Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Side 3
16
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
17
Sport
Sætur sigur
Keflavík vann Víking, 3-2, í botnslagnum
Það var ljóst strax í upphafi
leiksins við Víking að Keflvík-
ingar ætluðu að selja sig dýrt.
Takmarkið fyrir þetta keppnis-
tímabil hafði verið skýrt, vera
í efri hlutanum og blanda sér
toppbaráttuna.
Öpnunarleikur síðairi um-
ferðarinnar í gærkvöld gefur
Keflvíkingum nokkrar vonir,
því yfirburðir þeirra voru
miklir lungann úr leiknum.
Það sem Keflvíkingar þurfa
aftur á móti að gera til að eiga
raunhæfa möguleika á að ná
markmiðum sínum er að ná að
spila fullar 90 mínútur án þess
að hiksta og það gerðu þeir
ekki í sunnanrokinu í gær-
kvöld eftir að hafa náð að spila
mjög góðan fyrri hálfleik, þar
sem boltinn var látinn ganga á
milli manna og góðar fyrirgjaf-
ir sáust.
Þeir urðu máttlitlir í upp-
hafi þess síðari og Víkingar
gengu á lagið. Víkingar gerðu
þá breytingu í hálfleik að setja
Þránd Sigurðsson fram en
hann hafði spilað sem aftasti
maður í vöm í fyrri hálfleik.
Þetta útspil Lúkasar Kostic
virtist hrífa, ásamt því að Vík-
ingar komu miklu ákveönari
til leiks í síðari hálfleik. Eftir
að Víkingar höfðu jafnað leik-
inn virtist eins og þungu fargi
væri létt af Keflvíkingum því
þá fóm þeir að spila eins og lið
að nýju. Þeir tóku leikinn al-
gerlega í sínar hendur og
stjórnuðu honum það sem eftir
var og voru í rauninni klaufar
O ~ ÍD lJ°rarinn Kristjánsson (00.)
^ náði að pota boltanum yflr,
línuna aðþrengdur af vamarmönn-
um, eftir fyrirgjöf frá Róbert.
0-© Ragnar Steinarsson (35.)
fékk boltann eftir stutta
homspyrnu Gunnars og sneiddi hann
yfir varnarmenn og Ögmund.
0.A Sváfnir Gíslason (57.) náði
w v góðu skoti fyrir utan mark-
teig eftir að Keflvíkingar björguðu á
línu frá Amari Hallssyni.
0.0 Þrándur Sigurósson (64.)
w w skallaði yflr Bjarka mark-
vörð eftir góða sendingu frá Sváfni af
vinstri vængnum.
0.0 Eysteinn Hauksson (65.)
w w beint úr homspymu, boltinn
lenti milli vamarmanna og mark-
manns og skoppaöi i netið.
að ná ekki að bæta við einu
eða tveimur mörkum í lokin
því þeir fengu sannarlega
tækifærin til þess.
„Þetta var sætur sigur og
við þurftum virkilega að hafa
fyrir þessu. Við sýndum
ákveðinn karakter þegar Vík-
ingarnir náðu að jafna, því það
hefur verið okkar veikleiki í
sumar að detta niður í seinni
hálfleik. Við höfum verið að
vinna mikið í þeim málum og
sigurinn í kvöld gefur okkur
fyrirheit um það að þetta sé
allt að koma. Við höfum trú á
því að við séum betri en stigin
á töflunni segja til um og ætl-
um okkur hærra,“ sagði Ragn-
ar Steinarsson, hinn eitilharði
miðjumaður Keflvíkinga.
