Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
17
Sport
Sport
EM - 4. riðill
Úrslit:
ÍSLAND - Frakkland .... 1-1
Armenía - Andorra 3-1
Úkraína - Rússland 3-2
Andorra - Úkraína 0-2
Armenía - Island 0-0
Rússland - Frakkland . .. 2-3
Frakkland - Andorra .... 2-0
ísland - Rússland 0-1
Úkraína - Armenía 2-0
Andorra - ísland 0-2
Armenía - Rússland 0-3
Frakkland - Úkraína .... 0-0
Frakklánd - Armenía .... 2-0
Rússland - Andorra 6-1
Úkraína - ísland 1-1
Frakkland - Rússland . . . 2-3
ísland - Armenía 2-0
Úkraína - Andorra 4-0
Andorra - Frakkland .... .... 0-1
Armenía - Úkraína .... 0-0
Rússland - Island .... 1-0
Staðan
Úkraína 7 4 3 0 12-3 15
Frakkland 7 4 2 1 11-6 14
Rússland 7 4 0 3 17-10 12
ísland 7 3 3 1 7-3 12
Armenía 7 12 4 3-10 5
Andorra 7 0 0 7 2-20 0
Sigurliðið í riölinum fer beint í
úrslitakeppni EM i Hollandi og
Belgíu næsta sumar og lið númer tvö
fer í útsláttarkeppni um sæti þar.
Leikir sem eftir eru:
4. september:
ísland - Andorra
Rússland - Armenía ....
Úkraina - Frakkland ....
8. september:
Andorra - Rússland
Armenía - Frakkland . . .
ísland - Úkraína
9. október:
Andorra - Armenía
Frakkland - ísland
Rússland - Úkraína
Njarövíking-
ar óhressir
Njarðvíkingar eru óhressir með
frammistöðu Gylfa Þórs Orrasonar
dómara í úrslitaleik þeirra gegn
KÍB um sæti í 2. deildinni í knatt-
spyrnu sem fram fór í Bolungarvík
í fýrrakvöld.
KÍB sigraði, 4-3, með marki á
lokasekúndum leiksins en 3-3 hefði
nægt Njarðvík til að fara upp.
„Gylfi hóf seinni hálfleikinn á að
sýna leikmanni okkar rauða spjald-
ið, vegna þess að hann taldi sig hafa
gert mistök í fyrri hálfleik með því
að reka hann ekki af velli með tvö
gul spjöld. Við erum hins vegar
vissir um að það var sinn hvor leik-
maðurinn sem átti hlut að þeim
spjöldum. I lok leiksins skoruðum
við mark, fyllilega löglegt að okkar
mati. Það var dæmt af vegna rang-
stöðu, markvörðurinn þeirra tók
boltann meðan hann skoppaði og
þrumaði honum fram, í stað þess að
stilla honum upp fyrir aukaspyrn-
una, og heimamenn skoruðu sigur-
markið. Þetta eru ótrúleg mistök að
okkar mati, og það er hart að þau
skuli kosta okkur sæti í 2. deild eft-
ir mikla baráttu í riðlakeppninni og
úrslitakeppninni," sagði Brynjar
Gunnarsson, stjómarmaður hjá
Njarðvík, við DV.
„Þetta var sami leikmaðurinn, sá
sem ég hefði getað ruglast á var far-
inn af velli áður en til spjaldanna
kom svo annað er útilokað. Línu-
vörðurinn benti mér á þessi mistök
rétt fyrir hlé og ég ákvað að reka
ekki manninn af velli fyrr en ég
væri búinn að ráðfæra mig við eftir-
litsmanninn í hálfleik," sagði Gylfi
Þór Orrason við DV.
„Markvörðurinn var að Qýta sér
og henti boltanum fyrir sig með
baksnúningi, eins og markverðir
gera svo oft, og sendi á næsta mann.
