Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1999, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1999 DV
léttir
Watergate í Hafnarfirði:
Segulband með móðg-
andi ummælum fannst
- Marta Bergmann hyggst leita réttar síns vegna ólöglegrar uppsagnar
Segulbandsspóla sem Marta Berg-
mann, fyrrverandi félagsmálastjóri
Hafnarfjarðar, hefur óskað eftir frá fyr-
irtækinu Almiðlun ehf. í Hafnarfirði
kom í leitimar seinni partinn í gær.
Marta segir að hún hafi ítrekað óskað
eftir upptöku af fundi bæjarstjómar
Hafnarfiarðar þar sem hún segir að
ærumeiðandi ummæli um hana hafi
verið látin falla af formanni félags-
málanefndar bæjarins, Skarphéðni
Orra Bjömssyni. Halldór Ámi Sveins-
son hjá Almiðlun tilkynnti blaðinu í
gær að upptakan væri tilbúin fyrir
Mörtu þegar hún óskaði. Upptakan
kann að verða lykilatriði í málaferlum
Mörtu gegn fyrri vinnuveitanda sínum
fyrir ólögmæta uppsögn. Slíkar kröfur
geta hlaupið á tugmn milljóna.
Marta var orðin úrkula vonar um
að spólan væri til, vitað var að upp-
taka af fundinum hafði brugðist, spól-
an hafði runnið út. Nú er komið í ljós
að ummælin komust á band. „Ef segul-
bandsspólan hefði verið týnd, þá hefði
það verið afar miður og komið núver-
andi bæjaryfirvöldum vel, það er auð-
vitað alvarlegt mál ef sönnunargagn
hverfur eins og allt leit út fyrir. Þetta
leit út eins og lítiö Watergate,“ sagði
Marta Bergmann, fyrrum félagsmála-
stjóri Hafnarfjarðar, í samtali við DV í
gær og fagnaði þvi að spólan væri
fundin.
Uppsagnir á óhæfu fólki
Segulbandsspólan sem um ræðir er
frá bæjarstjórnarfundi í byijun júní.
Marta Bergmann
- líkti hvarfi upp-
tökunnar, sem
nú er fundin, við
Watergate.
Magnús Gunn-
arsson bæjar-
stjóri - eru
menn eitthvað
verri?
DV ræddi við
hann. Hann sagði
slíkt fráleitt mgl.
Tryggvi Harðarson
í minnihlutanum
sagði að málatil-
búningur í kring-
um Mörtu hefði
verið með eindæm-
um klaufalegur. Árni Guðmunds-
Verið væri að son - fer fram á
stofna embætti sem virðingu.
væri nákvæmlega
það sama og Marta gegndi með ágætum.
Tryggvi Harðar-
son - klúður hjá
meirihlutanum.
Þar viðhafði formaður félagsmálaráðs
ummæli sem Gestur Jónsson, lögmað-
m- Mörtu, vill gjaman fá í hendur. Þar
sagði ungi sjáffstæðismaðurinn Skarp-
héðinn Orri Bjömsson varabæjarfúll-
trúi að menn verði að geta sagt upp
óhæfu fólki þegar hann ræddi um fyr-
irhugaðar skipulagsbreytingar í bæjar-
kerfinu. Ein breytingin var að segja
upp tveim æðstu mönnum Félagsmála-
stofnunar. Svipuð ummæli viðhafði
Ágúst Sindri Karlsson, einnig ungur
bæjarstjómarmaður Sjáifstæðisflokks-
ins. Fjölmargir hlýddu á orð Skarphéð-
ins Orra, meðal annars í útvarpi Al-
miðlunar.
Buil, segir bæjarstjórinn
Magnús Gunnarsson bæjarstjóri
spurði einfaldlega hvort menn væru
orðnir eitthvað verri að halda því fram
að bærinn stæði í málum sem þeim að
láta upptökur af fundum hverfa, þegar
Verðkönnun DV sýnir allt að 16,4% hækkun á matvörum á ári:
Algjörlega út
úr kortinu
- fákeppni hefur áhrif, segir Jóhannes Gunnarsson
Jóhannes Gunn-
arsson, fram-
kvæmdstjóri
Neytendasam-
takanna.