„í fyrri hálfleik börðumst
við ekki sem lið inni á vellin-
um heldur sem einstaklingar,
það rétti enginn öðrum hjálp-
arhönd. í hálfleik ákváðum við
að selja okkur dýrt, spila eins
og lið og gefa okkur alla í
seinni hálfleikinn. Við vorum
mjög nálægt því að ná stigi eða
stigum, en því miður fengum
við á okkur slæmt klaufamark
þegar við vorum á ná yflrhönd-
inni í leiknum og það hafði
áhrif á framhaldið. En við
erum engan veginn hættir, við
munum berjast til síðasta blóð-
dropa í þessari deild og enginn
skildi afskrifa Víkinga," sagði
Þrándur Sigurðsson, fyrirliði
og besti maður Víkings. -KS
Keflavík3(2) - Víkingur2(0)
Bjarki Guðmundsson - Garðar Newman, Kristinn
Guðbrandsson @, Snorri Már Jónsson @ - Gestur
Gylfason (Jóhann Benediktsson 42.), Ragnar Steinarsson @@, Ey-
steinn Hauksson @, Gunnar Oddsson, Róbert Ó. Sigurðsson @ - Krist-
ján Brooks @, Þórarinn Kristjánsson @
Gul spjöld: Ragnar S., Garðar N.
Keflavík:
Víkingur:
Ögmundur Rúnarsson - Arnar Hallsson, Þrándur
Sigurðsson @, Gordon Hunter, Tryggvi Bjömsson
(Colin McKee 80.) - Þorri Ólafsson, Hólmsteinn Jónasson @, Lárus
Huldarsson, Bjami Hall @ (Valur Úlfarsson 69.) - Sváfnir Gíslason @
(Arnar Hrafn Jóhannson 80.), Sumarliði Ámason
Gul spjöld: Ögmundur R., Valur Ú.
Keflavik - Víkingur Keflavík - Vikingur
Markskot: 19 9 Horn: 12 1 Áhorfendur: 350. Völlur: Blautur, erfitt að fóta sig. Dómari: Gylfi Þór Orra- son, ágætur.
Maður leiksins: Ragnar Steinarsson, Keflavík. Sem klettur á miðjunni, stöðvaði margar sóknir Víkinga.
Nýtt met
Skagamaðurinn Stefán Þ.
Þórðarson setti í gærkvöld met
sem hann eflaust er ekki stoltur
af. Hann var rekinn út af á 13.
mínútu leiksins við KR og aldrei
í sögu efstu deild-
ar hefur leikmað-
ur verið rekinn
svo snemma af
velli í leik.
Stefán bætti met
Baldurs Bjarna-
sonar um eina
mínútu en Bald-
ur var rekinn af velli á 14. mín-
útu þegar lið hans, Fram, lék við
ÍBV í fyrra.
-ÓÓJ/VS
Undir sjálfum
okkur komið
- segir Atli Eövaldsson
2. DEILD KARLA
Völsungur - Tindastóll........0-7
Sverrir Þór Sverrisson 5.
Leiknir R. - Selfoss .........0-3
Valgeir Reynisson 2, Tómas Ellert
Tómasson.
KS - Þór A....................2-1
Agnar Sveinsson, Víðir Vernharðs-
son - Ólafur V. Júlíusson.
Tindastófl 11 8 2 1 38-8 26
Sindri 10 6 4 0 16-2 22
Selfoss 11 5 4 2 28-21 19
Leiknir R. 11 5 4 2 19-13 19
Þór A. 11 5 2 4 19-16 17
HK 10 4 2 4 20-20 14
KS 11 4 2 5 14-14 14
Ægir 10 1 4 5 13-26 7
Léttir 10 1 1 8 14-37 4
Völsungur 11 1 1 9 10-34 4
jj # 3. deild karla
D-riðill:
Leiknir F. - Þróttur N........1-2
Einherji - Huginn/Höttur .....1-3
Þróttur N. 8 5 2 1 13-7 17
Hug./Hött. 8 4 3 1 18-11 15
Leiknir F. 8 3 3 2 18-9 12
Einherji 8 0 0 8 5-27 0
[ J í l DCILD KV.
A-riðill:
FH - Haukar .................5-0
Fylkir - Grótta..............0-3
B-riðill:
Þór/KA - Hvöt................5-0
Atli Eðvaldsson, þjálfari
KR-inga, var að vonum
kampakátur eftir sigurirm á
ÍA en hvernig fannst honum
leikurinn?
„Við tókum
hér þrjú stig og
þau tekur eng-
inn af okkur.
