Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 Viðskipti Þetta helst: hlutabréf 189,4 m.kr. ... Viðskipti á VÞÍ 803 m.kr. ... Mest með húsbréf, 353 m.kr. ... Viðskipti með ... Mest með bréf Marels, 36,7 m.kr. ... Mest hækkuðu bréf Tæknivals, 14%. . Skýrr hf. hækkaði 6,8% ... Mesta lækkun var SH, 5,3% ... íslenskir Qárfestar í samstarf við Norsk Hydro: Undirbúningsfélag um byggingu álvers Eignarhaldsfélagið Alþýðubank- inn, Fjárfestingarbanki atvinnulífs- ins, íslandsbanki, Landsbanki íslands og Þróunarfélag íslands hafa ákveðið að ganga tii samstarfs við Norsk Hydro um þróun og undirbúning byggingar álvers við Reyðarfjörð. Á undanfómum mánuðum hafa fulltrú- ar þessara fyrirtækja unnið að frum- greiningu verkefnisins og sýna niður- stöður þessarar greiningar að vænta má góðrar arðsemi af fjárfestingunni miðað við þær forsendur sem nú liggja fyrir. Því munu fyrirtækin fimrn stofna á næstunni sameiginlegt undirbúnings- félag sem mun eiga helmingshlut í fé- lagi um byggingu álversins á móti Norsk Hydro á undirbúningstiman- Fjölmargir vilja álver á Reyðarfirði. um. Félagið Þriðjungur hlutafé mun á næstu 8-10 mánuð- Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi ál- um vmna að versins verði með 120.000 tonna fram- undirbúningi leiðslugetu á ári og áætlaður heOdar- að byggingu kostnaður fyrsta áfanga er um 30 milij- og rekstri ál- arðar króna. Gera má ráð fyrir að versins en a.m.k. þriðjungur þess verði fjánnagn- stefnt er að aður með hlutafé en meginþorri fjár- því að endan- mögnunar verði í formi verkefnisfjár- leg ákvörðun mögnunarláns. um hvort farið Það er markmið íslensku félaganna, verði út í sem að undirbúningnum standa, að byggingu þess bjóða langtíma fagfjárfestum þátttöku í liggi fyrir verkefninu þegar undirbúningi er lok- síðla næsta ið, verði niðurstaðan sú að byggja ál- vor eða verið, og verður þeim kynntur fram- snemma sum- gangur verkefnisins á næstu mánuð- ars. um. -bmg Methagnaður hjá Kögun hf. Velta Kögunar fyrstu 9 mánuði yfirstandandi fjárhagsárs var 342,8 milijónir króna og hagnaður fyrir skatta nam kr. 80,6 milljónum. Arð- semi eigin fjár er því 33%. Þetta er besta aíkoma félagsins frá upphafl en árangurinn má einkum rekja til þriggja þátta. í fyrsta lagi er gengið frá sölu á GSSG-flugstjómarherm- inum. í öðru lagi hafa ný verkefni á sviði hugbúnaðargerðar gengið vel og skilað góöri framlegð og í þriðja lagi hefur rekstur dótturfyr- irtækis Kögunar hf„ Navision Software ehf. á íslandi, gengið vel á árinu. Þetta kom fram á Viðskipta- vefnum á VísLis. -bmg Miklar skipulags- breytingar hjá SH Frostfiskur flytur Frostfiskur ehf. er sérhæft fyrir- tæki i útflutningi á ferskum fiski og rekur fiskvinnslu í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að félagið selji vinnsluhúsið og flytji alla starfsemi sína til Þorláks- hafnar. Vinnslustöðin gerist hluthafi í Frostfiski og eignast 40% hlut ef samkomulagið hlýtur samþykki