Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
Viðskipti
Þetta helst:
hlutabréf 189,4 m.kr.
... Viðskipti á VÞÍ 803 m.kr. ... Mest með húsbréf, 353 m.kr. ... Viðskipti með
... Mest með bréf Marels, 36,7 m.kr. ... Mest hækkuðu bréf Tæknivals, 14%. .
Skýrr hf. hækkaði 6,8% ... Mesta lækkun var SH, 5,3% ...
íslenskir Qárfestar í samstarf við Norsk Hydro:
Undirbúningsfélag um
byggingu álvers
Eignarhaldsfélagið Alþýðubank-
inn, Fjárfestingarbanki atvinnulífs-
ins, íslandsbanki, Landsbanki íslands
og Þróunarfélag íslands hafa ákveðið
að ganga tii samstarfs við Norsk
Hydro um þróun og undirbúning
byggingar álvers við Reyðarfjörð. Á
undanfómum mánuðum hafa fulltrú-
ar þessara fyrirtækja unnið að frum-
greiningu verkefnisins og sýna niður-
stöður þessarar greiningar að vænta
má góðrar arðsemi af fjárfestingunni
miðað við þær forsendur sem nú
liggja fyrir.
Því munu fyrirtækin fimrn stofna á
næstunni sameiginlegt undirbúnings-
félag sem mun eiga helmingshlut í fé-
lagi um byggingu álversins á móti
Norsk Hydro á undirbúningstiman-
Fjölmargir vilja álver á Reyðarfirði.
um. Félagið Þriðjungur hlutafé
mun á næstu
8-10 mánuð- Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi ál-
um vmna að versins verði með 120.000 tonna fram-
undirbúningi leiðslugetu á ári og áætlaður heOdar-
að byggingu kostnaður fyrsta áfanga er um 30 milij-
og rekstri ál- arðar króna. Gera má ráð fyrir að
versins en a.m.k. þriðjungur þess verði fjánnagn-
stefnt er að aður með hlutafé en meginþorri fjár-
því að endan- mögnunar verði í formi verkefnisfjár-
leg ákvörðun mögnunarláns.
um hvort farið Það er markmið íslensku félaganna,
verði út í sem að undirbúningnum standa, að
byggingu þess bjóða langtíma fagfjárfestum þátttöku í
liggi fyrir verkefninu þegar undirbúningi er lok-
síðla næsta ið, verði niðurstaðan sú að byggja ál-
vor eða verið, og verður þeim kynntur fram-
snemma sum- gangur verkefnisins á næstu mánuð-
ars. um. -bmg
Methagnaður
hjá Kögun hf.
Velta Kögunar fyrstu 9 mánuði
yfirstandandi fjárhagsárs var 342,8
milijónir króna og hagnaður fyrir
skatta nam kr. 80,6 milljónum. Arð-
semi eigin fjár er því 33%. Þetta er
besta aíkoma félagsins frá upphafl
en árangurinn má einkum rekja til
þriggja þátta. í fyrsta lagi er gengið
frá sölu á GSSG-flugstjómarherm-
inum. í öðru lagi hafa ný verkefni
á sviði hugbúnaðargerðar gengið
vel og skilað góöri framlegð og í
þriðja lagi hefur rekstur dótturfyr-
irtækis Kögunar hf„ Navision
Software ehf. á íslandi, gengið vel á
árinu. Þetta kom fram á Viðskipta-
vefnum á VísLis. -bmg
Miklar skipulags-
breytingar hjá SH
Frostfiskur flytur
Frostfiskur ehf. er sérhæft fyrir-
tæki i útflutningi á ferskum fiski og
rekur fiskvinnslu í Reykjavík. Gert er
ráð fyrir að félagið selji vinnsluhúsið
og flytji alla starfsemi sína til Þorláks-
hafnar. Vinnslustöðin gerist hluthafi
í Frostfiski og eignast 40% hlut ef
samkomulagið hlýtur samþykki fé-
lagssfjóma.