Ég skil vel að Njarðvíkingar séu
æstir,' það var mikið í húfi hjá þeim
í þessum leik, en hafi ég gert mistök
þá verður allavega ekkert við þeim
gert,“ sagði Gylfl Þór Orrason. -VS
Skiptir öllu að vinna
„Undir venjulegum kringum-
stæðum eigum við að vinna
þennan leik við Andorra. Við
verðum hins vegar að hafa í
huga að enginn leikur er unninn
fyrirfram. Við sáum Frakka
lenda í mikum vandræðum með
Andorramenn en Frakkar lentu
að vísu manni undir snemma
leiks. Það kom þó glöggt fram
segir Sigurður Jónsson landsliðsmaður
að þeir eru sýnd veiði en ekki
gefln. Andorra-liðið bakkar í
vörn og það munu þeir eflaust
einnig gera gegn okkur á morg-
un. Þeir leika þannig taktík og
gegn henni verðum við að finna
leiðir til að skora,“ sagði Sigurð-
ur Jónsson landsliðsmaður í
samtali við DV.
- Upp á framhaldið í riðlinum
verður þessi leikur að vinnast og
skora verður nokkur mörk?
„Jú, það skiptir auðvitað öllu að
vinna leikinn. Við erum komnir
þetta langt í riðlinum og getum
því ekki verið að klúðra þessu
núna.“
- Ert þú að gera þér vonir
um 6 stig í næstu 2 leikjum?
„Það er allt mögulegt í fótbolta
og að mínu mati er það ekki
óraunverulegt takmark. Það
myndi tryggja okkur góða stöðu.
Við verðum bara að hugsa um
einn leik í einu. Fyrst Andorra
og síðan Úkraínu. Það er mikill
og góður hugur í mannskapnum
og allir tilbúnir að leggjast á eitt
til að ná sem bestum árangri,"
sagði Sigurður Jónsson. -JKS
Stanslaus barátta
- KA-manna skilaði sigri gegn FH
Sigurður Jónsson og Þórður Guðjónsson binda hér skóþveng sinn
og gera sig klára fyrir landsliðsæfinguna í gær. DV-mynd E.Ói.
1-0 Guðmundur Steinarsson (16.)
1- 1 Hörður Magnússon (19.)
2- 1 Steingrímur Eiðsson (37.)
3- 1 Guðmundur Steinarsson (45.)
3-2 Guðmundur Sævarsson (78.)
Leikur KA og FH var bráð-
skemmtilegur á köflum. Þessi
leikur skipti miklu fyrir KA sem
er í baráttu við falldrauginn.
KA var miklu sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og átti flestöll þau
færi sem komu í fyrri háfleik. í
seinni hálfleik sneristi leikurinn
við. FH-menn áttu meira í
leiknum og voru óheppnir að
geta ekki jafnað en góður varn-
arleikur KA kom í veg fyrir það.
KA hefði hins vegar getað inn-
siglað sigurinn þegar Stefán
Þórðarson skaut rétt fram hjá
eftir góða sendingu frá Dean
Martin á lokamínútunum.
„Já þetta var tæpt en svona er
deildin. Stanslaus barátta í
99-100 mínútur. Við spilum
ekki frábæra knattspymu en nú
erum við að berjast fyrir lífi okk-
ar. Ef við verðum svona skyn-
samir og berjumst skilum við
stigum í hús í síðustu 2 leikjun-
um,“ sagði Tryggvi Gunnars-
son, aðstoðarþjálfari KA, eftir
leikinn. Maður leiksins: Guð-
mundur Steinarsson, KA -JJ
Einn leikur í einu
A morgun tekur islenska knatt-
spyrnulandsliðið upp þráðinn að
nýju þar sem frá var horfið í Evr-
ópukeppni landsliða. Varla þarf að
rifja það upp fyrir neinum að eftir
frábært gengi til þessa er ísland enn
með í baráttunni um tvö efstu sætin
og þar með áframhald í keppninni.
Andstæðingur Islands á Laugar-
dalsvellinum á morgun er lið And-
orra, smáríkisins úr Pýreneafjöllum
sem aldrei hefur unnið landsleik og
er yngsti meðlimur Knattspymu-
sambands Evrópu.
Ef litið er á stöðuna í riðlinum er
krafan á hendur íslenska liðinu ein-
fóld: Sigur, og það öruggur.
