Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Page 19
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999
19
Vildi vera með
stærri brjóst
Það er víst engin ávísun á gott
sjálfstraust þótt maður sé eftir-
sóttur leikari og í ofanálag giftur
eina helsta kyntákni Hollywood.
Fyrrnefnd atriði hafa að minnsta
kosti ekki hjálpað upp á sjálfs-
traustið hjá áströlsku leikkon-
unni Nicole Kidman. Hún viður-
kenndi nýlega í viðtali við breskt
tímarit að ef hún gæti breytt ein-
hverju í fari sínu; þá væri hún
lágvaxnari og með stærri brjóst.
Auk þess vildi hún búa yfir meiri
yfirvegun.
Kidman viðurkenndi einnig i
viðtalinu að hafa neytt fikniefna
en ekki fylgdi sögunni hvort það
var fyrir eða eftir sambandið við
Cruise.
Ekki gefin fyrir
píramída
Leikkonan Brooke Shields var
nýverið á yfirreið um Egyptaland
þar sem hún annaðist meðal ann-
ars fjáröflun fyrir fátæk böm.
Við heimkomuna rigndi spurn-
ingum yfir leikkonuna og urðu
margir hissa þegar hún sagði að
píramídarnir, ein merkilegustu
mannvirki heims, hefðu bara ekki
heillað sig. En hvað heillaði þá?
„Bömin á Egyptalandi voru
stórkostleg," sagöi Brooke og bætti
við að augu sín hefðu hvað eftir
annað fyllst tárum þegar hún tal-
aði við bömin með aðstoð túlks.
Það verður ekki af hermi skafið að
hún er sannkallað gæðablóð.
Fergie of feit
Sarah Ferguson, eða Fergie,
hefur eins og heimsbyggðin veit
átt I erfiðu stríði við aukakílóin
undanfarin ár.
Nú er Fergie hins vegar í meiri
vandræðum en áður því í vetur
skrifaöi hún undir samning um
að gera líkamsræktar- og megrun-
armyndband. Þai' með ætlaði
Fergie að feta í fótspor
glæsikvenna á borð við Cindy
Crawford og Elle Macpherson.
Málið er að Fergie er bara ekki í
formi fyrir myndbandið og
framleiðslu þess hefur nú verið
frestað fram á haust eða þar til
Fergie hefur tekist að létta sig.
Sviðsljós
Játvarði prins er annt um nýja húsið sitt:
Lífverðimir skólausir
Játvarður prins hugsar vel um
heimjli sitt og er annt um að þar
séu allir hlutir í lagi. Þau Sophie
hafa gert miklar endurbætur á húsi
sínu í Bagshot Park í Surrey og frá
fyrsta degi voru starfsliðinu settar
skýrar reglur.
Eitt af því var að skipa lífvörðun-
um að vera skólausir á meðan þeir
væra við störf innandyra. Játvarði
mun umhugað um öll nýju og dýra
gólfteppin og getur ekki hugsað sér
að lífverðirnir skilji eftir fótspor um
allt hús.
„Þeir trúðu ekki sínum eyrum og
héldu að jarlinn væri að grínast. En
honum var full alvara," sagði einn
lífvarðanna í viðtali við Sunday
People.
Lífverðirnir bragðust sumsé illa
við kröfu jarlsins en gerðu mála-
miðlun á þá leið að þeir mega vera
í skóm svo fremi sem þeir klæðist
plastpokum utanyfir skóna.
„Þetta er út í hött. Þessir menn
eru að hugsa um öryggi jarlshjón-
anna en það eina sem Játvarður
hugsar um er gólfteppið," sagði
heimildarmaður blaðsins.
Játvarður og Sophie eru búin að
eyða 200 milljónum í húsið sem þau
reyndar leigja af drottningunni fyr-
ir hálfa milljón á ári.
Sölustaöir sem þjónusta
áskrifendur í sumarbústööum:
Árborg, Gnúpverjahreppi
Baula, Stafholtstungum, Borgarfiröi
Bjarnarbúð, Brautarhóli
Bitinn, Reykholtsdal
Borg, Grímsnesi
Brú, Hrútafiröi
Hlíöarlaug, Úthlíö, Biskupstungum
Hreöavatnsskáli
Laugarás, Biskupstungum
Minni-Borg, Grímsnesi
Reykjahlíö, Mývatnssveit
Shell, Egilsstöðum
Shellskálinn, Stokkseyri
Skaftárskáli, Klaustri
Staöarskáli, Hrútarfirði
Varmahlíö, Skagafiröi
Veitingaskálinn, Víöihlíö
Verslunin Grund, Flúöum
Verslunin Hásel, Laugarvatni
Þrastarlundur
DV safnað og afhent við heimkomu
Áskrifendur sem fara aö heiman í sumarfríinu
og verða í burtu í lengri eöa skemmri tíma geta
fengið pakka af DV afhentan við heimkomu.
Það eina sem áskrifendur þurfa að gera er að
hringja í 550 5000 og tilkynna hvenær þeir verða
að heiman. Starfsfólk DV safnar blöðunum
saman á meðan og afhendir þau þegar
áskrifandinn kemur heim aftur.
Til þess að fá DV til sín í fríinu þarf ekki annað
en að hringja í 550 5000 og tilkynna um dvalarstað
og þú færð DV sent sent sérpakkað og merkt á
sölustað nærri dvalarstað.
Kínverska fyrirsætan á myndinni er einkar glæsileg þar sem hún skartar framúrstefnugreiðsiu á sýningu Vidal
Sassoon í Peking í gær. Kínverjar sækja nú hart fram í heimi tískunnar og hafa þegar komið sér upp iðnaði sem veltir
milijónum Bandaríkjadala á ári. Símamynd Reuter
Býr sig undir
föðurhlutverkið
Stórleikarinn Richard Gere býr
sig nú undir nýtt hlutverk; föður-
hlutverkið. Kappinn tilkynnti
nefnilega nýlega að hann ætti von
á sínu fyrsta barni í byrjun næsta
árs.
Tímasetningin þykir skemmti-
leg hjá Gere því fyrrum kona
hans, Cindy Crawford, er sjálf ný-
búin að eignast myndarlegan son.
Gere er nú giftur fyrrum fyrir-
sætunni Carey Lowell en þau
hafa verið saman allt frá skilnaði
hans við Cindy. Þau Gere og Car-
ey era vist yfirmáta hamingjusöm
og hlakka mikið til að eignast
bamið.
Það er að vísu meira en nóg að
gera hjá þeim báðum; Carey leik-
ur í vinsælum bandarískum sjón-
varpsþætti, Law and Order, og
Gere bíður spenntur eftir að gam-
anmyndin Runaway Bride verði
framsýnd seinna í mánuðinum.
Þar leiða þau Gere og Julia Ro-
berts saman hesta sína í annað
sinn.
Tsjflu DV Mti þér í 'íÆ'ú
Fáið DV sent í sumarbústaðinn: