Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1999, Blaðsíða 1
19 Lánleysi Víkinga algjört '/20-21; ^rrn . •• - Evrópumeistaramót unglinga í sundi: Örn Arnarson, sundmaðurinn snjalli úr Hafnarfirði, gerði það gott á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi í Moskvu í gær en hann varð Evrópumeistari í 200 metra skriðsundi. Heiðmar til Wuppertal - verður þriðji íslendingurinn hjá liðinu Heiðmar Felixson, handknatt- leiksmaður úr Stjörnunni, hefur skrifað undir samning við þýska A- deildarliðið Wuppertal. Frá þessu var skýrt á heimasíðu KA í gær. Heiðmar er 22 ára og án efa ein efnilegasta örvhenta skytta landsins en hann var í hópi markahæstu leikmanna 1. deildar í fyrra. Hann lék með KA til skamms tíma og hef- ur síðustu vikur spilað með Þórsur- um í 2. deildinni i knattspymu og átt drjúgan þátt í sigurgöngu þeirra i síðustu leikjum. Heiðmar verður þriðji íslending- urinn hjá Wuppertal næsta vetur en fyrir eru þeir Valdimar Grímsson og Dagur Sigurðsson. -VS Heiðmar Felixson í leik með Stjörnunni gegn ÍBV á síðasta keppnistímabili. Það varður mikil blóðtaka fyrir Garðabæjarliðið að missa Heiðmar. Hjalti til FH FH-ingar og Eyjamenn hafa náð sam- komulagi um félagaskipti Hjalta Jónsson- ar, knattspymumanns, úr ÍBV i FH. Hjalti er 20 ára gamall miðjumaður sem leikið hefur þrjá leiki með ÍBV í úrvalsdeildinni í sumar og alls 5 leiki með liðinu. Hann ætti að styrkja leikmannahópinn hjá FH-ingum sem em að berjast í efri helmingi 1. deildarinnar. -GH Orn tok gullið Orn Arnarson gerði það gott á Evrópumeistaramóti ung- linga í sundi í Moskvu í gær en hann var Evrópumeistari í 200 metra skriðsundi. Öm synti á 1:51,56 mín. og varð 14/100 úr sekúndu á undan pólskum sundmanni. Sigur Amar var aldrei í hættu en hann leiddi sundið allan tímann. Þetta er í fyrsta sinn sem íslendingar eignast Evrópumeistara á þessu móti. Brian Marshall, þjáifari Arnar, var ánægður með sundið og sagði hann Om hafa synt af miklu öryggi. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir var hársbreidd frá því að komast í úrslit í 100 metra baksundi en hún varð í 9. sæti í undanúr- slitunum á tímanum 1:06,12 mín., íslandsmet hennar í grein- inni er 1:05,61 mín. Jakob Jóhann Sveinsson hafnaði í 15. sæti í undanúrslitum i 50 metra bringusundi á 30,72 sekúndum. Sævar Öm Sigur- jónsson var 18. í sömu grein á 31,20 sekúndum. Þá varð Þuríður Eiríksdóttir í 22. sæti í 50 metra bringu- sundi og var aðeins 1/100 frá lágmarki í A-hóp Sundsambands- ins og íris Edda Heimisdóttir hafnaði í 27. sæti á 35,67 en báð- ar sundkonurnar bættu sig í þessari grein. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.