Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Side 7
FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999 7 Fréttir Undirskriftir fyrir Vatna- heiðarveg íbúar í Stykkishólmi og í Ólafs- vík hafa tekið höndum saman um að þrýsta á skipulagsstjóra ríkisins að leggast ekki gegn lagningu fyrir- hugðaðs vegar yfir Vatnaheiði. í dag klukkan tvö munu skipulags- stjóra verða afhentar undirskriftir 960 atkvæðabærra manna úr byggð- arlögunum með þessu erindi. Eins og fram kom í DV á mið- vikudag er vegurinn um Vatna- heiði talinn bæði greiðfærari, ör- uggari og varanlegri en nýr vegur á núverandi vegarstæði um Kerling- arskarð sem fyrrnefnda veginum er ætlað að leysa af hólmi. Náttúr- verndarsjónarmið mæla hins vegar gegn veginum yfir Vatnaheiði, m.a. vegna þess að hann muni spilla hinni ósnortnu ásýnd landsins á þessum slóðum. -GAR Fær byggða- kvóta en gef- ur 300 tonn Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, sem fær 43 tonn af 113 tonna byggðakvóta Búðahrepps, sam- kvæmt tiilögum sveitarstjórnarinn- ar, flutti I júlí 300 þorskígiidistonn af togara sínum, Ljósafelli, til Hof- fellsins sem er í eigu Loðnuvinnsl- unnar hf. Loðnuvinnslan, sem sið- an mun ætla að skipta þeim kvóta út fyrir síldarkvóta, hefur skuld- bundið sig til að landa þeim afla til vinnslu hjá kaupfélaginu en greiðir ekki fyrir aflaheimildirnar að öðru leyti. Kaupfélagið á 42% í Loðnuvinnsl- unni hf. en fjölmargir minni aðilar, einstaklingar og fyrirtæki, eiga af- ganginn. Gísli Jónatansson kaupfé- lagsstjóri segir þessa ráðstöfun hafa verið gerða til að treysta atvinnuá- standið í byggðarlaginu. -GAR Horft um öxl og fram á veg Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti íslands, verður heiðurs- fyrirlesari á Norrænum byggingar- dögum sem verða í Reykjavík 5.-8. september. Fyrirlestur Vigdísar ber heitið „Skyggnst inn í næstu öld“. Meðal annarra fyrirlesara eru Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, og Jón Sigurðsson, bankastjóri Norræna fjárfestingar- bankans. Verður gefin yfirsýn yfir liðna öld og skyggnst inn í þá næstu. -GAR Haraldur Briem sóttvarnalæknir um campylobacter: Hundrað greindir - þúsund sýktir - kostar þjóðfélagiö 300 milljónir á ársgrundvelli Haraldur Briem læknir. „Almennt er talið að einn af hverjum tíu sem sýkist leiti læknis. Ef greinast hundrað manns i júlí, eins og gerðist hjá okkur, og rúmlega það, þá myndum við telja að það þýddi að um eitt þúsund manns hefðu sýkst,“ sagði Haraldur Briem sóttvamalæknir við DV. Hann sagði, að samkvæmt útreikn- ingum Hollustu- verndar ríkisins og sínum eigin, mætti gera ráð fyrir að sýkingar af völd- um campylobacter kostaði þjóðfé- lagið um 300 milljónir króna á árs- grundvelli. Eins og blaðið greindi frá í gær varð gríðarleg fjölgun í campylobactersýkingum í júlí sl. Þá greindust 110 manns á sýkladeild Landspítalaans, samkvæmt nýjustu upplýsingum. Árið 1999 verður metár í sýkingum af þessu tagi, eins og sjá má á meðfylgjandi súluriti. Að sögn Haralds hafa greinst 65 já- kvæð sýni í nýliðnum ágústmánuði. Sú tala á