En íslensku landsliðsmennimir
verða að bera hæfilega virðingu fyr-
ir kollegum sínum frá Andorra sem
fæstir hafa atvinnu af knattspym-
unni og spila flestir í C- eða D-deild-
inni á Spáni, eða í deildakeppninni
heima fyrir. Lið Andorra hefur sýnt
i keppninni að það er andstæðingur
sem gefur ekki sinn hlut fyrr en í
fulla hnefana og hefur staðið sig
margfalt betur en nokkur átti von á.
Frönsku heimsmeistaramir lentu
í mesta basli í báðum sínum
leikjum við nágrannann
smáa. Búist var við
tveggja stafa tölu í / JBK/m
viðureignum þjóð-
anna en raunin
varð sú að Frakk- f
ar voru 54 minút- [
ur að skora á eig- !
in heimavelli og \
unnu aðeins 2-0, og
sigruðu í útileikn-
um, 1-0, á umdeildri
I
\!
Andorra hæglega náð tveggja
marka forystu áður en ísland komst
á blað og það þurfti harðjaxlinn
Eyjólf Sverrisson til að brjóta ísinn
eftir 57 mínútna leik.
Andorra leikur grimman og
vel skipulagðan vamar-
leik sem öllum liðum
hefur reynst erfitt
________; að brjóta á bak aft-
. ur - nema Rússum
\ sem náðu að skora
tvö mörk á fyrstu
13 mínútunum í
Moskvu og unnu,
6-1.
Svona leikur snýst
vítaspymu fimm mínút-
um fyrir leikslok.
Þá mega íslensku leikmennirnir
hafa í huga eigin frammistöðu í
fyrri leik þjóðanna í Andorra. í
hreint hræðilegum fyrri hálfleik gat
§
fyrst og síðast um hug-
arfar. Um hugarfar leik-
manna. Um hugarfar þjálfar-
ans þarf enginn að efast og ég er
viss um að íslensku leikmennirnir
vilja ekki aðra eins skammarræðu
og þeir fengu í hálfleik í Andorra.
Hún var bönnuð innan 18, eins og
einn leikmannanna komst að orði.
Nei, ég trúi því ekki að Guðjón
þurfl að brýna raustina jafn kröft-
uglega og laugardaginn þann í
mars. íslenska liðið er skipað at-
vinnumönnum með reynslu og þjóð-
arstolt að vopni. Þeir eru komnir
langt, ótrúlega langt í þessari Evr-
ópukeppni. Næsta miðvikudag er
sannkallaður stórleikur fram undan
hjá þeim, gegn Úkraínu á Laugar-
dalsvellinum. En ég trúi því ekki að
þeir séu með hugann við þann leik
þessa stundina, þeir eiga að vita að
nú sem aldrei fyrr gildir að hugsa
um einn leik í einu. Um Úkraínu-
leikinn mega þeir ekki hugsa fyrr
en klukkan sex á laugardaginn. Eft-
ir leikinn við Andorra. Eftir að þeir
hafa skilað öruggum sigri og þrem-
ur stigum í hús á sannfærandi hátt.
Botnbaratta
- blasir við Þrótti eftir 3-1 tap gegn Fylki
0-1 Theódór Óskarsson (38.)
0-2 Kristinn Tómasson (40.)
1-2 Hreinn Hringsson (49.)
1-3 Bjöm V. Ásbjömsson (90.)
Botnbarátta blasir við
Þrótti, Reykjavík, eftir 3-1
tap gegn Fylki í 16. umferð
1. deildar karla í knatt-
spyrnu í gærkvöld. Þróttur
hefur 20 stig eftir 16 leiki en
Skallagrímur, sem er í 9.
sæti, hefur 19 stig eftir 15
leiki og leikur gegn KVA,
neðsta liði deildarinnar í
kvöld.
Þróttarar byrjuðu leikinn
af krafti en Fylkismenn
voru fyrri til að skora og
leiddu með tveimur mörk-
um í hálfleik. Sigurður
Hallvarðsson, sem kom inn
á í hálfleik, hleypti nýju
blóði í leik þeirra og lagði
upp markið fyrir Hrein á
49. mínútu. En lengra
komust Þróttarar ekki þrátt
fyrir að Fylkir léki með
hálfum hug það sem eftir
lifði leiks, enda fór svo að
Fylkir bætti við marki á
síðustu mínútu eftir ótfú-
legt kæruleysi i vörn Þrótt-
ar og 13 sigurinn í sumar
var í höfn.
