Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1999, Side 18
18
MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 1999
Fréttir
DV
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
Verslunarmaöur á Þingeyri:
Eyðileggingarstarf-
semi ísafjarðarbæjar
- er aö fara meö okkur, segir Líni Hannes Sigurðsson
Sólgleraugu á
húsið - bílinn
DV, Þingeyri:
„Ég veit ekki hvemig þetta fer,
það hefur fækkað héma um 70-100
manns á stuttum tíma þannig að
ég sé ekki hvemig við eigum að
reka svona þjónustu héma. At-
vinnuleysið á staðnum setur auð-
vitað stórt strik í reikninginn í
verslunarrekstri hér,“ segir Lini
Hannes Sigurðsson, stjórnarfor-
maður verslunarinnar Sandafells á
Þingeyri.
Verslunin Sandafell var stofnuð
í kjölfar þess að rekstur Kaupfé-
lags Dýrfirðinga á Þingeyri komst
í þrot og verslun félagsins lagði
upp laupana. Sandafell er önnur
tveggja verslana á staðnum og hef-
ur nú öllu starfsfólki hennar verið
sagt upp störfum vegna samdráttar
í rekstri fyrirtækisins.
„Fyrst og fremst er það atvinnu-
leysið og eyðileggingarstarfsemi sú
sem er búin að vera hér af hálfu op-
inberra aðila, eins og ísafjarðarbæ,
sem er að fara með okkur, það verð-
ur bara að segjast eins og er. Þetta
Líni Hannes Sigurðsson, stjórnarformaður verslunarinnar Sandafells á
Þingeyri, á skrifstofu sinni.
eru eins og krakkar í sandkassaleik
sem ráða þessum málum. Það er
gott út af fyrir sig að fá inn þennan
DV-mynd GS
kvóta en að skapa héma 25 störf úr
öllum þessum fjármunum i stað
þeirra 130 starfa sem tapast hafa að
undanfomu segir auðvitað litið,“
segir hann og vísar til byggðakvóta
og fjárframlags þess sem Byggða-
stofnun hefur varið til uppbygging-
ar atvinnulífs á Þingeyri.
Auk þess að vera með verslun á
staðnum rekur Líni Hannes raf-
magnsverkstæði á Þingeyri og segir
hann ástandið koma niður á allri
þjónustustarfsemi í þorpinu. Líni
segir augljóst að þegar fólk hafi ekki
vinnu hafi það auðvitað ekkert
handa á milli til að kaupa fyrir og
er frekar svartsýnn á framhald
verslunar á staðnum.
„Verslunin á enga framtíð fyrir
gér nema til komi aukin starfsemi á
staðnum. Það er augljóst að það er
ekki hægt að reka verslun á þeim
granni sem er héma um þessar
mundir. Þetta góðæri sem Davíð
Oddsson er alltaf að tala um nær
ekki hingað og ekki getum við leng-
ur flutt til Reykjavíkur þar sem allt
íbúðarhúsnæði er yfirfullt vegna
flóttamanna af landsbyggðinni,"
segir Lini Hannes.
-GS
Ekki bara glæsileikinn, einnig
vellíðan, en aðalatriðið er öryggið!
lituð filma innan á gler tekur ca 2/3 af hita,
1/3 af glæru og nær alla upplitun.
Við óhapp situr glerið í filmunni og því
er minni hætta á að fólk skerist.
Asetning meðhita - fagmenn
i-3jo óro
óbyrgð
Allir 7 stjörnu bílareru
í ábyrgð í a.m.k. 1 ár.
Ábyrgó getur numió
allt aö 3 árum.
