Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1999, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1999, Qupperneq 7
E21 MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1999 Hinn þekkti hlaupari Ágúst Þorsteinsson hefur verið fram- kvæmdastjóri Reykja- víkur maraþons á undanfórnum árum. Ágúst er þekktur langhlaup- ari og átti um tveggja ára skeið ís- landsmet í maraþoni, sem hann setti árið 1983 í Manchester. Hann hefur þó ekki getað vegna starfs síns verið meðal þátttakenda í Reykjavíkur maraþoni. Ágúst sagði að erfitt væri að spá fyrir um þátttöku fólks í hlaupinu í ár. „Erlendir keppendur skrá sig yf- irleitt fyrr en íslendingar og það stefnir í að fjöldi útlendinga verði svipaður og á síðasta ári. í fyrra kepptu rúmlega 300 útlendingar. Þegar hafa rúmlega 200 útlendingar skráð sig og það era alltaf einhverj- ir tugir sem koma frá herstöðinni á Keflavíkurflugvelli,“ segir Ágúst. „Þátttaka fólks hefur ráðist mjög af því hvemig veðrið hefur verið siðustu vikuna fyrir hlaup, enda er skráð í hlaupið dagana 16.-21. ágúst. Það er eins og stór hluti hlauparanna, sérstaklega í styttri vegalengdunum, taki ekki ákvörðun fyrir en á síðustu dögunum og þá leikur veðrið stórt hlutverk. Við miðum við að skráningu sé að mestu lokið í lengri vegalengdum þann 19. ágúst en reyndar verður skráð fram á síðasta dag. Keppend- „Þátllaka fólks hefur ráðisl rnjög afþví hvemig veðrið hefur verið síðustu vikuna jyrir hlaup, enda er skráð í hlaupið dagana 16.-21. ágúsl. Það er eins og slór hluli hlauparanna, sérstaklega i styllri vegalengdunum, taki ekki áh’örðunfyrr en á síð- ustu dögunum og þá leikur veðrið stórt hlutverk, “ segir Ágúst Þorsteinsson, framkvœmdastjóri Reykjavíkur maraþons. Veður hefur mikil áhrif á Qölda þátttakenda r - segir Agúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri RM um er þó bent á að skráningargjald hækkar um 300 krónur í öllum vegalengdum nema skemmtiskokki ef skráð er eftir 19. ágúst. Þátttaka fólks í helstu almenn- ingshlaupum á árinu hefur verið upp og ofan. Fjölgun varð í Mý- vatns-maraþoni og Laugavegshlaup- inu en á móti kemur að fækkun varð í Jónsmessuhlaupinu og einnig í Ármannshlaupinu á dögunum. Ein af ástæðunum fyrir fækkun kepp- enda er sú að framboð af hlaupum er sífellt að aukast. Það er ekki leng- ur hægt að taka þátt í öllum al- menningshlaupum landsins heldur verður að velja á milli.“ Línuskautakeppni er nýjung „Línuskautakeppnin er nýjung í Reykjavíkur maraþoni en algengt er orðið í borgarhlaupum erlendis að bjóða upp á keppni á línuskautum. Þær hafa notið mikilla vinsælda en þess má geta að víða erlendis geta menn keppt í heilu maraþoni á línu- skautum. Línuskautakeppnin er ræst 10 mínútum áður en 10 km, hálfa og heila maraþonið byrjar. Þannig ætti að vera tryggt að hvorug greinin trufli hina, enda fara þeir að jafnaði hraðar yfir sem eru á línuskautum. Þó má búast við að fremstu hlauparar í 10 km nái þeim sem reka lestina á línu- skautunum, enda fara þeir nákvæm- lega sömu leiðina." Ágúst Þorsteinsson lagði áherslu á að keppendur nýttu sér þá þjónustu sem í boði er. „Þeir sem eru í vand- ræðum með búningsaðstöðu geta skil- ið fót eftir í plastpoka í Ráðhúsi Reykjavíkur á meðan á hlaupi stend- ur. Sjúkragæslan hefur sannað gildi sitt og starfsmenn hennar hafa í nægu að snúast allan tímann. Þeir sem helst þarfnast aðhlynningar eru aðallega þátttakendur úr 10 km. Þeir sem fara í hálfa og heila maraþonið virðast gera sér grein fyrir getu sinni og eru ólíklegri til að glíma við meiðsli að loknu hlaupi." Ágúst vildi að lokum benda hlaupurum á að Sæbrautin og Lækjargatan yrðu lokaðar á meðan á hlaupinu stæði. „Við verðum að vona að ökumenn á öðrum götum sýni hlaupurunum tiOitssemi," segir Ágúst. -ÍS Rás- og endamark í Lækjargötu Rás- og endamark hlaupsins verður að venju í Lækjargötu (sjá kort af hlaupaleiðinni). Maraþon, hálfmaraþon og 10 km (tímataka) verða ræst klukkan 10. 3 km og 7 km skemmtiskokk verða ræst klukkan 12:30. 10 km línuskautahlaup verður ræst klukkan 9.50. Drykkjarstöðvar og heilsugæsla Drykkjarstöðvar verða á um þaö bO 5 km fresti (sjá merking- ar á korti). Þar verður boðið upp á Gatorade íþróttadrykk og vatn. Læknar og hjúkrunarlið verður tfi reiðu meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar er hlauparar koma í mark. Hlaupaleið Götur sem hlaupnar verða í 3 km eru: Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur, Suðurgata, Hringbraut, Bræðraborgarstíg- ur, Vesturgata, Hafnarstræti og Lækjargata. Götur í 7 km eru: Fríkirkju- vegur, Skothúsvegur, Suður- gata, Lynghagi, Ægisíða, Nes- vegur, Suðurströnd, Eiðs- grandi, Ánanaust, Mýrargata, Tryggvagata, Pösthússtræti, Hafnarstræti og Lækjargata. Götur í 10 km eru: Frí- kirkjuvegur, Skothúsvegur, Suðurgata, Lynghagi, Ægisíða, Nesvegur, Suðurströnd, Lind- arbraut, Norðurströnd, Eiðs- grandi, Ánanaust, Mýrargata, Tryggvagata, Pósthússtræti, Hafnarstræti og Lækjargata. Götur í 21 km og 42 km eru: Fríkirkjuvegur, Skothús- vegur, Suðurgata, Lynghagi, Ægisíða, Nesvegur, Suður- strönd, Lindarbraut, Norður- strönd, Eiðsgrandi, Ánanaust, Mýrargata, Geirsgata, Kalkofnsvegur, Sæbraut, Skeið- arvogur, Langholtsvegur, Laug- arásvegur, Sundlaugarvegur, Borgartún, Snorrabraut, Sæ- braut, Kalkofhsvegur og Lækj- argata. Öxlar, boltar & rœr ^V Undírvagnar ^ m E Ðremsur I Q Hreinsiefni & smurolíur ^ • l É J Hlífasett Hjólmar Línuskautar í miklu Orvali |§l ® Komdu með línuskautana, við yfirförum þó fyrir þig ^dnmg/ Suðurlandsbraut 20 Sími 588 6868

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.