Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1999, Page 30
42
MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 1999
Afmæli
Sigurður Ingi Sigurðsson
Siguröur Ingi Sigurðsson, fyrrver-
andi oddviti Selfosshrepps, er níræð-
ur í dag, 16. ágúst.
Starfsferill
Sigurður Ingi er fæddur í Nýjabæ á
Eyrarbakka. Rúmlega ársgamall flutt-
ist hann til Reykjavíkur með fjöl-
skyldu sinni og ólst þar upp hjá for-
eldrum sínum í stórum systkinahópi.
Hann stundaði barnaskólanám í Mið-
bæjarskólanum í Rvk. Að því loknu
var hann einn vetur í kvöldskóla
K.F.U.M., síðan í gagnfræðadeild M.R.
i þrjá vetur. Eftir gagnfræðapróf hóf
hann nám við Bændaskólann á
Hvanneyri og lauk námi sem búfræð-
ingur vorið 1929, var veturinn 1929-30
í íþróttaháskólanum í Ollerup í Dan-
mörku. Hann stundaði landbúnaðar-
störf á íslandi til haustsins 1936 er
hann fór utan til náms við Landbún-
aðarháskólann í Kaupmannahöfn og
útskrifaðist þaðan sem landbúnaðar-
kandidat vorið 1939. Að námi loknu
1939 var Sigurður ráðinn kennari við
Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í
Ölfusi og starfaði þar fjögur ár. Vor-
ið 1943 var hann ráðinn til Mjólkur-
bús Flóamanna á Selfossi og starfaði
þar sem skrifstofustjóri og
fulltrúi stjórnarinnar
næstu 15 árin.
Við stofnun Selfoss-
hrepps 1947 var Sigurður
kosinn í hreppsnefnd Sel-
foss og sat í henni samtals
27 ár, fyrstu þrjú árin sem
varamaður og síðan 24 ár
sem aðalmaður. í janúar-
mánuði 1958 var hann kos-
inn oddviti sveitarstjórn-
arinnar og var oddviti og
framkvæmdastióri Selfoss-
hrepps næstu 12 árin. Sig-
urður Ingi sat í ýmsum nefndum á
vegum sveitarfélagsins þessi ár. Hann
sat í stjóm Lánasjóðs íslenskra sveit-
arfélaga fyrstu árin sem hann starf-
aði, var í ýmsum félögum eftir flutn-
ing á Selfoss, t.d. Skógræktarfélagi Ár-
nesinga frá 1943 og var hann í stjóm
þess í yfír 30 ár, þar af formaður í 8
ár, stofnfélagi í ýmsum félögum, t.d.
Stangaveiðifélagi Selfoss, Rotary-
klúbbi Selfoss, Tónlistarfélagi Árnes-
sýslu o.fl.
Fjölskylda
Sigurður er kvæntur Amfríði Jóns-
dóttur frá Neskaupstað frá
17.1. 1942. Hún er dóttir
Jóns Rafnssonar, útvegs-
bónda og verkamanns, og
konu hans, Hróðnýjar
Jónsdóttur húsmóður.
Böm Sigurðar og Hróðný-
ar: Hróðný, f. 17.5. 1942,
maki hennar var Jóhann
Halldór Pálsson bóndi. Þau
bjuggu að Dalbæ í
Hrunamannahreppi og
eignuðust fjögur börn.
Hróðný og Jóhann Halldór
fómst af slysfóram 28. nóv-
ember 1987; Sigurður Gunnar múr-
arameistari, f. 20.4.1944, maki Guðrún
Osvaldsdóttir skrifstofumaður, þau
eiga tvö böm; Tryggvi pípulagninga-
meistari, f. 30.8.1945, maki Kristbjörg
Einarsdóttir hárgreiðslumeistari, þau
eiga þrjú börn á lífi, hafa misst eitt
barn; Ingibjörg kennari, f. 18.3. 1948,
maki Henrý Þór Granz, bygginga-
tæknifræðingur/markaðshagfræðing-
ru, þau eiga þrjár dætur; Elín María
hjúkranarfræðingur, f. 13.2. 1959,
maki Richard Örn Richardsson eftir-
litsmaður, þau eiga einn son.
