Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
Utlönd
Stuttar fréttir dv
Iprimaid
Stæröir 33-40. Litir hvítt, rautt, blátt
Verð kr. 2.990
Mitre\ >
ASSASSIN ID
Stæröir 39-46
Verð kr. 3-990
I SANTOS ID/HG
Stærðir 39-46
Verð kr. 3-590
DEYTONA
HLAUPASKÓR
Stærðir 39-47
Verð kr. 3-990
3 litir. Stærðir 39—47
Verð kr. 4.190
Taugastríð vegna
örlaga 44 fanga
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sat í gær-
kvöld á maraþonfundi með Ehud
Barak, forsætisráðherra ísraels, til
þess að reyna að koma í veg fyrir að
upp úr friðarviðræðum ísraela og
Palestínumanna slitnaði enn einu
sinni. Að fundinum loknum gaf
ísraelska stjórnin út yfirlýsingu þar
sem sagði að enn hefði ekki náðst
samkomulag við Palestínumenn um
framkvæmd Wye-samningsins.
Á meðan undirbjuggu þó egypsk-
ir embættismenn undirritun sam-
komulagsins og gerðu jafnvel ráð
fyrir að hún gæti farið fram í dag í
bænum Sharm el-Sheikh við Rauða-
hafið.
Albrigth kom til ísraels frá Eg-
yptalandi þar sem gert hafði verið
Jói útherji
Ármúla 36, Rcykjavík, simi 5H8 1560
Ráðgjafi Bush
vill rannsókn
Helsti ráðgjafi Georges W.
Bush, væntanlegs forsetaefnis
Repúblikanaflokksins á næsta
ári, hvetur til þess að rannsðkn
verði gerð á Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum vegna frétta um að rúss-
neskir glæpamenn og spilltir
embættismenn hafi skotið undan
milljörðum dollara af fé sem átti
fara til aðstoðar við uppbyggingu
landsins. Ráðgjafinn sagði í við-
tali við Reuters-fréttastofuna að
hneykslið hefði grafiö undan
trausti bandarískra stjórnmála-
manna og almennings á gjaldeyr-
issjóðnum. Og hafi það þó ekki
verið sérlega mikið áður.
Jclavertíðin
er hafiin
w Fiigmennska íjýrirrúmi
é^Listasmiðjan
Keramikhús
'Í'erksrniðja - ‘P'erslun
Skeifan 3a • 108 Reykjavík • Sími 588 2108
r*
flu?fela?.is
Barak býður Albright velkomna á
skrifstofu sína. Símamynd Reuter
ráð fyrir að hún yrði viðstödd und-
irritun friðarsamkomulagsins í
gær. Áður en Albright hélt til ísra-
els ræddi hún við Yasser Arafat
Palestínuleiðtoga í Alexandriu.
Greindi Albright Barak frá viðræð-
um sínum og Arafats.
í yfirlýsingu sinni að loknum
fundinum með Albright kváðust
ísraelsk yfirvöld bíða eftir svörum
frá Palestínumönnum við tillögum
sínum. Helsta ágreiningsatriðið er
enn hversu marga palestínska fanga
eigi að láta lausa. ísraelar hafa boð-
ist til að láta 356 fanga lausa en
Palestínumenn krefjast lausnar 400.
Áður höfðu þeir krafist frelsis um
600 fanga. Það eru því örlög 44 fanga
sem eru aðalásteitingarsteinninn og
valda þau miklu taugastríði.
slendingar myndu sjálfsagt fúlsa við matnum sem mexíkóski kokkurinn
Fortino Rojas er að útbúa á veitingastaðnum Fonda Don Chon í Mexíkóborg,
svo sem engisprettur, orma og mauraegg. Slíkur matur hefur verið borðað-
ur í þúsundir ára á þessum slóðum. Verði ykkur svo að góðu.
UPPB0Ð
Uppboö munu byrja á skrifstofu
embættisins, Austurvegi 4,
Hvolsvelli, þriöjudaginn 7. sept-
ember 1999, kl. 15, á eftirfar-
_________andi eignum:_________
Amarhóll I og II, V-Landeyjahreppi,
þingl. eig. Erlendur Guðmundsson og
Ásta Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendureru
Lánasjóður landbúnaðarins. Landsbanki
Islands, Hvolsvelli, sýslumaður Rangár-
vallasýslu og Sjóvá-Almennar hf.
Litla-Hildisey, A-Landeyjahreppi, þingl.
eig. Fagurey ehf., gerðarbeiðendur eru
Lánasjóður landbúnaðarins og sýslumaður
Rangárvallasýslu.