Skipamiðlunin
Bátar & Kvóti
Sími: 568 3330
hUp://vvmv.vortcx.is/~skip/
í sumar hefur áfram verið unnið
að endurskipulagningu starfsemi
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
hf. í kjölfar breytinga sem kynntar
voru í apríl. Meginbreytingar á
rekstrarfyrirkomulagi fólust í
ákvörðunum sem teknar voru í apríl
þar sem kveðið er á um að falla megi
frá þeirri afurðasöluskyldu sem ríkti
milli SH og íslenskra framleiðenda. í
stað þess að SH-framleiðendum beri
að afhenda og SH að selja allar tii-
greindar afurðir viðkomandi er tekið
upp nýtt fyrirkomulag. Kveður það á
um frjálsa samninga milli framleið-
enda annars vegar og erlendra mark-
aðsfyrirtækja SH hins vegar. Þá var
á sama tíma breytt því fyrirkomulagi
er ríkti um skipan stjóma dótturfyr-
irtækjanna. Þær voru minnkaðar,
oftast í þriggja manna stjórnir sem í
sitja framkvæmdastjóri viðkomandi
félags, fjármálastjóri SH hf. og for-
stjóri sem formaður. í framhaldi af
breyttu hlutverki SH á íslandi var
hafist handa um skipulagsbreytingar
hjá félaginu.
19 manns sagt upp
Snemma varð ljóst að fækka þyrfti
starfsfólki og var 19 manns sagt upp
störfum fyrr í sumar. Skrifstofuhald
á Akureyri var lagt af og hæð i aðal-
stöðvunum að Aðalstræti 6 seld.
Vinnan í sumar fól svo í sér endur-
skoðun á stefnu félagsins þar sem
markaðsstefna var skilgreind og
áherslur lagðar. Þar var
m.a. lögö áhersla á að
styrkja félagið enn frekar
á núverandi mörkuðum
með áherslum á sókn inn á
veitingaþjónustu með eig-
in vörumerki ásamt því að
félagið nýtti þau tækifæri í
smásölunni þar sem það
gæti skapað sér sérstöðu.
Félagið ynni dýpra á
mörkuðunum þar sem
unnt væri að ná ásættan-
legum virðisauka.
Gunnar Svav-
arsson forstjóri.
Tvískipt starfsemi SH
Starfsemi SH hf. á íslandi verður
framvegis í tveimur félögum: Annars
vegar í SH hf„ eignarhaldsfélagi, þar
sem starfa munu um 4 starfsmenn,
og hins vegar í félagi sem gengið hef-
ur undir vinnuheitinu SH þjónusta
ehf. Hjá því félagi verður framleið-
endum og dótturfélögum þjónað með
rekstri 5 þjónustudeilda: söludeild
umbúða, sjófrystideild, gæðadeild
landvinnslu, flutninga- og skjalagerð-
arþjónustu og aðfangaþjónustu dótt-
urfélaga. Reiknað er með að starfs-
menn þess fyrirtækis verði 35-40 á
næsta ári. Heildarstarfsmannafjöldi
verður því rúmlega 40 manns en til
samanburðar var hann 90 á
síðasta ári.
Aukin arðsemi
Framtíðarmarkmið sam-
stæðunnar er að ná 15% arð-
semi eigin fiár. Tekið skal
fram að hér er um markmið að
ræða sem vonast er til að náist
á nokkmm árum. Til að örva
og skerpa sýn stjómenda félag-
anna á hagnaðarmarkmið er
stefnt að því að taka upp
launaaukakerfi sem tekur mið af arð-
semi viðkomandi félags. Félagið mun
draga sig út úr sölu á ferskum fiski
og hætta rekstri dótturfélags í Belgíu
sem helgaði sig slíkri starfsemi.
Verður starfsmönnum boðið að taka
við rekstrinum. Þá hefur SH hf.
einnig hug á að draga sig út úr
rekstri Sæmarks ehf. sem séð hefur
um innkaup af framleiðendum sem
ekki voru samningsbundnir SH og
mun vinna að því máli í samvinnu
við starfsmenn.
