Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 28
M
jöim
jöker
f
f
j j
*____í„ t.í
jj
yj o ú l a
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í sTma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, OHAÐ DAGBLA
FOSTUDAGUR 25. JUNI 1999
„Það er 1 gangi mikið baktjalda-
makk og málin að geijast en á mánu-
daginn verður fundur í framkvæmda-
stjóminni þar sem þetta mál verður til
umræðu," sagði einn úr framkvæmda-
stjóm VSÍ í morgun, sem ekki vildi
láta nafns síns getið. Hann sagði að
þau nöfn sem heyrðust nefnd í sam-
bandi við framkvæmdastjórastöðu VSÍ
væra Óskar Magnússon og Hannes
Sigurðsson aðstoðarframkvæmdastjóri
i dag. -JBP
Eldur kom upp í gallageymslu í J.
Hinrikssyni hf i gær. Talsverður eldur
var þegar slökkviliðið kom á staðinn.
Starfsmenn J. Hinrikssonar börðust
við eldinn og náðu að koma í veg fyr-
ir að hann bærist í sjóminjasafn sem
er á staðnum. Fimm starfsmenn
voru fluttir á slysadeild með vott af
reykeitrun en hún reyndist ekki al-
varleg. DV-mynd HH
Teknir með byssu
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði bíl
sem í voru þekktir einstaklingar í eitur-
lyfiaheiminum. Við leit lögreglunnar í
bílnum fannst 9 mm skammbyssa og
talsvert magn af skotfærum. Lögreglan
gerði vopnið upptækt og tók einstak-
lingana til yfírheyrslu. Að sögn lögreglu
færist það í vöxt að þeir sem braski með
eiturlyf séu vopnaðir. -EIS
I Helgarblaði DV er viðtal við
Árna Steinar Jóhannsson, lands-
lagsarkitekt og garðyrkjufræðing,
sem er fyrsti samkynhneigði ein-
staklingurinn sem kjörinn er til
þingmennsku á íslandi. Spjallað er
við Valgarð Bragason, sem vinnur
við að dreifa plakötum um nætur,
fjallað um átök Landssímans og
rSamkeppnisstofnunar, auk þess sem
litið er á stöðuna í Tyrklandi þar
sem lögregluhleranir og nektar-
dansmeyjar eru í brennidepli.
VERPUR NOKKUÐ A
TALI HJÁ GUÐMUNDI?;
I tilefni af þvi að Reykjavík er ein af menningarborgum Evrópu hefur borgin ýtt úr vör hreinsunarátaki. Á Skólavörðu-
holtinu í gær fór fram hátíð í tilefni átaksins. Vel fór á með þeim Guðlaugi Þór borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og
Helga Péturssyni borgarfulltrúa R-listans og ekki var að sjá að þar færu menn úr andstæðum fylkingum.
Leikskólahátíð
Börn á leikskólum í Kópavogi
skemmtu sér í Hlíðargarði í gær
þar sem sýnd voru leikrit,
sungið og farið í leiki þrátt fyrir
rigninguna. DV-mynd E.ól.
Nýtt skipurit Landssímans og Þórarinn V. verður forstjóri:
afram sem raðgjafi
og víkur af forstjórastóli í dag. Starfslok hans hafa átt langan aðdraganda
A stjómarfundi hjá Landssíman-
um í dag verður lögð fram tillaga um
að Þórarinn Viðar Þórarinsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands, taki við forstjóra-
starfi fyrirtækisins samhhða skipu-
lagsbreytingum innan fyrirtækis.
Ekki er talinn vafi á að tillagan verði
samþykkt enda mun málið eiga sér
langan aðdraganda. Guðmundur
Bjömsson, núverandi framkvæmda-
stjóri Landssimans, mun, samkvæmt
heimildum DV, hafa sæst á þessi
málalok og hugmyndin er að hann
taki að sér ráðgjafarstörf fyrir Lands-
sfmann undir stjóm Þórarins V.
Guðmundi er því í raun ýtt til hliðar
en hann ekki rekinn svo sem látið
var liggja að í fíölmiðfum i gær.
Hann var í vinnu sinni í gær á for-
stjóraskrifstofunni en gert er ráð fyr-
Þórarinn Viöar Guðmundur
Þórarinsson, verð- Björnsson, fráfar-
andi forstjóri. andi forstjóri.
ir að hann pakki saman í dag og færi
sig um set. Mikil óvissa var í morg-
un hjá helstu stjómendum Landssím-
ans og fæstir vissu stöðu sína eftir að
stjómarformaðurinn tekur við fram-
kvæmdastjóm fyrirtækisins.
Það er Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra sem framfylgir þess-
um breytingum og fer í raun með öll
Sturia Böðvarsson
fer með öll völd.
Friðrik Pálsson.
völd í fyrirtækinu sem handhafi eina
hlutabréfsins.
Friðrik Pálsson, stjómarformaður
SÍF, verður næsti stjómarformaður
Landssímans og Þórarinn V. Þórar-
insson verður næsti forsfíóri fyrir-
tækisins. Samkvæmt ömggum heim-
ildum DV verða ekki aðrar breyting-
ar gerðar á sfíóm símans.
Ekki pína mig
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra varðist allra frétta af málinu
þegar DV ræddi við hann i morgun.
„Af eðlilegum ástæðum get ég ekki
fíáð mig um máhð á þessari stundu.
Aðspurður um Þórarin V. sem næsta
forstjóra kvaðst Sturla ekki vhja
segja neitt um það atriði.
Guðmundur Bjömsson, fráfarandi
forsfíóri, kvaðst í morgun ekki hafa
tjáð sig um þetta mál við neinn fíöl-
miðil og sagðist ætla að standa við þá
afstöðu. Aðspurður um hvort hann
yrði áfrarn hjá Landssímanum og þá
i ráðgjafastöðu sagði hann: „Þú færð
ekki svar við þessu heldur." Spurn-
ingunni um að hvort hann yfirgæfi
forsfíórastólinn í sátt ef til þess kæmi
svaraði hann: „Ekki pina mig meira
í þessu.“ -rt/JSS/EIS
Veðrið á morgun:
Víöast hæg-
viðri og
rigning
A morgun lítur út fyrir að
verði austlæg átt á landinu, mjög
hæg, eða 3-6 metrar á sekúndu.
Rigning eða skúrir verða um
mestaht landið. Mesta úrkoman
verður á austanverðu landinu en
skúrir annars staðar og úrkomu-
laust á Vestfíörðum. Hiti verður
9-12 stig, hlýjast vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 29.
12°
12°\
*
Vöru- og kranabíiar
Símar 567 4151 & 567 4280
, Heildverslun með leikfong og gjafavörur
Guðmundur starfar \
i