Systkini Sigurðar: Ámi, fríkirkju-
prestur í Rvk, f. 13.9.1893, d. 20.9.1949;
Ásgeir, skipstjóri ms. Esju og ms.
Heklu, f. 28.11. 1894, d. 22.9. 1961; Sig-
rún Bjarnar, bóndi á Rauðará og
Laugabrekku, f. 15.61896, d. 10.8.1979;
Þorkell, vélstjóri á toguram og vél-
gæslumaður hjá Hitav. Rvk., f. 18.2.
1898, d. 1.3 1969; Þorsteinn f. 4.10.1899,
d. 21.9. 1911; Sigríður f. 2.10. 1903, d.
19.8.1914; Þóra Steinunn húsmóðir, f.
21.9. 1912, d. 2.1. 1989.
Foreldrar Sigurðar: Sigurður Þor-
steinsson frá Flóagafli, f. 10.9.1867, og
Ingibjörg Þorkelsdóttir frá Óseyrar-
nesi, f. 29.5. 1868. Þau gengu í hjóna-
band árið 1892 og stunduðu búskap á
ýmsum jörðum í Árnessýslu og Sig-
urður stundaði jafnframt sjómennsku
á ýmsum skipum. Þau fluttu til
Reykjavíkur í byrjun septembermán-
aðar 1910. Eftir það starfaði Sigurður
við fasteignasölu og ritstörf en Ingi-
björg sinnti heimilisstörfum.
Sigurður Þorsteinsson var af
Fjallsætt og Víkingslækjarætt og Ingi-
björg Þorkelsdóttir var af Bergsætt.
Sigurður Ingi verður að heiman á
afmælisdegi sínum.
Sigurður Ingi Sig-
urðsson.
Guðbjörg Sigurðardóttir
Guðbjörg Sigurðardóttir ljósmóðir,
Hrafnistu, Laugarási, Reykjavík, er
85 ára í dag.
Starfsferill
Guðbjörg fæddist á Setbergi á
Skógarströnd og ólst upp á Kársstöð-
um í Helgafellssveit í Snæfellsnes-
sýslu. Hún lauk ljósmæðraprófi frá
LMSÍ 30.9. 1952. Hún var ljósmóðir á
Landspítalanum, fæðingadeild, frá
18.6. 1956-30.9. 1982. Hún var deildar-
ljósmóðir þar frá 1969 til starfsloka.
Fjölskylda
Systur Guðbjargar: María, f. 20.9.
1909, d. 20.4. 1977, gift Sigurði
Tómassyni, f. 19.12.1897, d. 20.4.1977,
bjuggu á Barkarstöðum í Fljótshlíð í
Rangárvallasýslu; Aðalheiður, f. 10.7.
1912, gift Stefáni Siggeirssyni, f. 24.7.
1907, d. 13.10. 1973, bjuggu í Stykkis-
hólmi; Jófríður, f. 13.12. 1916, d. 28.3.
1943. Gift Bjama Sveinbjörnssyni, f.
20.3. 1916, bjuggu í Stykkishólmi.
Seinni kona Bjarna er Anna Krist-
jánsdóttir, f. 10.7.1924, búa í Stykkis-
hólmi; Ágústa Sigurðardóttir Ring-
sted, f. 3.8. 1925, gift Baldvini Ring-
sted, f. 23.10. 1914, d. 27.12. 1988,
bjuggu á Akureyri.
Foreldrar Guðbjargar: hjónin Ingi-
björg Daðadóttir, f. 19.5. 1884, Set-
bergi, Skógarströnd, d. 28.12. 1987, og
Sigurður Magnússon, f.
20.4. 1880 á ísafirði. (Móðir
hans dó er hann var 4 ára
gamall. Hún sagði honum
er hún lá banaleguna að
hann væri fæddur 4 apríl
sem síðar reyndist rétt), d.
