Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1999, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1999, Síða 1
19 FIMMTUDAGUR 8. JULI 1999 Fimmtudagur 8. júlí 1999 DV-mynd E. 01. Stefán Þór Þórðarson lék sinn fyrsta leik með Akurnesingum um nokkurt skeið er ÍA gersigraði slaka Víkinga í bikarnum í gærkvöld, 5-0. Stefán, sem hætti nýlega hjá norska liðinu Kongsvinger, skoraði tvívegis fyrir Skagamenn og hér sést hann fagna öðru markinu. Nánar er fjallað um bikarleikina tvo i gær- kvöld á bls. 21 og 22 f~: - Grískt félag á eftir ívari og Jóni Gríska B-deildarliðið Panelefsini- akos frá Aþenu hefur lýst yfir áhuga fyrir þeim ívari Jónssyni úr Fram og Jóni Þ. Stefánssyni. Viðræður hafa farið fram milli gríska liðsins og íslensku liðanna en lengra er málið ekki komið. Ekkert formlegt tilboð hefur borist en rætt hefur verið um lánssamning sam- kvæmt heimildum DV. -JKS Bikarkeppnin: Gunnleifur í KR-markinu í kvöld Síðustu leikimir í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspymu verða háðir í kvöld. Stjarnan, sem leikur í 1. deild, tekur þá á móti KR í Garðabænum og í Kópavogi leika Breiðablik og Valur. Báðir leikimir heQast klukkan 20. Samkvæmt öruggum heimildum DV hefur Atli Eðvaldsson, þjálfari KR, ákveðið að Gunnleifur Gunn- leifsson taki stöðu Kristjáns Finn- bogasonar í marki KR-inga i leiknum í kvöld gegn Stjömunni. Sem kunnugt er varð nokkur há- vaði í vesturbænum í vor er Gunn- leifur missti sæti sitt til Kristjáns og heimildarmenn DV segja að margir KR-ingar séu allt annað en ánægðir með þessa ákvörðun þjálfarans. -SK/-JKS íslendingar á skotskóm Islenskir knattspyrnumenn í Nor- egi vora á skotskónum með sínum liðum í úrvalsdeildinni í gærkvöld. Helgi Sigurðsson skoraði bæði mörk Stabæk í 2-1 sigri á Ströms- godset. Heiðar Helguson skoraði tvö marka Lilleström í 6-2 sigri á Kongsvinger. Ríkharður Daðason skoraði eitt marka Viking sem sigraði Molde, 4-1, og Tryggvi Guö- mundsson skoraði eitt marka fyrir Tromsö sem sigraði Válerenga, 1-3, á útivelli. -JKS/-SK Stefán til Sogndal? Norska fyrstudeildarliðið Sogndal vill fá Stefán Þórðarson í sínar raðir. Forsvarsmenn Sogndals segjast munu leita eftir kaupum á Stefáni frá Kongsvinger í dag, 7. júli. Sogndal féll úr úrvalsdeildinni í fyrra og er nú í fjórða sæti fyrstu deildar, sex stigum á eftir toppliðinu. Það er líka sagt i norskum fjölmiðlum að lið í fyrstu og annarri deild í Englandi hafi áhuga á Stefáni. Stefán kostaði Kongsvinger 600 þúsund norskar krónur og í bæjarblaðinu í Kongsvinger er sagt að þeir peningar séu tapaðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.