Við vissum það
fyrir að þetta
yrði erfiður
leikur eins og
kom á daginn.
Við gerðum
okkur svolítið
erfitt fyrir eftir
að þeir misstu
mann út af.
Það var
kannski ekki fyrr en eftir að
við misstum mann út af að
við hrukkum fyrir alvöru í
gang. Það skiptir ekki máli
hvernig við fórum að því að
vinna sigur. Stigin þrjú
skipta öllu,“ sagði Atli.
Hver einasti leikur
járn í járn
- í kjölfar þessa sigurs
hafið þið styrkt stöðu ykk-
ur á topnnum. Verður úr
þessu nokkuð aftur snúið?
„Það er algjörlega undir
okkur sjálfum komið. Við
vitum alveg að hver einasti
leikur sem eftir
er verður járn í
járn. Ég vona
bara að við
verðum tilbún-
ir í þá baráttu.“
- Er kominn
meistara-
stimpill á lið-
ið?
„Ég vona að
hann sé kom-
inn. Öll þau lið
sem hafa unnið
titilinn á síð-
ustu árum,
hafa fengið þennan stimpil á
sig, og ég vona að við fáum
hann einnig. Það eru átta
leikir eftir og þetta hefur oft
áður litið svona vel út hjá
KR. Við erum á toppnum
eins og er og höfum tapað
tveimur stigum færra en
Eyjamenn. Við verðum að
sjá hvað þeir gera í næsta
leik,“ sagði Atli Eðvaldsson.
-JKS
Stuðnings- ^
V menn KR voru
W fjölmennir á Akra- '
nesi í gærkvöld og hér
fagna þeir Guðmundi
Benediktssyni eftir að hann
skoraði fyrra mark vesturbæinga.
DV-mynd Hilmar Þór
Sport
,'0i ÚRVALSDEILD
hefur náð einni æflngu með
Keflavíkurliöinu.
Úkrainskur leikmaóur er kom-
inn til Keflvíkinga, hann heitir
Bohdan Lonevsky og kemur frá
fyrstu deildar liðinu Skala. Hann
kemur á eigin vegum. Sam-
kvæmt forráðamönnum Keflvik-
inga lofar hann góðu, en hann
Ivar Jónsson lék ekki með
Frömurum gegn Grindavík í gær-
kvöld vegna veikinda.
Grindvikingar hafa enn aldrei
tapað leik í efstu deild á aðalleik-
vanginum í Laugardal. Þeir hafa
heldur aldrei tapað fyrir Fram í 8
viðureignum félaganna i efstu
deild til þessa.
KR-ingar unnu í gærkvöld sinn
fyrsta sigur á ÍAá Akranesi í
flmm ár, eða síðan 1994.
KR-ingar settu skemmtilegan
svip á leikinn á Akranesi i gær-
kvöld en þeir mættu þangað
hundruðum saman, vel merktir
sínu félagi.
Vesturbœingar ollu síðan mikl-
um umferðartöfum á heimleið-
inni en eftir leik var hálftíma bið
við nyrðri munna Hvalfjarðar-
ganga.
Keflvikingar héldu uppteknum
hætti og skoruðu þrjú mörk á
heimavelli gegn Víkingum. Það
hafa þeir nú gert í fimm síðustu
leikjum liðanna suður með sjó.
Sváfnir Gíslason, Víkingurinn
efnilegi, skoraði sitt fyrsta mark í
efstu deild í gærkvöld.
Saint Paul Edeh, 19 ára gamall
Nígeriumaður, kemur til reynslu
til Framara í næstu viku. Edeh,
sem er vamarmaður, lék síðast á
Indlandi en spilaði áður í
atvinnudeildinni i heimalandi
sinu.
Ólafur Ingason átti að sjálfsögðu
að fá einn bolta í einkunnagjöf
DV fyrir
frammistöðu
sina með Val
gegn Breiða-
.bliki í fyrra-
kvöld. Boltinn
hans Ólafs
skoppaði of langt og lenti hjá fé-
laga hans, Jóni Þ. Stefánssyni.
