Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 31. ÁGÚST 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Fijálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@rff.is - Auglýsingar: auglysingarrgrff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins 1 stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Bæklaðir skylmingaþrælar Frá heimsleikunum í Sevilla hefur það verið helzt í fréttum, að íslenzku keppendurnir gátu ekki keppt eða urðu að hætta keppni vegna meiðsla. Bakið gaf sig, meiðsli í hálsi tóku sig upp og tognun varð í nára. Kepp- endur lifðu á hnífsegg miili heilsu og bæklunar. Svipuð saga var sögð í fréttum af boltaleikjum íslend- inga heima og erlendis. Leicester-keppandinn var sagður meiddur og Bolton-keppandinn að braggast. Tveir leik- menn KRvoru sagðir hafa brotnað og tveir leikmenn Breiðabliks slasazt, allir fjórir í sama leiknum. Á fimmtudaginn var öll forsíða íþróttafrétta eins dag- blaðsins lögð undir slysafréttir. íslenzkur leikmaður í Wuppertal er með brotna hnéskel og verður frá keppni í þrjá mánuði. Heimsmeistarinn í 100 metra hlaupi kvenna var borinn af veUi með meiðsli í mjóbaki. Endalausar sjúkrasögur íþróttafrétta sýna, að eitthvað meira en lítið er í ólagi. Meðan annað kemur ekki í ljós verður haft fyrir satt, að álag og kröfur í frjálsum íþrótt- um og boltaleikjum séu orðnar svo úr hófi fram, að bækl- un sé að verða lokastigið á ferli ofuríþróttamanna. Afreksmenn íþrótta sluppu yfirleitt vel frá ferli sínum fyrir svo sem fjórum áratugum, misjafnlega fyrir tveim- ur áratugum, en afreksmenn nútímans mega búast við að verða bæklar til æviloka. Þetta hefur gerzt hægt og ör- ugglega með vaxandi kröfum um ofurárangur. Afreksmenn íþrótta eru í auknum mæli að minna á gladíatora hringleikahúsanna í Rómaveldi. Þeir eru í há- vegum hafðir, knúnir áfram af æstum pupli, en síðan kastað fyrir róða, þegar ekki er hægt að nota þá meira. Keppnismenn eru skylmingaþrælar nútímans. Undir lokin snerist líf Rómverja og raunar síðar Miklagarðsmanna um hringleikahús og paðreima. Sama saga er að gerast nú hjá fjölmennum hópum, sem sitja límdir fyrir framan sjónvarpið og horfa á slysin gerast, í boltaleik, í frjálsum, í kappakstri, í hnefaleikum. Lengi vel voru það einkum austantjaldslönd, sem keyrðu íþróttamenn sína út á hnífsodd bæklunar með of- urþjálfun og lyfjanotkun. Eftir hrun kommúnismans í Evrópu hefur vítahringur ofálags og undralyfja haldið áfram að magnast um heim allan, líka hér á landi. Á líkamsræktarstöðvum bryðja menn stera eins og hvert annað súkkulaði og fletta auglýsingabæklingum um fæðubótarefni, töfradrykki og megrunarduft. Slysa- deildir íslenzkra sjúkrahúsa meðhöndla fleiri slys af völdum íþrótta en áfengis og er þá mikið sagt. Pupullinn heimtar árangur og fær hann. Heilaþvegnir afreksmenn eru lamdir áfram af þjálfurum til að ná ár- angri, sem er betri en heimsmet voru fyrir fáum áratug- um, en ná skammt nú á tímum. Afleiðingin er likamleg bæklun fólks, þegar líf þess er rétt að hefjast. Þetta er ekkert annað en þrælahald, rétt eins og hjá Rómerjum og Austur-Þjóðverjum. Afreksfólk er gert að vélum, sem keyrðar eru í botn og síðan afskrifaðar, þeg- ar