Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Page 1
LAUGARDAGUR 3. JULI 1999 riCTBIIflR l:,,_ „ ,, .í-\4Jv.| H ■ Bi n ■■ wmm 'k-. Nýtt bílaumboð bætist í íslensku bílaflóruna um þessa helgi því Bíla- búð Benna hefur tekið við umboði fyrir Porsche á íslandi og sýnir fyrstu bílana í sýningarsalnum núna um þessa helgi. Blaðamenn fengu forkynningu á Porsche 911 Carrera 4 á flugvellin- um á Egilsstöðum fyrir vikú en formleg frumsýning var haldin fyrir valda gesti í Listasafni íslands í fyrradag, að viðstöddum Jens Putt- farchen, framkvæmdastjóra Evr- ópudeildar Dr. Ing. h.c. F. Porsche Aktiengesellschaft, en svo heita verksmiðjurnar fullu nafni. Bene- dikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna og Jens Puttfarchen afhjúpuðu nýj- ustu gerðirnar, Boxter og 911 Car- rera 4. Að sögn Benedikts Eyjólfssonar hafði það nokkurn aðdraganda að Porsche 911 Carrera 4 verður til sýnis hjá nýju umboði, Bílabúð Benna, um helgina. Nýtt bílaumboð kynnt um helgina: I Porsche til Bílabúðar Benna þeir tækju við umboðinu. Porsche hefur verið án umboðs hér á landi í allmörg ár en alls munu vera um 88 Porschebílar á landinu, flestir flutt- ir inn notaðir. Haldið var upp á 50 ára afmæli Porsche á síðasta ári en sú gerð Car- rera 4, sem nú er verið að frumsýna hér á landi, kom einmitt á markað í tilefni af afmælinu. Bls.30 Fallegar, klassískar línur einkenna útlit Vulcan 1500-hjólsins. Mynd DV-bilar NG í fyrra kom út endurbætt útgáfa af hjólinu Vulcan 1500 frá Kawasaki sem fékk nafnið Classic. DV-bílar fengu fyrsta hjólið af þessari gerð hér á landi til próf- unar um daginn en hjól með þessu útliti hafa selst vel að undanfómu. Verðið hefur lika batnað á síðustu árum og því algengara að keypt séu hjól í stærri kant- inum. Vulcan-hjólið er þar, auk Yamaha 1600 og Suzuki Intruder 1500, tvímælalaust í sérflokki hvað stærð áhrærir. Bls.36 Okumenn stóru áreiðanlegir Undirritaður ók frá Akur- eyri til Reykjavíkur síðari hluta miðvikudags í vikunni og dró á leiðinni uppi ansi marga stóra bíla, flesta með tengivagna í eftirdragi. Það var eftirtektarvert og þakkarvert að verða þess áskynja að öku- menn þessara bíla sýna sér- staka ábyrgðartilfinningu og gefa til kynna með stefnuljós- um þegar öruggt er að fara fram úr þeim og tefla ekki í neina tvísýnu með það. Aðeins ökumaður á einum stórum bíl sýndi ekki þessa til- litssemi. Sá var á stórum hóp- ferðabíl frá þekktu hópbilafyr- irtæki í Reykjavik og var einn í bílnum. Kannski voru stefnu- ljósin hjá honum biluð. Á mjóum þjóðvegi 1 er það ómetanlegt fyrir ökumenn minni bíla að geta treyst á öku- menn stóru bílanna með þess- um hætti. Jafnframt er áríð- andi að þeir séu vel vakandi og fari umsvifalaust fram úr þeg- ar „þeir stóru“, sem fyrir utan miklu meiri þjálfun í akstri hafa mun betri yfirsýn yfir það sem fram undan er, gefa merki um að nú sé lag. Það er bara eitt, strákar á stóru bílunum: Það kemur fyr- ir að ljósin hjá ykkur eru svo drullug að það er erfitt að greina þau! -SHH www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • VW Polo 1400, f. skrd. 04/96, ekinn 69.000 km, bsk., 1-rauður. Verð 850.000. Nissan Patrol 2800 dísil, f. skrd. 07/98, d-grænn, ekinn 6.000 km, bsk., með tölvukubb í vél, leðri og fleira. Verð 4.390.000. MMC Pajero 2800 dísil, f. skrd. 05/98, ssk., ekinn 29.999 km, beigelitur. Verð 3.450.000. VW Polo, árg. 1998, ekinn 12.ooo km, álfelgur, spoiler, 3 dyra. Verð 1.220.000. Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500 Pontiac Transporter 3100, f. skrd. 06/91, grár, ekinn 103.000 km, ssk., 7 manna. Verð 1.280.000. Toyota Corolla 1600, f. skrd. 07/97, svartur, ekinn 25.000 km, bsk. Verð 1.320.000. Velkomin á Laugaveg 174 og www.bilathing.is Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18 og laugard. kl. 12-16 'ú BÍLAÞING HEKLU Númc-r c-íH' í nolv^vrvi bdvtvú Hvar er best að gera bílakaupin?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.