Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1999, Síða 19
FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1999 19 Vildi vera með stærri brjóst Það er víst engin ávísun á gott sjálfstraust þótt maður sé eftir- sóttur leikari og í ofanálag giftur eina helsta kyntákni Hollywood. Fyrrnefnd atriði hafa að minnsta kosti ekki hjálpað upp á sjálfs- traustið hjá áströlsku leikkon- unni Nicole Kidman. Hún viður- kenndi nýlega í viðtali við breskt tímarit að ef hún gæti breytt ein- hverju í fari sínu; þá væri hún lágvaxnari og með stærri brjóst. Auk þess vildi hún búa yfir meiri yfirvegun. Kidman viðurkenndi einnig i viðtalinu að hafa neytt fikniefna en ekki fylgdi sögunni hvort það var fyrir eða eftir sambandið við Cruise. Ekki gefin fyrir píramída Leikkonan Brooke Shields var nýverið á yfirreið um Egyptaland þar sem hún annaðist meðal ann- ars fjáröflun fyrir fátæk böm. Við heimkomuna rigndi spurn- ingum yfir leikkonuna og urðu margir hissa þegar hún sagði að píramídarnir, ein merkilegustu mannvirki heims, hefðu bara ekki heillað sig. En hvað heillaði þá? „Bömin á Egyptalandi voru stórkostleg," sagöi Brooke og bætti við að augu sín hefðu hvað eftir annað fyllst tárum þegar hún tal- aði við bömin með aðstoð túlks. Það verður ekki af hermi skafið að hún er sannkallað gæðablóð. Fergie of feit Sarah Ferguson, eða Fergie, hefur eins og heimsbyggðin veit átt I erfiðu stríði við aukakílóin undanfarin ár. Nú er Fergie hins vegar í meiri vandræðum en áður því í vetur skrifaöi hún undir samning um að gera líkamsræktar- og megrun- armyndband. Þai' með ætlaði Fergie að feta í fótspor glæsikvenna á borð við Cindy Crawford og Elle Macpherson. Málið er að Fergie er bara ekki í formi fyrir myndbandið og framleiðslu þess hefur nú verið frestað fram á haust eða þar til Fergie hefur tekist að létta sig. Sviðsljós Játvarði prins er annt um nýja húsið sitt: Lífverðimir skólausir Játvarður prins hugsar vel um heimjli sitt og er annt um að þar séu allir hlutir í lagi. Þau Sophie hafa gert miklar endurbætur á húsi sínu í Bagshot Park í Surrey og frá fyrsta degi voru starfsliðinu settar skýrar reglur. Eitt af því var að skipa lífvörðun- um að vera skólausir á meðan þeir væra við störf innandyra. Játvarði mun umhugað um öll nýju og dýra gólfteppin og getur ekki hugsað sér að lífverðirnir skilji eftir fótspor um allt hús. „Þeir trúðu ekki sínum eyrum og héldu að jarlinn væri að grínast. En honum var full alvara," sagði einn lífvarðanna í viðtali við Sunday People. Lífverðirnir bragðust sumsé illa við kröfu jarlsins en gerðu mála- miðlun á þá leið að þeir mega vera í skóm svo fremi sem þeir klæðist plastpokum utanyfir skóna. „Þetta er út í hött. Þessir menn eru að hugsa um öryggi jarlshjón- anna en það eina sem Játvarður hugsar um er gólfteppið," sagði heimildarmaður blaðsins. Játvarður og Sophie eru búin að eyða 200 milljónum í húsið sem þau reyndar leigja af drottningunni fyr- ir hálfa milljón á ári. Sölustaöir sem þjónusta áskrifendur í sumarbústööum: Árborg, Gnúpverjahreppi Baula, Stafholtstungum, Borgarfiröi Bjarnarbúð, Brautarhóli Bitinn, Reykholtsdal Borg, Grímsnesi Brú, Hrútafiröi Hlíöarlaug, Úthlíö, Biskupstungum Hreöavatnsskáli Laugarás, Biskupstungum Minni-Borg, Grímsnesi Reykjahlíö, Mývatnssveit Shell, Egilsstöðum Shellskálinn, Stokkseyri Skaftárskáli, Klaustri Staöarskáli, Hrútarfirði Varmahlíö, Skagafiröi Veitingaskálinn, Víöihlíö Verslunin Grund, Flúöum Verslunin Hásel, Laugarvatni Þrastarlundur DV safnað og afhent við heimkomu Áskrifendur sem fara aö heiman í sumarfríinu og verða í burtu í lengri eöa skemmri tíma geta fengið pakka af DV afhentan við heimkomu. Það eina sem áskrifendur þurfa að gera er að hringja í 550 5000 og tilkynna hvenær þeir verða að heiman. Starfsfólk DV safnar blöðunum saman á meðan og afhendir þau þegar áskrifandinn kemur heim aftur. Til þess að fá DV til sín í fríinu þarf ekki annað en að hringja í 550 5000 og tilkynna um dvalarstað og þú færð DV sent sent sérpakkað og merkt á sölustað nærri dvalarstað. Kínverska fyrirsætan á myndinni er einkar glæsileg þar sem hún skartar framúrstefnugreiðsiu á sýningu Vidal Sassoon í Peking í gær. Kínverjar sækja nú hart fram í heimi tískunnar og hafa þegar komið sér upp iðnaði sem veltir milijónum Bandaríkjadala á ári. Símamynd Reuter Býr sig undir föðurhlutverkið Stórleikarinn Richard Gere býr sig nú undir nýtt hlutverk; föður- hlutverkið. Kappinn tilkynnti nefnilega nýlega að hann ætti von á sínu fyrsta barni í byrjun næsta árs. Tímasetningin þykir skemmti- leg hjá Gere því fyrrum kona hans, Cindy Crawford, er sjálf ný- búin að eignast myndarlegan son. Gere er nú giftur fyrrum fyrir- sætunni Carey Lowell en þau hafa verið saman allt frá skilnaði hans við Cindy. Þau Gere og Car- ey era vist yfirmáta hamingjusöm og hlakka mikið til að eignast bamið. Það er að vísu meira en nóg að gera hjá þeim báðum; Carey leik- ur í vinsælum bandarískum sjón- varpsþætti, Law and Order, og Gere bíður spenntur eftir að gam- anmyndin Runaway Bride verði framsýnd seinna í mánuðinum. Þar leiða þau Gere og Julia Ro- berts saman hesta sína í annað sinn. Tsjflu DV Mti þér í 'íÆ'ú Fáið DV sent í sumarbústaðinn:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.