Eins og fram kom í verðkönnun,
sem birtist í DV á fimmtudaginn, hafa
orðið talsverðar hækkanir á matvöru-
markaðnum undanfarið ár. 1 könnun
DV á fimmtudag-
inn var kannað
verð í sjö stór-
mörkuðum á höf-
uðborgarsvæðinu,
þ.e. Bónusi, Fjarð-
arkaupum, Hag-
kaupi, Nettó, Nóa-
túni, Nýkaupi og
10-11. Kannað var
verð á nákvæm-
lega sömu vöru-
flokkum og kann-
aðir voru í septem-
ber í fyrra. Könn-
unin leiddi í ljós talsverðar verðhækk-
anir hjá öllum verslununum umfram
hækkanir á vísitölu neysluverðs. Vísi-
tala neysluverðs hefur hækkað um
3,4% frá því í september í fyrra þar til
nú í júlí en verðhækkanir hjá mat-
vöruverslunum eru frá 5,5% hjá Nóa-
túni, þar sem þær eru minnstar, upp í
16,4% hjá Bónusi þar sem þær eru
mestar.
Óeðlilegar hækkanir
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtakanna,
hefur ýmislegt við þessar verðhækkan-
ir að athuga: „Þetta eru óeðlilegar
hækkanir. Þaö er alveg á hreinu. Þetta
eru hækkanir langt umfram eðlOega
verðlagsþróun í landinu og eiginlega
eru þessar hækkanir bara alveg út úr
kortinu. Þama er spuming hvort fá-
keppni sé að ryðja sér til rúms. Mér
finnst að þessir menn sem stjóma á
matvörumarkaðnum verði einfaldlega
að fara að taka i hnakkadrambið á
sjálfum sér. Nú er matvörumarkaður-
inn alltaf að þjappast meira og meira
saman og manni bara líst engan veg-
inn á stöðuna og hvernig verðþróun á
sér stað.“ -GLM
Skeiðarvogsbrú steypt:
Miklabraut lokuö í dag
Steypuvinna er hafin við brúna á mislægu gatnamótunum í Skeiðarvogi. Er þetta
stærsti áfangi við steypuframkvæmdir sem ráðist hefur verið í í byggð hér á
landi. Framkvæmdirnar munu að sjálfsögðu raska umferð í borginni en settar
hafa verið upp merkingar á 12 stöðum á Miklubraut til að beina umferð í réttar
áttir og til að fólk velji sem fyrst leið fram hjá. Umferð um Mikiubraut út úr bæn-
um hefur verið lokuð frá því f morgun og verður þar til klukkan sjö í kvöld. Þó er
möguleiki á að komast þar út úr borginni til hádegis. -hdm
Tölvumistök hjá Flugleiöum:
Rukka fyrir ferðalag ári síðar
Um fjörutíu viðskiptavinir Flug-
leiða eru þessa dagana að fá bréf
frá Fjárreiðudeild Flugleiða. Þeir
eru skuldfærðir, nærri ári eftir að
þeir fóru í ferðalög sín, um stórar
upphæðir eða allt að fimm milljón-
ir króna samtals. Flugleiðir biðjast
afsökunar á þessum mistökum og
vona að þau valdi fólki ekki óþæg-
indum.
Valur Ásgeirsson, forstöðumaður
deildarinnar, segir að þarna hafi
átt sér stað mistök í tölvufærslum
þegar breytingar voru gerðar í sept-
ember 1998. Mistökin hafi átt sér
stað aðeins einn dag.
Um áramótin kom í ljós hvers
kyns var. Fjárreiðudeildin var hins
vegar ekkert að flýta sér, vildi
sannreyna að viðskiptavinirnir
væru raunverulega í skuld.
Hjá flestum fyrirtækjum munar
um fé af þessari stærðargráðu en
Valur sagði það ekki skipta sköpum
í rekstri fyrirtækisins. Hann viður-
kennir að ýmsir hafi orðið ergilegir
Flogið í september ‘98
Rukkað í júlí ‘99
Vegna tólvumistaka var úttekt á VISA-kon yöar i sqjtember 1998 eklci skuldfxn á kon yðar
Um er að nða kr. 115.900.00 vegna farmmiðakaupa hjá Samvinnuferðum-Landsyn Þessil
upphæð veröur skuidfærð á kort yðar i þessum mámuði og kemur ttl greiðslu i byrjun ágúst.
Flugleiðir biöjast afsokunar á þessum mistokum og vonum að þau valdi yður ekki miklum |
oþxgindum
„Eg segi bara að
það verður aö gera
þá kröfu til þeirra
sem vinna við bæj-
armálin að þeir
fjaili um málin af
þokkalegri virð-
ingu fyrir þeim
sem hlut eiga að
máli,“ sagði Ámi
Guðmimdsson, for-
maður Starfs-
mannafélags Hafn
arfjarðar, í gær. -JBP
Úr bréfi Flugleiða, sem eflaust hefur hitt marga illa fyrir.
aö taka við bréfinu. Greinilegt er að utanlandsferð.
