Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Blaðsíða 17
16
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
17
Sport
Halldór B. Jóhannsson þolfimimeistari.
Verður að
treysta á
sjálfan þig
Halldór B. Jóhannsson, 28 ára
gamall, er sterkasti þolfimimaöur
landsins nú um stundir og hefur
hann m.a. veriö aö geta sér gott
orö á erlendum vettvangi. Nú ný-
veriö varö Halldór í þriöja sæti á
heimsmeistaramótinu sem haldið
var í Hannover í Þýskalandi. Vin-
sældir íþróttarinnar hafa verið að
aukast til muna í heiminum og
um leiö er samkeppnin aö harðna.
Þolfimimaöur þarf á miklum
sjálfsaga að halda og miklar æfing-
ar liggja aö baki því aö komast í
fremstu röð.
i lok þessa mánaðar tekur
Halldór þátt í sterku móti í Las
Vegas en þangað er stefnt bestu
þolfimimönnum heimsins nú.
„Það er mikil hefð á bak við
mótið í Bandaríkjunum en þaö
ars æfi ég daglega og þá þijár
stundir í senn.“
- Hvemig kom það til aö þú
byrjaðir að æfa þolfimi?
„Ég var alltaf i handbolta í
gamla daga og æföi og keppti með
Fram. Haustið 1994 byrjaði ég síð-
an að æfa þolfimi og fór þá í fyrstu
í venjulega tíma. Fyrir mér er
þetta áhugaverð grein vegna þess
að þú þarft að hafa liðleika, styrk
og úthald. Þú verður algjörlega að
treysta á sjálfan þig. Ég stend sem
sagt alveg á eigin fóturn."
- Er ekki samkeppnim alltaf að
aukast i þessari íþrótt?
„Æfingarnar eru alltaf að verða
erfiðari. Áður voru æfingamar
ekki eins svakalegar og þær eru
orðnar í dag. Snúningarnir eru
fleiri og útfærslan er flóknari.
- segir íslandsmeistarinn í þol-
fimi, Halldór B. Jóhannsson
hefur verið haldið í tíu ár. Ég er
að vona að allir þeir bestu verði
með en það eru alltaf að koma inn
ný andlit. Ég tek síðan þátt í móti
i Finnlandi í haust og síðan verð-
ur Evrópumðtið í Tyrklandi í des-
ember. Það er stærsta mótið fyrir
utan heimsmeistaramótið," sagði
Halldór Jóhannsson.
- Gerir þú ekkert annað en að
stunda þolfimi alla daga?
„Ég stunda sálfræöinám í Há-
skólanum en þaö má segja að fyr-
ir utan námið þá tekur þolfimin
allan minn tíma. í sumar hef ég
unnið mest í mínum málum og æft
vel. Því er svo ekki að leyna að
mikiil tími fer í það aö finna
stuðningsaðila til þess að geta æft
og keppt. Ég er núna að fara meö
ákveðna fjáröflun í gang þar sem
ég ætla að fara út á land og kenna
og auglýsa íþróttina um leið. Ann-
Álagið er meira og maöur getur
ekki slegið slöku við æfingar."
- Færðu einhvern styrk frá
íþróttahreyfingunni?
„Ég hef fengið styrk frá afreks-
mannasjóði fyrir ferðalögum er-
lendis. Ég fór til Japans sem var
dýrt og styrkurinn sem ég fékk
núna dekkar ekki ferðina til
Bandaríkjanna að fullu. Þaö er
verið að vinna í því að ég fái al-
mennilegan styrk svo ég þurfi
ekki sjálfur að vera að eyða tíma í
að finna stuðningsaðila."
- Fer ekki mikill tími í æfingar?
„Það er aðallega að rífa sig upp
á morgnana og fara að æfa. Eg
þarf líka alltaf að passa mataræð-
ið. Markmiðið mitt á þessu ári er
að komast á pall á þeim mótum
sem ég tek þátt í,“ sagði Halldór B.
Jóhannsson við DV.
