Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1999, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 IjV
Qrikmyndlr
*
★ ' A T 5S3 2075 ALVÖRU BÍO! CCDolby
Ít :■■■ ■: =-= == = aiHrnfciui HLJÓÐKERFI í ÖLLUM SÖLUM! Thx
pP^ROBERTS ’^HRANT
^ m f
Komduoghittu
juliu Roberts o$ Hugh Cranl
4stadseni()S>itir..
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
SIM! 551 6500
http:/wy(MígYo(le?!Ísljornubio/
|j Wr , Í !-
Búóu þig undir aó úreldast. _
UNIVERSAL SDLOIER
THE RETURN
Hasar i tonnatali og magnadur sprengikraftur.
LKi ia W
SKRIFSTOFUBL 0,
Worksucks.
rrymorÉ
Árquette
lEWTjFUL
Sýnd kl. 4.30,6.45,9 og 11.15.
Síðasta sýningarvika
&
Christopher Lambert leikur lögreglumanninn
John Prudhomme.
Upprisan
Bíóhöllin frumsýndi í gær spennumyndina
Ressurection. Aðalpersónan er lögreglumaðurinn John
Prudhomme sem hefur orðið fyrir harðri reynslu í
einkalífinu sem gerir það að verkum að vinnan verður
honum allt. Morgun einn er hann kominn á morðstað í
úthverfí Chicago þar sem framið hefur verið hroðalegt
morð. Maður liggur í blóði sínu og hefur önnur höndin
verið tekin af við öxl. í blóðið hefur verið skrifað:
„Hann kemur...“ Þetta er aðeins fyrsta morðið af
nokkrum þar sem vantar líkamsparta á fórnarlambið.
Prudhomme grunar aö morðinginn sé brjálaður ofsa-
trúarmaður sem sé að safna saman líkamspörtum í
þeim tilgangi að búa til persónu sem síðan á að lífga
við.
I aðalhlutverki er Christopher Lambert og ieikstjóri
er Russel Mulcahy en þeir gerðu saman Hálendinginn
á sínum tíma.
Stanley Kubrick, lengst til vinstri, sést hér við tökur á Barry Lydon (1975). Til hægri er Ryan O’Neal sem lék titilhlutverkið.
Stanleys Kubricks minnst á Kvikmyndahátíð
- síðasta mynd hans Eyes Wide Shut lokamynd hátíðarinnar
Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst 27. ágúst
næstkomandi og stendur tií 5. september. Mikill
fjöldi úrvalsmynda verður sýndur á hátíðinni og
tveir frægir leikstjórar verða í hávegum hafðir,
Emir Kusturica, sem verður sérstakur gestur há-
tíðarinnar, og hinn nýlátni Stanley Kubrick, en
fimm kvikmyndir hans verða sýndar, þar á meðal
Eyes Wide Shut, sem meistarinn rétt náði að klára
áður en hann lést snögglega úr hjartaslagi. Eyes
Wide Shut hefur að undanfómu verið á milli tann-
ana á fólki, enda þykir hún bersögul í meira lagi,
og þá hefur það einnig vakið umtal að klippt hef-
ur verið út atriði úr myndinni fyrir bandarískan
markað með þeim hjónum Tom Cruise og Nicole
Kidman og var ástæðan sú að hætta var á aö
myndin fengin svokallaðan X-stimpil og yrði því
bönnuð innan átján ára. Þótti mörgum gagn-
rýnendum með þessum
aðgerðum Ula farið með
minningu Kubricks. Eyes Wide Shut verður loka-
myndin á hátiðinni og aðeins sýnd einu sinni að
þessu sinni.
Aðrar kvikmyndir Kubricks sem sýndar verða
em Shining, Full Metal Jacket, Barry Lyndon og
Clockwork Orange, en sérstakur fengur er að
henni þar sem Kubrick leyfði aldrei að hún yröi
gefin út á myndbandi. AUar Kubrick-myndimar
verða sýndar í Bíóborginni.
Emir Kusturica, sem er einn virtasti kvik-
myndaleikstjóri samtímans, kemur ekki bara til
landsins meö kvikmyndir sínar i farangrinum
heldur kemur hann með hljómsveit sem hann
leikur í og kaiiast No Smoking Band. Heldur sveit-
in tónleika 26. ágúst og mun Sigur Rós að öllum
likindum einnig koma frain á tónleikunum. Með-
al mynda Kusturica sem sýndar verða er nýjasta
kvikmynd hans, Black Cat White Cat, sem er opn-
unarmynd hátíðarinnar. -HK
Star Wars til styrktar
krabbameinssjúkum börnum
Haldin verður sýning á nýjustu Star
Wars-myndinni á morgun kl. 17.00 i
Regnboganum til styrktar SKB (Styrktar-
félagi krabbameinssjúkra bama). Seldir
verða 300 miðar í sal 1 í Regnboganum á
1500 kr. stykkið. Ailur ágóðinn rennur
óskiptur til Styrktarfélags krabbameins-
sjúkra bama, aö upphæð 450.000 kr. Mun
Björn Sigurðsson fyrir hönd Skífunnar
afhenda Þorsteini Ólafssyni hjá SKB
ávísun upp á 450.000. Fyrr um daginn, kl.
13.00, býður íslandsbanki krabbameins-
sjúkum bömum og fjölskyldum þeirra á
myndina í Regnboganum. Keypti íslands-
banki sýninguna, alls 300 miða, á 1000 kr.
stykkið. Allur sá ágóði mun einnig renna
óskiptur til SKB. Mun Ragnar Már hjá ís-
landsbanka afhenda Þorsteini ávísun að
upphæð 300.000 kr. Samtals gerir þetta
750.000 þús. kr.
Tom Cruise og Nicole Kidman
leika aöalhlutverkin f Eyes Wide
Shut.
Full Metal Jacket (1987) gerist í
Víetnamstríðinu. Kubrick sést
hér við tökur á henni.