Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1999, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999
MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 1999
17
Sport
Sport
\BV
Keflavlk - IBV 1-3 ”
Gestur Gylfason -
Allan Mörköre 2,
Guöni Rúnar Helgason
íRreiöablik -
ri-o
Bjarki Pétursson
FH - Stjarnan 0-4
Veigar Gunnarsson 3,
Boban Ristic
Þrottur R.
0-1
Sumarliði
víti
Víkingur
Árnason,
i
ENGLAND
Fjórir í kvöld
Fjórir seinni leikir 16 liða úrslita
bikarsins fara fram í kvöld klukkan
átta. KR og Fylkir mætast i
vesturbænum, Valur og Víðir á
Hlíðarenda, Fram 23 og ÍA á
Laugardalsvelli og Sindri og Haukar
á Hornaflrði. -ÓÓJ
Vandamál hjá meisturum Manchester United:
Fá meistararnir að
sleppa bikarnum?
Svo gæti farið að Manchester
United verði ekki með í ensku bik-
arkeppninni á næsta tímabili. For-
ráðamenn United hafa farið fram á
það við enska knattspyrnusamband-
ið að fá að sleppa við þátttöku í bik-
arnum eða í versta falli að koma
inn í keppnina í 5. umferð.
Ljóst er að með stofnun heims-
meistarakeppni félagsliða verður
álagið á leikmenn liðsins gífurlegt á
næsta tímabili. Leikmennirnir
kvörtuðu sáran undan miklu álagi á
síðasta timabili sem var eitt það sig-
ursælasta í sögu þess en komandi
tímabil verður ekki léttara nema
síður sé. Ef allt leikur í lyndi á
næsta tímabili leikur liðið tæplegaa
80 leiki.
Fyrsta heimsmeistarakeppni fé-
lagsliða verður haldin í Brasilíu í
janúar en þangað er stefnt bestu fé-
lagsliðum heims.
Áður en nokkur endanleg ákvörð-
un er tekin í málinu verður að
skoða allar hliðar þess ofan í kjöl-
inn. Enska knattspyrnusambandið
óttast það ef Manchester United
verður ekki með á mótinu í Brasil-
íu muni líkurnar minnka verulega
á því að heimsmeistarakeppnin
verði haldin á Englandi árið 2006.
England berst m.a. við Þýskaland
um að halda keppnina. Ef United
tekur ekki þátt í HM félagsliða verð-
ur Bayem Múnchen tekið inn í
staðinn sem mótherji enska liðsins í
úrslitum Evrópumótsins í
Barcelona sl. vor.
Það sem Englendingar óttast er
að ef United verður ekki með
myndu möguleikar þeirra til að
halda HM 2006 minnka. Gífurlegir
hagsmunir era í húfi enda hefur
umsókn Englendinga kostað þá
miklar fjárhæöir. Er litið á það sem
áfall fyrir umsókn Englendinga ef
þýska liðið fer til Japans.
Tony Banks, íþróttamálaráðherra
Bretlands, var inntur álits á málinu
á bresku sjónvarpsstöðinni Sky í
gær.
„Ég má ekki til þess hugsa að
United taki ekki þátt í HM félags-
liða þannig að Bayern taki sæti liðs-
ins. Það yrði mikið áfall fyrir um-
sókn Englendinga."
Manchester United nýtur stuðn-
ings enska knattspyrnusambands-
ins sem boðið hefur liðinu að taka
ekki þátt í bikarkeppninni. Þetta
boð hefur fengið misjafnar undir-
tektir hjá ýmsum aðilum. Félagið
sjálft hefur ekki svarað þessu’boði
og skoðanir manna eru mjög skipt-
ar varðandi málið. -JKS/-SK
Stórleikur Veigars
- þegar Stjarnan rúllaöi yfir FH-inga, 0-4, og inn í 8 liða úrslit
0-1 Veigar P. Gunnarsson (8.)