-JKS
Sport
Heiðar vill ekki fara til Rosenborgar
Það kom fram á netsíðu Verdens Gang í gærkvöldi í viðtali við Heiðar
Helguson, sem hefur skorað níu mörk fyrir Lilleström í norsku úrvalsdeildinni,
að hann hefði engan áhuga á að leika með toppliði Rosenborg og meistara
síðustu sjö tímabila. Heiðar hefur vakið mikla athygli fyrir góöa frammistöðu í
norsku úrvalsdeildinni í sumar og í síðasta leik átti hann þátt í fjórum af sex
mörkum liðsins, skoraði tvö, lagði upp eitt og fiskaði víti sem gaf mark.
Rosenborg er nýbúið að selja Sigurd Rushfeldt, sinn helsta markaskorara, og er
að leita sér að nýjum manni í staðinn. -ÓÓJ
Eéso-rallið: Hóimavík 9. júir w. 21.00
Olafsviktir-Endúró: Öndverðarnesi 10. júlí kl. 10.00
Csso
Markalaust í nágrannaslagnum nyrðra
KA og Dalvík geru markalaust jafntefli í leik liðanna í 1. deild karla í knattspyrnu
á Akureyri í gærkvöld.
Leikurinn var daufur og tilþrifalítill en bæði lið þurftu nauðsynlega á öllum þremur
stigunum að halda. KA er neðst með 7 stig en Dalvík þriðja neðsta liðið með 9 stig.
Maður leiksins: Dean Martin, KA. -JJ
Marel Baldvinsson skorar annaö mark
Blika gegn Valsmönnum í gærkvöld.
Haukur Bragason, markvörður Vals, 4
kemur ekki vörnum við.
- og Blikar fara í undanúrslitin ásamt KR, IA og IBV
Blikar fagna
sigrinum gegn Val
í gærkvöld.
Gunnleifur Gunnleifsson lék í marki KR-inga í fyrsta sinn í sumar gegn
Stjörnunni í gær eins og greint var frá í DV í gær.
Atli Eóvaldsson,
þjálfari KR, gerði þá
breytingu á liði
sínu í gær gegn
Stjörnunni að hann
setti markvörðinn
Gunnleif Gunn-
leifsson í byrjunar-
liðið i fyrsta sinn í
sumar. Vakti þessi
breyting nokkra at-
hygli enda almenn sátt um störf
Kristjáns Finnbogasonar í sumar.
DV sagði reyndar frá þessari breyt-
ingu á liðsskipan KR-liðsins í gær.
Atli Eðvaldsson, þjálfari KR, gerði
þessa breytingu i fiúlri sátt við leik-
mennina. „Við erum bara að þreifa
okkur áfram, Gunnleifur fékk núna
tækifæri og þeir spila sinn hvom
hálfleikinn gegn Watford á sunnudaglnn. Við emm með tvo frá-
bæra markmenn og getum verið þakklátir fyrir það,“ sagði Atli
eftir leik.
Dregió veróur i undanúrslit bikarsins 14. júlí næstkomandi eft-
ir að stelpumar klára sin 8 liða úrslit en á Atli Eóvaldsson,
þjálfari KR, einhver óskalið. „Ég get ekki óskað mér neins, eins
og Skaginn spilaði vel gegn Víkingi í fyrradag, eins og okkur
hefur gengið undanfarið gegn ÍBV og eins og Breiöablik spilaöi
gegn okkur í Frostaskjólinu. Þeir em ailir erfiðir."
Skagamenn hafa oftast komist í undanúrslitin af þessum fjór-
um liðum, 21 sinni, en þetta verður 20. undanúrslitaleikur KR-
inga, sá þrettándi hjá Eyjamönnum og sjötti leikur Blika.
Eyjamenn eru meö bestan árangur eða
75% (9 af 12), Skagamenn hafa unnið
71,4%(15 af 21) undanúrslitaleikja sinna,
KR-ingar 57,9% (11 af 19) en Blikar að-
eins 16,7% (1 af 6).
Stjarnan hefur aldrei náð að vinna
KR-inga í sögu félagsins. Liðin hafa spil-
að 13 leiki, 10 í deild og 3 í bikar, KR-ing-
ar hafa unnið 10 og þrisvar hefur orðið
jafntefli og markatalan er 27-7, KR í vil.