-bmg
Pappírsverksmiðja í athugun
I haust er ætlunin að leggja í
umtalsverðar rannsóknir til þess
að komast til botns í þvi hvort
hagkvæmt er að reisa pappírs-
verksmiðju hér á landi. Að sögn
Páls Guðjónssonar, framkvæmda-
stjóra Aflvaka hf„ ætti að liggja
fyrir að lokinni þessari lotu hvort
hægt verður að reisa pappírsverk-
smiðju á íslandi. Þetta kom fram
á Viðskiptavefnum á Vísi.is.
Búnaðarbankinn kaupir í ÚA
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í
gær voru lögð fram tilboð frá þrem-
ur aðilum í samtals átta liðum í
hlutabréf Akur-
eyrarbæjar i Út-
gerðarfélagi Ak-
ureyringa hf.
Bæjarráð sam-
þykkti að taka
tilboði frá Bún-
aðarbanka ís-
lands hf. í öll
hlutabréfin,
samtals að nafnverði 183,6 milljón-
ir. Tilboðsfiárhæð bankans í bréfin
er 1,25 miiljarðar eða á genginu 6,8.
Samþykkt bæjarráðs verður tekin
fyrir til afgreiðslu á fundi bæjar-
stjómar Akureyrar þriðjudaginn 7.
september n.k.
Vinnslustöðin selur togbát
og kvóta
Vinnslustöðin hf. í Vestmanna-
eyjum hefúr selt Frostfiski ehf. í
Reykjavik togbátinn Danska Pétur
ásamt 500 þorskígildistonnum og
frystihús félagsins í Þorlákshöfn
með tilheyrandi vélum og tækjum.
Frá þessu var gengið í gær með
fyrirvara um samþykki stjóma fé-
laganna.
Mikið tap hjá Kók
Kóka kóla fyrirtækið í Bret-
landi tapaði 26 milljónum dollara
fyrstu sex mánuði ársins, saman-
borið við 2,5 milljóna dollara tap í
fyrra. Ástæðan er ekki bara eitr-
imin í kóki i Belgíu heldur er talið
að Kosovo-stríðið og slæmt efna-
hagsástand í Rússlandi spili þarna
inn í. Fyrirtækið gerir ráð fyrir
áframhaldandi erfiðleikum til
skamms tima.
Evrópsk skuldabréf lækka
Evrópsk skuldabréf héldu
áfrarn að lækka i gær og i fyrra-
dag en áhyggjur af því að efha-
hagsbatinn komi fram í verðbólgu
hafa leitt til hækkunar ávöxtunar-
kröfunnar. Morgunfréttir F&M
greindu frá. Við þetta bætist að
mikið magn skuldabréfaútboða
hefst með haustinu, bæði ’frá ríki
og stórfyrirtækjum. Helsta viðmið
skuldabréfamarkaðarins em þýsk
10 ára ríkisskuldabréf en ávöxtun-
arkrafa þeirra hækkaði um 3
punkta. -bmg
'II ÚRVALS NOTAÐIR BÍLAR FYRIR ALLA
Opið virka daga kl. 8 - 18 laugardaga kl. 13 - 17
Nissan Sunny St 1.6 4X4 4/91 Fiat Marea Weekend 8/97
Ek. 126.þús. 5d. 5g. Ek.34.þús. 5d. 5g. ABS,
Rafm.rúður, fjarst.samlæs. 2 loftpúðar, rafm.rúður o.fl.
Verð kr. 540.000 Verð kr.1.250.000
ístraktor
Toyota Carina E 2.0 10/95
Ek. 81 .þús. 4d. sjsk.
Álfelgur, spoiler, rafm.rúður
Verðkr. 1.090.000
Opel Astra St. 1.6GL 5/97
Ek.44. þús. 5d. 5g.
Dráttarbeisli.
Verðkr. 1.020.000
Renault Clio 1.4 S 5/95 Fiat Bravo Abarth 3/98
Ek.42.þús. 3d. 5g. Sportstólar Ek.32.þús.. 5g. ABS, geislasp,
Rafm.rúður, álfelgur, vökvastýri samlæs, loftpúðar, 17”álfelgur
Verð kr. 750.000 Verð kr. 1.490.000
Smiðsbúð 2 • Garðabæ • Sími 5 400 800