Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1999, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999
formúla „<
Ralf Schumacher:
Verður „litli bróðir" næsti meistari?
- stakk „stóra bróður" af í Frakklandi og hefur kafkeyrt félaga sinn, Zanardi
Hann hefur ávallt verið kallaður
„litli bróðir" ungi efnilegi ökumað-
urinn sem ekur með Williams
Supertec-liðinu í Formúlunni. Ralf
Schumacer er bróðir hins snjalla
Michaels Schumachers en hefur
ávallt neitað að standa í skugga
hans. Þeim er gjaman líkt saman og
gerður samanburður á árangri
þeirra. En Ralf stendur fyllilega
undir nafni og er í dag orðinn einn
af betri ökumönnum í Formúlunni.
Eftir að hafa átt erfitt uppdráttar
sýnir hann þroskaðan akstur, hefur
oftast skilað bil sínum í mark og
unnið sér og liði sínu inn dýrmæt
stig.
Ralf varð 24 ára þann 30. júní síð-
astliðinn en sleit bamskónum, líkt
og bróðir hans, á gokart bílabraut
föður síns, Hann var farinn að aka
fyrir 3 ára aldur og fór því snemma
að afla sér reynslu. Eftir að bróðir
hans Michael, sem er sex áram
eldri, var kominn á fullt skrið í
kappakstrinum tók umboðsmaður
hans, Willi Weber, Ralf upp á sína
arma og vann að því að koma hon-
um á samning hjá þýskum F3 liðum
og síðan áfram í erflðari og hrað-
skreiðari flokka. Eftir að hafa vakið
athygli í Evrópu fór Ralf til Japan
árið 1996 þar sem hann ók í Ail
Nippon 3000, gerði sér lítið fyrir og
vann flokkinn sem er talinn vera
allt að því jafnerflður og Formúla 1.
Með japanska meistaratitilinn í
farteskinu tók Ralf Schumacher
næsta stökk og gerði samning við
Eddie Jordan um akstur í liði hans
fyrir árið 1997.
Ferill hans í Formúlu 1 hófst
með látum. í fyrstu keppninni sem
hann lauk nældi hann sér í þriðja
sætið eri hafði þá að vísu ekið niður
félaga sinn, Fisichella, þegar hann
reyndi framúrakstur. Vinátta þeirra
varð því skammvinn og fékk Ralf á
sig orð fyrir að vera ruddi eins og
bróðir hans.
Reyndar átti yngri Schumacher-
bróðirinn mjög erfitt fyrsta árið hjá
Jordan þar sem hann endaði oftast
utan brautar eftir klaufalegan akst-
ur og talað veu- um að hann yrði lát-
inn fara frá liðinu. Meira að segja
náði hann að aka stóra bróður út úr
kappakstrinum í Lúxemborg 1997
þegar Michael var í baráttu um
heimsmeistaratitil-
inn. En hann þótti
mjög fljótur og átti yf-
irleitt einn af hröð-
ustu hringjunum þótt
hann næði ekki að
ljúka keppni. Þegar
Ralf, hins vegar, lauk
keppni var hann í
stigasætum. Tímatök-
ur og æfingar vora
tími Ralfs
Schumachers og
hann náði oftast
mjög góðum rásstað.
Með það í farteskinu
hófst keppnistímabil-
ÍÖ1998 og nýr félagi,
Damon Hill, kom til
sögunnar.
Ralf og Damon Hill,
sem aldrei haföi verið
mikill vinur
Schumachers- flöl-
skyldunnar, virtust
ná ágætlega saman
en Jordan Muegen
Honda híllinn stóð
ekki undir væntingu-
mog árangur félag-
anna var heldur dap-
urlegur framan af ár-
inu. Þær miklu reglu-
breytingar sem vora
gerðar á bílunum
milli 1997 og 1998
voru illa leystar hjá
Jordan, bíllinn lét illa
að stjóm og var liðið
stigalaust þar til Ralf
átti ótrúlegan akstur
á Silverstone við
Schumacherbræðurnir eru miklir mátar þótt þeir berjist hart á brautinni.
ískyggilegar aðstæður. Hann barð-
ist frá 21. rásmarki og krækti i
fyrsta stig Jordan-liðsins árið 1998.
Úrhellisrigning var mestalla keppn-
ina og sýndi Ralf að hann er meist-
ari 1 rigningu eins og bróðir hans.
Það sýndi hann einnig á SPA þar
sem rigningin buldi á brautinni og
er keppnin þekkt fyrir sögulegan
árekstur við upphaf keppninnar.
Þar sá Ralf hvað í vændum var og
lagði út í kant á meðanþrettán bílar
lentu í einum af mestu árekstran-
um í sögu Formúlu 1. Seinna þann
dag náði hann sínum bestu
úrslitum þegar hann kom
annar í mark á eftir félaga
sínum, Damon Hill.
Ljós Ralfs var farið að
skína og Jordan-bíllinn byij-
aður að virka. í næstu
keppni, sem háð var á Monza
á Ítalíu, náði hann að ljúka
keppni í þriðja sæti og var
það einnig söguleg stund þar
sem stóri bróðir haföi sigrað
og í fyrsta skiptið í sögu For-
múlu 1 voru bræður á verð-
launapafli. Nú voru hjólin
farin að snúast. í stað hins
óbeislaða, villta ökumanns
var kominn fljótur en öragg-
ur bilstjóri sem önnur lið
fóra að líta hýru auga. Það
fór svo að Ralf Schumacher
gerði samning við Frank
Williams um ökumannssæti í
liði hans en Williams á að
baki glæsilegan feril og mun
aka með BMW-vélar á næsta
ári.