0-2 Veigar P. Gunnarsson (65.)
0-3 Boban Ristic (68.)
0-4 Veigar P. Gunnarsson (86.)
„Þetta var mjög ánægjulegt,
sérstaklega af því að þetta var
fyrsta þrennan mín með
meistaraflokki. Við höfum alltaf
haft tak á FH og þeir eru í raun að
spila ranga leikaðferð gegn okkur.
Það er ekki einu sinni erfitt að
spila á móti þeim. Svo höfum við
verið vel stemmdir undanfarið og
erum komnir á sigurbraut," sagði
Veigar P. Gunnarsson eftir 0-4
sigur á FH i Kaplakrika I
gærkvöld. Auk þrennunnar lagði
Veigar upp ijórða markið og átti
sannkallaðan stórleik.
Það var nokkuð gegn gangi
leiksins þegar Veigar gerði fyrsta
markið á 8. mínútu eftir að
Valdimar Kristófersson hafi
skallað aukaspyrnu Bernhards
Guðmundssonar fyrir fætur
Veigars. Eftir þetta dofnaði
nokkuð yfir leiknum og gerðist
lítið markvert fram að hléi fyrir
utan að FH-ingar fengu tvö
Veigar Páll Gunnarsson.
þokkaleg færi sem ekki nýttust.
Það tók Stjörnuna 20 mínútur að
skora sitt annað mark. Þar var
Veigar aftur að verki eftir að
misheppnað skot Bobans Ristic
hafnaði hjá honum. Eftir það
brustu allar flóðgáttir hjá FH-
ingum. Þremur mínútum síðar
skoraði Rostic eftir fyrirgjöf
Veigars og fjórum mínútum fyrir
leikslok fullkomnaði Veigar
þrennuna þegar hann fylgdi eftir
stangarskoti Sigurðar
Friðrikssonar. FH-ingar voru
nánast heillum horfnir í þessum
leik ef fyrstu mínúturnar eru
undanskildar. Einu mennirnir sem
sýndu lit voru Hallsteinn
Arnarson og Davíð Ólafsson á
miðjunni. Stjörnumenn léku
ekkert sérstaklega í fyrri hálfleik
en réðu lögum og lofum í þeim
síðari. Veigar og Ristic voru mjög
hættulegir saman í framlínunni og
Dragan Stojanovic og Sigurður
Friðriksson voru öflugir á
miðjunni. Vörnin var stundum
óörugg en það kom ekki að sök að
þessu sinni. -HI
Islenska 18 ára landsliðið, hér til
vinstri, varð Norðurlandameistari í
handbolta í gær. Á myndina vantar
þó Fannar Þorbjörnsson, Sverri
Pálmason og Kristján Andrésson.
DV-mynd Óskar .
Eftir úrslitaleik Rangers og Celtic í
skoska bikarnum á dögunum voru
tekin þvagsýni til rannsóknar úr
nokkrum leikmönnum. Niðurstaðan
leiddi í ljós að Alan Stubbs,
leikmaður Celtic, væri meö
alvarlegan sjúkdóm. Við fyrstu sýn
lækna gæti veriö um krabbamein að
ræða en Stubbs verður að gangast
undir ítarlega læknisrannsókn. Hann
var staddur erlendis í sumarfríi með
fiölskyldu sinni þegar honum bárust
tíðindin.
Nicolas Anelka sagði í gær að hann
vildi komast frá Arsenal. Hann
sagðist enn fremur vonast til þess að
mál sín varðandi Lazio skýrðust i
siðasta lagi á fóstudag. Allar líkur
eru taldar á því að hann gangi til liðs
við Rómarliðið.
Svo gœti farið að Stan Collymore
léki með gríska liöinu Panathianikos
frá Aþenu á næsta tímabili.
Samningaviðræður standa á milli
Aston Villa og gríska liðsins.