-KS/ÓÓJ/JKS/VS
■ v:
Fram 1 (0) - Grindavík 3 (0)
Ólafur Pétursson - Ásgeir Halldórsson @, Jón Þ.
______ Sveinsson, Sævar Pétursson - Freyr Karlsson (Hali-
dór Hilmisson 66.), Hilmar Bjömsson @, Ágúst Gylfason @, Steinar
Guðgeirsson, Sigurvin Ólafsson @ (Valdimar K. Sigurðsson 83.),
Anton Bjöm Markússon (Ásmundur Amarsson @ 46.) - Marcel Oerle-
mans. Gul spjöld: Jón Þ.
Albert Sævarsson - Sveinn Ari Guðjónsson, Stevo
ISUilMÍHaB Vorkapic, Guðjón Ásmundsson @, ÓIi Stefán Fló-
ventsson - Paul McShane, Hjálmar Haflgrímsson (Ólafur Ingólfsson
74.), Sinisa Kekic @@, Duro Mijuskovic (Jóhann Helgi Aðalgeirsson
80.) - Scott Ramsey @ (Vignir Helgason 85.), Grétar Hjartarson @.
Gul spjöld: Sveinn, McShane.
Fram - Grindavlk
Markskot: 12
Horn: 6
Áhorfendur: 451
Fram - Grindavík
Völlur: Blautur en góður.
Dómari: Eyjólfur Ólafsson,
sæmilegur.
Maður leiksins: Sinisa Kekic, Grindavík
Þriggja stiga maður fyrir Grindvikinga, galdraði fram tvö mörk
Uppðor
- fyrir fyrri leiki Fram og Grindavikur
Framarar þóttu fyrir leik
sinn við Grindavík í gær
hafa fengið fleiri stig en þeir
hefðu unnið til og að sama
skapi höfðu Grindvíkingar
kvartað mikið yfir að missa
verðskulduð stig.
Það var líka eins og þessi
leikur væri tO þess að gera
upp fyrri mál. Framarar
voru þannig heldur betri i
þessum leik en uppskáru að-
eins 1-3 tap fyrir Grindavík í
Laugardalnum í gær.
Fyrri hálfleikur var slakur
en í seinni hálfleik var allt
O-© siSurvin Ólafsson (67.)
v skallaði inn góöa fyrirgjöf
Ágústs Gylfasonar frá vinstri. Albert
Sævarsson hálfvarði boltann.
Grétar Hjartarson (72.) Sin-
” isa Kekic lék illa á Framvöm-
ina og stakk honum inn á Grétar sem
lyfti yfir Ólaf markvörð.
A.0 Sinisa Kekic (80.) stakk sér
v ” fram milli tveggja vamar-
manna Fram og skallaði inn fyrirgjöf
Grétars Bjartarsonar frá hægri.
0-0 Scott Ramsey (85.) slapp
w w einn í gegn og lék á á Ólaf í
markinu eftir að Grétar fleytti útsparki
Alberts Sævarssonar innfyrir vömina.
annað upp á teningnum.
Framarar uppskáru sann-
gjarna forustu þegar þeirra
besti maður, Sigurvin Ólafs-
son, skoraði sitt fyrsta mark
í Frambúningnum og
skömmu slðar gat hann bætt
öðru við en skaut fram hjá.
Þá tók besti maður vallar-
ins, Sinisa Kekic, upp galdra-
skóna, skildi alla Framvöm-
ina eftir gapandi áður en
hann lagði upp jöfnunar-
markið og landaði síðan nán-
ast sigrinum átta mínútum
síðar er hann kom Grindavík
yfir og gestimir tryggðu síð-
an sigurinn með sínu þriðja
marki á 13 mínútna kafla.
Framarar sátu eftir með
sárt ennið, fengu kannski að
kynnast hinni hliðinni að
tapa stigum í jöfnum leik í
stað þess að fá þau ódýrt eins
og oft áður í sumar.
Grindvíkingar eru þekkt-
ir fyrir allt annað en gef-
ast upp þegar á móti blæs
og sigurinn í gær er enn
eitt dæmi um seigluna í
liðinu, sem aldrei fellur.
