Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Qupperneq 1
Frægasta fót-
spor sögunnar
30 ára
Bls. 20-21
- >€*a Heföi ekki
| ort um
£ geimferöir
;V ^jjjjj Bls. 21
Segjum bless
við sjónvörpin
Bls. 18
tölvu-i tækni og vísinda
PlayStation
Ungt fólk á
skallanum
Ný könnun markaðs-
greiningarfyrirtæk-
isins Datamonitor
bendir til þess að
árið 2003 muni
drykkjusiðir ungs fólks hafa breyst
töluvert. Samkvæmt könnuninni
mun neysla áfengis í miklu magni
komast í tísku og það ekki lengur
þykja töff að fá sér
bara einn og „vera
rólegur“. Nú verð-
ur það stíf drykkja
sem blívur. Einnig
þykjast menn sjá
fyrir sér ákveðnar
viðhorfsbreytingar.
Eftir linnulausar
predikanir um
ágæti heilbrigðs líf-
emis færist í aukana að ungt fólk,
sem alltaf þarf jú að rísa upp gegn
einhverju, láti það einfaldlega sem
vind um eyru þjóta, þrátt fyrir
sannleiksgildið, og halli sér því nær
bokkunni. Þar spilar líka inn í að
kokkteil-menningin hefur gengið í
endurnýjun lífdaga.
Nokkurs konar „debet-kredit“
kerfi virðist vera komið á hjá
mörgu ungu fólki þar sem ferðir i
líkamsrækt eða eitthvað álíka hollt
og heilbrigt vegi einfaldlega á móti
fylliríunum. Gott ef satt væri!
Tónlistarvefur
Vefsíðan harmony-
central er eins konar
alfræðisafn fyrir tón-
listarmenn. Þar er
hægt að fá upplýs-
ingar um næstum allt sem viðkem-
ur tónlist og hljóðfærum.
Einnig er víðtækt safn
tenginga á aðrar síður
sem fjalla um svipað
efni. Hvort sem einhvern
vantar upplýsingar um
hvernig eigi að smíða
sér gítar frá granni eða
stilla bassann sinn þá
eru þær upplýsingar
fyrir hendi. Bæði byrj-
endur og lengra komn-
ir ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Slóðin á síðuna er www.harmony-
central.com.
Þessir þúsund
ára gömlu pen-
ingar . fundust
fyrr í þessum
mánuði þar sem
áður stóð hin
foma borg
Tiberias í norðurhluta ísraels. Á
sumum þeirra er mynd Jesú og
grískar áletranir honum til dýrðar á
borð við „Jesús, Messías, konungur
konunga" og „Jesús, Messías, sigur-
vegarinn".
Peningamir, 82 talsins, þar af 58
með Jesúmynd, fundust ásamt öðr-
um munum í þremur stórum leir-
kerum sem falin voru undir gólfi
fomrar byggingar. Krossfarar lögðu
Tiberias í rúst undir lok 11. aldar og
rændu borgina („björguðu menning-
arverðmætum" hafa þeir víst kallað
það eins og aðrir sigurvegarar
mannkynssögunnar) en þeim sást
yfir fjársjóðinn á felustað sínum.
Þetta er stærsta safn myntar af
þessu tagi og þykir fundurinn mjög
merkilegur. Talið er að kristnir
pUagrímar hafi komið með pening-
ana til Tiberias, sem þá var undir
íslamskri stjórn, frá Konstant-
ínópel.
Á innfelldu myndinni er einn
peninganna í nærmynd og sést þá
Jesúmyndin vel.
Iblhií