Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Blaðsíða 4
18
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
TSport
DV
Ólafur Gottskálksson átti mjög góð-
an leik í marki skoska A-deildarliðs-
ins Hibernian í fyrrakvöld þegar lið-
ið gerði 2-2 jafntefli gegn dönsku bik-
armeisturunum í AB. Ólafur sýndi á
köflum glæsileg tilþrif og er greini-
lega i mjög góðu formi.
Raufoss, lið Björns Jakobssonar,
sigraði Honefoss, 2-1, í norsku B-
deildinni i knattspyrnu í fyrrakvöld.
Björn lék allan leikinn og stóð fyrir
sínu en þetta var annar leikur hans
með liðinu og hafa þeir báðir unnist.
Með sigrinum komst Raufoss úr fall-
sætinu og er í 9. sæti með 17 stig.
Keppni í dönsku A-deildinni í knatt-
spyrnu hefst á sunnudaginn. íslend-
ingaliðið AFG, sem þeir Tómas Ingi
Tómasson og Ólafur H. Kristjáns-
son leika með, mætir dönsku bikar-
meisturunum í AB í fyrsta leik. Ólaf-
ur hefur átt fast sæti í liði AFG á
undirbúningstímabilinu á miðjunni
en Tómas Ingi hefur verið úti og inni.
Þjóöverjinn Dietmar Haman skrif-
aði i gær undir samning við Liver-
pool sem keypti hann frá Newcastle
fyrir 870 milljónir króna og hefur
Gerard Houllier knattspymustjóri
nú keypt leikmenn fyrir 25 milljónir
punda eða um 3 milljaröa íslenskra
króna. Hvort það nægir ti! að koma
gamla stórveldinu i fremstu röð skal
ósagt látið en á Anfield Road ríkir
þónokkur bjartsýni fyrir tímabilið.
Tvö íslandsmet voru sett á flokka-
meistaramóti STÍ í Leirdúfuskotfími
á dögunum. Alfreó K. Alfreösson,
SR, tryggði sér flokkameistaratitil í
meistaraflokki með nýju íslandsmeti
en hann náði 116 stigum auk 25 stiga
i úrslitum og bætti fyrrverandi Is-
landsmet um eitt stig í 141.
Alfreó var einnig í A-sveit Skotfé-
lags Reykjavikur sem setti nýtt ís-
landsmet í liðakeppni, fékk 340 stig
og bætti þar með sitt eigið met um
eitt stig.
-GH/ÓÓJ
HM freistar
Jóhann-
es Már
Marteins-
son sprett-
hlaupari er
í góðu
formi
þessa dag-
ana og von-
ast eftir að
bæta ís-
landsmetið
í 100 m
hlaupi um helgina.
„Ég er búinn að búa mig
þokkalega undir þetta mót og
býst við skemmtilegu móti. Ég
ætla að sjálfsögðu að taka þetta
íslandsmet. Ég er í svona 95%
formi. Eins og mér líður sjálfúm
ætti ég að geta slegið metið, ég er
í formi til þess. Þetta veltur
svolítið á aðstæðum en ég vil
samt ekki lofa neinu. í
framtíðinni langar mig líka að
komast á Ólympíuleikana,"
sagði Jóhannes. -ÍBE
_ Meistaramót Islands í frjálsum íþróttum í Kópavogi: _
Spennandi
- um helgina þar sem allt fremsta frjálsíþróttafólk íslands tekur þátt
Um helgina verður 74. Meistara-
mót íslands í frjálsum íþróttum
haldið á Kópavogsvelli. Úrslit móts-
ins fara fram á milli 14 og 16 laugar-
dag og sunnudag og búist er við
skemmtilegri og spennandi keppni.
Þórey Edda Elísdóttir stangar-
stökkvari og Magnús Aron Hall-
grímsson kringlukastari eru einu
afreksmennirnir sem missa af
meistaramótinu vegna meiðsla. Ótt-
ast er að Þórey Edda glími við
brjósklos í baki og því eru helm-
ingslíkur á að hún keppi á Evrópu-
meistaramóti 22 ára og yngri sem
haldið verður í Gautaborg í lok júlí.
Magnús Aron er meiddur á hné og
nær sér vonandi með haustinu.
Jón Arnar verður með
Jóli Amar Magnússon hefur átt
við meiðsli að stríða á undanforn-
um mótum en keppir þrátt fyrir það
á meistaramótinu í þremur grein-
um. Jón Arnar er í óðaönn að und-
irbúa þátttöku sína á heimsmeist-
aramótinu sem haldið verður í
Sevilla á Spáni i ágúst.
Vala Flosadóttir hefur nú þegar
keppt í tíu mótum í sumar án þess
að ná framúrskarandi árangri en
vonast til að standa sig vel á meist-
aramótinu en hún kom til landsins
í morgun.