bæklunina ber að höndum. Og það er múgurinn í sjón- varpssófunum, sem ber ábyrgðina. Skylmingaþrælar nútímans standa í þungamiðju víta- hrings og sjónvarpsmúgurinn á jaðri hans. Þetta allsherj- ar Colosseum nútímans er síðan knúið af gífurlegum peningahagsmunum þeirra, sem fjármagna áhorfsfíkn- ina til að vekja athygli á vörum og þjónustu. Gladíatorar nútímans eru gripnir ungir, heilaþvegnir og ofþjálfaðir. Þeir hamast í hringleikahúsi sjónvarpsins og gera sér ekki grein fyrir aðvífandi bæklun. Jónas Kristjánsson „Mikilvægt er að þjóðkirkjan byggi á framsæknari söguskilningi en réð ríkjum um aldamótin síðustu er hún set- ur sér markmið inn f nýja öld,“ segir Hjalti m.a. í grein sinni. - Kristnihátíðarnefnd á fundi í Háteigskirkju. Hefðbundin saga eða framsækin? í grein sinni lætur Skúli að því liggja að við stefnumörkun af þessu tagi ættum við við fyrst og fremst að byggja á sögu sem „hefðin helgar“ og frá- sögum sem getið hefur verið í sögubókum, lagt hefur verið út af í predikunum presta, orðið kveikja að leik- ritum skálda og reistir hafa verið um minnis- varðar. Fyrir þessu sjónarmiði færir hann að því er séð verður ekki önnur rök en þau að slík meðferð sög- unnar hafi nýst vel í „Þaö er ugglaust rétt að á sínum tíma gegndu íslenskir sagnfræð- ingar veigamiklu hlutverki í sjálf- stæðisbaráttunni. Hitt orkar tví- mælis hvort sögutúlkun þeirra hefur enst vel. “ Kjallarinn Hjalti Hugason prófessor Oft er því fleygt að við íslendingar séum söguþjóð. í því felst að hér ríki mik- ill og almennur áhugi á sögunni, en ekki síður hitt að sjálfsskilningur ein- staklinga, stofnana og raunar samfé- lagsins alls grund- vallist á sögunni. Síðamefnda atriðið er raunar alls ekki séríslenskt heldur er það áberandi ein- kenni á vestrænni menningu og ef til vill sammannlegur þáttur. Okkur hefur a.m.k. fram til þessa verið eiginlegt að setja líf okkar og til- veru í langtímasam- hengi og túlka á þann hátt eðli þess og tilgang. Með þessu móti myndar sagan sem við telj- um okkur þekkja mótvægi við fram- tíðina sem við þekkj- um ekki. Byggjum á sögunni Nátengt sjálfsskilningnum er sú viðleitni okkar til að setja starfi okkar og striti markmið til fram- tíðar. Einnig í því sambandi byggj- um við oft - e.t.v. frekar ómeðvit- að en meðvitað - á sögunni eins og sr. Skúli Ólafsson bendir réttilega á hér í DV 25. ágúst sl., að þjóð- kirkjan hljóti t.d. að gera á yfir- standandi kristnihátíð. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. - Því virðist Skúli gera sig að tals- manni þeirrar rómantísku og þjóð- ernislegu söguskoðunar, sem hér var landlæg á 19. öld og í upphafi þessarar aldar. Orkar tvímælis Það er ugglaust rétt að á sínum tíma gegndu íslenskir sagnfræð- ingar veigamiklu hlutverki í sjálf- stæðisbaráttunni. Hitt orkar tví- mælis hvort sögutúlkun þeirra hefur enst vel. í því sambandi má til gamans vitna í orð dr. Magnús- ar Más Lárussonar, fyrrum há- skólarektors, en fyrir 30 árum lét hann þessi orð falla - þá nýhættur að kenna kirkjusögu við guðfræði- deild: „Sagnfræðingar 19. aldar og aldamótaáranna tóku upp gamla arfjeifð, byggðu nánar út fram- setningu aldanna á undan til þess að nota hagnýtni sagnfræðinnar í þágu stjórnmálabaráttunnar, sem beindist að því marki, sem náð var 1918. Nú er hálf öld liðin síðan; samt er sagnfræðin tröllriðin af þeim viðhorfum og forsendum, sem sú barátta byggði á. Mál er komið til endurmats á sögunni, til þess að nær verði komizt hinu sanna.