7. 5.1984, bóndi á Kársstöð-
um og síðar hreppsstjóri í
Stykkishólmi.
Ætt
Ingibjörg var dóttir hjón- Guðbjörg
anna Daða Daníelssonar, f. Sigurðardóttir.
10.10.1850, d. 1939, frá Litla-
Langadal, og Maríu Andrés-
dóttur, f. 22.7.1859, d. 1965, frá Miðbæ
í Flatey á Breiðafirði. Þau
bjuggu á Dröngum og Set-
bergi á Skógarströnd,
Snæf. María bjó síðar í
Stykkishólmi.
Sigurður var sonur hjón-
anna Guðbjargar Jóns-
dóttur og Magnúsar Sig-
urðsssonar, bónda á Ósi
og Hálsi á Skógarströnd.
Hann var um skeið Vest-
urlandspóstur. Síðast var
hann búsettur á ísaflrði
Afmælisbarnið verður í
Þórsmörk á afmælisdag-
inn.
INNKA UPASTOFNUN
REYKJA VIKURBORGAR
F ríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík-Sími 570 5800
Fax 562 2616 - Netfang: isr@rhus.rvk.is
T//Á
UTBOÐ
F.h. Borgarverkfræðingsins í Reykjavík og Vegagerðarinnar
er óskað eftir tilboðum í gerð yfirbyggingar göngubrúar yfir
Miklubraut. Brúin er stálbitabrú í 2 höfum, 60 m löng og
3 m breið.
Helstu magntölur eru:
Stálsmíði: 43,5 tonn
Mótafletir: 4 m2
Steypa: 2,5 m3
Bendistál: 60 kg
Handrið utan brúar: 75 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 2000
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar, frá og með 17. ágúst nk.,
gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: 6. október 1999, kl. 11.00,
á sama stað.
bvf 97/9
F.h. Borgarverkfræðingsins í Reykjavík og Vegagerðarinnar
er óskað eftir tilboðum í jarðvinnu og yfirborðsfrágang vegna
göngubrúar yfir Miklubraut. Um er að ræða gerð endastöpla og
millisökkuls með tilheyrandi stoðveggjum ásamt gerð aðliggjandi
göngustíga og trappa, þökulögn og gróðursetningu.
Helstu magntölur eru:
Fyllingar: 6.100 m3
Fláafleygar: 2.100 m3
Göngustígar: 2.365 m2
Mótafletir: 358 m2
Bendistál: 5,4 tonn
Steypa: 99 m3
Forsteyptar tröppueiningar: 47 stk
Meginhluta verksins skal skilað þann 1. desember 1999
en lokaskiladagur er 15. júní 2000
Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 17. ágúst nk.
gegn 10.000 kr skilatryggingu.
Opnun tilboða: 1. september 1999, kl. 11.00.
á sama stað.
bvf 98/9
Ólafur
Egilsson
Ólafur Egilsson bóndi,
Hundastapa, Borgar-
byggð, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Borgarnesi. Hann gekk í
barna- og miðskóla Borg-
arness. Ólafur vann al-
menna verkamanna-
vinnu, aðallega hjá Kaup-
félagi Borgfirðinga, tO
1974 er hann hóf búskap á
Hundastapa á fóðurleifð konu sinn-
ar. Þar hafa þau byggt allar bygg-
ingar upp, ræktað mikið og rekið
stórt kúabú.
Ólafur hefur verið formaður
Veiðifélags Álftár undanfarin ár.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 21.10. 1961 Ólöfu
Guðrúnu Guðmundsdóttur, f. 21.9.
1941, húsmóður og bónda. Foreldrar
hennar: Guðmundur Jónsson og
Sigurbjörg Ólafsdóttir, bændur á
Hundastapa, bæði látin.
Börn Ólafs og Ólafar: Sigurbjörg,
f. 22.7. 1961, sambýlismaður Karl
Torfason, böm Agnes, nemi, Magn-
ús, nemi, Birgir, Snorri og Torfi
Lárus; Egill, f. 16.11.1962, blaðamað-
ur á Morgunblaðinu, maki Unnur
Lárusdóttir safnvöröur,
börn Ólafur Lárus og
Urður; Guðmundiu-, f. 4.2.
