat í ásamt Helga að til-
raunin hæflst snemma í vor en
ekkert hefur gerst. Sú afsökun að
málið hafi tafist vegna þess að
umsóknir séu svo margar stenst
ekki þar sem fjöldi þeirra lá fyrir
sl. haust,“ segir Guðlaugur. -rt
Matgorzata Sarnaska og Valdís Bára Kristjánsdóttir,
formaður verkalýðsfélagsins á Þingeyri, í hópi pólsks
fiskvinnslufólks í fyrradag í matsal frystihússins á Þing-
eyri. Starfsfólkið bíður þess að örlög frystihússins á
staðnum verði ráðin. DV-mynd Teitur
þeirra búa að staðaldri á Þingeyri. í
samtölum sem DV átti við þá i fyrra-
dag kom fram að komist reksturinn
ekki gang að nýju hverfl þeir á braut
og leiti sér vinnu annars staðar. Það
mun hafa í for með sér mikla röskun í
'byggðarlaginu og svo dæmi sé tekið
koma hart niður á tveimur mat- og ný-
lenduvöruverslunum þorpsins. Pólska
fiskvinnslufólkið sagðist við DV ekki
vera á heimleið til Póllands heldur
hygðist það leita fyrir sér annars stað-
Vínveitingaleyfi Keisarans viö Hlemm:
Nágrannar vilja
staðinn burt
Nágrannar veitingahússins Keis-
arans við Hlemmtorg vilja staðinn
og viðskiptavini hans á bak og burt.
Þeir hafa kvartað undan veitinga-
húsinu og farið þess á leit við
Reykjavíkurborg að endurnýja ekki
vínveitingaleyfl þess. Trygginga-
stofnun og starfsfólk hennar hafa
m.a. ritað borgaryfirvöldum bréf
þess efnis. Jafnframt hefur Trygg-
ingastofnun gert eiganda Keisarans
kauptilboð í húsnæði staðarins sem
hefur verið hafnað. Gunnar Þor-
láksson, skrifstofustjóri hjá Reykja-
víkurborg, staðfesti í samtali við
DV að þrýstingur væri á sveitarfé-
lagið að afturkalla vínveitingaleyfi
staðarins.
Gunnar segir að fyrir dyrum
standi að endurnýja leyfi Keisarans
til áframhaldandi rekstrar í núver-
andi mynd. Jákvæðar umsagnir
byggingarfulltrúa, heilbrigðiseftir-
lits og lögreglu liggi þegar fyrir
þannig að lítið vanti annaö en um-
sögn eldvamaeftirlits til að hægt sé
að afgreiða málið af hans borði til
borgarráðs sem síðan afgreiðir það
endanlega. Gunnar sagði að af-
greiðslu borgarráðs væri að vænta í
fyrsta lagi 6. júlí en líklega þó ekki
fyrr en 13. júlí. -SÁ
Tágasett í sólskálann -
Furusett í sælureitinn - aðeins kr. 19.760,- stgr.
Stóllíim
Alvöru útigrill - aðeins kr. 59.945,- stgr.
Smiðjuvegi 6D • Rauð gata
200 Kópavogur • Sími 554 4544