Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1999, Side 26
34
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999
Afmæli__________________________
Guðmundur S. Guðleifsson
Guðmundur Símon Guðleifsson
verkstjóri, Kambaseli 43, Reykjavík,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst upp í Þingholtunum á Spít-
alastíg 10. Hann var við bygginga-
framkvæmdir i Mjólkárvirkjun
sumarið 1955. Guðmundur lauk
gagnfræðaprófi vorið 1956 og fór þá
til starfa í Grímsárvirkjun, Fljóts-
dalshéraði 1956-58. Var við Stein-
grímsstöð, Sogsvirkjun 1959. Næstu
árin var Guðmundur við sjó-
mennsku og járnabindingar. Árið
1967 lauk hann fiskimannaprófi
hinu meira frá Stýrimannaskólan-
um og farmannaprófi árið 1968.
Guðmundur starfaði við Búrfells-
virkjun árið 1968. Næstu ár á eftir
var Guðmundur stýrimaður og
skipstjóri um tíma. Hann hefur
starfað í öllum virkjunum við
Þjórsá. Var um árabil járnbindinga-
maður með sjálfstæðan rekstur.
Guðmundur starfar nú sem verk-
stjóri við Sultartangavirkjun.
Fjölskylda
Guðmundur er kvæntur Kol-
brúnu Bjarnadóttur, f. 11.4. 1949.
Foreldrar hennar: Bjami Sigurjóns-
son, f. 20.4 1915, látinn, og Kristín
Jónasdóttir, f. 1.10. 1916, í Öxney.
Fyrri kona Guðmundar er Ásta B.
Karlsdóttir, f. 2.11. 1935, Vopnafirði,
barnlaus, þau skildu.
Börn Guðmundar og Kolbrúnar:
Kristján Hrafn, f. 15.8.1979, háskóla-
nemi; Helena Guðrún, f. 5.10. 1988,
nemi. Sonur Kolbrúnar er Þórir
Örn Þórisson, f. 5.10. 1976, dóttir
hans er Hrefna Mjöll, f. 10.3. 1997.
Systkini Guðmundar: Friðrik
Ingimar, f. 8.10.1937, byggingameist-
ari í Svíþjóð; Sigurður, f. 18.3. 1941,
verkamaður í Reykjavík; Nína
Draumrún, f. 11.8. 1944, húsmóðir í
Reykjavík.
Hálfsystir sammæðra: Unnur
Brynjólfsdóttir, f. 3.11. 1933, búsett
lengst af á Flateyri. Hálfbróðir sam-
feðra: Hörður Grímkell, f. 13.4.1948,
d. 8.7. 1996.
Foreldrar Guðmundar voru Guð-
leifur Guðmundsson, f. 16.5. 1909, d.
13.5. 1981, byggingameistari, og
Hansína Guðrún Guðmundsdóttir,
f. 14.11. 1913, d. 10.9. 1998, húsmóðir,
vann í áratugi á Hótel borg. Þau
bjuggu í Reykjavík.
Ætt
Móðir Hansínu var Júlíana Sigur-
borg Guðmundsdóttir, f.
12.7. 1889, d. 5.2. 1975.
Foreldrar hennar voru
Guðmundur Torfason, f.
6.9. 1847, að Sauðafelli í
Dölum, d. 25.12. 1889.
Guðmundur og Halldóra
Guðbrandsdóttir, móðir
Jóhannesar úr Kötlum
voru bræðrabörn. Móðir
Júlíönu var Hansína Jó-
hanna Jóhannsdóttir, f.
15.7. 1870 á Sveinsstöð-
um, d. 30.1.1895. Ólst Júl-
íana því upp í skjóli
móðurforeldra sinna sem
voru Guðrún Bjarnadóttir, f. 19.9.
1841, að Hrísum í Helgafellssveit og
maður hennar Hans Jóhann Jó-
hannsson, bóndi á Vaðstakksheiði,
f. 2.3. 1837. Faðir hans var Jóhann
Hansson Hjaltalín, f. í Elliðaey 16.9.
1814. Foreldrar hans voru Hans
Pálsson Hjaltalín, f. 8.2. 1787, látinn
fyrir 1845, og k.h. Guðný Pálsdóttit
frá Fagurey, fædd um 1788. Faðir
Hans Pálssonar Hjaltalín var Páll
Oddsson Hjaltalín, f. um 1760,
drukknaði 1835. Hann var sonur
Odds Jónssonar Hjaltalín, lögréttu-
manns að Rauðará við Reykjavík, f.