„Svona er fótboltinn, við
vorum heppnir, eitthvað
annað en undanfarið,"
sagði hetja Grindvíkinga,
Sinisa Kekic.
„Loksins. Við slökuðum
aldrei á og uppskárum
eftir því. Við höfum verið
ellefu inni á gegn 13 til 14
mönnum flestalla leikina
og það er sætt að vera
bara ellefu og vinna,“ sagði
Albert Sævarsson hjá
Grindavík.
„Við gerðum mistök, sem
kostuðu okkur sigurinn og
við verðum að skoða betur til
að gera betur næst,“ sagði
Ásgeir Elíasson þjálfari
Brottrekstrarnir vitleysa
Það er alltaf erfitt að
leika 1/3 af mótinu
einum færri og það
kannski stóran hluta af
leikjunum. Ég persónu-
lega segi alveg eins og er
að dómarinn gerir al-
gjöra vitleysu að reka
báða leikmennina út
af í leiknum. Leikurinn hefði þró-
ast allt öðruvisi ef við hefðum
fengið að spila með okkar ellefu
mönnum," sagði Alexander
Högnason, fyrirliði ÍA.
„Nú er ekkert annað en snúa
bökum saman og vinna einhverja
leiki og gleyma því að við ætlum
að vera með í einhverri toppbar-
áttu. Við verðum að hífa okkur
upp á töflunni ef ekki á illa að
fara. Þetta má alls ekki fara út í
panik og stress. Ef við höldum
fullum mannskap inni á vellinum
í þeim leikjum sem eftir eru þá
hef á trú á því að við vinnum eitt-
hvað af leikjum," sagði Alexander
við DV. -JKS
stiga forysta KR-inga eftir 0-2 sigur á Akranesr
Stöðugleikinn í KR-liðinu er orðinn slikur
að hyað úr hveiju fer að verða vart við anga
af meistarastimpli úr vesturbænum eða
kannski einhverjir finni hann nú þegar. KR-
liðið er mjög heilsteypt og massíft frá aftasta
manni til hins fremsta og er þetta eitt besta lið
þeirra í mörg ár. Óhætt er að fullyrða að ekk-
ert lið sem þeir hafa teflt fram síðustu þrjá
áratugi hefur jafnsterka möguleika á því að
koma heim með titilinn eftir 31 árs bið. Ýmis-
legt kann að geta gerst í þeim átta umferðum
sem eftir eru en engu að síður eru teikn á lofti
sem ýta undir það sem að framan var sagt.
Það sem öðru fremur gerði KR-liðið enn öfl-
ugra en áður var tilkoma Bjarka Gunnlaugs-
sonar. Hann er geysilega öflugur í fremstu víg-
línu og var einmitt sá leikmaður sem liðið
vantaði til að skerpa á sóknarleiknum.
í leiknum á Skaganum í gærkvöld voru
KR-ingar mun hvassari í öllum aðgerðum og
unnu verðskuldað, 0-2.
Leikurinn tók að vísu aðra
stefhu þegar Stefáni Þórð-
arsyni var vikið af leik-
velli snemma leiks. Fyrir
þessa uppákomu voru
Skagamenn mjög ákveðnir
og Kári Steinn Reynisson
var mikill klaufi að skora
ekki í dauðafæri. Tveimur
mínútum eftir brotthvarf Stefáns átti Gunn-
laugur Jónsson skalla í slá eftir homspymu.
Baráttan einkenndi viðureignina og leik-
urinn var á stundum fullharður. Það tók
nokkurn tíma fyrir KR-inga að átta sig á því
að þeir voru manni fleiri. Þeir skoraðu að
0.0 Guómundur Benediktsson
” (55.) Bjarki náði boltanum,
óð upp að markinu og lagði boltann
fyrir á Guðmund sem skoraði.
0.0 Bjarki Gunnlaugsson (76.)
v w Einar Þór gaf laglega send-
ingu inn fyrir á Bjarka sem lék á Ólaf
Þór og skoraöi af stuttu færi.
vísu mark í fyrri hálfleik sem var
dæmt réttilega af vegna rangstöðu.
