Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1999, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999 Spurningin Hver finnst þér að ætti að verða formaður Samfylkingarinnar? Guðríður Vilbertsdóttir, umsjón- armaður í Njarðvíkurskóla: Jón Baldvin Hannibalsson. Kristján Steingrímur Jónsson myndlistarmaður: Þetta er of erfið spuming til þess að svara. Ingibjörg Mattíasdóttir nemi: Jón Baldvin Hannibalsson. Kristín Helga Markúsdóttir lög- fræðingur: Ef ég á að velja bestu konuna þá segi ég Ingibjörg Sólrún. Stefán Þorsteinsson tæknifræð- ingur: Verður það ekki hún Mar- grét Frímannsdóttir? Lesendur_______________________ Ófyrirgefanleg atvik á Bessastöðum - siöareglur leiðsögumanna brotnar Allir fagmenntaðir leiðsögumenn fá leiðbeiningar og ströng fyrirmæli um umgengni á Bessastöðum og öðrum stöðum sem ferðamenn heimsækja í leiðsöguferðum, segir Birna m.a. Birna G. Bjarnleifsdóttir, um- sjónarm. Leiðsöguskóla Islands: Vegna fréttar í DV 19. júlí sl. um að erlendir ferða- menn liggi á gluggum forseta- setursins á Bessastöðum er brýnt að eftirfar- andi komi fram. Undanfama ára- tugi hafa slík at- vik komið upp annað veifið, en þeim virðist hafa íjölgað á allra síðustu árum, ekki síst á þessu sumri. Vegna þessa og ýmissa annarra atvika í skoðunar- ferðum sem seldar em sem leið- söguferðir hefur Leiðsöguskóli ís- lands fengið síendurteknar fyrir- spumir um hvort leiðsögunemar fái ekki kennslu í umgengni á ferða- mannastöðum og við ferðamenn. Því er mikilvægt að fram komi að allir fagmenntaðir leiðsögumenn fá ekki aðeins leiðbeiningar heldur ströng fyrirmæli um umgengni á Bessastöðum og öðrum stöðum sem ferðamenn heimsækja í leiðsögu- ferðum. Ég hef sem umsjónarmaður Leið- söguskólans margoft haft samband, bæði við skrifstofu forseta íslands og kirkjuvörð Bessastaðakirkju, og útskýrt málið. Því verður ekki trú- að að nokkur fagmenntaður leið- sögumaður láti það viðgangast að farþegar þeirra kíki á glugga hjá forsetanum. Ástæðan fyrir því að þessum ófyrirgefanlegu atvikum hefur fjölg- að á þessu sumri er sú að margir að- ilar selja leiðsöguferðir („guided to- urs“) án þess að þeim ferðum stjórni fagmenntaðir leiðsögumenn. Stjórnendur eru bæði íslendingar og erlendir hópstjórar sem ekki hafa leiðsögupróf. Ég hef öruggar heimildir fyrir því að stjórnendur þeirra ferða segi sínum farþegum að þeir megi ganga heim að forseta- setrinu, auk þess sem þeir segja far- þegunum alls konar vitleysur um land og þjóð. Þeir brjóta allar siða- reglur sem fagmenntuðum leiðsögu- mönnum eru settar, en allir eru síð- an stimplaðir sem „leiðsögumenn". Þetta sýnir að núverandi ástandi í leiðsögumálum er algjörlega óvið- unandi og er hneisa fyrir íslenska ferðaþjónustu. Hugtakið leiðsögu- maður virðist algjörlega misnotað í íslenskri ferðaþjónustu. Víða á meg- inlandi Evrópu hafa ekki aðrir heimild til að fara á ákveðna ferða- mannastaði með ferðamenn en þeir sem geta framvisað leiðsögumanna- skírteini. Þau skirteini fá ekki aðrir en þeir sem hafa staðist ströng leið- sögupróf. Ferðamálayfirvöld og yfir- menn safna og annarra staða sem ferðamenn heimsækja setja þær reglur til að tryggja örugga um- gengni og að rétt og satt sé sagt frá. - Það er löngu kominn tími til að leiðsöguréttindi séu tekin fóstum tökum hér á