Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1999, Page 4
20 u m h v e rf i MIÐVIKUDAGUR 14. JULI 1999 not Minna sorp í tunnuna Stór hluti heimilissorps eru matarafgangar. Þá má nota í garöinn til aö bæta hann. Grafiö holu í beö, e.t.v. 1 metra á kant og bætið mold- inni sem kemur upp úr holunni í nærliggjandi beö. Setjiö greinar neöst í holuna til aö lofti betur um hana og svo laufblöö eöa ann- aö þekjandi efni ofan á. Síðan er holan fyllt meö tiltækum úr- gangi, svo sem kaffi- korgi, eggjaskurn, grænmetisafgöngum og slíku. Flestur matur má fara ofan í holuna en þó ekki fiskur eöa kjöt því þá laöast meindýr aö staönum. Þegar holan er oröin full er sett mold yfir hana og grafin ný á öörum staö í garö- inum. Eftir r veröa miklu meiri efni í moldirini og:'gróöurinn dafnar. (0 o E c ffi > (0 0) > E 3 Umhvenfismál Olíufélagsins hf.: Únofa hluti af starfseminni tíma æringar- Umhverfisráöuneytið veitti í fyrra Olíufé- laginu hf. umhverf- isviðurkenningu ráðuneytisins en fyr- irtækið hefur i mörg ár hugað að um- hverfisáhrifum starfsemi sinnar. Fyr- ir um flórum árum var mörkuð sér- stök umhverfisstefna sem varð um leið hluti af heildarstefnumótun fyrir- tækisins. Stofnaður var vinnuhópur um umhverfismál og í framhaldi af því var ákveðið að koma á fót form- legu umhverfis- og öryggisstjómunar- kerfi hjá Olíufélaginu hf. í framhaldi af þessu var sérstakur starfsmaður ráðinn til þess að sjá um umhverfis- og öryggisstjómunarkerfið. Umhverfiseftirlit á þjónustustöðvunum Umhverfisstefna Olíufélagsins nær til allra starfsmanna, jafnt stjómenda sem almennra starfsmanna. Olíufélag- ið hf. leggur áherslu á að allir starfs- menn, hvar sem er á landinu, hafi i huga ábyrgð sína. Mikil áhersla er lögð á eftirlit með umhverfisþáttum á þjónustustöðvunum. Komið hefur ver- iWiiilíyMi'iRftg4ml Iniíiii Krókhálsi 1 - simi 567-8888 - fax 567-8889 - www.pmt.is illjl/ Olís hefur unnifl að fjölmörgum umhverfis- og uppgræðslumálum um árabii. Það er stefna fyrirtækisins að standa vörfl um náttúru (slands. Með umhverfisstefnu sinni vill Olís stuðla að því að hver kynslóð skili landinu og auðlindum þess í betra horfi til þeirrar næstu. ið á skjalfestum verklagsreglum til þess að fylgjast með og mæla reglu- lega höfuðeinkenni reksturs og starf- semi þjónustustöðva Olíufélagsins sem geta haft umtalsverð áhrif á um- hverfið. Verklagsreglumar fela í sér skráningu upplýsinga til að rekja megi frammistöðu og rekstrarstýr- ingu sem er mikilvæg fyrir stefnu og markmið Oliufélagsins hf. í umhverf- ismálum. Sorp flokkað Lögð er áhersla á að mengunar- varnabúnaður þjónustustöðva sé full- nægjandi og virkni sé ávallt sem best. Við þróun og val á nýjum vöram og þjónustu er lögð mikil áhersla á að tekið sé tillit til umhverfisins. Á aðal- skrifstofu fyrirtækisins er sorp flokk- að í gæðapappír, dagblöð og tímarit og annan úrgang. A þjónuststöðvunum er sorp flokkað í pappír, pappa, gler og málma, spilliefni og annan úrgang. Öll úrgangsolía er endurnýtt hjá Sem- entsverksmiðjunni á Akranesi. Alltaf hægt að gera betur Þó svo að mikið átak hafi verið gert með því að koma á heilsteyptu umhverfis- og öryggisstjómunarkerfi hjá Olíufélaginu hf. vita stjómendur fyrirtækisins að alltaf er hægt að gera betur. Umhverfisstjórnun er spurning um viðhorf sem menn til- einka sér smám saman. Stjómendur fyrirtækisins vita að stöðugt er hægt að gera betur og er umhverfisstjóm- un órofa hluti af allri starfsemi fyrir- tækisins. -hdm Umhverfis- stefna ESSO - allar bensínstöövar Olíufé- lagsins hafa rekstrarhandbók þar sem kemur fram umhverfis- stefna bensínstöðvarinnar. - stöðvarstjóri ber ábyrgð á umhverfisstefnu bensínstööv- arinnar og sér til þess að henni sé framtýlgt. - verklagsreglur eru útbúnar og notaðar til að finna hættu, meta áhættu og áhrif og koma á forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum til að minnka áhættu og tryggja aö farið sé aö lögum. - skjalfestar verklagslýsingar eru notaöar til að tryggja um- hverfisvernd. - þörf á þjálfun er skoöuö reglulega og starfsmenn sendir á námskeið. - skilvirkt upplýsingaflæði er milli starfsmanna bensín- stöðva, aðalskrifstofu, birgja, viðskiptavina, verktaka og yfir- valda um umhverfismál. - neyðaráætlun er til fyrir allar bensínstöðvar Olíufélagsins. skráningar eru á eftirliti, frá- vikum og úrbótum og þeim er safnað yfir hæfilegt tímabil. - skoðað er reglulega