Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgafustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON Og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aöstoöarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. rn. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Röng ákvörðun leiðrétt
Úrsögn úr Alþjóða hvalveiðiráðinu árið 1991 er ein vit-
lausasta ákvörðun sem íslendingar hafa tekið í sjávarút-
vegsmálum. Með útgöngu var í raun komið í veg fyrir að
íslendingar gætu komið sjónarmiðum sínum á framfæri og
unnið málstað sínum - hvalveiðum - fylgi. Vegna þessa
hafa ekki verið stundaðar hvalveiðar við landið, þrátt fyr-
ir tilraunir nokkurra alþingismanna í gegnum árin að fá
stjórnvöld til að leyfa veiðar.
Mikill meirihluti íslendinga er því fylgjandi að hvalveið-
ar verði hafnar hér við land að nýju, þó ekki sé ljóst hvaða
veiðar menn vilja stunda. í skoðanakönnun DV í mars sl.
kom þetta berlega í ljós. Sama könnun sýndi hins vegar að
andstæðingum hvalveiða fer fjölgandi, enda gífurlegir
hagsmunir í húfi, ekki síst hjá ferðaþjónustunni sem tek-
ist hefur að gera lifandi hval að auðlind. Á sex árum hef-
ur andstæðingum hvalveiða fjölgað úr 8,5% í 22,6%.
Við íslendingar getum aldrei afsalað rétti okkar til að
nýta auðlindir hafsins, þess vegna er það spuming um
hvenær en ekki hvort hvalveiðar verða hafnar á ný, enda
benda öll vísindaleg rök til þess að flestir hvalastofnar við
landið þoli veiði ágætlega. Hitt er hins vegar rétt að þeir
hagsmunir sem eru í húfi eru miklir og áhrif hvalveiða á
viðskiptahagsmuni okkar erlendis geta orðið alvarlegir sé
ekki rétt á spilum haldið.
Hvalveiðar verða ekki hafnar við ísland á næstunni
þrátt fyrir samþykkt Alþingis um að bann við veiðum
standi ekki lengur - ríkisstjórninni var falið að undirbúa
veiðar þannig að þær geti hafist sem fyrst. Skynsamlegast
fyrir okkur íslendinga er að ganga aftur til liðs við Alþjóða
hvalveiðiráðið, með það yfirlýsta markmið að hefja hval-
veiðar, enda merki um að raddir skynseminnar séu að
styrkjast innan ráðsins.
Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur nýlega gefið til
kynna að breytinga sé að vænta varðandi afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til hvalveiðiráðsins. Þar með hefur forsætis-
ráðherra opnað á þann möguleika að ísland taki aftur þátt
sem fullgildur meðlimur í ráðinu. Skynsemin er þannig að
ná yfirhöndinni.
Réttur til andmæla
Helgasti réttur hvers manns er rétturinn til að tjá hug
sinn og koma skoðunum sínum á framfæri með friðsamleg-
um hætti. Mikilvægasta hlutverk löggjafans og fram-
kvæmdavaldsins er að tryggja þennan rétt.
Þrir ungir menn töldu sig knúna til þess að taka sér
stöðu á Austurvelli á liðnum þjóðhátíðardegi til að mót-
mæla veru íslands í NATO. Nú er það í sjálfu sér aðdáun-
arvert af þessum ungu mönnum að berja hausnum við
steininn í baráttunni gegn Atlantshafsbandalaginu, en það
hlýtur að vera nöturlegt að berjast fyrir málstað sem sagan
hefur fyrir löngu dæmt rangan. En réttur þeirra félaga til
að láta skoðun sína í ljós með friðsamlegum hætti - jafnvit-
laus sem hún annars er - er ótvíræður og óumdeildur.
Þegar lögreglan telur sig knúna að handtaka mótmælend-
ur sem nýta sér helgan rétt er eitthvað orðið að í íslensku
þjóðfélagi eða skiptir máli hvaða skoðunum menn vilja
koma á framfæri þegar þjóðarleiðtogar koma saman á Aust-
urvelli?
„Ég er andvígur því sem þú segir en ég mun verja upp á
líf og dauða rétt þinn til að halda því fram,“ sagði Voltaire.
Þjóðhátíðardagur okkar íslendinga er ekki hátíðisdagur
þeirra sem hafa rétt fyrir sér heldur allra íslendinga, sem
sameiginlega geta fagnað því að þrátt fyrir allt ríkir hér
mál- og skoðanafrelsi. íslendingar eiga öðrum þjóðum frem-
ur að tileinka sér orð franska rithöfundarins.