trúlega eftir að hækka eitt- hvað þar sem sýni eru enn í rækt- un. Þó er vonast til að um umtals- verða fækkun sýkinga sé að ræða frá því sem mældist í júlí. Rannsóknarhópur á vegum land- læknisembættisins, Hollustuvernd- ar ríkisins og embættis yfirdýra- læknir vinnur nú að rannsóknum á campylobactersýkingum. Er að vænta fyrstu niðurstaða frá honum í næstu viku. „Við vitum það mikið nú að við getum sagt, að kjúklingar eru að miklu leyti valdir að því smiti sem er í samfélaginu. Við útilokum þó ekki annað kjöt. Ráðið við þessu er að gegnumelda matinn og gæta hreinlætis í eldhúsi, þannig að ekki sé um krossmengun að ræða. Sýkill- inn getur borist með blóðvökva úr kjúklingi yfir í salat, sósur og öll önnur matvæli. En smit frá einum manni til annars er tiltölulega fá- títt,“ sagði Haraldur. Hann sagði, að sýkingum af völd- um campylobacter hefði fjölgað sýnu mest hér borið saman við hinar Norð- urlandaþjóðimar. í ár mætti gera ráð fyrir að íslendingar væru efstir með 160 sýkingar á hverja 100.000 íbúa. Mætti gera ráð fyrir að það væru hlutfallslega um tvöfalt flehi sýking- ar heldur en í Dan- mörku og Svíþjóð. Að sögn Atla Árna- sonar, yfirlæknis heilsugæslunnar í Graf- arvogi, lýsir campylobactersýking sér með kviðverkjum, niðurgangi, jafnvel uppköstum og oft hita. Sjúkdómnum fylgir mikill slappleiki og úthaldsleysi. Fólk er oft lengi að jafna sig eftir veikindin. Svo sé til í dæminu að sýktir fmni lítillega fyrh einkennum og batni fljótt, eða verði hreinlega ekki varir við neitt. Það detti engun í hug að athuga hvort einkennalaus einstak- lingur sé sýktur eða ekki. Fólk hafi mismunandi varnir og veikindin séu því breytileg. -JSS Campylobacter-sýkingar - fjöldi tilfella eftir árum sóttvarna- 300 250 200 150 ÍOO 50 <o O^ $ m mw~ 00 ,* " ,p, •" I •^** 1'■ ‘ 1 90 '91 ‘92 ‘93 ‘94 ‘95 ‘96 ‘97 ‘98 ‘99 Ár Exa Ögmundur Einarsson, t.v., framkvæmdastjóri Sorpu, færði í gær Þjónustusetrinu, sem sex líknarfélög starfrækja sameiginlega að Tryggvagötu, 600 þúsund króna styrk frá Góða hirðinum en það er nafn nytjamarkaðar Sorpu og líknarfélaga. Jón Guðnason, forstöðumaður Þjónustusetursins, veitti styrknum viðtöku. Góð/r stad/r til að fylgjast með Rallinu - áhorfendaleidir Föstudagur Ökuleið 14: Lyngdalsheiði fyrsti bíll kl: 18:11. Leiðin lokar kl 17:30 Ökuleið 15: Geitháls fyrsti bíll 19:35. Leiðin lokar ki. 18:30 Viðgerðarhlé á Esso stöðinni Geirsgötu kl 20:00 - 21:30. Upplagt tækifæri til þess að koma og líta á ökutækin. Nánari upplýsingar um RallyReykjavík er að finna á www.visir.is/motorsport. Þar sjást leiðirnar, listi yfir keppendur og staðan hverju sinni auk þess rallinu er lýst beint á netinu. Komdu og fylgstu með! Laugardagur Ökuleið 16: Tröllháls /Uxahryggin fyrsti bíll kl. 7:53. Leiðin lokar: 7:00 Ökuleið 18: Tröllháls fyrsti bíll kl. 10:21. Leiðin lokar kl. 9:45 Ökuleið 19: Kleifarvatn fyrsti bíll kl. 11:59. Leiðin lokar kl. 11:30 Ökuleið 21: Ísólfsskáli/Djúpavatn fyrsti bíil kl 12:58 Leiðin lokar kl. 12:15 www.esso.iswww.benni.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.