Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Síða 7
FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
7
Fréttir
Undirskriftir
fyrir Vatna-
heiðarveg
íbúar í Stykkishólmi og í Ólafs-
vík hafa tekið höndum saman um
að þrýsta á skipulagsstjóra ríkisins
að leggast ekki gegn lagningu fyrir-
hugðaðs vegar yfir Vatnaheiði. í
dag klukkan tvö munu skipulags-
stjóra verða afhentar undirskriftir
960 atkvæðabærra manna úr byggð-
arlögunum með þessu erindi.
Eins og fram kom í DV á mið-
vikudag er vegurinn um Vatna-
heiði talinn bæði greiðfærari, ör-
uggari og varanlegri en nýr vegur á
núverandi vegarstæði um Kerling-
arskarð sem fyrrnefnda veginum er
ætlað að leysa af hólmi. Náttúr-
verndarsjónarmið mæla hins vegar
gegn veginum yfir Vatnaheiði, m.a.
vegna þess að hann muni spilla
hinni ósnortnu ásýnd landsins á
þessum slóðum. -GAR
Fær byggða-
kvóta en gef-
ur 300 tonn
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga,
sem fær 43 tonn af 113 tonna
byggðakvóta Búðahrepps, sam-
kvæmt tiilögum sveitarstjórnarinn-
ar, flutti I júlí 300 þorskígiidistonn
af togara sínum, Ljósafelli, til Hof-
fellsins sem er í eigu Loðnuvinnsl-
unnar hf. Loðnuvinnslan, sem sið-
an mun ætla að skipta þeim kvóta
út fyrir síldarkvóta, hefur skuld-
bundið sig til að landa þeim afla til
vinnslu hjá kaupfélaginu en greiðir
ekki fyrir aflaheimildirnar að öðru
leyti.
Kaupfélagið á 42% í Loðnuvinnsl-
unni hf. en fjölmargir minni aðilar,
einstaklingar og fyrirtæki, eiga af-
ganginn. Gísli Jónatansson kaupfé-
lagsstjóri segir þessa ráðstöfun hafa
verið gerða til að treysta atvinnuá-
standið í byggðarlaginu. -GAR
Horft um
öxl og fram
á veg
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti íslands, verður heiðurs-
fyrirlesari á Norrænum byggingar-
dögum sem verða í Reykjavík 5.-8.
september. Fyrirlestur Vigdísar ber
heitið „Skyggnst inn í næstu öld“.
Meðal annarra fyrirlesara eru Kári
Stefánsson, forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar, og Jón Sigurðsson,
bankastjóri Norræna fjárfestingar-
bankans. Verður gefin yfirsýn yfir
liðna öld og skyggnst inn í þá
næstu. -GAR
Haraldur Briem sóttvarnalæknir um campylobacter:
Hundrað greindir
- þúsund sýktir
- kostar þjóðfélagiö 300 milljónir á ársgrundvelli
Haraldur Briem
læknir.
„Almennt er talið
að einn af hverjum
tíu sem sýkist leiti
læknis. Ef greinast
hundrað manns i júlí,
eins og gerðist hjá
okkur, og rúmlega
það, þá myndum við
telja að það þýddi að
um eitt þúsund
manns hefðu sýkst,“
sagði Haraldur Briem
sóttvamalæknir við
DV. Hann sagði, að
samkvæmt útreikn-
ingum Hollustu-
verndar ríkisins og
sínum eigin, mætti
gera ráð fyrir að sýkingar af völd-
um campylobacter kostaði þjóðfé-
lagið um 300 milljónir króna á árs-
grundvelli.
Eins og blaðið greindi frá í gær
varð gríðarleg fjölgun í
campylobactersýkingum í júlí sl. Þá
greindust 110 manns á sýkladeild
Landspítalaans, samkvæmt nýjustu
upplýsingum. Árið 1999 verður
metár í sýkingum af þessu tagi, eins
og sjá má á meðfylgjandi súluriti.
Að sögn Haralds hafa greinst 65 já-
kvæð sýni í nýliðnum ágústmánuði.
Sú tala á trúlega eftir að hækka eitt-
hvað þar sem sýni eru enn í rækt-
un. Þó er vonast til að um umtals-
verða fækkun sýkinga sé að ræða
frá því sem mældist í júlí.