Eyjamenn hafa unniö 15 bikarleiki í
röð utan Laugardalsvallar slðustu fiögim
árin þegar þeir fara inn í undanúrslitaleikinn. Dragist þeir gegn
KR-ingum í undanúrslifimum fá þeir tækifæri til að slá Vestur-
bæingana út úr bikamum fjórða árið í röð, þar af 1 þriðja sinn á
brún bikarúrslitaleiksins.
Tveir leikir fóru fram í gærkvöld í 3. deild íslandsmóts karla i
knattspymu. Leiknir frá Fáskrúðsfirði og Huginn/Hvöt gerðu
jafntefli á Fáskrúðsfirði, 2-2, og í hinum leiknum tapaði Einherji
frá Vopnafirði fyrir Þrótti Neskaupstað, 0-2.
Breska stúlkan Zoe Baker setti í gærkvöld nýtt Evrópumet í 50
metra bringusundi í 50 metra laug. Baker synti á 31,52 sekúnd-
um. Eldra metið átti þýska stúlkan Silke Hörner, 31,58 sekúnd-
ur, en það met setti hún í fyrri 50 metrunum í 100 meira bringu-
sundi á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988.
ísraelsmaöurinn Eyal Berkovic hefur verið seldur frá West Ham
til Celtic. Kaupverðið var 5,750 milljónir punda. Það eina sem
komið getur í veg fyrir félagaskiptin er að Berkovic standist ekki
læknisskoðun.
Martin Edwards, stjómarformaður Man. Utd, hefur neitað til-
boði í hlutabréf sin í félaginu. Edwards á um 14% í United.
-ÓÓJ/-SK
KR-ingar mæta Watford
í afmælisleik í Laugardal
KR-ingar mæta enska knatt-
spyrnuliðinu Watford í tilefni cif 100
ára afmæli félagsins á þessu ári á
Laugardalsvelli á sunnudagskvöldið
klukkan 20. Enska liðið tryggði sér
sæti í A-deildinni á sl. vori og ríkir
mikil eftirvænting innan herbúða
liðsins fyrir næsta tímabili í efstu
deild.
Liðsmenn Watford koma til lands-
ins í kvöld og ætla KR-ingar að gera
liðsmönnum Watford margt til
skemmtunar á meðan á dvöl þess
stendur hér á landi. Liðið mun æfa
á KR-vellinum í fyrramálið og eftir
hádegið liggur leiðin í Bláa lónið. Á
mánudeginum verður fariö með
leikmenn enska liðsins í ævintýra-
ferð upp á Mýrdalsjökul á vélsleð-
um. Liðið heldur síðan af landi
brott á þriðjudag.
íslenskur leikmaður er á mála hjá
Watford en það er Keflvíkingurinn
Jóhann Guðmundsson.
Þess má geta að forsala aðgöngu-
miða á leikinn hófst í gær og hafa
þegar selst 1100 miðar.
-JKS
Breiðablik, KR, ÍBV og
ÍA eru liðin fjögur sem
mætast í undanúrslitum
bikarkeppninnar. Seinni
leikirnir tveir fóru fram í
gærkvöldi og á Kópavogs-
velli mættust Breiðablik og
Valur.
Leikurinn byrjaði fjör-
lega og strax á 2. mínútu
átti Bjarki Pétursson
hættulegt skot að marki
Vals en Haukur Bragason,
sem Valur fékk til liðs við
sig vegna fjarveru Hjörvars
Hafliðasonar, varði vel. í
næstu sókn átti Jón Þ. Stef-
ánsson gott skot að marki
Breiðabliks en Atli Knúts-
son varði. Valsmenn voru
meira með boltann og áttu
nokkrar ágætar sóknir án
þess að skapa sér hættuleg
færi en Blikarnir beittu
skyndisóknum og á 32.
minútu átti Salih Heimir
Porca snilldarsendingu inn
á Bjarka Pétursson sem
sendi boltann snyrtilega
fram hjá Hauki í Vals-
markinu.