Hollenski knattspyrnumaðurinn
Pierre van Hoojdonk var i gær
seldur frá Nottingham Forest til
hollenska liðsins Vitesse fyrir 400
milljónir króna. Hoojdonk vakti
mikla athygli á síðustu leiktíð í enska
boltanum er hann fór í nokkurra
mánaða verkfall til að mótmæla því
að forrráðamenn liðsins neituðu að
styrkja liðið með kaupum á sterkum
leikmönnum. -JKS/ -SK
- minnisstæðust frá leik Blika og ÍR
1-0 Bjarki Pétursson (47.)
Ef ekki hefði verið vegna
hinnar einmuna veðurblíðu
sem var á Kópavogsvelli í gær
þegar lið Breiðabliks og ÍR
mættust í 16 liða úrslitum bik-
arkeppninnar, þá hefðu sjálf-
sagt margir áhorfendur verið
búnir að koma sér heim löngu
áður en leiktíminn rann út.
Leikurinn sem liðin buðu upp
á var í heildina séð leiðinleg-
ur. Miðjuþóf og tilviljana-
kenndur sóknarleikur bauð
hvorki upp á spennu, hraða né
annað það sem prýðir
skemmtilegan fótboltaleik.
Algjört jafnræði var með
liðunum í fyrri hálfleik, Blik-
arnir sóttu þó heldur meira og
fengu tvö ákjósanleg færi sem
þeir fóru illa með. Fyrst Marel
Baldvinsson sem skaut langt
fram hjá marki þegar hann
stóð einn og óvaldaður í víta-
teig ÍR og Tómas Ingason
varði vel fast skot Hreiðars
Bjarnasonar á síðustu sek-
úndu hálfleiksins. Bjarni
Gaukur Sigurðsson átti besta
færi ÍR í fyrri hálfleiknum
þegar hann skaut að marki úr
aukaspyrnu, en Atli Knútsson
varði fast skot hans.
Seinni hálfleikur var varla
hafmn þegar Blikarnir höfðu
tryggt sér sigurinn. Kjartan
Einarsson tók hornspyrnu frá
vinstri, þar sem Ásgeir Bald-
urs skaut að marki, boltinn
skoppaði undir Tómas í
marki ÍR og Bjarki Pétursson
fylgdi boltanum í netið á 47.
mínútu. Fátt annað markvert
gerðist í síðari hálfleiknum,
ÍR-ingar sóttu nokkuð í sig
veðrið eftir mark Blikanna en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
Erfiður leikur
„Þetta var erfiður leikur,
þeir eru með gott lið, börðust
vel og lögðu sig vel fram sem
kom fram í þvi að við áttum
erfitt með að spila boltanum.
Það leikur enginn betur en
andstæðingurinn leyfir. Við
höfum ekki náð aftur þeim
takti sem við höfðum í fyrstu
umferðununum í deildinni og
þar er engu um að kenna öðru
en okkur sjálfum, við leggjum
okkur ekki nógu vel fram,“
sagði Hákon Sverrisson, fyrir-
liði Breiðabliks, eftir leikinn.
-ih
Víkingurinn Hólmsteinn Jónasson sést hér umkringdur af Þrótturum í viðureign liðanna í 16 liða úrslltum bikarsins í gær. Hólmsteinn
berst við Þorvald Ásgeirsson um boltann en þeir Þorsteinn Halldórsson, Arnaldur Loftsson og Logi Jónsson horfa á. Á innfelldu
myndinni er Fjalar Þorgeirsson, markvörður Þróttar, á undan Víkingnum Arnari Hrafni Jóhannssyni í boltann. DV-mynd ÞÖK
Mörkin telja
- Keflvíkingar stjórnuðu leiknum en Eyjamenn skoruðu
0-1 Guðni Rúnar Helgason (51.)
0-2 Allan Mörköre (60.)
1-2 Gestur Gylfason (64.)