Rannsóknarhópur á vegum land-
læknisembættisins, Hollustuvernd-
ar ríkisins og embættis yfirdýra-
læknir vinnur nú að rannsóknum á
campylobactersýkingum. Er að
vænta fyrstu niðurstaða frá honum
í næstu viku.
„Við vitum það mikið nú að við
getum sagt, að kjúklingar eru að
miklu leyti valdir að því smiti sem
er í samfélaginu. Við útilokum þó
ekki annað kjöt. Ráðið við þessu er
að gegnumelda matinn og gæta
hreinlætis í eldhúsi, þannig að ekki
sé um krossmengun að ræða. Sýkill-
inn getur borist með blóðvökva úr
kjúklingi yfir í salat, sósur og öll
önnur matvæli. En smit frá einum
manni til annars er tiltölulega fá-
títt,“ sagði Haraldur.
Hann sagði, að sýkingum af völd-
um campylobacter hefði fjölgað
sýnu mest hér borið
saman við hinar Norð-
urlandaþjóðimar. í ár
mætti gera ráð fyrir að
íslendingar væru efstir
með 160 sýkingar á
hverja 100.000 íbúa.
Mætti gera ráð fyrir að
það væru hlutfallslega
um tvöfalt flehi sýking-
ar heldur en í Dan-
mörku og Svíþjóð.
Að sögn Atla Árna-
sonar, yfirlæknis
heilsugæslunnar í Graf-
arvogi, lýsir
campylobactersýking
sér með kviðverkjum,
niðurgangi, jafnvel uppköstum og
oft hita. Sjúkdómnum fylgir mikill
slappleiki og úthaldsleysi. Fólk er
oft lengi að jafna sig eftir veikindin.
Svo sé til í dæminu að sýktir fmni
lítillega fyrh einkennum og batni
fljótt, eða verði hreinlega ekki varir
við neitt. Það detti engun í hug að
athuga hvort einkennalaus einstak-
lingur sé sýktur eða ekki. Fólk hafi
mismunandi varnir og veikindin
séu því breytileg. -JSS
Campylobacter-sýkingar
- fjöldi tilfella eftir árum
sóttvarna-
300
250
200
150
ÍOO
50
<o
O^
$ m mw~
00
,* " ,p, •" I •^** 1'■ ‘ 1
90 '91 ‘92 ‘93 ‘94 ‘95 ‘96 ‘97 ‘98 ‘99
Ár Exa
Ögmundur Einarsson, t.v., framkvæmdastjóri Sorpu, færði í gær Þjónustusetrinu, sem sex líknarfélög starfrækja
sameiginlega að Tryggvagötu, 600 þúsund króna styrk frá Góða hirðinum en það er nafn nytjamarkaðar Sorpu og
líknarfélaga. Jón Guðnason, forstöðumaður Þjónustusetursins, veitti styrknum viðtöku.
Góð/r stad/r til að fylgjast með Rallinu - áhorfendaleidir
Föstudagur
Ökuleið 14: Lyngdalsheiði fyrsti bíll kl: 18:11. Leiðin lokar kl 17:30
Ökuleið 15: Geitháls fyrsti bíll 19:35. Leiðin lokar ki. 18:30
Viðgerðarhlé á Esso stöðinni Geirsgötu kl 20:00 - 21:30. Upplagt tækifæri
til þess að koma og líta á ökutækin.
Nánari upplýsingar um RallyReykjavík er að finna á www.visir.is/motorsport.
Þar sjást leiðirnar, listi yfir keppendur og staðan hverju sinni auk þess rallinu
er lýst beint á netinu.
Komdu og fylgstu með!
Laugardagur
Ökuleið 16: Tröllháls /Uxahryggin fyrsti bíll kl. 7:53. Leiðin lokar: 7:00
Ökuleið 18: Tröllháls fyrsti bíll kl. 10:21. Leiðin lokar kl. 9:45
Ökuleið 19: Kleifarvatn fyrsti bíll kl. 11:59. Leiðin lokar kl. 11:30
Ökuleið 21: Ísólfsskáli/Djúpavatn fyrsti bíil kl 12:58 Leiðin lokar kl. 12:15
www.esso.iswww.benni.is