1722, d. 26.6. 1797.
Faðir Hansínu var Guðmundur
Jóhann Jóhannsson, f. 20.4. 1887 að
Svalvogum í Dýrafirði, d.
2.5. 1963 í Hafnarfirði.
Faðir hans var Jóhann
Samsonarson, f. 22.1.1854,
d. 14.8. 1927, fæddur að
Lækjarkoti í Vest-
ur-Húnavatnsýslu. Kona
hans var Þorbjörg Bjöms-
dóttir, f. 15.5. 1859 að
Harastöðum V-Hún, d. 8.4.
1902 á Holdsveikraspítal-
anum i Laugarnesi. Faðir
Jóhanns var Samson
Samsonarson, f. 1831, d.
11.12. 1916, bóndi og
hreppsstjóri að Brekku í
Dýrafirði.
Móðurætt Guðmundar eru Dala-
menn og af frændgarði hans má
nefna Sigurð Breiðfjörð, f. 1798, og
Kristján Thorlacius, f. 1917.
Föðurætt Guðmundar er af
Fremra Háls ætt og Húsatóftarætt
svo eitthvað sé nefnt. Af þekktum
frændgarði þar má nefna Finnboga
Rút Þorvaldsson, f. 1900, Vigdísi
Finnbogadóttur, f. 1930, Kristján
Eldjárn Þórarinsson, f. 1918, Þráin
Bertelsson, f. 30.11. 1944, Össur
Skarphéðinsson, f. 1953, og Jón Pál
Sigmarsson.
Guðmundur verður að heiman á
afmælisdaginn.
Guðmundur Símon
Guðleifsson.
Einar Magnússon
, Einar Magnússon, skrifstofustjóri
í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu, Tjarnarbóli 4, Seltjarnar-
nesi, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Einar er fæddur i Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1970
og Ivfjafræðingsprófi frá danska
lyfjafræðiskólanum í Kaupmanna-
höfn 1975. Einar starfaði sem lyfja-
fræðingur í Reykjavíkur Apóteki
frá 1975-1990 og kenndi jafnframt
við Háskóla íslands og Lyíjatækni-
skóla íslands. Frá árinu 1991 hefur
Einar verið skrifstofustjóri lyíja-
málaskrifstofu heilbrigðis- og trygg-
? ingamálaráðuneytisins (Lyfjamála-
stjóri). Hann hefur frá 1995 tekið að
sér ýmis verkefni á vegum Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO), aðallega í hinum nýfrjálsu
ríkjum Júgóslavíu og Sovétríkj-
anna, í Andorra og á Möltu. Þann 1.
september nk. fer hann til starfa
sem sérfræðilegur ráðgjafi í lyfja-
málum við heilbrigðisráðuneytið í
Vietnam á vegum sænsku Þróunar-
samvinnustofnunarinnar.
Vegna starfa sinna hefur Einar
tekið þátt í fjölmörgum nefndum og
stjórnum hérlendis og erlendis.
Hann sat m.a. í stjórn Reykjavíkur
Apóteks 1982-90, var
stjórnarformaður LyQa-
tækniskóla íslands
1991-94 og sat í stjórn
Lyfjaverslunar ríkisins
1991-94. Þá hefur hann
m.a. setið í stjórn Nor-
rænu lyfjanefndarinnar
(NLN) frá 1991 og er nú-
verandi formaður nefnd-
arinnar. Einar hefur
einnig tekið virkan þátt í
félagsstarfi lyfjafræðinga
og gegnt formennsku í fé-
lögum þeirra.
Fjölskylda
Einar kvæntist 24.6.1972 Guðnýju
Helgu Gunnarsdóttur, f. 17.4. 1952 í
Reykjavík, kennara. Foreldrar
hennar: Gunncir Þ. Þorsteinsson, f.
17.11. 1920 i Gerðum í Garði, bygg-
ingatæknifræðingur og fyrrv. for-
stöðumaður Teiknistofu Sambands-
ins. Kvæntur 31.12. 1950 Þóru S.
Guðmundsdóttur, f. 2.3. 1922 í
Reykjavík, d. 10.7. 1968, húsfreyju.
Börn Einars og Guðnýjar: Þóra, f.
