Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Qupperneq 3
JjV LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999
Jöklaferð á Isuzujeppum
I sólbráð og sumarhita á Langjökli
Eins og fram kom i grein um
reynsluakstur á Isuzu Trooper um
síðustu helgi hér í DV-bílum er rétt
ár liðið frá því að þessir jeppar
komu á markað hér á landi. Stórum
hluta þessara jeppa hefur verið
breytt, mismikið að vísu, en all-
margir eru komnir á 33 til 38 tomma
dekk.
Mest reynir á þessa breyttu bíla í
snjóakstri síðari hluta vetrar en
minna er um að menn leggi á jökla
á sumrin þegar sólbráð og sprungur
hefta gjaman for.
Nokkrir eigendur Isuzu-jeppa
vildu þó reyna um síðustu helgi
hvernig bílum þeirra tækist til við
akstursaðstæður á jökli að sumar-
lagi.
Veðurútlit var ekki gott þegar
lagt var upp frá Reykjavík, rigning
og þoka, en þegar nær dró áfanga-
staðnum var farið að birta mjög í
lofti og veður orðið betra.
Ekið var upp á Kjalveg, á móts
við Bláfell. Þar er nýr afleggjari að
Langjökli en Geysismenn eru þarna
með aðstöðu fyrir vélsleðaferðir á
jökulinn.
Mikil sálbráð
Þegar á jökulinn var komið var
mikil sólbráð, enda glampandi sól
og sumarhiti. Sjá mátti ótal smá-
læki seytla fram eftir yfirborði jök-
ulsins og sums staðar blámaði í yf-
irborðið af krapa.
Alls lögðu níu Isuzu-jeppar á
jökulinn, átta Trooper og einn Dou-
ble Cab, sá á 38 tomma dekkjum.
Trooper-jepparnir voru misbúnir
„til fótanna", einn á 33 tomma
dekkjum, fjórir á 35, einn á 36 og
tveir á 38.
Það kom verulega á óvart hve vel
þeim tókst að fleyta sér á blautum
snjónum á venjulegum sumardekkj-
unum þótt það kæmi vissulega fyrir
að þeir yrðu að láta í minni pokann
fyrir bleytu og krapa og fá kipp til
að losna.
Ekki var síður fróðlegt að fylgjast
með fjöðrunarbúnaði Trooper-jepp-
anna, hversu vel hann elti mishæð-
ir og sprungur, en þrátt fyrir að
ekið væri yfír býsna djúpar rásir
héldu öll hjól góðri spymu.
Gott afl og snúningsvægi dísilvél-
arinnar nýtist einnig greinilega vel
við þessar akstursaðstæður.
Ekið var upp undir efstu brúnir
Langjökuls eftir góðan dag í sól-
skini og góðu veðri og meðan þeir
sem í neðri byggðum voru máttu
sætta sig við þoku og súld var aftur
ekið sömu leið til baka.
-JR
Lagt á Langjökul. Sólbráðin hafði grafið djúpar rásir í yfirborðið sem var blautt og krapkennt af sólarhitanum.
Hér var brugðið á leik til að reyna fjöðrunina. Það var hægt að
leggja mikið á hana áður en hjólin fóru að missa grip. Myndir
Kjartan P. Sigurðsson
Stundum kom það fyrir að snjórinn var of mjúkur og blautur,
eins og sést vel hér á þessari mynd, en hjólförin fylltust strax af
vatni.
Varasamt er að leggja á jökla á þessum árstíma, enda mikið um
sprungur. Hér er verið að læðast yfir eina slíka.
Á fréttafundi með ráðamönnum
Fiat á Ítalíu í síðasta mánuði kom
fram að fyrirhuguð er framleiðsla á
nettum aldrifsbíl i samvinnu við
Mitsubishi. Staðfest var að meining-
in væri að nota GDI-vél Mitsubishi
í þennan bíl en sú vél er sem kunn-
ugt er með svokallaða strokkinn-
sprautun sem tryggir sparneytni og
litla mengun.
Einnig er fyrirhugað að bjóða bíl-
inn með einbunudísil, en sú gerð
dísilvéla ryður sér nú sem óðast til
rúms. Öfugt við GDI-strokkinn-
sprautun felst einbunutæknin i því
að allir strokkar fá eldsneyti úr
einni meginfæðilínu en rafeinda-
stýrð innsprautun sér um að
skammta nákvæmlega rétt magn
inn í sprengihólflð úr þessari einu
allsherjarbunu. Einbunutæknin
gerir dísilvélamar sparneytnari,
hljóðlátari og með minni mengun.
Hérlendis þýðir þó lítið að bjóða
litla bíla með þessar skemmtilegu
vélar, sem gætu verið svo hag-
kvæmar fyrir eigendur sína og um-
hverfi, af því að dísilsköttun al-
mennt, og á litla bíla sérstaklega, er
úr takti við alla skynsemi, þrátt fyr-
ir fagurt hjal stjórnmálamanna um
nauðsyn þess að draga úr mengun
og tryggja hagkvæmni hlutanna.
Nýi netti aldrifsbíllinn frá Fiat
verður byggður á svokallaða
„spaceframe“-grind eins og Multipl-
an en ekki liggur fyrir á þessari
stundu hvort hann verður með
millikassa, og flokkast þannig með
jeppum, eða hvort hann verður
jepplingur með aldrif/sídrif. Ástæða
er þó til að búast við hinu síðar-
nefnda því sagt er að hann eigi að
keppa við jepplinga eins og Toyota
RAV4 og Honda CR-V.
■ Ekki mun heldur hafa verið tekin
ákvörðun um hvað barnið eigi að
heita. Þó hefur verið bent á að jepp-
inn sem Fiat framleiddi fyrir ítalska
herinn þar til fyrir áratug eða svo
hét Campagnola. Sumir telja að það
nafn muni öðlast endumýjun líf-
daga með þessum nýja aldrifsbíl
sem væntanlegur á markað síðari
hluta árs 2001.
-SHH
Harley með nýjan Softail á næsta ári
Þeir hjá Harley Da-
vidson hafa verið upp-
teknir við að endurbæta
framleiðslulínu sina
undanfarið og fyrir
næsta ár lítur út fyrir
mikið uppfærða línu
þar sem öll stærri hjólin
hafa fengið nýjan mót-
or. Nýi mótorinn er
rúmir 1400 rúmsentí-
metrar og er „twin cam“
sem er í fyrsta skipti hjá
Harley Davidson síðan á
þriðja áratugnum.
Reyndar hafa allir stóru
„Big Twin“-mótorarnir [^yl rno,ormn
fengið nöfn eins og hann meira a
„Knucklehead", „Panhead",
„Shovelhead" og „Evolution" og þá
oft miðað við útlit heddsins. Mörg-
um finnst lagið á heddinu minna sig
á kastala á nýja mótornum svo að
stungið hefur verið upp á nafninu
„Castlehead".
Softail-hj ólið hefur verið flagg-
skip Harley síðustu ár og löngu
kominn tími til að endurbæta þá út-
gáfu. í 2000-árgerðinni hefur
er sérstakur í útliti, reyndar minnir
höfuð á hróki en kastala.
hann, auk nýja mótorsins, fengið
nýja grind, alvöru-diskabremsur
með fjórum stimplum og endur-
hannað pústkerfi. Þar að auki hafa
tvöföldu Fat Bob-tankamir verið
látnir fjúka í staðinn fyrir eins
tanka og koma með Dyno-
hjólunum. -NG
Ný grind og mótor
aðalbreyt-
ingarnar á nýja
hjólinu.