“ (Saga 1969: 130-131). Það endurmat sem Magnús Már kallaði eftir hefur fyrir löngu farið fram innan sagnfræðinnar. Sú saga sem lögð er til grund- vallar við sjálfsmyndarsmíð ein- staklinga og stofnana þróast þó eðlilega miklum mun hægar en söguskilningur fræðasamfélags- ins. I „kyrrstæðum" samfélögum fyrri tíma var jafnvel öldum saman byggt á föstu kerfi goð- sagna er tóku litlum breytingum í tímans rás. Hitt orkar tvímælis hvort sú hefðarfesta sem Skúli Ólafsson boðar muni reynast vel í hraðfara og kröfuhörðu þekking- ar- og upplýsingasamfélagi 21. ald- ar. Þar mun hver ný kynslóð túlka söguna á sinn hátt. Þvj er mikil- vægt að þjóðkirkjan byggi á fram- sæknari söguskilningi en réð ríkj- um um aldmótin síðustu er hún setur sér markmið inn í nýja öld. Hjalti Hugason Skoðanir annarra Samþjöppun í bankastarfsemi „Ef menn óttast að „ein lúka“eða samþjöppun áhrifa sé sérstaklega hættuleg í bankastarfsemi ættu menn að einbeita sér að þvi að styrkja ýmis ákvæði gildandi laga til þess að tryggja það að bankarnir verði ekki misnotaðir af eigendunum sem farvegur fyrir lánveitingar til þeirra sjálfra eða fyrirtækja í þeirra eign...Forsætisráðherra sjálfur hefur lagt á þetta áherslu í umræðu um viðskipti með verð- bréf...Þá hefur forsætisráðherra í nýlegri ræðu var- að við eiturlyfjabarónum, glæpahyski og mönnum sem ekki fara eftir leikreglum. Það eru vissulega orð í tíma töluð.“ Þórður Ólafsson í Morgunblaðsgrein 29. ágúst. Firring vegna Fljótsdalsvirkjunar „Það hefur verið einhuga skoðun stjórnar Lands- virkjunar að það væri ekki hennar að ákveða í hvaða farveg þetta ætti að fara, heldur ríkisstjómar og Alþingis...Málið er hins végar mjög viðkvæmt hvernig sem það fer...Úti á landi snýst dæmið dálít- ið mikið við. Þar heyrir maður mikið það sjónarmið að það heyrðust engar raddir á meðan uppbyggingin á Suður- og Suðvesturlandi stóð yfir. Þegar svo er komið að landsbyggðinni þá á helst að stoppa allt. Mér finnst þetta vera dæmi um ákveðna firringu. Hluti þjóðarinnar áttar sig ekki lengur á því á hverju við lifum.“ Jóhannes Geir Sigurgeirsson í viðtali í Degi 28. ágúst. Kvikan undir fótunum „Erum við ef til vill andvaralaus og jafnvel kæru- laus gagnvart þeirri ógn sem upp getur komið í svo eldvirku landi?...Er ekki bara æsilegt og spennandi að búa með glóandi kvikuna undir þunnri skurn jarðskorpunnar? Svo gæti virst á stundum. Við höf- um fengið af því lifandi myndir beint heim í stofu hvemig Surtsey fæddist, hvernig eldfjall stakk koll- inum upp úr tröllaukinni spmngu í Grímsvötnum og hvemig jökullinrx lagðist yfir það að nýju. Við höfum horft á Heklu gjósa og tölum um túristagos. Allt er það jákvætt. En við vitum líka hvað gerðist í Skaftáreldum og að Hekla hefur stundum spúð kol- svartri ösku yfir stóran hluta landsins. Það vora engin túristagos." Gísli Sigurðsson í Lesbók Mbl. 28. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.