20.10.1971 í Reykjavík, stúdent, próf
frá Söngskólanum i Reykjavík, próf
frá óperudeild Guildhall School of
Music and Drama í London, óperu-
söngkona. Maki 1.4.1995 Bjöm Ingi-
berg Jónsson, f. 16.10. 1966 í Reykja-
vík, stúdent, próf frá óp-
erudeild Guildhali School
of Music and Drama í
London, óperusöngvari.
Foreldrar hans Jón Ingi-
berg Bjamason, f. 8.6.
1921 í Álfadal, kaupmað-
ur og ritstjóri í Reykja-
vík, d. 10.2. 1983 og k.h.
Guðbjörg Lilja Maríus-
dóttir, f. 19.2. 1929 í
Reykjavík; Gunnhildur,
f. 29.12. 1977 í Reykjavík,
stúdent, nemur hörpuleik
við Swelinck
Conservatorium í Amsterdam.
Systkini Einars: Bjöm, f. 17.6.
1947, yfirlæknir, Neskaupsstað;
Anna, f. 9.5.1952, bókasafnsfræðing-
ur, Kópavogi; Hildur, f. 29.3. 1960,
kennari, Reyðarfirði; Hjördis, f.
29.3. 1960, íþróttafræðingur, Kópa-
vogi; Sverrir, f. 10.12. 1968, iðn-
verkamaður, Kópavogi.
Foreldrar Einars: Magnús Björns-
son, f. 3.5. 1923 á Vopnafirði, d. 7.1.
1990, trésmiður í Reykjavík og k.h.
Hildur Einarsdóttir, f. 6.10. 1927 á
Akranesi, bókavörður.
Ætt
Foreldrar Magnúsar voru Björn
Jóhannsson, f. 9.9. 1891 að Valda-
steinsstöðum í Hrútafirði, d. 28.6.
1968, skólastjóri á Vopnafirði og k.h.
23.5. 1915 Anna Magnúsdóttir, f.
19.12. 1892 Hjarðarhaga i Jökulár-
dal, d. 17.10. 1967 á Vopnafirði. For-
eldrar Björns voru Jóhann Jóhanns-
son, f. 5.12. 1856 á Hörghóli I V-Hún
og k.h. Ragnheiður Björnsdóttir, f.
8.4. 1855. Foreldrar Önnu voru
Magnús ívarsson, f. 28.5.1855 á Vaði
í Skriðdal og k.h. Sólveig María
Þórðardóttir, f. 1.10. 1851, Dverga-
steini Sævarenda í Loðmundarfirði.
Foreldrar Hildar: Einar Jónsson,
f. 21.4. 1885 í Sauðhaga á Völlum, d.
29.7. 1969, bús. á Akranesi og í
Reykjavík, kennari, ráðsmaður og
vegavinnuverkstjóri á Austurlandi
og k.h. Lísebet Guðbjörg Kristjáns-
dóttir, f. 12.1.1888 á Bár-Norður Set-
bergsstöðum, d. 1.9.1979 í Rvík. For-
eldrar Einars: Jón Einarsson, f. um
1845 í Dvergasteinssókn, b. í Sauð-
haga, Fjarðarkoti Fjarðarsókn og
k.h. Guðlaug Einarsdóttir, f. um
1850 í Fjarðarsókn. Foreldrar
Lísebetar: Kristján Þorsteinsson, f.
12.12 1856 í Vatnshornsókn Dala-
sýslu, b. Norður-Bár, Haukabrekku
og k.h. Sigurlína Þórðardóttir, f.
28.7. 1863 í Setbergssókn.
Einar og Guðný taka á móti gest-
um í dag í FÍH-salnum, Rauðagerði
27, Reykjavik, kl. 18-21.
Einar Magnússon.
Ingunn Sóley
Jónsdóttir
Ingunn Sóley Jónsdóttir húsmóð-
ir, Gullengi 27, Reykjavík, er fimm-
tug í dag.
Fjölskylda
Ingunn giftist 25.12. 1967 Árna
Halldóri Guðbjartssyni, f. 21.11.
1945, Baader-manni á Granda. For-
eldrar hans: Guðbjartur Guðjónsson
og Petrína Ásgeirsdóttir, bændur í
Önundarfirði.
Börn Ingunnar og Árna: Borg-
hildur Jóna, f. 16.8. 1967, gift Mar-
geiri Margeirssyni, f. 14.6. 1965.
Böm þeirra: Margeir Þór, f. 19.3.