fé- lagssfjóma. Skipamiðlunin Bátar & Kvóti Sími: 568 3330 hUp://vvmv.vortcx.is/~skip/ í sumar hefur áfram verið unnið að endurskipulagningu starfsemi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf. í kjölfar breytinga sem kynntar voru í apríl. Meginbreytingar á rekstrarfyrirkomulagi fólust í ákvörðunum sem teknar voru í apríl þar sem kveðið er á um að falla megi frá þeirri afurðasöluskyldu sem ríkti milli SH og íslenskra framleiðenda. í stað þess að SH-framleiðendum beri að afhenda og SH að selja allar tii- greindar afurðir viðkomandi er tekið upp nýtt fyrirkomulag. Kveður það á um frjálsa samninga milli framleið- enda annars vegar og erlendra mark- aðsfyrirtækja SH hins vegar. Þá var á sama tíma breytt því fyrirkomulagi er ríkti um skipan stjóma dótturfyr- irtækjanna. Þær voru minnkaðar, oftast í þriggja manna stjórnir sem í sitja framkvæmdastjóri viðkomandi félags, fjármálastjóri SH hf. og for- stjóri sem formaður. í framhaldi af breyttu hlutverki SH á íslandi var hafist handa um skipulagsbreytingar hjá félaginu. 19 manns sagt upp Snemma varð ljóst að fækka þyrfti starfsfólki og var 19 manns sagt upp störfum fyrr í sumar. Skrifstofuhald á Akureyri var lagt af og hæð i aðal- stöðvunum að Aðalstræti 6 seld. Vinnan í sumar fól svo í sér endur- skoðun á stefnu félagsins þar sem markaðsstefna var skilgreind og áherslur lagðar. Þar var m.a. lögö áhersla á að styrkja félagið enn frekar á núverandi mörkuðum með áherslum á sókn inn á veitingaþjónustu með eig- in vörumerki ásamt því að félagið nýtti þau tækifæri í smásölunni þar sem það gæti skapað sér sérstöðu. Félagið ynni dýpra á mörkuðunum þar sem unnt væri að ná ásættan- legum virðisauka. Gunnar Svav- arsson forstjóri. Tvískipt starfsemi SH Starfsemi SH hf. á íslandi verður framvegis í tveimur félögum: Annars vegar í SH hf„ eignarhaldsfélagi, þar sem starfa munu um 4 starfsmenn, og hins vegar í félagi sem gengið hef- ur undir vinnuheitinu SH þjónusta ehf. Hjá því félagi verður framleið- endum og dótturfélögum þjónað með rekstri 5 þjónustudeilda: söludeild umbúða, sjófrystideild, gæðadeild landvinnslu, flutninga- og skjalagerð- arþjónustu og aðfangaþjónustu dótt- urfélaga. Reiknað er með að starfs- menn þess fyrirtækis verði 35-40 á næsta ári. Heildarstarfsmannafjöldi verður því rúmlega 40 manns en til samanburðar var hann 90 á síðasta ári. Aukin arðsemi Framtíðarmarkmið sam- stæðunnar er að ná 15% arð- semi eigin fiár. Tekið skal fram að hér er um markmið að ræða sem vonast er til að náist á nokkmm árum. Til að örva og skerpa sýn stjómenda félag- anna á hagnaðarmarkmið er stefnt að því að taka upp launaaukakerfi sem tekur mið af arð- semi viðkomandi félags. Félagið mun draga sig út úr sölu á ferskum fiski og hætta rekstri dótturfélags í Belgíu sem helgaði sig slíkri starfsemi. Verður starfsmönnum boðið að taka við rekstrinum. Þá hefur SH hf. einnig hug á að draga sig út úr rekstri Sæmarks ehf. sem séð hefur um