Guðrún Arnardóttir grindahlaup-
ari hefur átt við smávægileg meiðsli
að stríða en mætir galvösk á meist-
aramótið um helgina og gaman
verður að sjá hana og Silju
Ólafsdóttur eigast við í 400 m
hlaupi.
Martha Emstsdóttir er í topp-
formi þessa dagana og hefur aldrei
hlaupið jafnmikið, en til dæmis
hljóp hún 155 kílómetra í síðustu
viku á æfingum.
Einar Karl Hjartarson há-
stökkvari keppir um helgina og von-
ast til að bæta sig um þrjá sentí-
metra og ná þar með lágmarki á HM
fullorðinna.
íslandsmet í 100 m hlaupi?
Vonast er til að hinn knái sprett-
hlaupari Jóhannes Már Marteins-
son nái að bæta íslandsmet Jóns
Arnars í 100 m hlaupi þar sem hann
er í mjög góðu formi og brautin í
Kópavogi er talin sú hraðasta á
landinu. Forvitnilegt verður að sjá
hvort Jóhannesi tekst að slá metið
en Vésteinn Hafsteinsson skoraði á
hann að bæta metið á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í gær.
Vigdís í Sidneyhópinn
Vigdís Guðjónsdóttir spjótkastari
verður á laugardaginn tekin inn í
afrekshóp Frjálsiþróttasambands-
ins, Sidneyhópinn, þar sem hún hef-
ur náð að kasta spjótinu 55,54 metra
og er hún þar með níundi keppand-
inn til að komast í Sidneyhópinn.
Selt verður inn á meistaramótið í
fyrsta skiptið í ár og kostar 500 kr.
fyrir fullorðna en frítt er fyrir börn
yngri en 12 ára. Ágætisveðri er spáð
um helgina og því er von á að nokk-
ur íslandsmet falli. -ÍBE
I framför
Silja Ólafsdóttir
spretthlaupari hef-
ur verið að bæta
sig mikið í sumar
og keppti um síð-
ustu helgi á Meist-
aramóti unglinga
þar sem hún fékk
sjö gull og setti
tvö íslandsmet.
„Ég er að vonast til að geta
bætt mig. Ég keppi í flmm grein-
um um helgina, 100, 200, 400 og
tveimur boðhlaupum. Ég keppi
líka á Norðurlandamótinu í
ágúst en ég var þriðja þar í
fyrra, ég hlakka bara til og mig
langar bara að vinna, stefni að
því. Mig langar líka að keppa á
Ólympíuleikunum í Aþenu
2004,“ sagði Silja.
Dagsformiö
Einar Karl
Hjartarson er að
sögn Vésteins
Hafsteinssonar
einn besti ung-
lingahá-
stökkvari Evr-
ópu um þessar
mundir.
,Formið er fint. Ég stefni á
lágmark á HM en maður getur
náttúrlega ekki lofað því, það fer
eftir því hvort ég kemst upp í
þessa hæð. Það kemur þegar það
á að koma. Þetta fer rosalega eft-
ir dagsforminu. Einn daginn get-
ur maður verið í algjöru klikki
en daginn eftir getur maður ver-
ið að gera snilldarhluti. Ég stefni
á sigur á Evrópumeistaramóti
unglinga í Riga. -ÍBE
Meistaramótið
í frjálsum
íþróttum
Vala Flosadóttir úr ÍR verður með á meistaramótinu um helgina en margir
frjálsíþróttamenn og konur eru fjarrverandi vegna meiðsla.
Fimm a HM
Fimm frjálsíþróttamenn hafa náð lágmörkum fyrir HM sem haldið
verður í Sevilla á Spáni í ágúst en þeir eru Jón Arnar Magnússon tug-
þrautarkappi, Martha Ernstsdóttir langhlaupari, Guðrún Arnardóttir
grindahlaupari, Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir stanga-
stökkvarar. Að auki á Einar Karl Hjartarson hástökkvari enn góða
möguleika á að ná lágmörkum fyrir mótið, en til þess þarf hann að bæta
sig um þrjá sentímetra.
Evrópumeistaramót 22 ára og yngri verður haldið i Gautaborg 29. júlí
til 1. ágúst og fyrir það hafa þrír keppendur náð lágmörkum en það eru
þau Vala, Þórey Edda og Sveinn Margeirsson langhlaupari.
Evrópumeistaramót unglinga, 19 ára og yngri, verður síðan haldið í
Riga í Lettlandi og fyrir það hafa fjögur íslensk ungmenni náð lágmörk-
um. Það eru þau Einar Karl, Silja Ólafsdóttir spretthlaupari, Björn Þor-
steinsson kringlukastari og Óðinn Björn Þorsteinsson spjótkastari. -ÍBE
24. 7. Motocross
kl. 14 við Sandskeið
25. 7. Rallscross
kl. 14 við Krýsuvíkurveg
<———-—-—
______________
tsso