Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1999, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 1999
23
Sigur í fyrsta maraþoninu
- Ryan Board kom fyrstur í mark í karlaflokki - Ida Midtem fyrst hjá konunum
„Síðustu sex kílómetrarnir voru mjög erfið-
ir, ég hef verið meiddur á fæti og fékk krampa
í fótinn þegar sex kílómetrar voru eftir og er
því mjög ánægöur með sigurinn í dag,“ sagði
Ryan Board, 23 ára Bandaríkjamaður, sem
kom fyrstur karla í mark i maraþonhlaupinu.
„Ég hef ekki getað æft sem skyldi síðustu vik-
ur vegna meiðslanna, auk þess sem þetta er í
fyrsta sinn sem ég hleyp heilt maraþon svo
sigurinn kom mér nokkuð á óvart. Ég fann
það þó fljótlega að ég ætti góða möguleika en
ég þurfti að hægja verulega á mér þegar ég
fékk krampann í fótinn og þegar það gerist er
erfitt að ná hraðanum upp aftur,“ sagöi Ryan
Board en hann ákvað að koma hingað fyrir til-
stuðlan Toby Tansers.
Ætlar þú að koma aftur?
„Já, það ætla ég að gera, ég kem kannski í
desember eða janúar og þarf þá ekki að hafa
áhyggjur af þvi að hlaupa. Ég vil fá tækifæri
til að skoða borgina og líta á næturlífið, mér
líkar næturlifiö," sagði Ryan Board, sigurveg-
ari maraþonhlaupsins.
Kanadíska konan Ida Midtem varð fyrst
kvenna til að ljúka maraþonhlaupinu. Er hún
ánægð með hlaupið?
„Hlaupið var gott, skipulagningin var góð
en það var nokkuð kalt og aðstæður buðu ekki
upp á það að hlaupa hratt. En þetta var ágætt.
Ég hef hlaupið maraþon níu sinnum og sigrað
einu sinni áður. Tími minn í þessu hlaupi var
ekkert sérstakur en það er ekki alltaf hægt að
hlaúpa hratt, sérstaklega ekki þegar aðstæð-
urnar eru svona. Mig langaði til að koma
hingað og skoða mig um, ég er uppalin í bæ í
Kanada sem er á svipaðri breiddargráðu og
Reykjavík og vildi sjá hvernig væri umhorfs
hér.“
Um hvað hugsar maraþonhlaupari á
leiðinni?
„Að þessu sinni þá var hugur minn ekki við
tímann, eins og oft vill verða, svo ég reyndi að
njóta þess að vera hér á íslandi og þess aö
hlaupa hér. Svo hugsaði ég mikið um það að
komast í heitu pottana að hlaupinu loknu,“
sagði Ida Midtem, sigurvegari kvenna í mara-
þonhlaupinu.
-ih