Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Page 18
* 18
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
Kvikmyndir
Non Stop:
Með mönnum
Sex: The Annabel Chong Story:
Heimildamynd
- ekki klámmynd
★★★ Fyrir okkur sem sjáum
sjaldan annað efni frá
Þýskalandi en sögur um vel klædda
svefngengla sem búa i dýrum Arn-
arnesum, aka um á BMW-um og
fremja stundum glæpi
sem Derrick lögreglu-
foringi leysir snarlega
með dyggri aðstoð
Harrys Kleins er óneit-
anlega hressandi að
beina sjónum að ein-
hverju öðru en þessu
sálarlausa yfirborði
sem ekkert hefur við
sig.
Og aðra hlið á
Þýskalandi fáum við
vissulega að sjá i þess-
ari heimildarmynd
Ólafs Sveinssonar sem
er útskriftarverkefni
hans frá Kvikmynda-
skólanum í Berlín.
Hann finnur myndavél
sinni stað á bensínstöð
við götuhom skammt
frá heimili sínu í
Berlín og viðfangsefni hans eru
nokkrir af fastagestum staðarins
sem koma þangað til að fá sér kaffi
og smók og skiptast á sögum. Það er
kannski ekki beint hægt að kalla
þetta undirmálsfólk, allavega hefur
það ekki gefist upp á tilverunni þótt
hún hafi ekki verið sérlega kurteis
við það. Ólafur velur að fylgja
nokkrum einstaklingum eftir og
gefa okkur innsýn í lif þeirra,
hvemig þeir búa, hvar þeir vinna
og hvaða augum þeir líta á lífsbar-
áttuna. Hann nær að draga fram
innviði þessa fólks og þar gefur að
líta flölbreytilegan kokkteil af
seiglu, bjartsýni, einmanaleika, ras-
isma og jafnaðargeði þeirra sem
upplifa sig agnarsmáan part af held-
ur nöturlegu apparati.
Nonstop er martröð ferðaskrif-
stofunnar því hún sýnir okkur stað
sem enginn vill þurfa að kynnast en
er blasir í rauninni
beint við ef okkur
verður það á að rýna
aðeins betur. Hún
undirstrikar þá
gömlu fullyrðingu að það er ekkert
til sem heitir samfélag heldur að-
eins sú hugmynd um heiminn sem
býr í hverri sál.
Leikstjóri: Ólafur Sveinsson. Kvik-
myndataka: Frank Aman. Tónlist:
Howie B. Snooz.
Asgrimur Sverrisson
★★< Mannífæðistúdentinn
Grace Quek skaust upp á
stjömuhimin klámmyndanna árið 1995
undir listamannsnafninu Annabel
Chong og varð í einu vetfangi ein af
þekktustu klámstjömum heimsins.
Frægð sína öðlaðist hún ekki út á kyn-
þokka sinn enda er hún í rauninni
ekkert svo mikið augnayndi. Hún hef-
ur þokkalegan líkama en er alls ekki
snoppufríð, sérstaklega er mrmnsvip-
urinn einkennilegur og tennurnar
skakkar og ljótar. En karlmenn taka
oft greitt aðgengi fram yfir gæðastaðla
og þar slá fáir Annabel Chong við.
Hennar afrek var að setja heimsmet í
hópreið þegar hún lagðist með 251
karlmanni á tíu klukkustundum. Þess-
ar samfarahamfarir voru gefnar út á
myndbandi undir nafninu World’s
Largest Gang Bang og slógu öll sölu-
met klámiðnaðarins. í kjölfar skyndi-
frægðar hennar kom hún fram í spjall-
þáttum í sjónvarpi, m.a. hjá Jerry
Springer þar sem Gough Lewis nokkur
sá hana og fékk þá hugmynd að gera
heimildamynd um hana
Gough Lewis tekst á við verkefni
sitt á svipaðan hátt og
aðrir sem gera heim-
ildamyndir sem fjalla
um eina persónu. Hann
reynir að varpa ljósi á
hvaða konu hún hafi að geyma með
því að rannsaka uppruna hennar,
æsku og ævi fram að núinu með því að
taka viðtöl við hana sjálfa, ættingja,
vini, skólafélaga, kennara, samstarfs-
menn og keppinauta og með því að
fylgjast með henni um skeið á heimili
hennar, í námi og i starfi. Við fáum að
vita að hún á rætur í íhaldssömu sam-
félagi í Singapúr en ólst upp í London.