Maður leiksins: Ólafur
Þórðarsson, Fylki. -ih
ísland mætir Andorra í 4. riðli Evrópumótsins á morgun:
Sóknarkraftu r
- segir Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari en meiðsli setja strik í reikninginn
Islenska landsliðið í knattspyrnu
mætir liði Andorra í 4. riðli und-
ankeppni Evrópumóts landsliða á Laug-
ardalsvelli á morgun klukkan 16. íslend-
ingar unnu fyrri leikinn í Andorra, 0-2,
og verða að vinna sigur á
morgun til að eiga möguleika
í riðlinum sem er galopinn í
alla staði. Þar standa Úkra-
ínumenn best að vígi en bar-
áttan um annað sætið stend-
ur á milli íslendinga, Frakka
og Rússa.
Ekki kæmi á óvart að blás-
ið yrði til sóknar frá fyrstu
mínútu enda skiptir miklu að
skora mörk til að styrkja
markatöluna en hún gæti
hæglega skipt máli þegar upp
verður staðið.
Guðjón Þórðarson lands-
liðsþjáífari leggur að vonum
mikið upp úr þessum leik og
segir hann mjög mikilvægan.
Þurfum að ná í þrjú stig
gegn Andorra
„Við ætlum að vinna, það
er ósköp einfalt. Við þurfum
að ná í þrjú stig, vinna leik-
inn öruggt og vera ákveðnir
frá fyrstu mínútu," sagði
Guðjón.
- Heldur þú að þetta geti
orðið erfiður leikur?
„Já, hann verður það. Andorra-liðið
spilar mjög aftarlega og þeir verða
meira og minna með 8-10 menn inni í
vítateig. Við svona leikaðferð verður
erfitt að eiga. Við verðum að vera mjög
einbeittir og vel skipulagðir í því sem
við gerum til að klára leikinn örugg-
lega.“
bara að forðast það að gera okkar ekki
það erfltt. Við verðum að leika agaðan
og einfaldan leik. Láta boltann ganga
hratt, skapa mikið af fyrirgjöfum sem
munu veitast þeim erfiðar. Þetta eru þau
þeir munu liggja aftarlega. Þetta verður
spuming um útfærsluatriði og þolin-
mæði að skapa okkur tækifæri. Það
myndi óneitanlega létta okkur róðurinn
að skora fljótlega í leiknum. Leikurinn
við Úkraínu á miðvikudag verður geysi-
lega erfiður og viðureign við Andorra er
forspilið að þeim leik.
Meiðsli hjá leikmönnum hafa sett
strik í undirbúninginn og á þessari
stundu er ekki útséð hvemig það endar.
Þórður Guðjónsson Rúnar Kristinsson
og Sigurður Jónsson eru á gráu svæði.
Tveir til þrir leikmenn aðrir hafa einnig
átt í meiðslum.
Velur ekki liðið fyrr en á laugar-
dagsmorgunn
Það verður ekki ljóst fyrr á laugar-
dagsmorguninn hvemig Rúnari reiðir af
og endanlegt lið vel ég ekki fyrir en þá.
Ef ég ætti að velja liðið núna væri Rún-
ar ekki í því og það er mjög slæmt. Leik-
maður, sem færi tæpur inn í leikinn
gegn Andorra, ætti á hættu að geta ekki
leikið gegn Úkraínu. Þetta verð ég að
hafa í huga þegar liðið gegn Andorra
verður valið," sagði Guðjón Þórðarson.
-JKS
Bland i poka
Bobby Robson, til
hægri, fyrrum lands-
liösþjálfari Englands,
verður næsti knatt-
spymustjóri Newcastle
og verður gengið frá
samningnum i dag.