Óli Bjöm Kárason
Fólkið á landsbyggðinni er þar komið vegna fisksins, sem enn stendur undir velferðinni og allir landsmenn
njóta góðs af. Hér er mynd frá Þingeyri þar sem glímt er vlð erfiðan rekstur fiskiðjunnar. DV-mynd Teitur
Samúðarlausa
Þórunn
Kjallarinn
Guðmundur
Ingvarsson
stöðvarstjóri Þingeyri
lánum að sunnan til
fyrirtækjanna, ríkið á
aö sjá um afkomuna,"
kveður Þórunn hin
samúðarlausa. Það er
nú svo, Þórunn. Menn
freistast til þess að
sækja peningana
þangað sem þeir hafa
safnast. Peningaveld-
ið er nú einu sinni á
höfuðborgarsvæðinu.
Á hverju stendur
Þórunn samúðar-
lausa?
Þórunn hefur líka
áhyggjur af því að
Vestfirðingar séu
ómagar á ríkinu. „En
það er ekki það
„Vonandi myndast aldrei grátkór
af völdum hamfara í þéttbýli ís-
lands, þar sem stærstur hluti
þjóöarinnar býr.u
Samúðarlaus kona,
Þórunn að nafni,
ryðst fram á ritvöll-
inn í DV daginn fyrir
þjóðhátíðina og hirtir
okkur Vestfirðinga
svo undan svíður.
Fyrirsögn greinar-
innar er: Aurskriður
ef ekki snjóskriður. í
þessari grein stend-
ur: „Ég verð að segja
fyrir mitt leyti að ég
hef ekki nokkra sam-
úð með þessum ibú-
um Vestfjarða, sem
eru að kvarta og
kveina yfir illu ár-
ferði af mannavöld-
um. Þarna er það
fiskurinn sem öllu
ræður.“ Þórunn hittir
naglann á höfuðið. í
sjávarbyggðum Vest-
fjarða er það einmitt
fiskurinn sem ræður.
Fiskurinn ræður víð-
ar á landi hér. Fiskur-
inn ræðiu- öllu þjóð-
arbúinu að heita má,
ekki síst á lands-
byggðinni. Hvernig skyldu svo
sjávarþorp eða sjávarútvegsbæir
hafa orðið til? Jú, þessir staðir
uxu upp í kringum fískinn. Land-
búnaður, iðnaður og þjónusta
koma svo í kjölfarið.
Vestfirðingar eru kunnir fyrir
að veiða fisk, gera það enn þá og
munu trúlega gera svo lengi sem
þeir mega. Vestfirðingar hafa
löngum unnið í fiskvinnslunni og
gera enn. Útlendingar hafa þar
einnig komið við sögu og reynst
vel, getið sér gott orð og verið
aufúsugestir. Þeir hafa þar með
staðið að verðmætaaukningu í
þjóðfélaginu sem hefur komið íbú-
um landsins vel, líka Þórunni
samúðarlausu.
„íbúamir bíða svo í ofvæni eftir
versta,“ heldur hún áfram. íbúam-
ir búa við sífellda hættu af völdum
náttúrunnar. „Ef það eru ekki
snjóskriður, þá aurskriður og eng-
inn vill kannast við að þarna er
ekki búandi vegna hættuástands á
allar hliðar".
Ef ég gef mér það, Þórunn, að þú
búir á suðvesturhorninu, hefur þú
þá aldrei leitt hugann að því að þú
kynnir að búa í glerhúsi, þegar
kemur að því að ræða hættur af
völdum náttúrunnar. ísland er
land náttúruhamfara og má neftia
að á einni nóttu loguðu eldar um
byggð Vestmannaeyja ekki alls
fyrir löngu. Hefur þú, Þórunn, þá
gert þér grein fyrir því á hverju þú
stendur. Eldvirkni er i jaðri höfuð-
borgarsvæðisins. Það er talað um
Suðurlandsskjálfta, ekki hvort
hann komi, heldur hvenær.
Náttúruöflin búa svo sannarlega
líka þarna og spyrja ekki um hvar
eða hvenær þau láta til skarar
skríða.