1-3 Allan Mörköre (69.)
í knattspymunni eru það mörkin
sem gilda - ekki hverjir sækja eða
spila áferðarfallegri knattspyrnu.
Keflvíkingar stjómuðu leiknum svo
til frá fyrstu mínútu til þeirrar síð-
ustu en uppskeran var enginn. Þeir
sitja eftir en Vestmannaeyingar eru
komnir í átta liða úrslitin.
Fyrri hálfleikur byrjaði rólega
Keflvíkingar sóttu af miklum móð
en áttu í erfiðleikum með að skapa
sér færi. Keflvíkingar stjórnuðu
miðjunni en varnarmenn Vest-
mannaeyinga unnu sína vinnu í
vöminni og Birkir markmaður
þurfti sjaldan að taka fram spari-
hanskana. Vestmannaeyingar virt-
ust ekki vera til stórræðanna í upp-
hafi seinni hálfleiks en eins og svo
oft áður skyldi enginn vanmeta
Eyjamenn. Á tíu mín. kafla skoruðu
þeir tvö mörk og komu sér í þægi-
lega stöðu. Keflvíkingar héldu
áfram að sækja og gerðu gott mark
og hefðu hæglega getað jafnað en
góð skyndisókn Eyjamanna gerðu
þá drauma að engu - staðan skyndi-
lega orðin 1-3. Keflvíkingar gáfust
þó ekki upp og á 84. mín. æddi
Kristján Brooks upp hægri kantinn,
skildi Kjartan Antonsson, varnar-
mann Vestmannaeyinga, eftir og
átti skot í stöngina, Marko Tanasic
náði boltanum en á síðustu stundu
komst varnarmaður Eyjamanna
fyrir boltann. Á síðustu mín. leiks-
ins áttu bæði lið góð færi og hefðu
hæglega getað bætt við mörkum.
Rúnar Amarson, formaður Kefl-
víkinga, var ósáttur við úrslitin en
sannfærður um það að miðað við
hvernig leikurinn þróaðist væri
hann hvergi hræddur við leikinn á -
sunnudaginn og þeir færu með þvi
hugarfari í leikinn að þeir ættu
jafna möguleika á að vinna. En enn
þá þyrfti liðið þó að vinna í sínum
málum, þétta vörnina og nýta tæki-
færin í sókninni.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vest-
mannaeyinga, sagði að taktíkin
heföi ekki verið að leggjast í vörn
þótt það hefði verið raunin mestall-
an fyrri hálfleik. Með ákveðnum
breytingum í seinni hálfleik hefði
náðst meiri stöðugleiki í liðið sem
hefði skilað nauðsynlegum sigri.
Varðandi leikinn á sunnudaginn*
væri hann bjartsýnn, en varaði við
of mikilli bjartsýni því Keflvíkingar
væru ávallt erfiðir andstæðingar,
jafnvel þó að Vestmannaeyingr
hefðu farið með sigur á hólmi i Eyj-
um hin síðari ár.
-KS
Veöurblíða
0-1 Sumarliöi Ámason (21.
vítaspyrna).
Víkingur sigraði Þrótt, 1-0, í
bragðdaufum leik á
Valbjarnarvelli í gærkvöld.
Heimamenn hófu leikinn af
miklum þrótti og áttu nokkur færi
í upphafi leiks. Víkingar vörðust
vel og byggðu spil sitt upp á
löngum sendingum. Svo virtist
sem mikið væri í húfi fyrir bæði
lið því ekki var spilaður
áferðarfallegur fótbolti, heldur var
mikið um kýlingar og kapphlaup í
kjölfarið. Á 21. mínútu leiksins
dró til tíðinda þegar Þorsteinn
Halldórsson, fyrirliði Þróttar,
braut á Þrándi Sigurðssyni og var
Jóhann Valgeirsson dómari ekki í
neinum vafa og dæmdi
vítaspyrnu. Sumarliði skoraði
öragglega úr vítinu.
