Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1999, Blaðsíða 52
%/ikmyndir
LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1999 JjV
ALVORUBIO! mpolbý
STAFRÆIIIT
srfffiSMrjfllflKMBJ
HLJOÐKERFII
ÖLLUM SÖLUM!
Thx
Sýnd
Sýnd kl. 3, 5,7,9,11.
SIMI 551 6500
h tt p: / v£«Wgavdg|< ÖLtj ° r n u b i o /
uma
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 14
11.
Sýnd kl. 3.
Sími 551 9000
Sýnd Id. 8 oa 11 (um morauninn) 2.5,9 og 11.<
Sýndsud.5,9 og 11.407B.Í. 16 ára.
.40.
PowerA:
Hrukku-
gleypirinn
100% hreint Retinol
Hrukkur, blettir og ýmis húðlýti eru
fylgikvillar þeirrar staðreyndar að
við eldumst. Þrátt fyrir það geta
þessi eðlilegheit ært óstöðugan.
Andlitið er jú sá hluti af okkur sem
fólk kynnist fyrst og það er heldur
óskemmtilegt að húðin þar sé eitt-
hvert klessuverk.
Enda er stöðugt verið að þróa við-
gerðarkrem og áburði til .að bana
áhyggjum kvenna um heim allan.
Það nýjasta frá Helenu Rubinstein
er „Power A,“ hreint Retinol sem
felur í sér tvær formúlur, þá bláu og
þá hvítu. Sú bláa er A-vítamín
palmítat, afleitt óhvarfgjarnt A-
vitamín sem verður að Retinoli þeg-
ar það blandast hvítu formúlunni
sem er ensímhvati.
% Samkvæmt upplýsingum frá Helenu
Rubinstein hraðar Power A frumu-
endumýjun í basallagi húðarinnar
og eykur tramleiðslu á horntrumum
um leið og það kemur jafnvægi á
framuskiptingu. Einnig er það sagt
auka efnaskipti frumunnar þannig
að háræðastarfsemi styrkist og það
hægir á framleiðslu litarefna.
Yfirhúðin verður þéttari og þykkari.
> Hún „gleypir“ krukkumar og brún-
ir blettir tvístrast.
Hydro Urgency:
Fyrir
þyrsta
húð
Það eru óteljandi hlutir sem geta
gert það að verkum að húðin í and-
litinu þomar, verður strekkt, sár og
eldist hraðar; til dæmis rafmagns-
lýsing, þráseta við tölvur, sól, kuldi,
mengun, reykingar (beinar og
óbeinar). Andlitshúðm er alls staðar
nakin og er því undir stöðugu álagi.
Til að verjast ósköpunum hafa kon-
ur brugðið á það ráð að nota raka-
krem sem næra húðina og endur-
nýja og snyrtivöruframleiðendur
eru stöðugt að þróa betri og betri
rakakrem. „Hydro Urgency" er
nýjasta rakakremið frá Helenu
Rubinstein. Það inniheldur tríó
virkra efna úr sjávargróðri;
collagen, shitasane og glycosamino
clycanes. Samkvæmt upplýsingum
frá framleiðanda lagfærir Hydro
Urgency og endurbyggir ysta lag
húðarinnar svo það verður hreint
og skýrt. Þar með nær húðin að
binda þann raka sem þarf um leið
og hún er styrkt og helst í rólegu
ásigkomulagi. Engin erting, enginn
kláði eða sviði, heldur ljómar húðin
úm leið og hún verður mjúk og
fersk.
Gel sem
breytist í
froðu
Eitt af því sem þurrkar og skemmir
húðina er mengun, af bílum, reyk-
ingum og öðru í andrúmsloftinu.
Það er því mikilvægt að hreinsa
hana kvölds og morgna, jafnvel þótt
ekki sé notaður farði. í nýju húðlin-
unni frá Helenu Rubinstein eru
húðhreinsir og andlitsvatn sem
innihalda glycolic-sýru.
Húðhreinsirinn er glært gel sem
breytist í froðu þegar það kemst í
samband við vatn og við notkun er
áferðin því hvorki of kremuð né of
þunn. Yfirborðsóhreinindi hverfa,
húðin djúphreinsast og dauðar húð-
framur eru fjarlægðar.
Andlitsvatnið hefur fljótandi áferð
og er einkar frískandi. Saman
tryggja hreinsirinn og andlitsvatnið
skýrari, ferskari húðlit um leið og
hrukkur og minni háttar lýti jafnast
út og húðljóminn endumýjast. Húð-
in verður styrkari og svitaholur
dragast saman.