Vonandi myndast aldrei grátkór
af völdum hamfara í þéttbýli ís-
lands, þar sem stærstur hluti þjóð-
arinnar býr. Mín skoðun er sú að
það eitt nægi sem ég hef hér nefnt
um hugsanlega hættu af völdum
náttúmnnar til þess að byggð
þurfi að vera um ísland allt. Gæti
allt eins verið að þeir sem búa
samúðarlaust á Vestfjörðum í dag
og mynda meintan grátkór Þór-
unnar gætu komið að gagni við
hugsanlegar slíkar aðstæður.
Hin fróma Þróunn talar um
kveinstafi Vestfirðinga yfir illu ár-
ferði af mannavöldum. Nærtækt
er að nefna hið stórgallaða flsk-
veiðistjórnunarkerfi sem er sann-
anlega mannanna verk. Löggjaf-
inn getur ekki fríað sig af því.
Viturlegri orð ritstjórans
Ég vil að endingu vitna í niður-
lag ritstjórnarpistils ritstjóra
Dagblaðsins í sama blaði og
„skriður falla Þórunnar". Það
hljómar svo, og er miklu vitlegri
lesning:
„Á sama tíma hefur skipulega
verið grafið undan sjálfsbjargarvið-
leitni með því að gera þau verð-
mæti sem sköpuð eru í dreifbýli
upptæk að stórum hluta og flytja
þau á Austurvöll og í Arnarhvál.
Höfuðborgarsvæðið sogar þannig
lífskraftinn úr byggðarlögum sem
annars gætu átt góða lífsmöguleika.
Þingmenn sem telja sig knúna til að
taka til máls í utandagskrárum-
ræðu á Alþingi ættu því að beina
athyglinni að þeirri fjármagns-
ryksugu sem þeir hafa búið til, ein-
göngu svo þeir megi skammta
landsbyggðinni aftur úr hnefa.“
Guðmundur Ingvarsson
Skoðanir annarra
Efnishyggja og græðgi Vesturlandabúa
„En biskup sagði fleira á prestastefnu. Hann and-
skotaðist hressilega á taumlausri efnishyggju og
græögi vesturlandabúa, þeirrar Satans óheftu sam-
keppni sem leiddi einungis til þess að bilið milli fá-
tækra og ríkra í heiminum breikkaði og Afríka sæti
eftir með hungur og hörmungar. Þama mælti hann
enn manna heilastur. Því það eru ekki nema svona
þrir áratugir frá því virtur prestur reit grein í
Kirkjuritið og talaði fyrir því að íslendingar for-
gangsröðuðu í neyðarhjálp og legðu meiri áherslu á
að styrkja Pólverja, sem væru miklu líkari okkur í
flestu tilliti, fremur en sauðsvarta Afríkubúa."
Jóhannes Sigurjónsson i Degi í gær.
Halldór um uppbyggingu í Kosovo
„Utanríkisráðherra hefur lagt áherslu á að reynsl-
an af uppbyggingunni í Bosníu, jafht uppbyggingu
efhislegra verðmæta sem lýðræðislegra stofnana,
muni koma að notum við það umfangsmikla starf
sem fyrir höndum er varðandi Kosovo. Þaö er
ánægjulegt að íslendingar skuli hafa nýtt sér það
tækifæri sem formennskan í Evrópuráðinu er til að
koma að þessum málum með beinum hætti. Það gef-
ur íslensku utanríkisþjónustunni færi á að sýna að
hún standi undir því að taka að sér viðamikil verk-
efni á alþjóðavettvangi og skila þeim með sóma.“
Úr leiðara Morgunblaðsins í gær.
Hámenntaöir starfskraftar DeCODE
„Innkoma íslenskrar erfðagreiningar, dótturfyrir-
tækis DeCODE Genetics Inc., í íslenskt efnahagsum-
hverfi er mikið ævintýri. Mikill fengur er að slíkri
starfsemi fyrir efnahagslíf okkar og að því að hér sé
hægt að skapa arðvænlega framtíð fyrir þann
mannauð sem saman er kominn í starfsfólki fyrir-
tækisins. Af um 240 starfsmönnum félagsins hafa 40
doktorspróf eða læknispróf og 150 aðrar æðri skóla-
gráður."
Viðskiptablaðið í leiðara.
Næst ekki til þeirra stóru
„Aldrei heyrast fréttir af handtöku þeirra sem
fjármagna eiturlyfjasöluna en til þess að kaupa lyfin
þarf mikið fjármagn sem litlu mennimir í bransan-
um hafa ekki yfir að ráða.“
Brynjólfur Brynjólfsson ræðir um fíkniefnamarkað-
inn í Degi á fimmtudag.