Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Blaðsíða 1
Leitað
að geim-
verum
Bls. 23
Erfðabreytt
matvæli í
umræðunni
Bls. 20 og 21*
PlayStation
Fyrir nokkrum
j dögum flaug
geimfarið Cass-
ini hjá jörðu og
-r^j'DJj'. I nýtti sér að-
dráttarafl
plánetunnar til
að þeyta sér af stað í átt til Sat-
úmusar. Áætlað er að geimfarið
verði komið til plánetunnar í júlí
árið 2004 en það mun fara á spor-
baug um Satúmus og rannsaka
andrúmsloftið, hina frægu hringi
Satúrnusar, hin fjölmörgu tungl
plánetunnar og ýmislegt annað.
Jafnframt mun Cassini senda
könnunarfarið Huygens til Títans,
eins tungla Satúrnusar, en það
tungl er athyglisvert sökum þess að
aðstæður þar minna um margt á
aðstæður hér á jörðinni. Lending
Huygens mun marka tímamót því
aldrei mun geimfar hafa lent jafn
langt frá jörðu og þegar Huygens
lendir á Títan. Verkefni þetta er
samvinnuverkefni Geimferðastofn-
unar Bandaríkjanna, Geimferða-
stofnunar Evrópu og Geimferða-
stofnunar Ítalíu, en áætlað er að
það standi til ársins 2008.
Á stóra myndinni hér að ofan má
sjá túlkun listamanns á því hvernig
það mun líta út þegar Cassini nær
lokst til Satúrnusar og kveikir á
vélum sínum til að stilla sig inn á
réttan sporbaug. Nánari umijöflun
um þetta verkefni er að fmna á bls.
19 í DV-Heimi í dag.
C-vítamín gegn
sjúkdómum
Vísindamenn hafa
komist að því að
mjög stórir
skammtar af C-
vítamíni geta kom-
ið í veg fyrir sjúk-
dóma af ýmsu tagi, allt frá kveff til
krabbameins. Þeir fundu út með
tilraunum á rottum að C-vítamín
hjálpar líkamanum að halda niðri
streituhormónum.
Vegna þess að
stressaðir ein-
staklingar eru
viðkvæmari fyrir *
sjúkdómum gæti
þessi virkni
vítamínsins kom-
ið sér vel. Þó er
einn hængur á,
menn þurfa að neyta þúsunda
millígramma af C-vítamíni á dag
til að þetta hafi áhrif en ráðlagður
dagskammtur er 60 mfllígrömm á
dag. Því er spuming hvort mat-
vælafræðingar hvetji okkur til að
snæða tugi C-vítamínríkra appel-
sína á dag i framtíðinni.
Þeir sem hafa
áhuga á að senda
tölvupóst en era
ekki til í að kaupa
sér heimilistölvu
fyrir tugi þúsunda bara til þess
geta farið að hlakka til því von er
á tæki sem er sérhannað til að
skrifa, senda og taka á móti tölvu-
pósti. Það mun kosta umtalsvert
minni fjármuni en heimilistölva,
aðeins 180 dollara í Bandaríkjun-
um, eða um 13.000 krónur. Það er
risasímafyrirtækið SBC Comm-
unications sem hannar tækið sem
mun tengjast venjulegum síma á
svipaðan hátt og símsvari. For-
svarsmenn fyrirtækisins segja að
þessi nýja tækni henti bæði þeim
sem ekki eiga tölvur og einnig
hinum sem flnnst of timafrekt að
þurfa alltaf að kveikja á heimilis-
tölvimni til að skoða póstinn.
1 CstLv.1"
i2s íí)\
Tölvupóstur
án tölvu
GAGN@GAMAN
HAUSTRÁÐSTEFNA
TEYMIS 1999
í SAMSTARFI VIÐ OPIN KERFI HF
Hótel Loftleiðum 9. -10. september
Skráning er hafín
í síma 550 2500 og á heimasíðu Teymis.
OPIN KERFIHF
HEWLETT®
m PACKARD
ORACLG'
TEYMI