í upplýsingum írá framleiðanda seg-
ir að glycolic sé oft notað í húðsjúk-
dómalækningum vegna þeirra ein-
stöku áhrifa sem það hefur á húð-
ina, einkum þegar meðhöndla á
skaða af völdum sólarljóss eða bletti
eftir bólur.
Hreinsirinn og andlitsvatnið inni-
halda bæði 5% af virku glycolic,
sem á að vera rétta hlutfallið til að
tryggja virkni efnisins.
Milljonagella a götunni
Hun fekk heldur betur að reyna það
á dögunum, hún Mariah litla Carey,
að það er nú ekki hægt að kaupa
allt sem hugurinn girnist þótt millj-
ónirnar séu nógar, jafnvel alltof
margar. Að minnsta kosti tryggja
þær ekki aðgang að flnustu
snobbblokkunum í New York. Mar-
ía mátti bíta í það súra epli að vera
hafnað sem íbúa í uppskrúfaða sam-
félaginu í Ardsley-byggingunni þeg-
ar hún ætlaði að kaupa íbúð þar af
Börbru Streisand. Þótt hún eigi sex
hundruð milljónimar sem íbúðin er
metin á og geti borgað á borðið
ákváðu nágrannamir að þeir vildu
ekki sjá þessa lostadrós í sínum
húsum og komu í veg fyrir söluna -
en það geta þeir gert án þess að
þurfa að tilgreina ástæðu. Hins veg-
ar heldur fasteignasalinn, sem
missti þarna af árans góðum pró-
sentum, að milljóna-söngpipan hafl
ekki verið velkomin vegna þess að
hún er ung, kvenkyns og nýfráskil-
in. Það væri of mikið álag fyrir
hjartað í eldri kvensum blokkarinn-
ar sem þætti ógnvekjandi að vita af
mönnum sínum í húslýftunni með
Maríu. Barbra - sem er viðeigandi
vegna þess að hún er gömul og gift -
er sögð æf yfir bullinu í kerlingun-
um, einkum vegna þess að nú þarf
hún að finna annan kaupanda með
Þagna
svipaða greiðslugetu. Þeir ku ekki
standa í röðum fyrir utan blokkina
og þegar skilyrðin eru skoðuð er
ljóst að erfitt getur verið að finna
einhvern sem stenst gæðakröfur
kerlingaklúbbsins. Kaupandinn má
ekki vera ungur, ekki kona, ekki
kynþokkafullur, ekki monta sig af
milljónunum sínum, ekki syngja
hip-hop, ekki ganga í hlýrabolum og
pínupilsi og alls ekki lúlla hjá lif-
verðinum sinum.
lömbin?
Það blæs ekki byrlega hjá þeim sem
græddu mest á kvikmyndinni
Lömbin þagna og ætla að græða enn
þá meira á framhaldinu sem ber
heitið Hannibal. Handritið er í
vinnslu upp úr nýútkominni skáld-
sögu meistara mannætubókmennt-
anna, Thomasar Harris og á kvik-
myndin að verða þrisvar sinnum
dýrari en Lömbin og meiningin var
að vera með sama leikstjórann,
sömu leikarana, sama tækniliðið,
sama kvikmyndaverið, sama allt ...
En leikstjórinn, Jonathan Demme,
ætlar ekki að vera með vegna þess
að ofbeldið í þessari nýútkomnu bók
gekk gersamlega fram af honum.
Þegar hann fór fram á breytingar
sagði höfundurinn nei. Tvær grím-
ur era farnar að renna á Sir Ant-
hony Hopkins sem átti stjömuleik í
fyrri myndinni. „Handritið yrði að
vera mjög gott til þess að ég hefði
áhuga,“ segir hann og Jodie Foster
tekm- í sama streng. Hún bíður með
samþykki sitt þangað til hún hefur
séð handritið. Það sem meira er, þá
er Universal-kvikmyndaverið nú
komið með efasemdir um að splæsa
62,5 milljónum dollara í fyrirtækið.
Vandamálið er sagan sjálf. Menn
kunna ekki að meta það að skvísan,
sem Jodie leikur, verði heilaþvegin
af Hannibal Lecter, verði síðan ást-
kona hans og snæði með honum
heilá úr lögfræðingi.