landi. Aðalfréttum Sjónvarps seinkað - enginn virðist ábyrgur Sesselja Hr. Guðmundsdóttir skrifar: Enn einu sinni máttu dyggir áhorfendur Ríkissjónvarps sætta sig við riðlun á útsendingu aðalfrétta- tíma vegna íþróttakeppni. Við höf- um þurft að sætta okkur við fótbolta, handbolta og nú bættist golf við. Ber fréttastjóri Sjónvarpsins ekki metn- að og virðingu fyrir starfi sinu, að maður tali nú ekki um gagnvart áhorfendum? Ríkissjónvarpið og -út- varpið eru kynnt sem eitt helsta ör- yggisnet landsins og vegna þessa er byggt á nauðsyn þess að allir lands- menn sem sjónvarp eiga séu með skylduáskrift. En hvar var þá örygg- ið þetta sunnudagskvöld? Allir landsmenn vissu um um- brot í Mýrdalsjökli og sem hefðu getað verið byrjun á hverju sem var og við sem áttum skyldfólk í námunda við staðinn höfðum vissu- lega áhyggjur. Maður veltir fyrir sér hversu mikil umbrot þurfi til að hafa forgang fyrir íþróttakappleiki? Hvenær er mælirinn fullur? Hver ber ábyrgðina? Hver stjórnar? Er orðið tímabært að fá fréttastjóra sem ber meiri virðingu fyrir starfi sínu og áhorfendum? Að lokum: Páll Magnússon frétta- stjóri Stöðvar 2 hefur lýst því yfir að fréttatímar stöðvarinnar verði ávallt á réttum tíma. Það hefur staðist. Þessu er hér með komið á framfæri fyrir hóp fólks sem beið eftir sjónvarpsfréttum sunnudags- kvöldið 18. júlí sl. Viðgerðir á Hallgrímskirkju - verktakar greiði viðgerðina Gísll Guðmundsson skrifar: Því hefur verið slegið upp í frétt- um nýlega og það ekki í fyrsta skipti að enn einu sinni þurfi að gera viðamiklar lagfæringar á Hall- grímskirkju. Steypuskemmdir og fleira er á döfinni. Ganga nú kirkj- unnar þjónar og fyrrv. biskup fram fyrir skjöldu og staðhæfa að þetta verði að gera af almannafé, þ.e. rík- inu. Þessu vil ég mótmæla harðlega. Ekkert slíkt er við hæfi. Margsinnis hefur verið gert við þessa kirkju og sífellt taka skemmd- ir sig upp að nýju. Hverjir voru verktakar við fyrri viðgerðir? Hver er ábyrgur fyrir byggingu kirkju- skipsins í upphafi? Á steypa i slíku LO þjónusta allan sólarhringinn H H rksH r\/) H Lesendur geta sent mynd af sér með bréfum sínum sem birt verða á lesendasíðu „Margsinnis hefur veriö gert við þessa kirkju og sífellt taka skemmdir sig upp að nýju. Er ekki rétt að gera verktaka fyrri viðgerða eða þá sem byggðu ábyrga? mannvirki ekki að endast lengur en hér er raunin? Að sjálfsögðu eiga verktakar og þeir viðgerðarmenn sem gert hafa við Hallgríms- kirkju að greiða væntanleg- ar viðgerðir. Ekki íslenskir skattborgarar eða hið opin- bera. Það er meira en nóg komið af þessum og álíka uppákomum í þjóðfélaginu og þar sem sóttir eru fjár- munir til ríkisins, fyrir til- stilli þekktra einstaklinga sem ekki virðast þekkja muninn á réttu og röngu. Það er vítavert og ekki annað en frekja og tilætlun- arsemi hjá þeim sem eru í forsvari fyrir byggingu og viðgerðir Hallgrímskirkju að heimta fé úr opinberum sjóðum til viðgerðarinnar. Hérna á sannarlega að spyrna við fæti. Eyðslan og óhófið á ekki að vera í fyr- irrúmi þegar Hallgríms- kirkja á í hlut. Þá miklu minnkun má ekki tengja sálmaskáldinu Hallgrími Péturssyni. DV Símaspjöll Haraldur Guðnason skrifar: Landssíminn var bylting. Með sím- anum kom stóraukið öryggi. Margra alda einangrun var rofin verulega. Nú eru komnir til sögu ofuruppar