Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1999, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
Myndasögur
co
co
cö
5h
íH
iH
3
5h
3
co
co
•iH
o
(h
:0
CO
,0
ÍH
T3
5
44
vcö
&>
O
cö
co
•fH
Ö)
&>
•iH
U1
Hvað finnst þér um hvað Bimmi er oröinn y Ég veit
stór stjarna á útvarpsstööinni? ) það...
Hann er jafnvel orðinn vinsælli en „Radíus-
1 - bræður".
Það er ómöglegt, herra! Báðir þessir "'i
herramenn hafa fjarvistarsönnun. Þeir .
hafa staðið hér og þambað safa í langan )~
// tima.
________jH
Veiðivon
Lax er ekki mikill í Blöndu þessa dagana og erfitt að finna hann í mjög
iitaðri ánni. DV-mynd G.Bender
Blanda:
Léleg veiði
síðustu vikur
áin mjög lituö
C
„Það tekur því ekki að renna
enda hefur lítið veiðst hérna á efra
svæðinu síðustu daga og vikur. Áin
er alltof lituð og héma
veiðast mest urriöatittir,"
sögðu veiðimenn sem
nenntu ekki að veiða á
svæði tvö í Blöndu en lítið
hefur veiðst í ánni upp á
síðkastið eða síðan áin lit-
aðist fyrir skömmu.
„Ég var að veiða i
Blöndu og veiddi vel fyrsta
hálfa daginn, við fengum
sjö laxa, en síðan ekki sög-
una meir. Áin litaðist og
óx allverulega," sagði Bjami Hafþór
Helgason á Akureyri sem oft hefur
veitt vel í Blöndu.
Blanda hefur litið hækkað sig í
tölum síðustu vikurnar og síðasta
vika gaf aðeins 12 laxa.
í gær fór DV í könnunarleiðangur
um Blöndubakka til að spjalla við
veiðimenn en þeir voru hvergi sjá-
anlegir, sama hvar leitað var. Eng-
inn bíll eða bílar sáust við veiðihús-
ið og eina hreyfingin þar var mús á
flótta undan blaðamanninum. Hún
slapp. Áin er ótrúlega vatnsmikil
þessa dagana og langt frá því að
vera veiðileg, hvað sem veldur. Lik-
lega eru þetta einhver mannaverk
sem tengjast Blönduvirkjun.
„Við erum ekkert hressir með
stöðu mála en þetta er bara það sem
maður getur átt von á. Það er hleypt
undan í Blönduvirkjun núna og
Umsjón
Gunnar Bender
þess vegna er áin svona,“ sagði
Hannes Reynisson, formaður veiði-
félagsins Flugunnar á Akureyri,
sem leigir Blöndu, en áin
hefur verið óveiðandi
núna í lengri tíma. „Ég get
trúað því að veiðimenn séu
bara hættir, fiskurinn tek- ,,
ur ekki eins og staðan er
núna. Áin er eins og kakó
á litinn."
Eruð þið ekki að borga háa
leigu fyrir ána og svo er
ekki hægt að veiða, Hann-
es? Gengur þetta?
„Jú, við borgum vel fyrir
ána. Þetta er uppákoma sem skeður
á hverju ári en er mjög slæm núna.
Það er ekki hægt að veiða í ánni
eins og er, enda hætta veiðimenn.
Áin hefur hækkað um fet á milli
vakta og ég ætla að kíkja á stöðuna
um helgina. Þetta fer vonandi að
batna, ekki getur það versnað. Það
er veitt til 5. september á svæði eitt
en til 20. september á hinum svæð-
unum, ef það er hægt,“ sagði Hann-
es enn fremur. Veiðimenn sem DV
ræddi við í gærkvöld eru óhressir
með stöðu mála, veiðileyfi eru seld í
ána og það er ekki hægt að veiða.
Enda hefur veiðin hrunið.
„Það sem er aö gerast núna gæti
gerst í júni og varað allt sumarið,
hvað þá?“ sagði einn þeirra veiði-
manna sem reyndu ekki að veiða i
ánni eins og staðan er núna.