Þróttarar gáfust ekki upp og
héldu áfram að sækja og fengu
ágætt færi strax í kjölfar
marksins. í lok fyrri hálfleiks
vildu svo Þróttarar fá víti er
stjakað var við Ingvari Ólasyni í
teig Víkings, en dómarinn sá
ekkert athugavert við það.
Víkingar komu örlítið beittari
til síðari hálfleiks og sóttu meira
til að byrja með. Sváfnir Gíslason
kom frískur inn á í hálfleik hjá
Vikingum og átti oft góðar rispur.
Þróttarar spiluðu sig smám saman
inn í leikinn og í lokin sóttu þeir
stanslaust að marki Víkinga. Eins
og í síðustu leikjum Þróttar náðu
þeir ekki að skora í gærkvöld
þrátt fyrir nokkur ágæt færi.
„Við vorum sterkari á öllum
sviðum en náðum ekki að skora,“
sagði Þorsteinn svekktur í
leikslok, en hann ásamt Ingvari,
Ásmundi Haraldssyni og Páli
Einarssyni spiluðu vel.
„Ég er nú ekki sáttur við
leikinn. Við náðum ekki að láta
boltann ganga eins og við lögðum
upp fyrirfram. Við vissum að
Þróttararnir kæmu alvitlausir á
móti okkur. Baráttan hjá okkur
var góð og við náðum að halda út
allan leikinn og það var
yndislegt," sagði Þrándur, fyrirliði
Víkings, bombrattur í leikslok.
Þrándur var góður í liði Víkings
ásamt Daníel Hjaltasyni, Amari
Hrafni Jóhannssyni og Lárusi
Huldarsyni. -ÍBE
ísland eignaðist í gær
Norðurlandameistara í
handknattleik. Landslið
skipað leikmönnum 18 ára
og yngri tryggði sér titilinn
með öruggum sex marka
sigri gegn Dönum, 20-26, en
mótið fór fram í Danmörku.
Góður árangur
„Þetta var virkilega góður
árangur og strákarnir léku
mjög vel á mótinu. Við skul-
um vona að þarna sé komið
framtíðarlið og í raun held
ég að það sé alveg klárt. Lið-
ið leikur mjög sterka 3-2-1
vörn, enginn leikmanna er
sérlega hávaxinn en snerp-
an er þeim mun meiri og
vinnusemin. Liðsheildin er
mjög sterk,“ sagði Einar
Þorvarðarson, þjálfari liðs-
ins, í samtali við DV í gær-
kvöld.
Fyrsti í 6 ár
ísland sigraði Svíþjóð
með 30 mörkum gegn 20 í
fyrsta leik mótsins og í
næsta leik tók íslenska liðið
það norska í nefið og sigraði
31-15. í gær vannst síðan
sannfærandi sex marka sig-
ur á Dönum og þar með víir
fyrsti Norðurlandameistara-
titill Islendinga í handknatt-
leik í ein sex ár í höfn.
Stórskemmtilegt mót
„Þetta var stórskemmti-
legt mót og íslenska liðið
stóð sig stórkostlega. Ef vel
verður á málum haldið er
þetta framtíðarlið," sagði
Friðrik Guðmundsson, liðs-
stjóri íslenska liðsins, í sam-
tali við DV í gærkvöld.
Mörk íslands gegn Dön-
um skoruðu þessir leik-
menn:
Jónatan Magnússon, KA
4, Bjarki Sigurðsson, Val, 4,
Valdimar Þórsson, Selfossi,
4, Ingimundur Ingimundar-
son, ÍR, 3, Snorri Guðjóns-
son, Val, 3, Markús
Michaelsson, Val, 3, Róbert
Gunnarsson, Fram, 3, Einar
Hólmgeirsson, ÍR, 1, Sverrir
Pálmason, Gróttu/KR, l.-SK
FramU23-IA
Fellur Skaginn út, annað árið
í röð, fyrir 23 ára liði?