1989, Guðgeir Fannar, f. 30.8. 1991,
Bryngeir Ágúst, f. 17.2. 1993 og Arn-
ey Hildur f. 3.12. 1998. Búsett á
Stöðvarfirði; Guðbjartur, f. 4.5.1972,
í sambúð með Kristjönu Sveinsdótt-
ur, f. 20.10. 1975, dóttir þeirra Sóley
Kristín, f. 12.9. 1996, búsett í Kópa-
vogi; Gunnhildur Elva, f. 12.7. 1980,
í foreldrahúsum.
Foreldrar Ingunnar: Jón Valdi-
mar Kristjánsson, f. 30.1. 1919, fyrr-
verandi sjómaður og k.h. Borghild-
ur Gísladóttir, 1.4. 1923. Þau bjuggu
á Stöðvarfirði en búa nú í Reykja-
vík.
TLl hamingju með afmælið 10. ágúst
90 ára
Sjöfn Sigurðardóttir, Hagamel 30, Reykjavík. Steinunn Hall, Vesturgötu 52, Reykjavik.
80 ára
Guðrún Hallgrímsdóttir, Fellsenda - dvalarheimili, Búðardal. Halldór Jónsson, Austurgötu 3, Hofsósi. Jón Egill Ferdinandsson, Fumgerði 1, Reykjavík.
75 ára
Aðalsteinn Sigursteinsson, Sólhaga, Vogum. Ágúst Bjamason, Vogatungu 61, Kópavogi. Hanna Sigurrós Hansdóttir, Klausturhólum, Selfossi. Sigríður Matthiasdóttir, Víðilundi 24, Akureyri. Svanhildur Bjömsdóttir, Barðavogi 13, Reykjavík. Sæmundur Óskarsson, Miðleiti 1, Reykjavík.
70 ára
Guðmundur Helgason, Grænatúni 14, Kópavogi. Gunnar Nikulásson, Höfðabraut 3, Akranesi. Hannes Helgason, Asparfelli 8, Reykjavik. Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Holtsgötu 19, Hafnarfirði.
60 ára
Aðalheiður Erlendsdóttir, Vallargerði 29, Kópavogi. Guðrún Auður Marísdóttir, Álfaskeiði 102, Hafnarfirði. Jóna Jakobsdóttir, Kjarrhólma 20, Kópavogi. Sigríður Sigtryggsdóttir, Hamrabergi 46, Reykjavik. Steingerður Ingadóttir, Túngötu 18, ísafirði. Svavar Sverrisson, Brekkugötu 3b, Akureyri.
50 ára
Bogi Karlsson, Hrísholti 16, Selfossi. Guðmundur H. Gunnarsson, Möðravöllum 5, Akureyri. Jóhanna S. Sigþórsdóttir, Tunguvegi 50, Reykjavík. Katrín Ósk Jónsdóttir, Ránarslóð 10, Höfn. María R. Ragnarsdóttir, Brekastíg 22, Vestmannaeyjum. Páll E. Benediktsson, Starengi 18, Selfossi. Sigurbjörg Ögmundsdóttir, Bollatanga 12, Mosfellsbæ. Snorri Þorvaldsson, Dvergabakka 4, Reykjavík. Steinþór Hjörleifsson, Vesturhólum 11, Reykjavík.
40 ára
Aðalsteinn J. Magnússon, Álagranda 10, Reykjavík. Agnes Þórólfsdóttir, Bólstaðarhlíð 14, Reykjavík. Ámundi V. Brynjólfsson, Vestufold 7, Reykjavík. Ása Kristín Knútsdóttir, Vesturbergi 54, Reykjavík. Áshildur Kristjánsdóttir, Hlaðhömrum 36, Reykjavík. Einar Berg, Glæsibæ 17, Reykjavík. Emil Tómasson, Botnahlíð 31, Seyðisfirði. HaUdór Brynjarsson, Heiðarlundi 5f, Akureyri. Hjördís Anna Sigurðardóttir, Háahvammi 15, Hafnarfirði. Hulda Magnúsdóttir, Hafnarstræti 30, Akureyri. Ingunn Þorvarðardóttir, Hæðargarði llb, Reykjavik. Jón Róbert Dómaldsson, Hamraborg 16, Kópavogi. Kristín A. Matthíasdóttir, Víðihvammi 1, Kópavogi. Margrét Ó. Alfreðsdóttir, Hjaltabakka 22, Reykjavik.