Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1999, Side 1
19
FIMMTUDAGUR 8. JULI 1999
Fimmtudagur 8. júlí 1999
DV-mynd E. 01.
Stefán Þór Þórðarson lék sinn fyrsta leik
með Akurnesingum um nokkurt skeið er
ÍA gersigraði slaka Víkinga í bikarnum í
gærkvöld, 5-0. Stefán, sem hætti nýlega
hjá norska liðinu Kongsvinger, skoraði
tvívegis fyrir Skagamenn og hér sést
hann fagna öðru markinu.
Nánar er fjallað um bikarleikina tvo i gær-
kvöld á bls. 21 og 22
f~: -
Grískt félag á
eftir ívari og Jóni
Gríska B-deildarliðið Panelefsini-
akos frá Aþenu hefur lýst yfir áhuga
fyrir þeim ívari Jónssyni úr Fram
og Jóni Þ. Stefánssyni.
Viðræður hafa farið fram milli
gríska liðsins og íslensku liðanna en
lengra er málið ekki komið. Ekkert
formlegt tilboð hefur borist en rætt
hefur verið um lánssamning sam-
kvæmt heimildum DV. -JKS
Bikarkeppnin:
Gunnleifur í
KR-markinu
í kvöld
Síðustu leikimir í 8-liða úrslitum
bikarkeppninnar í knattspymu
verða háðir í kvöld. Stjarnan, sem
leikur í 1. deild, tekur þá á móti KR
í Garðabænum og í Kópavogi leika
Breiðablik og Valur. Báðir leikimir
heQast klukkan 20.
Samkvæmt öruggum heimildum
DV hefur Atli Eðvaldsson, þjálfari
KR, ákveðið að Gunnleifur Gunn-
leifsson taki stöðu Kristjáns Finn-
bogasonar í marki KR-inga i
leiknum í kvöld gegn Stjömunni.
Sem kunnugt er varð nokkur há-
vaði í vesturbænum í vor er Gunn-
leifur missti sæti sitt til Kristjáns og
heimildarmenn DV segja að margir
KR-ingar séu allt annað en ánægðir
með þessa ákvörðun þjálfarans.
-SK/-JKS
íslendingar
á skotskóm
Islenskir knattspyrnumenn í Nor-
egi vora á skotskónum með sínum
liðum í úrvalsdeildinni í gærkvöld.
Helgi Sigurðsson skoraði bæði
mörk Stabæk í 2-1 sigri á Ströms-
godset. Heiðar Helguson skoraði
tvö marka Lilleström í 6-2 sigri á
Kongsvinger. Ríkharður Daðason
skoraði eitt marka Viking sem
sigraði Molde, 4-1, og Tryggvi Guö-
mundsson skoraði eitt marka fyrir
Tromsö sem sigraði Válerenga,
1-3, á útivelli.
-JKS/-SK
Stefán til Sogndal?
Norska fyrstudeildarliðið Sogndal vill fá Stefán
Þórðarson í sínar raðir.
Forsvarsmenn Sogndals segjast munu leita eftir
kaupum á Stefáni frá Kongsvinger í dag, 7. júli.
Sogndal féll úr úrvalsdeildinni í fyrra og er nú í fjórða
sæti fyrstu deildar, sex stigum á eftir toppliðinu. Það
er líka sagt i norskum fjölmiðlum að lið í fyrstu og
annarri deild í Englandi hafi áhuga á Stefáni. Stefán
kostaði Kongsvinger 600 þúsund norskar krónur og í
bæjarblaðinu í Kongsvinger er sagt að þeir peningar
séu tapaðir.