Þetta er ein af sjö j
ástæðum til aó kaupa j
sjö stjörnu bíl hjá B&L. f
Forráðamenn hlýsjávareldisins Máka á Sauðárkróki:
Framtíðaráform um
uppbyggingu í óvissu
Forsvarsmenn hlýsjávareldisins
Máka á Sauðárkróki segja framtíðará-
form um uppbyggingu fyrirtækisins í
óvissu eftir að stjómendur Kaupfélags
Skagfírðinga lögðu til hliðar áform um
að byggja nýtt bifreiðaverkstæði og ætla
að halda starfseminni áfram við Freyju-
götuna. Kaupfélagið viil kaupa aftur lóð-
ina og húseignimar við Freyjugötuna
sem það seldi bænum fyrir 10 árum en
vill samt ekki hrófla við starfsemi Máka
á svæðinu. Þeir Mákamenn segjast hins
vegar hafa sett starfsemina þama niður
þar sem fyrir hafi legið fyrirheit frá KS
um að félagið mundi flytja sig burt með
þessa starfsemi, enda sé sambýli fiskeld-
is og bílaverkstæðis allsendis ófært, s.s.
vegna hávaðamengunar. Guðmundur
Öm Ingólfsson, framkvæmdastjóri
Máka, staðfesti þetta í samtali við DV en
vildi að öðm leyti ekki tjá sig um málið.
Augastað á
slökkvistöð
Málið er mjög
snúið, sérstaklega
í Ijósi þess að
samningar sem
gerðir hafa verið
eru sumir hverjir
ekki bókaðir og
því oft um munn-
legt samkomulag
að ræða. Forsaga
málsins er sú að í
lok níunda áratug-
arins keypti Sauðárkróksbær lóð og
húseignir að Freyjugötu 9, enda vora
áform KS að byggja nýtt og fullkomið
verkstæði og flytja starfsemina í iðnað-
arhverfið.
Nokkrum misserum síðar fór Guð-
mundur Öm Ingólfsson að svipast um
Guðmundur Örn
Ingólfsson,
framkvæmdastjóri
Máka á
Sauðárkróki.
eftir húsnæði og lóð fyrir barraeldi.
Hann fékk augastað á gömlu slökkvi-
stöðinni sem er næsta hús norðan við
bílaverkstæðið og dráttarvélaverk-
stæði Kaupfélagsins sem er nyrst í
verkstæðislengjunni á Freyjugötu 9.
Bærinn samdi við Guðmund og Máka
um leigu á húsnæðinu en jafhframt
var gerður samningur við Kaupfélag
Skagfirðinga sem fól m.a. í sér það
ákvæði að yrðu húsin látin standa og
til sölu þeirra og lóðar kæmi hefði KS
forkaupsréttinn.
Engin skrifleg svör
Samningur KS við bætan kvað líka
á um það að félagið flytti sig af Freyju-
götunni með verkstæðin í síðasta lagi
á árinu 1995. KS-menn hafa fengið frest
enda dregist að ákvarða um byggingu
nýs verkstæðis. Síðast fyrir ári sendi
Sauðárkróksbær forsvarsmönnum
Kaupfélag Skagfirðinga.
Kaupfélagsins bréf vegna málsins og
fengust þá þau svör, ekki þó skrifleg,
að áform um byggingu bílaverkstæðis
væru óbreytt og starfsemin mundi
flytjast burt af Freyjugötunni í lok árs-
ins 2000.
Samkvæmt fregnum DV af þessu
máli mun Kaupfélag Skagflrðinga hafa
allan lagalegan rétt i því. Máki keypti
á síðasta ári fiskeldisstöðina við Mikla-
vatn í Fljótum í þeim tilgangi að fram-
leiða þar barra í stórum stíl. Þeir
Mákamenn segja að stöðin á Króknum
sé grunnurinn að þessum fýrirætlun-
um og því séu þessi áform í óvissu.
Fulltrúar í sveitarstjóm Skagafjarðar
hafa leitað leiða til að ná samkomulagi
miili Máka og KS í málinu en ekki er
ljóst á hverju sá samningsgrundvöllur
gæti byggst. ' -ÞÁ
^Ualan^&^ijótháe^^(mH7^230
/