Robson, sem er 66 ára,
tekur við af Ruud
Gullit sem sagði af sér
á dögunmn vegna
slæms gengis liðsins sem situr á botni
ensku A-deiIdarinnar.
Sautján leikmenn Leicester, ásamt 10
starfsmönnum félagsins, hafa verið
ákærðir af enska knattspymusamband-
inu eftir að miðar í þeirra eigu voru
seldir á svörtum markaði fyrir úrshta-
leik deildabikarsins síðasta vor. Tony
Cottee og Andy Impey áttu umrædda
miða og ljóst er að þeir fá þungar refs-
ingar, og hinum verður einnig refsað
þar sem þeir neituðu að fyUa út skýrslu-
eyðublöð sambandsins um málið. Arn-
ar Gunniaugsson er ekki í þessum
hópi en hann var ekki löglegur með
Leicester í þessum úrslitaleik sem var
gegn Tottenham.
Magic Johnson, til
vinstri, körfuboltasniU-
ingm’inn eini og sanni,
ætlar að spUa í Svíþjóð
í vetur. Hann er með-
eigandi i liðinu
MagicM7 frá Borás,
sem varð í 5. sæti
sænsku A-deUdarinnar
í fyrra, og hyggst hann
gera liðið að stórveldi. Magic segir að tU
þess að efla og þroska leikmennina sé
nauðsynlegt að hann spUi með þeim
nokkra leiki, þannig geti hann kennt
þeim betur en á æfmgum.
Marcel Oerlemans missti af leik Fram
við KR i úrvalsdeUdinni í fyrrakvöld
vegna meiðsla í hásin. Hann verður
tUbúinn í næsta leik, faUslagnum við
Val þann 11. september.
Guöni Bergsson, tU
hægri, er tUbúinn í
slaginn með Bolton í
ensku B-deUdinni en
hann hefur ekkert
leikið á tímabUinu
vegna meiðsla. Guðni
var í leikmannahópn-
um um síðustu helgi
og í fyrrakvöld lék hann heUan leik með
varaliöinu sem vann Blackbum, 1-0.
Bjarnólfur Lárusson verður á ný með
WalsaU þegar liðið mætir Nottingham
Forest í B-deUdinni á morgun. Bjamólf-
ur fór heim tU Vestmannaeyja vegna
jarðarfarar og missti af þremur leikjum.
Ray Graydon, stjóri
WtdsaU, er síðan í
mestu „vandræðum"
með Sigurö Ragnar
Eyjólfsson, tU vinstri,
sem héfur farið á kost-
um í hvert skipti sem
harrn hefur komið inn
___________á sem varamaður.
Graydon segir að erfitt sé að halda hon-
um lengur utan liðsins, en það sé jafh
erfitt að setja einhvem út í staðinn.
-VS
[t*í I . DEILD KARLA
Fylkir 16 13 0 3 37-19 39
ÍR 16 8 2 6 44-31 26
Stjarnan 15 7 2 6 30-27 23
FH 16 6 4 6 35-28 22
Dalvík 15 6 3 6 25-34 21
Þróttur R. 16 6 2 8 24-25 20
Víðir 16 6 2 8 27-40 20
KA 16 5 4 7 23-24 19
Skallagr. 15 6 1 8 29-31 19
KVA 15 4 2 9 24-39 14
Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari leggur upp kröftugan sóknarleik fyrir landsleikinn gegn
Andorra á Laugardalsvelli á morgun og hér skipuleggur hann æfingu í gær. DV-mynd E. 01.
- Má ætla að íslenska liðið eigi að
vinna sigur ef allt er eðlilegt?
„Ég hef ekki áhyggjur af því þannig
lagað að við vinnum ekki. Við þurfum
atriði sem við þurfum að leggja upp.“
- Þú munt leggja áherslu á sóknar-
leik?