Þótt Wifliams-bíllinn í ár
hafi ekki átt mikið í Ferrari
og McLaren hefur Ralf, með
aðdáunarverðum akstri, náð
að krækja sér í stig í öll þau
fimm skipti sem hann hefur
lokið keppni í sumar. í síð-
ustu keppni í Frakklandi
gerði hann sér svo lítið fyrir,
tók fram úr og pakkaði „stóra
bróður" saman; skildi hann
eftir á blautri brautinni sem
hefði nú einhvern tímann
hentað
Michael. Nú var það hins
vegar Ralf sem enn og aftur
gerði góöa hluti í rigningu.
Hann hefur einnig kafkeyrt
félaga sinn, hinn tvöfalda
Cart-meistara Alexandro Zan-
ardi, sem átti að vera skraut-
flöður liðsins en hefur ekki
nema einu sinni náð að ljúka
keppni. Það er því deginum
ljósara að Ralf Schumacher er mað-
ur framtíðarinnar. Frank WillÍEuns
gerir sér það að fullu ljóst og heldur
því fram að í nánustu framtíð eigi
Ralf eftir að hampa hinum eftirsótta
Formúla 1 meistaratitli. Þvílikir séu
hæfilekar hans sem ökumanns.
Silverstone-brautin
Herflug-
völlur
fráfyrri
heims-
styrjöld-
inni
- heimavöllur flestra
keppnisliðanna
Einn stærsti íþróttaviðburð-
ur Bretlands fer fram nú um
helgina á Silverstone-kappakst-
ursbrautinni. Formúla 1 sirkus-
inn er kominn í nágrenni Lund-
únaborgar þar sem hann ætlar
að halda sýningu fyrir ensku
þjóðina sem er ein helsta
kappakstursþjóð heims. Það
sést best á því að Silverstone er
heimavöllur flestra liðanna
sem taka 'þátt í Formúlunni í
dag. Lið eins og Williams, McL-
aren, BAR, Arrows, Stewart og
Jordan era öll heimalið og
verður því sérstaklega lagt í
alla umgjörð fyrir aðdáendurna
sem koma í tugþúsunda tali
hvaðanæva að, meira að segja
um 200 manns héðan frá ís-
landi.
Ökumennirnir David Coult-
hard, Eddie Irvine, Johnny
Herbert og Damon Hill eru
heimamenn. Þeir reyna að sjálf-
sögðu að gera sitt besta fyrir
landa sína sem koma til með að
sjá fyrrum heimsmeistarann,
Damon Hill, keppa í síðasta
sinn en hann á bróðurpartinn
af bresku aðdáendunum.
Damon hefur tilkynnt að þetta
verði hans síðasta keppni og
kemur hann því til með að
hætta þar sem hann hóf feril
sinn, á Silverstone.
Silverstone
Breski Formúla 1 kappaksturinn
8. keppni 11. júlí 1999
150 Copse
170
Maggots
■
Luffield
Lengd:
1998:
5,140 m
59 hringir
303,260 km
PYTTUR
Aksturstími 1
333 m
283 sek.
250
n
Woodcote
km/h
Gír
Shell
Heimildir: FIA
Lengd brautar:
Eknir hringir:
Keppnisvegalengd:
Einkenni brautar:
Einn af stæiri íþrótta-
viðburðum í Engiandi á ári
hverju er þegar Formúla 1
kemur og keppt er á hinni frægu
Silverstone-braut. Hún hefur að bjóða
17 mjög krefjandi beygjur sem bæði eru
mjög hraðar, hraðar og hægar.
Brautin krefst ýtrasta árangurs bíls og
ökumanns. Becketts S-beygjumar em
mjög þýðingarmiklar og uppsetning
bílanna þarf að vera hámákvæm
svo aðþeir tapi ekki tíma.
Verðlaunapallur '98
Michael Schumacher
(Ferrari)
Q Mika Hakkinen
(McLaren-Mercedes)
0 Eddie Irvine
(Ferrari)
Útsending RÚV:
Sunnudag kl. 11.30
Brautarmet:
Hraðasti hringur:
M. Schumacher 1997
á Ferrari á
1.24,475 mín.
Fyrsta hreska
Formúla 1 Grand
Prix keppnin var
haldi á Silverstone
árið 1950 og hefur
verið haldin þar
óslitið síðan 1987.
Silverstone-brautin
hefur mátt þola ótal
breytingar síðan
fyrst var keppt á
henni. Hún er I
reynd herflugvöllur
frá fyrri heimsstyrj-
öldinni. Vegna allra
breytinganna er
erfitt að dæma
brautarmet en
hraðasti tímatöku-
hringur sem mælst
hefur í Formúiu 1
keppnisbraut frá
upphafi náðist árið
1985 á Silverstone
þegar Keke Rosberg
gerði sér lítið fyrir
og fór hringinn á
meðalhraðanum 243
km/klst á Williams
Honda. Eftir breyt-
ingar undanfarinna
ára hefur hraðinn í
brautinni verið
minnkaður og ör-
yggið bætt og er
meðalhraðinn kom-
inn niður í 193
km/h.
-ÓSG
4F
X
*