Blikamir hrukku heldur
betur í gang eftir markið
og á 33. mínútu skaut
Bjarki beint á Hauk úr
dauðafæri. Marel Baldvins-
son skoraði annað mark
Blika á 37. mínútu eftir að
hafa fengið stungusend-
ingu inn fyrir vöm Vals.
Boltinn fór reyndar ekki í
netið en Pjetur Sigurðsson
aðstoðardómciri dæmdi
boltann inni og sá dómur
stóð.
Valsmenn voru mun
meira með boltann í seinni
hálfleik en náðu ekki að
vinna þannig úr sóknar-
leiknum að þeir kæmu sér
í nógu spennandi færi og
komu boltanum ekki í
mark Breiðabliks.
Það þarf að skora
„Leikurinn gengur út á
það að skora mörk og við
gerðum það ekki í kvöld,
en fengum þess í stað tvö
mörk á okkur. Við lékum
mjög vel í síðari hálfleik en
nú verðum við að snúa
okkur að deildinni og ég
vona að okkur gangi betur
þar,“ sagði Izudin Daði
Dervic eftir leikinn.
Er mjög ánægður
„Ég er mjög sáttur við
leikinn. Valsaramir voru
meira með boltann en fær-
in vom okkar. Eftir fyrra
markiö náðum við að
skapa okkur góð færi sem
við nýttum ekki nema að
hluta og ég er mjög ánægð-
ur með að vera kominn
með liðið í undanúrslit,"
sagði Sigurður Grétarsson,
þjálfari og leikmaður
Breiðabliks.
En nú hefur Blikunum
gengiö illa aö nýta fœrin
sín í sumar, veldur þaö ekki
þjálfaranum áhyggjum?
„Það er rétt, þetta hefur
verið erfitt hjá okkur í
sumar, en það er nokkuð
sem við verðum að vinna í
og reyna að bæta,“ sagði
Sigurður.
Valsliðið lék alls ekki
illa í þessum leik, liðið var
meira með boltann og hélt
honum ágætlega innan
liðsins, en það þarf að
skapa sér færi og það þarf
að skora mörk til þess að
vinna leiki og það tókst
Völsurum ekki í þessum
leik. Liðið lék án Hjörvars
markmanns, sem tók út
leikbann, og þeirraEinars
Páls Tómassonar og Am-
órs Guðjohnsens sem em
meiddir og það hafði vissu-
lega áhrif á liðið. Jón Þ.
Stefánsson, Sigurbjörn
Hreiðarsson og Ólafur
Stígsson léku þeirra skást.
Salih Heimir Porca lék
best í liði Breiðabliks,
sendingar hans eru frábær-
ar og hann er mjög ógnandi
á vinstri kantinum. Kjart-
an Einarsson og Hjatli
Kristjánsson léku einnig
vel í jöfnu Blikaliði.
-ih
Blcmd í
Blikar komust í gær í undanúrslit bikarsins annað árið í
röð og i sjöunda sinn í sögu félagsins.
Sigurður Grétarsson, þjálfari liðsins síðustu tvö árin, hef-
ur verið með fjögur af þessum sjö undanúrslitaliöum félags-
ins en aldrei komist með Blika í úrslitaleikinn.
Ósigur Valsmanna gegn Blikum í gær var fyrsta tap liðsins
undir stjóm Inga Björns Albertssonar. Aður hafði liðið
gert þrjú jafntefli.
Jesper Pamevik er með eins höggs forystu á aiþjóðlegu
golfmóti í Skotlandi en tveimur hringjum af fjórum er lokið.
Parnevik er á 131 höggi en 1 öðru sæti er spænska
undrabamið Sergio Garcia en hann sigraði á opna írska
mótinu um síðustu helgi.
Michael Schumacher reynir um
helgina að minnka forskot Finnans
Mika Hákkinen í baráttunni um
heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1
kappakstri. Hákkinen hefur nú 8
stiga forskot á Þjóðverjann. Keppt
verður á sunnudag á Silverstone-
brautinni í Englandi.
