Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1999, Blaðsíða 4
J FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 22 Sport Tilhlökkun Mikil tilhlökkun hefur ríkt i herbúðum golfara fyrir lands- mótið í golfi sem hófst í morgun í meistaraflokki. „Þetta leggst bara mjög vel í mig. Mitt markmið er náttúrlega að sigra. Ég hlakka mikiö til þannig að þetta verður mjög gaman. Það er skemmti- legt að spila í svona góðu veðri og golfið verður þeim mun betra,“ sagði Björgvin Þorsteins- son, til hægri, sem 6 sinnum hefur orðið íslandsmeistari. Völlurinn erfiður „Völlurinn er mjög góður en líka mjög erfiður núna. Vallar- stjórinn er búinn að vera að þróa völlinn til hins betra. Þessi völlur er í bestu ásigkomulagi sem sést hefur á landsmóti og er einn af bestu fimm völlum lands- ins,“ sagði Björgvin sem var at- vinnumaður í fyrra en er nýbú- inn að endurheimta áhuga- mannaréttindi sín og hefur þvi aðeins spilað á einu stigamóti í sumar. „Ég er i ágætisformi. Ég ætla að hafa gaman af þvi að spila og njóta þess. Ég veit að ég get þetta, það er bara að kreista þaö fram,“ sagði Björgvin að lokum en hann keppir á sínu 33. lands- móti, tók fyrst þátt í Grafarholti árið 1965. -ÍBE Björgvin Sígurbergsson, GK varð íslaridsmelstari í golfi á Hellu 1995 en nú er að sjá hvaö hann gerir á heimavelli sínum í Havleyrinni. Landsmotio í golfi hafið ,. . Landsmótiö í golfi er hafiö: Betra veður, betra golf Landsmótið í golfi hófst í gær í keppni i öðrum og þriðja flokki á golfvelli Odds í Hafnarfirði. í morg- un hófst síðan keppni í meistara- flokki á velli Keilis á Hvaleyrar- velli. Mótið fer nú fram í 57. sinn og stendur yfir frá fimmtudegi til sunnudags hjá meistaraflokkum karla og kvenna. Sýn mun vera með útsendingar frá mótinu á laugardag kl. 17-19 og á sunnudag frá kl. 17 til loka mótsins. Veðrið á landsmóti undanfarin ár hefur verið afleitt, yfirleitt hraust- leg rigning og rok. Að þessu sinni er annað upp á teningnum. Spáð er blíðskaparveðri fram á sunnudag með sól og hlýju. Besta veður frá upphafi? „Ég held að við höfum aldrei haft svona gott veður og það ætti að skila sér í einhverju, tvímælalaust ætti að nást betri árangur," sagði Ágúst Húbertsson úr mótsstjóm. Völlurinn hjá Keili er afar góður um þessar mundir og stöðugt er ver- ið að þróa hann til betri vegar. Að- stæður voru því allar hinar bestu þegar Gunnar Bragason, formaður golfsambandsins, setti mótið klukk- an sex í morgun. Það var síðan Ei- ríkur Smith sem sló upphafshögg mótsins. Aldrei stærra mót en nú „Þetta er stærsta landsmót sem haldið hefur verið, yfir 400 keppend- ur, 213 héma hjá okkur (í Keili) og 200 hjá Oddi,“ sagði Ágúst sem býst við hörkuspennandi keppni. I fyrra sigraði í karlaflokki Sigur- páll Geir Sveinsson, GA, og í kvennaflokki Ragnhildur Sigurðar- dóttir, GR. Búist er við einvígi í kvennaflokki þar sem Ragnhildur og Ólöf María Jónsdóttir eru f nokkrum sérflokki. Þó gætu þær Herborg Arnarsdóttir og Kristín Elsa Erlendsdóttir blandað sér í toppbaráttuna. Hjá körlunum eru margir sem gætu blandað sér í toppbaráttuna og erfitt að nefna einhvern einn líkleg- an til sigurs. -ÍBE DV, Þýskaland: Fyrsti keppnisdagur islenskra íþróttaknapa á heimsmeistaramótinu í Kreuth í Þýskalandi var röð vonbrigða. Þegar lesnar voru upp einkunnir Auðuns Kristjánssonar eftir að sýningu hans lauk í slaktaumatöltinu á stóðhestinum Baldri frá Bakka bmtust út mikil fagnaðarlæti meðal íslendinga því hann var langhæstur. Austurriki en jafnir voru