hvort Ol- íufélagið hafi náö markmiðum sínum varöandi umhverfismál. - innra eftirlit er framkvæmt reglulega samkvæmt áætlun og þar til gerðum verklagsregl- um. Haraldur Böðvansson hf.: Próun tengd umhvenfismálum - stanfsmenn enu virkir þátttakendun F yrirtækið Haraldur Böðvarsson hf. er elsta útgerðarfyrirtæki landsins. í 93 ára starfi þess hefur ávallt verið lögð áhersla á að fyrirtækið vinni í sátt við lífríki lands og sjávar. Fyrir- tækið hefur nýlega gefið út veglega upplýsingahandbók og má í henni finna ýmsan fróðleik um umhverfis- stefnu fyrirtækisins. Innra eftirlitskerfi Það er staðfesta og markmið Har- aldar Böðvarssonar hf. að fyrirtækið framleiði einungis úrvals afurðir úr fiskistofnum sem nýttir eru á skyn- saman og sjálfbæran hátt úr hreinu og ómenguðu hafsvæði. HB kappkost- ar að umgangast auðlindina af virð- ingu og varfærni. í fyrirtækinu er innra eftirlitskerfi sem miðar að því að bæta og fegra nánasta umhverfi fyrirtækisins. HB leggur rika áherslu á að afurðir sem framleiddar era hjá fyrirtækinu innihaldi ekki skaðleg efni af örverufræðilegum eða efna- fræðilegum toga. íslensk stjómvöld hafa varið miklum fjármunum í rann- sóknir á lífríki hafsins og heilnæmi sjávar og nýtur fyrirtækið góðs af því. Á undanfórnum árum hefur verið unnið myndarlega að aðbúnaði starfs- manna og verndun umhverfis og þar lagður grunnur að markvissum vinnubrögðum í anda umhverfis- stjórnunar. Við þessa vinnu hefur verið horft til margra atriða og má þar nefna úrgangs- og fráveitumál, hráefnisnotkun og nýtingu, notkun og meðhöndlun hættulegra efna, vöru- þróun með tilliti til umhverfismála, umbúðanotkun og gæðamál. Stjóm- endur fyrirtækisins hafa unnið ötul- lega með starfsmönnum sínum að stöðugum umbótum á hráefnanotkun og bættri nýtingu hráefnis. Fjölmarg- ar nýjungar litu dagsins Ijós í fram- leiðslu HB á síðasta ári. Vöraþróun hjá fyrirtækinu með tilliti til um- hverfismála er öflug og koma margir starfsmenn þar að málum. Sem dæmi má nefna framleiðslu á þurrkaðri loðnu þar sem þróuð hefur verið tækni sem hvergi er notuð annars staðar í heiminmn. Þá er unnið að rannsóknarverkefni með nýja tækni við frekari vinnslu á uppsjávarfiski og hefur verkefnið fengið stuðning Rannsóknarráðs íslands. Mengun minnkað Eitt af aðalmarkmiðunum við end- urappbyggingu síldar- og fiskimjöls- verksmiðju fyrirtækisins var að bæta umhverfi verksmiðjunnar, minnka lyktar- og reykmengun frá henni ásamt því að vinna verðmeiri afurðir. Eftir að lokið var við að taka allt afsog í verksmiðjunni í gegnum þvott sem dró verulega úr lyktarmengun er vinna nú langt komin við uppsetn- ingu búnaðar þar sem afsogið er tekið frá þvottaturni og það brennt í eld- hólfum kyndikatla verksmiðjunnar. Vonir eru bundnar við að með þess- um aðgerðum verði árangur enn betri varðandi minnkun á lyktarmengun. Þá er ljóst að tilkoma nýrri og full- Umhverfismark- mið Haraldar Böðuarssonar - heilnæmi afurða og gæða- stjórnun við framleiöslu þeirra. - að umgangast auðlindir sjávar af ábyrgð. - að hámarka nýtingu á hráefn- um. - að koma í veg fyrir orkusóun. - að nota plnota umbúðir þar sem því veröur viö komiö. - að nota umhverfisvæn efni. - að umgengni um fyrirtækið sé til fyrirmyndar. komnari skipa sem útgerðin hefur ný- lega keypt og verið er að byggja mun skila betra hráefni til verksmiðjunnar sem er mikilvægur þáttur í því að vinna enn verðmeiri afurðir og auk þess verður minni lykt við þá fram- leiðslu. Verksmiöjan hitar upp húsnæðið Unnið hefur verið mikið starf við að nýta svokallaðan glatvarma frá þéttivatni soðkjamatækja tU upphit- unar á húsnæði fyrirtækisins. Hér er um að ræða mikla orku sem hefur hingað tU verið ónýtt. Nýlega var byrjað að hita hluta af húsnæðinu með þessari orku og á næstu mánuð- um verður aUt húsnæði fyrirtækisins á Akranesi hitað upp með þessum varma þegar verksmiðjan er í gangi. Umhverfishópur hjá starfsmönnum í nýútgefinni upplýsingahandbók um rekstur og starfsemi fyrirtækisins er sett fram stefna HB í umhverfis- málum. TU að vinna að og viðhalda markmiðum sem koma fram í stefn- unni hafa starfsmenn verið skipaðir í umhverfishóp sem gerir tiUögur að umbótaverkefnum og vinnur að fjár- hagslegu-, tæknilegu- og umhverfis- legu mati á mismunandi lausnum. Hópurinn skilgreinir markmið hvers verkefnis, ábyrgðarmaður er skipaður og verklok áætluð. -hdm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.