ýmsir töldu sig hafa fengið ókeypist ekki til.
Slíkar
ferðir eru
-JBP
stuttar fréttir
Breytingar lánasjóös
Fyrirhugaðar
breytingar á af-
£ greiðslu íbúða-
lána hjá íbúða-
lánasjóði voru
kynntar á sam-
I ráðsfundi með
: bönkunmn í gær.
I Þær verða
: kynntar Félagi fasteignasala á mánu-
dag og almenningi á þriðjudag, í kjöl-
far umsagnar samstarfsaðila íbúða-
t; lánasjóðs. Vísir.is greind frá.
Deiliskipulag samþykkt
Á fundi borgarráðs í gær var sam-
þykkt deiliskipulag fyrir Laugardal.
Gert er ráð fyrir úthlutun tveggja
byggingarlóða við Suðurlandsbraut,
1 fyrir skrifstofubyggingar Landssím-
ans og afþreyingarhús. Fulltrúar
| Sjálfstæðisflokks hafna algjörlega
hinu nýja deiliskipulagi Laugardals-
ins og segja það umhverfis- og skipu-
lagsslys sem ekki sé hægt að leið-
rétta síðar. Visir.is greindi írá.
Stefnir BSRB
Sveitarfélagið Árborg ætlar að
stefna BSRB til að kanna réttar-
stööu sína gagnvart meintum hóp-
uppsögnum leikskólakennara. Þetta
| er í fyrsta sinn sem sveitarfélag fer
í mál til að fá úr þvi skorið hvort
uppsagnir séu lögmætar eða ekki.
RIJV sagði frá.
Kvótinn austur og vestur
Vestfirðir og Austfirðir fengu
stærstan hluta byggðakvótans sem
stjóm Byggðastoínunar úthlutaði í
gær. Flateyri, Suðureyri og Þing-
eyri fengu samtals 387 tonn. Breið-
dalsvik, Fáskrúðsfiörður og Stöðv-
arfiörður fengu samtals 388 tonn.
Gæsluvaröhald stytt
Hæstiréttur
stytti í gær
gæsluvarðhalds-
úrskurð Héraðs-
dóms yfir Þór-
halli Ölveri
Gunnlaugssyni.
Hann var nú úr-
skúrðaður í
gæsluvarðhald til 1. desember. Hér-
aðsdómur hafði áður úrskurðað
hann í varðhald til 21. desember.
Eignast meirihluta
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
(KASK) hefur keypt meirihluta
hlutafiár í Sláturfélaginu Þrihym-
ingi hf. og er stefnt að sammna Slát-
urhúss KASK við Þríhyming. Fjár-
festingarfélagið Þor ehf., sem er í
eigu fyrrverandi eigenda Hagkaups
og samstarfsaðila, átti bróðurpart
þess hluta sem KASK keypti. Við-
skiptablaðið á Vísi.is greindi frá.
Framlengd leyfi
Um 20 sérstök vínveitingaleyfi,
sem heimfia veitingahúsum að selja
áfengi frá föstudagsmorgni tO
klukkan eitt aðfaranótt mánudags,
vom afgreidd í borgarráði í gær. Af-
greiðslu umsóknar skemmtistaðar-
ins Þórscafé um framlengt vinveit-
ingaleyfi var frestað. RÚV sagði frá.
Breytingar hjá Japis
Nýstofnað
fiárfestingarfé-
lag i eigu Jóns
Pálmasonar,
Páls Kr. Páls-
sonar og Sigurð-
ar Gísla Pálma-
sonar hefur
keypt eignar-
hlut Péturs Steingrímssonar í Japis.
Pétur stofhaði Japis ásamt Birgi
Skaptasyni árið 1978 og áttu þeir
hvor um sig 50% hlut í félaginu. .
Alvariegt umferðarslys
Alvarlegt umferðarslys varð á
Akureyri í gær þegar tveir bílar
rákust saman á Drottningar-
braut. Ökumaður og farþegar
annars bOsins voru fiórfr Banda-
ríkjamenn en tveir í hinum.
Bandaríkjamennirnir óku suður
Drottningarbraut er hinn bíllinn
beygði inn á götuna og skaU bOl
Bandaríkjamannanna á hinn.
Bandaríski ökumaðurinn hlaut
mikO meiðsli en hann festist í
bílnum og þurfti tækjabO tO að
ná honum út. Aðrir voru með
minni háttar meiðsl. -AA-hdm