innkaup af framleiðendum sem ekki voru samningsbundnir SH og mun vinna að því máli í samvinnu við starfsmenn. -bmg Pappírsverksmiðja í athugun I haust er ætlunin að leggja í umtalsverðar rannsóknir til þess að komast til botns í þvi hvort hagkvæmt er að reisa pappírs- verksmiðju hér á landi. Að sögn Páls Guðjónssonar, framkvæmda- stjóra Aflvaka hf„ ætti að liggja fyrir að lokinni þessari lotu hvort hægt verður að reisa pappírsverk- smiðju á íslandi. Þetta kom fram á Viðskiptavefnum á Vísi.is. Búnaðarbankinn kaupir í ÚA Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær voru lögð fram tilboð frá þrem- ur aðilum í samtals átta liðum í hlutabréf Akur- eyrarbæjar i Út- gerðarfélagi Ak- ureyringa hf. Bæjarráð sam- þykkti að taka tilboði frá Bún- aðarbanka ís- lands hf. í öll hlutabréfin, samtals að nafnverði 183,6 milljón- ir. Tilboðsfiárhæð bankans í bréfin er 1,25 miiljarðar eða á genginu 6,8. Samþykkt bæjarráðs verður tekin fyrir til afgreiðslu á fundi bæjar- stjómar Akureyrar þriðjudaginn 7. september n.k. Vinnslustöðin selur togbát og kvóta Vinnslustöðin hf. í Vestmanna- eyjum hefúr selt Frostfiski ehf. í Reykjavik togbátinn Danska Pétur ásamt 500 þorskígildistonnum og frystihús félagsins í Þorlákshöfn með tilheyrandi vélum og tækjum. Frá þessu var gengið í gær með fyrirvara um samþykki stjóma fé- laganna. Mikið tap hjá Kók Kóka kóla fyrirtækið í Bret- landi tapaði 26 milljónum dollara fyrstu sex mánuði ársins, saman- borið við 2,5 milljóna dollara tap í fyrra. Ástæðan er ekki bara eitr- imin í kóki i Belgíu heldur er talið að Kosovo-stríðið og slæmt efna- hagsástand í Rússlandi spili þarna inn í. Fyrirtækið gerir ráð fyrir áframhaldandi erfiðleikum til skamms tima. Evrópsk skuldabréf lækka Evrópsk skuldabréf héldu áfrarn að lækka i gær og i fyrra- dag en áhyggjur af því að efha- hagsbatinn komi fram í verðbólgu hafa leitt til hækkunar ávöxtunar- kröfunnar. Morgunfréttir F&M greindu frá. Við þetta bætist að mikið magn skuldabréfaútboða hefst með haustinu, bæði ’frá ríki og stórfyrirtækjum. Helsta viðmið skuldabréfamarkaðarins em þýsk 10 ára ríkisskuldabréf en ávöxtun- arkrafa þeirra hækkaði um 3 punkta. -bmg 'II ÚRVALS NOTAÐIR BÍLAR FYRIR ALLA Opið virka daga kl. 8 - 18 laugardaga kl. 13 - 17 Nissan Sunny St 1.6 4X4 4/91 Fiat Marea Weekend 8/97 Ek. 126.þús. 5d. 5g. Ek.34.þús. 5d. 5g. ABS, Rafm.rúður, fjarst.samlæs. 2 loftpúðar, rafm.rúður o.fl. Verð kr. 540.000 Verð kr.1.250.000 ístraktor Toyota Carina E 2.0 10/95 Ek. 81 .þús. 4d. sjsk. Álfelgur, spoiler, rafm.rúður Verðkr. 1.090.000 Opel Astra St. 1.6GL 5/97 Ek.44. þús. 5d. 5g. Dráttarbeisli. Verðkr. 1.020.000 Renault Clio 1.4 S 5/95 Fiat Bravo Abarth 3/98 Ek.42.þús. 3d. 5g. Sportstólar Ek.32.þús.. 5g. ABS, geislasp, Rafm.rúður, álfelgur, vökvastýri samlæs, loftpúðar, 17”álfelgur Verð kr. 750.000 Verð kr. 1.490.000 Smiðsbúð 2 • Garðabæ • Sími 5 400 800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.