Ensk knattspyrnuyflrvöld em iðin
við að uppræta ólöglegt lyfjaát enskra knattspynumanna. Á
síðasta leiktímabili vom tekin 544 lyfjapróf af leikmönnum
i öllum deildum og tveir leikmenn féllu á prófmu. Annar
þeirra var leikmaður með unglingaliði úrvalsdeildarfélags
en nafni hans hefur verið haldið leyndu. Hinn er Byron
Glasgow, leikmaður með Reading 11. deild. Samningi hans
við Reading hefur verið rift og fljótlega mun hann mæta
fyrir aganefnd enska knattspyrnusambandsins.
Bandaríski kylfingurinn John Daly hefur tilkynnt að hann
muni ekki leika á British Open í ár. Daly, sem er einn
skrautlegasti kylfingur heims, segist vera þreyttur á
keppnisgolfi og hann vilji taka sér hlé frá keppni um sinn.
Daly vann British Open árið 1995.
Arsene Wenger, framkvæmdastjóri Arsenal, sagði í gær að
forráðamenn Manchester United væra búnir að eyðileggja
ensku bikarkeppnina með því að hætta við þátttöku. Hann
sagði ákvörðun United mjög slæma fyrir enska
knattspymu. -SK/-ÓÓJ
Opna Fabory-ísboltamótið
veröur haldið á golfvelli Golfklúbbs Setbergs
laugardaginn 10. júlí nk.
fGlæsileg verðlaun, með og án forgjafar:
1. sæti 30.000 kr. vöruúttekt
2. sæti 20.000 kr. vöruúttekt
3. sæti 10.000 kr. vöruúttekt
______Þrenn nándarverðlaun_____J
Skráning í síma 565 5690
- og komst í undanúrslit en Stjörnu-
menn áttu þó ekkert minna í leiknum
KR skoraði
öll mörkin
Stjarnan hefur aldrei unnið
leik gegn KR í sögu félagsins,
hvorki í deildarkeppni né bikar
og kannski hafði sú hefð eitthvað
að segja í viðureign liðanna í gær
þegar KR-ingar tryggðu sér sæti í
undanúrslitum i sjötta sinn á síð-
ustu sjö árum með 1-3 sigri í
Garðabæ.
Þessi leikur var kannski gott
dæmi um að munurinn er orðinn
lítill á milli úrvals- og 1. deildar-
liða því Stjörnumenn spiluðu
glimrandi vel í upphafi og voru
mun sterkari í leiknum allt þar
til þeir færðu KR-ingum mark á
silfurfati og eftir það var staðan
orðin of erfið fyrir Stjörnuna
gegn toppliði úrvalsdeildarinnar.
Sigþór Júlíusson skoraði þá með
laglegu skoti eftir undirbúning
þeirra Björns Jakobssonar og
David Winnie.
Úrslitin réðust síðan strax í
upphafi seinni hálfleiks þegar
Bjarki Gunnlaugsson fiskaði víta-
spyrnu á einn ungan og óreyndan
varnarmann, Bernharð Guð-
mundsson og úrslitin voru ráðin.
Guðmundur skoraði úr vítinu og 7
mínútum síðar skoraði Einar Þór
þriðja markið eftir glæsilega sókn
og góða sendingu Sigþórs.
„Við fáum á okkur tvö ódýr
mörk þegar þeir voru ekkert að
gera og leikurinn jafn og það
gerði útslagið," sagði Valdimar
Kristófersson, fyrirliði Stjörn-
unnar, bjartsýnn samt á fram-
haldið i sumar.
„Ég er mjög sáttur við leik
strákanna, menn voru að leggja
sig fram. Þeir eru erfiðir en von-
andi mætum við KR aftur á
næsta ári í úrvalsdeildinni,“
sagði Goran Kristófer Micic,
þjálfari Stjörnunnar.
„Við byrjuðum ekki nógu vel
en eftir að við náum inn marki
kemur ró í leik okkar, annað
markið kemur á góðum tíma og
eftir það var þetta komið. Þeir
eru með gott lið og seldu sig dýrt
í kvöld,“ sagði heitasti KR-ingur-
inn þessa dagana, Sigþór Júlíus-
son. -ÓÓJ