1962, sjómaður í Ólafsvík,
sambýliskona Þuríður
Ragnarsdóttir, böm Við-
ar Þór, Ólöf Guðrún og
Sigrún; Hrafnhildur, f.
9.5. 1972, hjúkrunarffæð-
ingur, sambýlismaður
Axel Eyfjörð Friðriksson
sjávarútvegsfræðingur;
Hanna Kristín Lind, f.
23.1.1977, háskólanemi og
frjálsíþróttakona.
Systkini Ólafs: Hilmar, Kristinn,
Guðmundur, Páll, Rannveig, Sig-
rún, Þorbergur, Sonja, Eygló, Jenný
og Hans. Hálfsystir: Sóley Jóhansen,
búsett í Þórshöfn í Færeyjum.
Foreldrar Ólafs: Egill Pálsson, f.
6.9. 1912, d. ágúst 1992, verkamaður
í Borgarnesi, og Jóhanna Lind Páls-
son, frá Sviney i Færeyjum, f. 11.9.
1916. Þau bjuggu í Borgarnesi.
Ólafur verður á ferðalagi á Norð-
urlandi á afmælisdaginn.
jjrval
- gott í hægindastólinn
Ólafur Egilsson.
Tll hamingju með afmælið 16. ágúst
90 ára
Jóhanna S. Þorsteins, Dalbraut 23, Reykjavík.
85 ára
Hulda Vigúsdóttir, Aðalgötu 4, Dalvík. Jónas Finnbogason, Aðalbraut 47, Raufarhöfn.
80 ára
Þorvaldur Einarsson, Hlíðargötu 5a, Neskaupstað.
75 ára
Dagbjartur Jónsson, Álakvísl 106, Reykjavík. Guðný Helgadóttir, Dúfnahólum 2, Reykjavík. Helena Magnúsdóttir, Álfaskeiði 104, Hafnarfirði. Matthías Matthíasson, Litlagerði 9, Reykjavík.
70 ára
Ásgeir H.P. Hraundal, Stóragerði 22, Reykjavík. Þorbjörg Guðmundsdóttir, Karfavogi 20, Reykjavík.
60 ára
Björgvin Steinþórsson, Skúlaskeiði 20, Hafnarfirði. Georg Hermannsson, Þorsteinsgötu 15, Borgarnesi. Gunnar Jónasson, Rifkelsstöðum 2b, Akureyri. Hildur Margrét Egilsdóttir, Birkilundi 13, Akureyri. Ida Christiansen, Móaflöt 12, Garðabæ. Jónína Guðrún Árnadóttir, Torfufelli 29, Reykjavík.
50 ára
Elsí Sigurðardóttir, Leynisbraut 11, Grindavík. Magnús Guðmundsson, Reynivöllum 4, Egilsstöðum. Ólafur Tryggvi Þórðarson, Urðarstíg 4, Reykjavík. Svava Halldóra Ágeirsdóttir, Dvergagili 26, Akureyri.
40 ára
Bryndís Ólöf Guðjónsdóttir, Vogabraut 22, Akranesi. Einar Ófeigur Magnússon, Lyngbrekku 14, Húsavík. . Ingibjörg Rakel Bragadóttir, Veghúsum 31, Reykjavík. Jóhann Gylfi Gxmnarsson, Dalseli 38, Reykjavík. Jóhann Jóhannsson, Öldugötu 17, Dalvík. Jón Pálmi Jónsson, Hjallabraut 1, Hafnarfirði. Kristín Sigríður Jónsdóttir, Noröurvöllum 36, Keflavík. María Sveinfr. Halldórsdóttir, Hvammabraut 4, Hafnarfirði. Sigurður Bjamason, Tómasarhaga 19, Reykjavík. Sævar Óskarsson, Skipagötu 4, ísafirði.