Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Síða 1
Leitað að geim- verum Bls. 23 Erfðabreytt matvæli í umræðunni Bls. 20 og 21* PlayStation Fyrir nokkrum j dögum flaug geimfarið Cass- ini hjá jörðu og -r^j'DJj'. I nýtti sér að- dráttarafl plánetunnar til að þeyta sér af stað í átt til Sat- úmusar. Áætlað er að geimfarið verði komið til plánetunnar í júlí árið 2004 en það mun fara á spor- baug um Satúmus og rannsaka andrúmsloftið, hina frægu hringi Satúrnusar, hin fjölmörgu tungl plánetunnar og ýmislegt annað. Jafnframt mun Cassini senda könnunarfarið Huygens til Títans, eins tungla Satúrnusar, en það tungl er athyglisvert sökum þess að aðstæður þar minna um margt á aðstæður hér á jörðinni. Lending Huygens mun marka tímamót því aldrei mun geimfar hafa lent jafn langt frá jörðu og þegar Huygens lendir á Títan. Verkefni þetta er samvinnuverkefni Geimferðastofn- unar Bandaríkjanna, Geimferða- stofnunar Evrópu og Geimferða- stofnunar Ítalíu, en áætlað er að það standi til ársins 2008. Á stóra myndinni hér að ofan má sjá túlkun listamanns á því hvernig það mun líta út þegar Cassini nær lokst til Satúrnusar og kveikir á vélum sínum til að stilla sig inn á réttan sporbaug. Nánari umijöflun um þetta verkefni er að fmna á bls. 19 í DV-Heimi í dag. C-vítamín gegn sjúkdómum Vísindamenn hafa komist að því að mjög stórir skammtar af C- vítamíni geta kom- ið í veg fyrir sjúk- dóma af ýmsu tagi, allt frá kveff til krabbameins. Þeir fundu út með tilraunum á rottum að C-vítamín hjálpar líkamanum að halda niðri streituhormónum. Vegna þess að stressaðir ein- staklingar eru viðkvæmari fyrir * sjúkdómum gæti þessi virkni vítamínsins kom- ið sér vel. Þó er einn hængur á, menn þurfa að neyta þúsunda millígramma af C-vítamíni á dag til að þetta hafi áhrif en ráðlagður dagskammtur er 60 mfllígrömm á dag. Því er spuming hvort mat- vælafræðingar hvetji okkur til að snæða tugi C-vítamínríkra appel- sína á dag i framtíðinni. Þeir sem hafa áhuga á að senda tölvupóst en era ekki til í að kaupa sér heimilistölvu fyrir tugi þúsunda bara til þess geta farið að hlakka til því von er á tæki sem er sérhannað til að skrifa, senda og taka á móti tölvu- pósti. Það mun kosta umtalsvert minni fjármuni en heimilistölva, aðeins 180 dollara í Bandaríkjun- um, eða um 13.000 krónur. Það er risasímafyrirtækið SBC Comm- unications sem hannar tækið sem mun tengjast venjulegum síma á svipaðan hátt og símsvari. For- svarsmenn fyrirtækisins segja að þessi nýja tækni henti bæði þeim sem ekki eiga tölvur og einnig hinum sem flnnst of timafrekt að þurfa alltaf að kveikja á heimilis- tölvimni til að skoða póstinn. 1 CstLv.1" i2s íí)\ Tölvupóstur án tölvu GAGN@GAMAN HAUSTRÁÐSTEFNA TEYMIS 1999 í SAMSTARFI VIÐ OPIN KERFI HF Hótel Loftleiðum 9. -10. september Skráning er hafín í síma 550 2500 og á heimasíðu Teymis. OPIN KERFIHF HEWLETT® m PACKARD ORACLG' TEYMI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.