Sigurður Sigurðarson (íslandi) á Prins frá Hörgshóli og Aalsteinn Aðalsteinsson (Noregi) á Ringó frá Ringerike. Karly Zingsheim (Þýskalandi) var fjórði á Fána frá Hafsteinsstööum, Auðunn Kristjánsson (íslandi) fimmti á Baldri frá Bakka og Sigurbjörn Bárðarson sjötti á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá. Mél beislisins of þunn Skömmu síðar breyttust fagnaðarlætin í vonbrigði því reiðtygjadómarar sögðu mél beislisins of þunn. íslendingar mældu mél- in í bak og fyrir og vissulega vom þau of þunn en hvergi þar sem þau komu I munn hestsins. Snarlega vora kærablöðin tekin ■fram og beðið er eftir úrskurði dómara- nefhdar sem tók máliö fyrir en úrskurður nefndarinnar var íslandi í óhag. Auðunn missti þar af líklegum heimsmeistaratitli í slaktaumatölti og þessi árangur hefði fleytt honum langt í keppninni um samanlagðan árangur. Þriðja mótið í röð Efstur eftir forkeppni er Reykur frá Kringlu og Jens Fúchtenschnieder og Will Covert (Bandaríkjunum) annar á Blæ frá Sigluvík. Sigurður Sigurðarson er með bestan árangur íslensku knapanna í 9. sæti. Þetta er þriðja heimsmeistaramótið í röö sem íslenskur knapi er dæmdur úr leik. Árið 1995 var Gísli Geir Gylfason dæmd- ur úr leik fyrir ólöglegan beislabúnað og á síðasta heimsmeistaramóti var Styrmir Ámason á Boða dæmdur úr leik fyrir of þungar hlífar en báðir voru komnir í úrslit. Ekki bætti úr skák þegar fimi, næsta keppnisgrein, hófst, þá kom í ljós að Olil Amble var dæmd úr leik fyrir að hafa haft of <margar æfingar í sýningu sinni. Knapar skila inn lýsingum á æfingum á blaði en Olil var Auðunn Kristjánsson, íslenski knapinn sem var dæmdur úr leik, sá með beislið, og Sigurður Sæmundsson landsliðsþjálfari skoða ásamt fleirum hvað orsakaði það að Auðunn var dæmdur úr leik. DV-mynd EJ með 16 æfingar í stað 10-14 sem era leyfilegar. Sigurvegari í fimi var Jolly Schrenk (Þýska- landi) á Ófeigi, Ylva Hagander (Svíþjóð) var önnur á Mekki frá Varmalæk og Juliet ten Bokum (Hollandi) þriðja á Gróttu frá Litlu- Tungu. Þá var komið að gæðingaskeiði en þar hafa íslendingar átt sigurvegara í átta af síðustu níu skiptum. Vissulega vora íslendingar í þremur efstu sætunum en þeir kepptu fyrir þijár þjóðir. Sigurvegarinn HöskuldurAðal- steinsson keppti á Katli frá Glæsibæ fyrir Góður árangur kynbótahrossa Árangur íslensku kynbótahross- anna er mjög góður. Glaður frá Hóla- baki stóð efstur stóðhesta í elsta flokki með 8,41 eftir forkeppni og er næsti hestur Kátur frá Stördal, sem keppir fyrir Þýskaland, með 8,30. Knapi hans er Jóhann G. Jóhannesson. í sex vetra flokki stendur efstur Trur frá Wets- inghe, sem keppir fyrir Holland, með 8,22. Trar er sonur Týs frá Rappenhof, sem vakti mikla athygli á HM í Sví- þjóð 1991 en er talinn föðurbetrangur. Ögri frá Háholti og Birna Káradóttir vora í 2. sæti í sex vetra flokknum með 8,07 í aðaleinkunn. íslensk gull á leiðinni Yfirlitssýningin er enn eftir, hún verður á laugardaginn en línur era mjög skýrar hvaö varðar efstu sætin og er líklegt að Islendingar fái guil i elsta flokki hryssna og stóðhesta og fimm vetra flokki stóðhesta en annað sætið í hinum þremur flokkunum. Hross í neðri sætunum eru mjög slök og einkunnir töluvert fyrir neðan 8,00. I dag, fimmtudag, hefst keppni í fjórgangi og fimmgangi. Inn í liðið i fjórgang og síðar tölt kemur Rúna Einarsdóttir-Zingsheim með Snerpu frá Dalsmynni í stað Einars Öders Magnússonar og Glampa en hann mun vera haltur. -EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.