Það var greinilegt að KR-ing-
ar lögðu áherslu á að skora
sem fyrst í síðari hálfleik og
það gekk eftir. Þeir hrukku
fyrir alvöra í gang og sér-
staklega gerðist sóknarleik-
urinn beittari með þá Bjarka
og Guðmund atkvæðamikla
frammi. Mjög vel var staðið
að mörkunum, þau bæði í
raun skólabókardæmi.
Jafnt var í liðum þegar David Winnie fékk
reisupassann á 65. mínútu. Þrátt fyrir það
gerðust Skagamenn ekkert ágengari og lík-
legri til að minnka muninn. Þeir vora ekki
hugmyndaríkir i sóknarleiknum og því var
vöm KR-inga ekki í neinum vandræðum.
Skagamenn hafa ágætum mannskap á að
skipa en það kemur einfaldlega ekki nógu
mikið út úr honum. Að öllu eðlilegu ætti lið-
ið að vera mun ofar en einhverjar
óheillakrákur sveima yfir Skaganum. Alex-
ander Högnason, Gunnlaugur Jónsson, Jó-
hannes Harðarson voru bestir þeirra og
Heimir Guðjónsson átti ágæta spretti.
Það er ekki ónýtt fyrir KR-inga að hafa þá
Bjarka Gunnlaugsson og Guðmund Bene-
diktsson innanborðs. Einar Þór Daníelsson
var sömuleiðis sterkur. Vörnin vann einnig
vel saman. Eins og KR-ingar leika kann að
reynast erfitt fyrir önnur lið að stöðva þá.
KR-ingar hafa meðbyrinn og það er aldrei að
vita nema hann skili einhverju góðu þegar
upp er staðið. -JKS
0 X
5 I LANDSSÍMA
DEILDIN -
Urvalsdeild karla
KR 10 7 2 i 23-8 23
ÍBV 9 5 3 i 14-6 18
Fram 10 3 5 2 13-11 14
Leiftur 9 3 4 2 8-10 13
Grindavík 10 3 2 5 11-12 11
Valur 9 2 5 2 12-16 11
Breiðablik 9 2 4 3 9-9 10
Keflavik 10 3 1 6 13-18 10
ÍA 8 1 4 3 3-7 7
Víkingur R. 10 1 4 5 10-19 7
Leiftur og ÍBV mætast á sunnudag
kl. 17.
IA0 - KR 2(0)
Ólafur Þór Gunnarsson © - Sturlaugur Haraldsson, Alex-
ander Högnason ©, Gunnlaugur Jónsson ©, Reynir Leós-
son (Ragnar Hauksson 83.) - Pálmi Haraldsson (Unnar Valgeirsson 80.), Jóhann-
es Haröarson @, Heimir Guöjónsson @, Kári Steinn Reynisson (Ragnar Áma-
son 80.) - Kenneth Matijane, Stefán Þóröarson. Rautt spjald: Stefán Þ. (13.) fyr-
ir aö slá Kristján. Gul spjöld: Sturlaugur, Matijane, Alexander, Gunnlaugur.
Kristján Finnbogason - Bjami Þorsteinsson ®, David
______ Winnie, Þormóður Egilsson ®, Siguröur öm Jónsson ®
- Einar Þór Daníelsson ®, Sigursteinn Gíslason @, Þórhallur Hinriksson,
Sigþór Júlíusson (Amar Jón Sigurgeirsson 73.) - Bjarki Gunnlaugsson @@
(Indriöi Sigurðsson 77.), Guðmundur Benediktsson ® (Edilon Hreinsson 89.)
Rautt spjald: Winnie (65.) fyrir brot Matijane. Gul spjöld: Sigursteinn.
ÍA-KR ÍA-KR
Markskot: 9 10 Völlur: Þungur og nokkuö
Horn: 3 3 hvasst. Dómari: Ólafur Ragn
Áhorfendur: 1200 arsson, ágætur.
Maður leiksins: Bjarki Gunnlaugsson, KR
Útsjónarsamur og mjög ógnandi í sóknarleik KR.