Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
Fréttir
Danskur ferðaþáttur á fslandi:
Rúmlega 1,5
milljónir
áhorfenda
Hingað til lands er kominn
fimm manna hópur danskra kvik-
myndagerðarmanna. Þeir verða á
landinu næstu vikuna að taka upp
ferðaþátt fyrir DR 1, stöð eitt
þeirra Dana. Kvikmyndagerða-
mennimir eru búnir að vera hér
við tökur í tvo daga. Þeir taka upp
í Reykjavík, Bláa lóninu, á Þing-
völlum, Sólheimajökli og á hinum
og þessum stöðum á Suðurlandi.
Þetta eru allt vanir menn, leik-
stjórinn hefur gert ferðaþætti áður
og nutu þeir gífurlegra vinsælda.
Töfrum líkast
„Þetta hefur gengið mjög vel. fs-
land er síðasta landið af 5 sem við
tökum upp í. Við finnum það allir
hversu tengdir við erum landinu.
Fyrir okkur er það mest heillandi
staður norðursins vegna framand-
leika þess. Fólkið, landið og nátt-
úran eru töfrum líkust. Enda höfð-
5 þættir frá 5
löndum
Danskir kvikmyndagerðarmenn hafa myndað hérlendis undanfarna daga fyrir ferðaþátt
sem sýndur verður á besta tíma í danska sjónvarpinu. DV-mynd KE
um við miklar væntingar áður en
við komum hingað. Við reynum að
finna nýjar hliðar á öllum málum,
ekki að vera með venjulega, flata
frásögn. Leikstjórinn hefur góða
reynslu í því að gera þættina
fyndna. Ef allt gengur síðan að
óskum fljúgum við heim á sunnu-
daginn," sagði Thomas Schindel,
framleiðandi þáttanna.
Þættimir eru flmm
talsins og er hver
þeirra tekinn upp í
mismunandi landi, á
íslandi, írlandi, í New
York, á Mauritius
(eyju rétt fyrir utan
Madagaskar) og á
Azoreyjunum portú-
gölsku. Þetta eru
ferðaþættir fyrir byrj-
endur í ferða-
mennsku, líflegir og
skemmtilegir. Sá sem
leiðir þáttinn áfram
og talar við áhorfand-
ann er danski leikar-
inn Uffe Rorbæk.
Þættir sem þessi eru
gífúrlega vinsælir í
Danmörku og er gert
ráð fyrir að þessi verði sýndur kl. 20
á fimmtudagskvöldum, sem er vin-
sælasti tíminn í sjónvarpinu. Horfa
þá rúmlega 1,5 miiljónir Dana á
hann. -hvs
VViuUv
Á myndinni eru keppendurnir ásamt þjálfurum. Talið frá vinstri Áskell Harðarson, Bjarni Kristinn Torfason, Stefán Ingi Valdimarsson, Pawel Baroszek, Guðni
Ólafsson, Ingvar Sigurjónsson, Alfreð Kjeld, Geir Agnarsson.
Ólympíuleikarnir í stæröfræöi:
Sex keppendur frá Islandi
DV, Akureyri:
SJS-verktakar á Akureyri vinna
nú að viðbyggingu við Háskólann á
Akureyri sem taka á í notkun
haustið 2000. Á byggingarlóðinni
vekur athygli vinnuskúr starfs-
manna sem er kirfilega merktur
„ritstjóm", en skúrinn mun hafa
fylgt starfsmönnum fyrirtækisins
um nokkurt skeið.
Karl Helgason, sem vinnur hjá
SJS-verktökum, sagðist aö sjálf-
sögðu vera „ritstjóri" á staðnum, en
það verður að segjast eins og er að
þessi „ritstjórnarskrifstofa" er með
þeim óvenjulegri hér á landi og þótt
víðar væri leitað. -gk
Dagana 10. til 22. júlí fara fram
40. Ólympíuleikamir í stærðfræði
og verða þeir haldnir í Búkarest í
Rúmeníu. Leikarnir eru fyrir
framhaldsskólanema og er skilyrði
að keppendur séu yngri en 20 ára.
Um 80 lönd senda keppendur en
keppendur verða hátt í fimm
hundruð.
Keppnin fer fram á tveimur dög-
um og eru þrjár þrautir lagðar fyr-
ir á hvoram deginum og fá kepp-
endur fjóra og hálfan klukkutíma
til þess að leysa verkefnin. Þraut-
irnar byggjast á stærðfræði sem
kennd er í grunnskóla og fyrstu
árum framhaldsskóla. Til þess að
leysa þær þarf kunnátta og frum-
leg hugsun að fara saman. is-
lenska liðið hefur verið við stífar
æfingar frá því í júní en æft er all-
an daginn virka daga, auk þess
sem keppendur fá heimadæmi sem
þeir leysa um helgar. Keppendurn-
ir sem fara utan heita Alfreð
Kjeld, Bjarni Kristinn Torfason,
Guðni Ólafsson, Ingvar Sigurjóns-
son, Pawel Bartoszek og Stefán
Ingi Valdimarsson. Allir keppend-
urnir eru allir nemendur í
Menntaskólanum í Reykjavík. Dr.
Geir Agnarsson og dr. Áskell
Harðarson hafa haft umsjón með fulltrúi íslands í dómnefnd keppn-
þjálfun keppenda og munu fara innar en Áskell verður liðsstjóri.
með þeim út. Það mun Geir vera - EIS
Karl Helgason „ritstjóri" í dyrum „ritstjórnar SJS“ við Háskólann á Akureyri.
DV-mynd gk
Akureyri:
„Ritstjórnarskrifstofa“
á háskólalóöinni
Formúla 1
Er Ralf Schumacher
að kafkeyra
„stóra bróður”?
Nýjung í ferðaþjónustu:
Netferða-
skrifstofa
- fyrsta FerðakaSið opnað
Ný islensk ferðaskrifstofa,
sem nánast einvörðungu
starfar á Netinu, hefur verið
stofnuð. Á vegum ferðaskrif-
stofunnar, sem heitir Norður-
ferðir, er nú unnið að því að
koma upp upplýsinga- og sölu-
miðstöðvum um allt land undir
nafninu Ferðakaffi. Þá er í und-
irbúningi að koma svipaðri
starfsemi á fót erlendis. Fyrsta
Ferðakaffið var opnað nýlega á
Hótel Iðufelli í Laugarási i
Biskupstungum. Stjórnarfor-
maður Norðurferða er Jóhann-
es Jónsson í Bónusi og fram-
kvæmdastjóri er Birgir Sumar-
liðason.
Heimasíða Norðurferða er
nat.is en að baki henni er öflug-
ur gagnagrunnur með ítarlegum
upplýsingum um stóran hluta ís-
lenskrar ferðaþjónustu á lands-
byggðinni og heimasíðum ferða-
þjónustuaðila, upplýsingum um
hvaðeina er lýtur að ferða-
mennsku. Birgir Sumarliðason
nefnir sem dæmi í samtali við
DV að hægt sé að skoða flestalla
möguleika sem gefast á landinu
til stangaveiði í ám og vötnum,
hvernig hægt er að komast til
einstakra staða eða veiðisvæða.
Síðan er hægt að panta veiði-
leyfi, flug- eða rútufar til staðar-
ins, gistingu og mat og annað
sem ferðalangar þarfnast. Norð-
urferðir kynna starfsemi sína á
ferðakynningum í Útilifl í Glæsi-
bæ á fimmtudögum í sumar.-SÁ