Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1999, Page 1
19
Framarar
ekki
hindrun á
leið KR að
titlinum
C2Ó^2T)
Mikil stemning er fyrir landsleikjunum tveimur gegn
Andorra ( á laugardag) og Úkraínu (næsta miðvikudag).
Nú þegar hafa selst margir miðar í forsölu og Ijóst er að
fjöldi manns ætlar að mynda góða stemningu og hjálpa
íslenska landsliðinu til að komast í úrslit stórmóts í
fyrsta sinn. Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari valdi 22
manna hóp fyrir leikina sem hittist í fyrsta sinn í gær á
æfingu niðri í Laugardal. DV-myndir ÞÖK
Jóhann
B. Guömundsson sést
hér að ofan heilsa Ríkharði Daðasyni (til
hægri) á fyrstu æfingu knattspyrnulandsliðsins. Að baki þeim
heilsast þeir Hermann Hreiðarsson (til vinstri) og Helgi Kolviðsson.
Þrír í banni
hjá Andorra
Knattspyrnulandslið Andorra, sem mætir Is-
landi á Laugardalsvellinum á laugardaginn,
verður án fjögurra lykilmanna sinna í leikn-
um.
Þrír þeirra eru í leikbanni, bræðurnir og
varnarjaxlarnir Toni Lima og Ildefons
Lima, og miðjumaðurinn Justo Ruis. Toni
Lima er í 5 leikja banni eftir átök i lok
ieiks Andorra við Frakkland í júni. Þá gaf
Julian Lucendo, fyrrum leikmaður
Barcelona, ekki kost á sér en þessir fjór-
ir voru í einna stærstu hlutverkum þeg-
ar ísland vann 2-0 sigur í fyrri leik lið-
anna í Andorra í lok mars.
Lið Andorra er við æfingar í Tou-
louse í Frakklandi i dag og er væntan-
legt til landsins á morgun.
-VS
Mikið um breytingar á þjálfurum úrvalsdeildarinnar fyrir næsta tímabil:
Páll til Keflavíkur
- hefur gert munnlegan samning við liðið samkvæmt heimildum DV
DV hefur traustar heimildir fyrir því að
Páll Guðlaugsson, þjálfari Leifturs, verði
næsti þjálfari Keflvíkinga í úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Páll er að ljúka sínu öðru ári
með lið Ólafsfirðinga og heimildir DV herma
að Páll hafi gert munnlegt samkomulag við
Keflvíkinga um að taka við liðinu af Kjart-
ani Mássyni sem hljóp í skarðið eftir að
Gunnari Oddssyni og Sigurði Björgvinssyni
var sagt upp.
Fjörugt fram undan
Það má reikna með að fjörugt verði á þjálf-
aramarkaðnum í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu þegar keppnistímabilinu lýkur í
þessum mánuði.
Nær öruggt má að telja að Bjarni Jóhanns-
son hættir með lið ÍBV en þriggja
ára samningur hans við Eyja-
menn rennur út i lok tímabils-
ins. Eftir því sem DV kemst næst
er Ólafur Þórðarson, þjálfari
Fylkis, einn þeirra þjálfara sem
Eyjamenn hafa í sigtinu.
Logi ekki áfram?
Logi Ólafsson verður að öllum
líkindum ekki áfram með Skaga-
menn en hann hefur stýrt liði ÍA
undanfarin tvö keppnistímabil.
Ólafur Þórðarson hefur verið
nefndur til sögunnar sem eftir-
maður Loga en einnig hefur nafn Sigurðar
Jónssonar landsliðsmanns verið nefnt.
Páll Guðlaugsson
næsti þjálfari Kefl-
víkinga.
Framarar eru sömuleiðsis að
íhuga þjálfaraskipti fyrir næstu leik-
tíð. Ásgeir Elíasson mun sennilega
láta af störfum. Bjarni Jóhannsson
hefur verið nefndur sem líklegur eft-
irmaður Ásgeirs Elíassonar og
einnig hefur Guðmundur Torfason,
fyrrum þjálfari Grindvíkinga, verið
orðaður við Safamýrarliðið.
Ingi Björn Albertsson var ráðinn
hjá Val út leiktíðina en hann tók við
Hlíðarendaliðinu eftir að Kristni
Björnssyni var vikið frá störfum.
Ekki er víst hvort Ingi verður endur-
ráðinn en ekki þykir ólíklegt að Arn-
ór Guðjohnsen verði kallaður til starfans.
Leiftursmenn verða þjálfaralausir í lok
leiktíðar þar sem Páll Guðlaugsson fer til
Keflvíkinga. Lúkas Kostic, Sigurður Grétars-
son og Milan Stefán Jankovic halda sínum
störfum að öllu óbreyttu áfram hjá Víkingi,
Breiðabliki og Grindavík og sömuleiðis Atli
Eðvaldsson hjá KR en sá síðastnefndi hefur
þó verið orðaður við landsliðsþjálfarastöð-
una fari svo að Guðjón Þórðarson hverfi á
önnur mið.
Framhaldið ræður miklu
Mikið taugastríð er fram undan í knatt-
spyrnunni á næstu dögum. Mörg lið eru í
fallhættu og því kannski erfitt um vik að
ráða nýja þjálfara fyrr en niðurstaða er kom-
in í hvaða lið falla úr deildinni.
-GH