Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Side 1
15
Sígþöi Júliussön, KR
inguf, okyiiii að marki
Fi arn í leik iidpuna í
ggerkyöíci, Jön P,
Sveinsson, fyriiiiði
Ftarnara, fórnar hondum
um ieið og boltinn þýtur
tram hja honum.
DV-mynd PÖK
Norska knattspyrnufélagið Vik-
ing Stavanger hafnaði í gær tilboði
frá austurrísku meisturunum
Sturm Graz í landsliðsmiðherjann
Ríkharð Daðason.
Sturm bauð Viking 60 milljónir
króna en forráðamenn Viking
töldu það ekki nægilega háa upp-
hæð. Þeir höfðu áður hafnað til-
boði frá Hibemian í Skotlandi sem
bauð 30 milljónir í Ríkharð.
„Þeir hjá Viking tilkynntu mér
þetta eftir æfingu í dag, og þar með
er boltinn væntanlega hjá Austur-
ríkismönnunum. Ég hugsa ósköp
lítið um þetta, það þýðir ekki að
láta svona lagað trufla sig. Það er
ekki fyrr en Viking fer að taka
undir einhver tilboð sem ég fer að
spá í eitthvað annað en að spila
hér í Noregi,“ sagði Ríkharður við
DV í gærkvöld.
Ekkert heyrt frá Þýskalandi
Þýsku félögin Karlsruhe og
Stuttgart hafa einnig sýnt Ríkharði
áhuga en hann sagðist ekkert hafa
heyrt þaðan nýlega.
„Það virtist vera nokkur áhugi
hjá Karlsruhe en fyrst liðinu tókst
ekki að komast upp um deild hefði
það ekki verið spennandi kostur
fyrir mig. Ég vil frekar spila í efstu
deild hér en í B-deildinni í Þýska-
landi,“ sagði Ríkharður Daðason.
Hann náði loks að skora fyrir
Viking í fyrrakvöld þegar liðið
vann Álsgárd, 5-0, í norsku bikar-
keppninni. Þá skoraði Ríkharður
tvívegis en hann hefur ekki náð að
skora í fjórum síðustu deildaleikj-
um þrátt fyrir fjölmörg færi.
„Það hefur ekkert gengið hjá
mér að skora að undanfórnu og
það var því gott að ná þessum
tveimur mörkum. Vonandi fer
þetta að koma hjá okkur aftur, við
ætluðum að berjast í efri hluta
deildarinnar en erum bara botnlið
eins og er. Við sækjum Stabæk
heim um næstu helgi, það verður
mjög erfitt gegn Helga, Pétri og fé-
lögum en vonandi komumst við á
sigm-braut á ný,“ sagði Ríkharður
Daðason.
-VS
Sigurður ekki
meira með ÍA
á tímabilinu
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur
leikið sinn síðasta leik með ÍA i úr-
valsdeildinni í knattspyrnu á þessu
tímabili. Hann gekkst undir aðgerð
á hné fyrr í
vikunni og
þarf að taka
sér hvíld í
fjórar vikur.
Sigurður er
samnings-
bundinn
Walsall í
Englandi.
Hann var í
láni hjá ÍA til
23. júlí, en fyrst meiðslin komu til
vilja forráðamenn Walsall fá hann
utan strax eftir næstu mánaðamót.
Hann missir af fyrstu vikum undir-
búningstímabilsins þar og verður
því á mörkunum að hann verði til-
búinn þegar keppni í ensku B-deild-
inni hefst snemma í ágúst.
Sigurður náði aðeins að spila fjóra
deildaleiki með ÍA í ár en er þó
annar af tveimur markahæstu leik-
mönnum liðsins í úrvalsdeildinni
með eitt mark.
-VS