Kennari hennar í háskólanum lýsir
henni sem ágætum nemanda sem eigi
oft athyglisverð innleg i tímum og við
fáum að kynnast mjög ákveðnum skoð-
unum hennar á kynlífi og kynhlut-
verkum í kynlífi en þessar skoðanir
eru ráðandi þáttur i klámferli hennar.
Myndinni tekst að gera nokkuð vel
grein fyrir því hvemig persóna þetta
er sem ákveður að samrekkja 251 karl-
manni á einum degi en hún reynir
einnig að grafast fyrir um það hvers
vegna hún taki þessa ákvörðun. Svo
virðist sem Grace Quek líti á þetta
hálfþartinn sem feminíska yfirlýsingu
sem virðist vera eitthvað á þessa leið:
„Ég er kona og ef mig langar
til að ríða nokkur himdruð
karlmönnum i dag þá er bara
ekkert að því!“ Hún talar mik-
ið um frelsi og sjálfstæði og
að brjóta af sér hlekki kyn-
brmdins hlutverks kvenna
sem passifra kynvera. Margt
af því sem hún segir er ekkert
svo vitlaust en það eyðileggur
nokkuð fyrir málstað hennar
að hún er greinilega ekki al-
'Veg í lagi. Þunglyndisköst,
manísk hegðrm, taugaveiklun
og jafnvel sjálfspyntingarhvöt
gera hana ekki að trúverðug-
um talsmanni kvenfrelsis.
Það er eiginlega ffernur að
maður vorkenni henni en að
maður hlusti á það sem hún
hefur að segja. Leikstjórinn
má eiga það að hann gerir sitt
besta til að varpa ljósi á þær
spumingar sem vakna og ger-
ir á margan hátt athyglisverða mynd.
Hitt er annað mál að ég þykist vita að
yfirgnæfandi meirihluti bíógesta í fúll-
um salnum hafi verið þama til að sjá
eins og hálfs tíma „freakshow". Þeim
var farið að leiðast verulega þegar líða
tók á seinni hlutann. Gott á þá! Héldu
þeir virkilega að þeir fengju að sjá al-
vöruklám?
Sýnd í Bíóborginni. Leikstjórn og
handrit: Gough Lewis. Klipping:
Kelly Morris. Tónlist: Peter Mund-
inger. Bandarisk, 1999.
Pétur Jónasson
Kvikmynda
GAGNRÝNI
«.
Dagskrá föstudaginn 3. sept.
1 SAMmnÆk
HÁSKÓIABÍ H SNORRABRAUT
16:50 The Winslow Boy 17:00 Slam
17:00 Limbo Sex-Annabel Chong
Gadjo Dilo 19:00 Slam
18:45 Black Cat White Cat Sex-Annabel Chong
19:00 Night Shapes 21:00 A Clockwork Orange
21:00 Black Cat White Cat Sex-Annabel Chong
Time of the Gypsies 23:00 Sex-Annabel Chong
23:20 Biack Cat White Cat 23:30 The Shining
d p rt M nr\(%\ m guj
16:00 Happiness
17:00 Half a Change
Children of Heaven
18:30 Happiness
19:00 Last Days
Three Seasons
21:00 Happiness
Three Seasons
23:00 Trick
23:30 Happiness
er klúbbur hátíðarinnar
vefsíða háiiðannnar
fwaiaomfit
Bílalelga
FWGFÉLAG ÍSIANDS
Air Iceiand
TVG-ZIMSEN