Komið og sjáið Sigurvin
Ólafsson spila. Hittumst í
Framheimilinu kl. 18.30.
Veitingar seldar.
Framherjar.
Bland i poka
Hinn 43 ára gamli Argentlnumaöur
Hector Cuper verður næsti þjálfari
Valencia en í gær skrifaði hann und-
ir tveggja ára samning viö féiagið.
Hann tekur viö starfmu af Claudio
Ranieri sem gerðist þjálfari hjá At-
letico Madrid í fyrradag.
Rayo Vallecano sigraði Extrema-
dura, 2-0, og Sevilla sigraði Villareal,
2-0, í fyrri leikjum liðanna um laus
sæti í A-deild spænsku knattspyrn-
unnar.
Breski kúluvarparinn Paul Eduiards
á yfir höföi sér lífstíðarbann vegna
ólöglegs lyflaáts. Þetta er í annað sinn
sem Edwards verður uppvís að ólög-
legri lyijanotkun og því má víst telja
að refsingin verði bann fyrir Iífstíð.
Einar Þorvarðarson, þjálfari ís-
lenska landsliðsins u-18 ára, og Frið-
rik Guðmundsson liðsstjóri, höfðu í
nógu að snúast. Þeir voru langt fram
á nótt að þvo búninga liðsins en í dag
héldu þeir félagar með u-21 árs liðiö á
opna skandinavíska mótið í Svíþjóð.
Sjö leikmenn úr u-18 ára liðinu fóru
með þeim Einari og Frikrik til Sví-
þjóðar en reikna má með að róður ís-
lenska liðsins verði mjög erfiður á
mótinu enda verið að hugsa til fram-
tíöar.
Þórey Edda Elísdóttir, FH, sigraði
með glæsibrag i stangarstökki á al-
þjóðlegu móti i Finnlandi á dögunum.
Þórey Edda stökk 4,22 metra sem er
hennar besti árangur utanhúss á ferl-
inum.
Vala Flosadóttir, ÍR, stökk 4,05
metra i stangarstökki á móti i Sviþjóð
í gær. Vala reyndi þrívegis við 4,25
metra en tókst ekki að fara yfir þá
hæð.
Franski varnarmaðurinn Laurent
Blanc gekk í gær í raðir Inter Milan
á Italíu frá Marseille. Kaupverðið er
um 210 milljónir króna. Blanc kom til
Marseille frá Barcelona 1997.
Hakeem Olajuwon, miðherji Hou-
ston Rockets til fimmtán ára, gæti
verið á leiðinni til Toronto í NBA-
deildinni i skiptum fyrir tvo leik-
menn (Doug Christie og Kevin Willis)
og tvo valrétti í fyrstu umferð í ár.
Þetta gætu veriö ein athygiisverðustu
skiptin í langan tíma í NBA.
-JKS/-SK/-ÓÓJ
Pro-Am golfmótið:
Sæmundur og
Magnús íDublin
Sæmundur Hinriksson og Magnús
Þórarinsson verða keppendur fyrir
íslands hönd á Pro-Am golfmótinu
sem haldið verður í Dublin á írlandi
og hefst í dag. Umrætt mót er opnun
á írska meistaramótinu sem stendur
yfir dagana 1.-4. júlí. Magnús og Sæ-
mundur unnu sér þátttökurétt á
mótinu með sigri á móti í Dublin í
fyrrahaust á vegum írska ferða-
málaráðuney tisins.
Mótið fer fram á Druid’s Glen golf-
vellinum og hefja þeir félagar
keppni rétt eftir hádegi í dag.
-JKS
íslands varð Norðurlandameistari í handbolta í gær eftir frábæra frammistöðu
Héldum út
- sagði Þrándur Sigurðsson, fyrirliði Víkinga