„Við ætlum að sækja kröftugt á þá en
Erla skoraði
Fredi’iksberg, lið Erlu Hendriks-
dóttur, sigraði
Rödovre, 6-1, í
dönsku A-deildinni í
knattspymu í fyira-
kvöld. Erla, semkom
inn á í hálfleik og lék
á vinstri kantinum,
skoraði síðasta mark-
ið i ieiknum. -ih
Miðasalan gengur vel
Miðasalan á leiki íslenska landsliðsins í knattspyrnu fyrir leikina
gegn Andorra og Úkraínu gengur vel og er mikill áhugi fyrir leikjun-
um. KSÍ tók upp þá nýbreytni að bjóða til sölu tvöfaldan miðapakka
og hefur þetta mælst mjög vel fyrir meðal fólks, að sögn Geirs Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra KSÍ.
„Það er þegar búið að selja í hátt í tvö þúsund miða á leikina tvo og
er alveg ljóst að knattspyrnuáhugamenn ætla ekki að liggja á liði sínu
enda mikið í húfi,“ sagði Geir Þorsteinsson í samtali við DV í gær.
Aðgöngumiðasala fer fram á bensínstöðvum Esso. 'JKS
Leikjamet Rúnars
Rúnar Kristinsson setur nýtt met gegn Andorra
á morgun þegar hann leikur sinn 78. A-landsleik,
svo framarlega sem hann getur spilað vegna
meiðsla á hálsi sem hann varð fyrir um síðustu
helgi. Rúnar, sem verður þrítugur á sunnudaginn,
spilaði sinn fyrsta landsleik haustið 1987, nýorðinn
18 ára, gegn Sovétmönnum í Simferopol, og hann
jafnaði landsleikjamet Guðna Bergssonar þegar ís-
land vann Færeyjar, 1-0, þann 18. ágúst. -VS
Sjo a hættusvæði
7 leikmenn íslenska liðsins þurfa að gæta sérstaklega að sér
í leiknum við Andorra. Þeir hafa allir fengið eitt gult spjald í
Evrópukeppninni, og sá sem fær annað á morgun verður í
banni gegn Úkraínu á miðvikudag. Sjömenningamir eru
Birkir Kristinsson, Lárus Orri Sigurðsson, Sigurður Jónsson,
Helgi Kolviðsson, Brynjar Bjöm Gunnarsson, Rúnar
Kristinsson og Hermann Hreiðarsson. Enginn íslenskur
leikmaður hefur enn farið í bann og liðið hefur ekki fengið
spjald í 3 síðustu leikjum sínum í keppninni. -VS
Brynjar Björn Gunnarsson
er með spjald á bakinu.
7 mörk og Viðissigur
0-1 Bjarki Hafþórsson (20.)
1-1 Goran Lukic (24.)
1- 2 Heiðar Ómarsson (25.)
2- 2 Anthony Stissi (37.)
3- 2 Guðmundur Einarsson (50.)
4- 2 Grétar Einarsson (54.viti)
4-3 Bjami G. Sigurðsson (76.víti)
Víðismenn byrjuðu leikinn úti í
Garði í gærkvöld af miklum la-afti og
fyrstu mínútumar komust ÍR-ingar
varla út úr sínum eigin vítateig.
ÍR skoraði fyrsta markið gegn gangi
leiksins, í einni af sínum fyrstu
sóknum. Víðismenn lögðu þó ekki
árar í bát og nokkrum mínútum síðar
hafði þeim tekist að jafna. Eitthvað
hefur ræða Guðjóns, nýráðins þjálfara
Víðismanna, í leikhléi farið vel í
Víðismenn því þeir tóku öll völd á
vellinum í upphafl síðari háifleiks og
ekki voru nema 10. mínútur liðnar af
hálfleiknum þegar Víðismenn voru
búnir að skora tvö mörk. ÍR, náði að
minnka muninn en ekki meir og missti
hér af gullnu tækifæri til að bæta stöðu
sína í baráttu um sæti í úrvals-
deildinni á næsta ári.
Njáll Eiðsson, þjálfari ÍR-inga var
mjög ósáttur við leik sinna manna og
sagði að allan stöðugleika vantaði og
betra liðið hefði unnið. Guðjón
Guðmundsson, þjálfari Víðismanna,
var mjög sáttur við leik smna manna
og sagði að ef baráttan og leikgleðin
væri til staðar þá gæti þetta lið unnið
öll liðin í deildinni. Maður leiksins:
Ásgrimur Waltersson, Víði -KS