Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
25
Myndasögur
3
>
X
Veiðivon
Sæmundur Kristjánsson og Gísli Ólafsson voru við veiðar í Laxá á Ásum á
dögunum ásamt Finni Sæmundssyni. Myndin var tekin við Fluguhyl en alls
hafa veiðst um 35 laxar í Ásunum það sem af er verttðinni.
DV-mynd G.Bender
Jökulhlaupið við Hagavatn:
Menn halda
enn í vonina
- staðan betri en á horfðist í fyrstu
„Staðan hér er betri en á horfðist
í fyrstu. Menn halda jafnvel að þetta
verði í lagi í sumar en þó er
kannski of snemmt að segja til um
það,“ sagði Ágúst Morthens í
Veiðisporti á Selfossi i samtali við
DV í gær.
Fyrsti laxinn á stöng veiddist í
fyrradag í Ölfusá og lifnaði þá yfir
mönnum í kjölfar jökulhlaupsins
við Hagavatn. Útlitið var slæmt um
tíma en síðustu dagana hefur vatn
minnkað stórlega í ánni og svo virð-
ist sem áin hafi einnig hreinsast
töluvert. Ekki eru margir dagar síð-
an klappir við ós Ölfusár voru hvít-
ar af leirdrullu.
Laxinn hefur gengið í Ölfusá því
samkvæmt heimildum DV höfðu
um 60 laxar veiðst í netin við Sel-
foss í gær. Var sá lax bjartur og fal-
legur og ekkert athugavert að sjá
við flskinn.
Enn er of snemmt að segja til um
hvort veiði verður með eðlilegum
hætti í sumar í Ölfusá, vatnasvæði
Hvítár og hliðarám hennar og má
þar nefna Sogið og Stóru Laxá í
Hreppum. Verið getur að hlaupsins
Veiðivon
G. Bender
sé ekki enn farið að gæta að fullu en
menn sem DV ræddi við í gær eru
frekar á þeirri skoðun að áhrif
hlaupsins væru þegar komin fram
að fiillu.
Ekki er enn hægt að fullyrða
hvort veiði verður með eðlilegum
hætti í sumar. Laxinn verður blind-
ur er hann gengur í mengað vatnið
og því getur hann hafa ratað í netin
þótt blindur væri. Frekar er að
marka hvemig veiðin gengur á
stöng og enn hefur aðeins einn lax
veiðst við Selfoss og í gær fréttist af
þremur eða fjórum veiddum löxum
við Langholt.
„Ég hef rætt þetta ástand við
kunnuga menn hér um slóðir og
þeir telja að seiðabúskapur hafi
ekki beðið tjón vegna hlaupsins.
Vonandi hafa þeir rétt fyrir sér. Ölf-
usá er enn að minnka og menn eru
bjartsýnir á að þetta sé að falla í
eðlilegt horf,“ sagði Ágúst Morthens
ennfremur.
11 fiskar í Volanum
í gær var Ari Kristjánsson við
veiðar í Volanum og fékk hann 11
fiska á stuttum tíma, 1-3 pund. Um
var að ræða urriða og bleikju og var
mikið af fiski.
„Veiðimaðurinn var svo ánægður
með gang mála þegar hann hringdi
í mig að hann pantaði annan dag
samstundis," sagði Ágúst Morthens
við DV í gær.
20 punda fiskur úr Haffjarð-
ará
Erlingur Arnarson veiddi í fyrra-
dag 20 punda lax í Haffjarðará og er
það stærsti laxinn úr ánni í sumar.
Opnunarhollið veiddi 21 lax og
var stærsti fiskurinn 13 pund. Að-
eins var veitt á fjórar stangir og var
áin vatnsmikil og yfirborð hennar
mun hærra en vant er. Lax er i Haf-
fjarðará frá Kvörninni og niður úr.
Laxá í Dölum og Leirvogsá
opnuðu í mörgun
Veiði hófst í morgun í Laxá í Döl-
um og Leirvogsá. Reikna má með
góðri veiði í þessum ám í sumar.
Ungir veiðimenn með góðan afla.
DV-mynd G.Bender
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
IINTER
ccnByr
I
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is
t