mark- aðshyggjunnar, fara mikinn og segja: Nú get ég. Sveitarfélög hafa jafnvel þurft að beita afbrigðum til að sam- þykkja græjumar þeirra sem ekki beint prýða sitt umhverfi. - Og gæfan lék við íslandssimaforstjórann. Hann hitti fyrir hinn rétta markaðsmann, sjálfan borgarstjórnarforsetann og gerði við hann og hans kompaní samning upp á milljarð. Þetta er að finna réttu línuna! Vel ráðið að setja Þórarin V. Lands- símaforstjóra (eða hver setti hann?). Nú losna værukærir verkalýðsrekend- ur við erfiðan viðsemjanda. Nú kom- ast þeir kannski lengra? Engin samúð vegna Bessette? Gunngeir hringdi: Mér finnst eins og öðrum hörmulegt að heyra um flugslysið þar sem Kenn- edy yngri fórst ásamt konu sinni og mágkonu, þeim Bessette-systrum. En hvað er þetta? Það er varla minnst á systurnar. Allt snýst um John Kenn- edy yhgri. Auðvitað var hann þekktast- ur, en fyrr má nú aldeilis vera. Það er hvergi minnst á konurnar og ekkert virðist talað eða hlerað hvað ættingjar þeirra eða foreldrar hafa að segja. Ekki heldur minnst á systur Johns Johns, Caroline. Mér stendur ekki á sama. Er engin samúð vegna kvennanna? Friöurinn og fyrirtækin Árni Stefánsson hringdi: Ég var að enda við að lesa forystu- greinina í DV i dag (mánud. 19. júlí), „Friðurinn úti“. Þetta er mikil atlaga að stjórnendum fyrirtækja í landinu. Allt út af Básafellsmálinu? Þarna fer ritstjórinn í leiðaranum á fullt gegn öllum fyrirtækjum hérlendis og segir að stjórnendur fyrirtækja verði að átta sig á því að fjölmiðlar muni fylgj- ast með þeim með sama hætti og þeir beini athygli sinni að stjórnmála- mönnum og opinberum aðOum. Sá tími sé liðinn þegar forráðamenn fyr- irtækja voru látnir afskiptalausir, friðurinn sé úti að þessu leyti. - Það er ekki annað! Ég segi nú fyrir mig, vegna þess að ég hef átt aðild að fyrir- tækjarekstri: hvenær hefur fyrirtækj- um verið hlíft við gagnrýni eða oln- bogaskotum fiölmiðlanna? Mér sýnast fjölmiðlar almennt vera á móti fyrir- tækjum, sérstaklega einkafyrirtækj- um. Og hananú! Fátækt og nektardans J.K.Ó. skrifar: Ég er undrandi á því að þeir íslend- ingar skuli vera til sem geta samþykkt að veita búllumeisturum leyfi fyrir nektardansi hér sem byggist fyrst og fremst á innílutningi erlendra stúlkna sem margar eiga skrautlega fortíð og eru einnig orðaðar við fíkniefni og vændi. Þetta álit hverfur ekki þótt yf- irvöld gefi leyfi fyrir nektardansi þessara kvenna. Og nú er farið að bera blak af þessum stúlkum og veru þeirra hér með því að segja að þær komi nú frá fátækum löndum þar sem konur hafi lítið handa á milli. Þær komast víst í feitt hér hvað varðar „millihandafeng" hjá viðskiptavinun- um. En viljum við ljá konum þessum „feitt milli handanna" þótt það kosti íslenska feður og syni eilífa kröm í formi fíkniefna eða kynsjúkdóma? Meiri viðskipti við Bandaríkin Þórður hringdi: Mér finnst harla lítið um vai'ning sem framleiddm- er í Bandaríkjunum í verslunum hér. Eins og vörurnar eru þó góðar og vandaðar. Ég vitna t.d. til heimilstækja, bíla, og matvæla. Ég held að flestir hafi mjög góða reynslu af vörum og framleiðslu í Bandaríkjunum. Ég skora á kaup- menn að beina innkaupum sínum meira þangað en raunin er í dag. Ef breyta þarf reglugerðum eða lækka tollana þá á að gera það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.