Varða, Rangárvallahreppi, þingl. eig. Þor-
bjöm Á. Friðriksson, gerðarbeiðendur em
sýslumaður Rangárvallasýslu og Lands-
banki íslands hf.
SÝSLUMAÐUR RANGÁRVALLA-
SÝSLU
Oryggi ábótavant
Samtök flugvirkja í Argentínu
segja að flugfélagið LAPA hafi
ekki sinnt öryggismálum nógu
vel vegna sparnaðar. 70 farþegar
létust er Boing 737 þota félagsins
fórst í vikunni.
Gegn birtingu gagna
Frönsk yfirvöld eru ekki hrifm
af því að Svíar birti skjöl um
hvaða afurðir frá Frakklandi séu
með salmónellusmit.
Kaupa hvítt hús
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
og Hillary, eiginkona hans, hafa
keypt sér hvítt
hús í Chappa-
quahverfinu i
New York. í
hverfinu, sem er
þekkt fyrir góða
skóla, vel hirta
garða og glæsi-
villur, búa 17
þúsund manns. Um er að ræða
timburhús frá 1889 á þremur hæð-
um. Hillary neyðist til að búa í
New Yorkríki til að eiga mögu-
leika á að verða kjörin þingmaður
þess.
Birgðageymslur nasista
Árið 1940 fengu þýskir nasistar
aö reisa birgðageymslur í norður-
hluta Svíþjóðar. Þetta kemur fram
í nýrri bók eftir Lars Gyllenhaal.
Fjöidagröf rannsökuð
í Chile stendur nú fyrir dyrum
rannsókn á fjöldagröf sem talin er
geta geymt 20 lík manna sem
skotnir voru til bana í stjómartíð
Pinochets einræðisherra.
Skæruliðar sprengdu
Fulltrúi frelsishers Dagestans
sagði í símtali við AFP fréttastof-
una í gær að samtök hans stæðu
á bak við sprengjutilræðið í versl-
unarmiðstöð i Moskvu.
Reitir Breta til reiði
Játvarður prins, yngsti sonur
Elísabetar Englandsdrottningar,
hefur reitt
Breta til reiði
með því að segja
i viðtali við
bandaríska
blaðið New
York Times að
almenningur í
Bretlandi hafi
andúð á þeim sem ná árangri.
Fóru bresku kvöldblöðin hörðum
orðum um prinsinn og riijuðu
upp hans eigin feril sem þau
sögðu ekki glæstan. í yfirlýsingu í
gær kvaðst prinsinn ekki hafa
ætlað að móðga bresku þjóðina.
Starfsmenn SÞ drepnir á A-Tímor:
Vegnir í árás á
stúdentagarða
Frábær
Nýr o$ flæsile^ur
netklúbbstilboð
FLUGFELAG ISLANDS
- fyrir fólk eins og þig!
Vopnaðir stuðningsmenn stjórn-
valda í Indónesíu drápu tvo austur-
tímoríska starfsmenn Sameinuðu
þjóðanna í bænum Maliana í gær.
Portúgalska fréttastofan Lusa
hafði eftir sjálfstæðissinnum á
Austur-Tímor að mennirnir hefðu
verið drepnir í árás á stúdenta-
garða.
Að minnsta kosti fimm manns
voru drepnir fyrir utan höfuðstöðv-
ar SÞ í höfuðborginni Dili á mið-
vikudag.
Austur-Tímorar greiddu á mánu-
dag atkvæði um framtíðarstjórn
landsins og er fastlega búist við að
sjálfstæðissinnar hafi farið með sig-
ur af hólmi. Úrslit verða kynnt ein-
hvern næstu daga en þing
Indónesíu verður að staðfesta þau
þegar það kemur saman í næsta
mánuði.
Sudrajat hershöfðingi, helsti tals-
maður indónesíska hersins, sagði
að ef kjósendur hefðu hafnað þeim
kosti að njóta sjálfstjórnar innan
Indónesíu væri rökrétt að SÞ tækju
að sér friðargæslu.
Fulltrúi Sameinuðu þjóðanna á
Austur-Tímor heldur á kjörkössum
á talningarstað.
Indónesíska dagblaðið Jakarta
Post sagði í morgun að indónesíski
herinn hefði gert áætlanir um neyð-
arflutninga allt að 250 þúsund
manna frá Austur-Tímor ef ástandiö
þar héldi áfram að versna.