Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Blaðsíða 19
FOSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
19
Kvikmyndir
Tony litli:
Afbökuð sveitarómantík
•kici, Hjónin Brand (Alex van
Warmerdam) og Keet
(Annet Malherbe) búa einsömul
langt uppi í sveit. Hún vinnur að
visu í borginni en hann vill helst
ekki fara út fyrir landareignina. Og
þótt Brand kunni ýmislegt fyrir sér
hefur hann ekki enn lært að lesa og
skrifa þótt hann sé kominn á 'fimm-
tugsaldur. Keet er orðin langþreytt
á því að þurfa að lesa fyrir hann og
ræður unga kennslukonu, Lenu
(Ariane Schlúter), honum til aðstoð-
ar. Brand er nú ekkert alltof hrifinn
af því til að byrja með en ekki líður
á löngu þar til hann tekur að girn-
ast hana. Honum til mikillar furðu
hvetur eiginkonan hann áfram.
Ástæður þess koma ekki í ljós fyrr
en Teun litli (Sebasti-
aan te Wierik) bland-
ar sér í gang mála.
Kleine Teun er um
margt dæmigerð
svört kómedía.
Húmorinn er hroll-
kaldur og leikur á
mörkum fáránleika
og hversdagsleika.
Það sama gildir um
persónumar en raun-
sæi þeirra er ýkt svo
mjög að þær verða af-
káralegar. Það er stíll
yfir þessu öllu saman
og það er ljóst að heil-
inn á bak við mynd-
ina, Alex van War-
merdam, er
mikill hæfi-
leikamaður,
Tónlist
hans fellur
vel að
myndmál-
inu sem býr
oft yfír töfr-
andi ein-
faldleika.
Og það
sama verð-
ur að segja
um söguna
Hlaupu, Lola,
hlauptu:
Góðir
sprettir
Kvikmyi^da
GAGNRYNI
sem er laus við alla óþarfa útúr-
dúra. Myndin nostrar þess í stað við
aðalpersónumar og hvers lags smá-
atriði sem eru skemmtileg til að
byrja með en verða síöar næsta
þreytandi. Þessi einhæfni gerir
myndina nokkuð langdregna er á
líður um leið og sjarmi hennar er
fólginn í einfaldleikanum. Sérkenni-
leg þversögn sem sýnir kannski
hversu vandmeðfarið listform kvik-
myndin er. Unnendur þess gætu þó
gert margt vitlausara en að sækja
Teun litla heim.
Leikstjórn, handrit og tónlist: Alex
van Warmerdam. Kvikmyndataka:
Marc Felberlaam. Aðalhlutverk:
Alex van Warmerdam, Annet Mal-
herbe, Ariane Schliiter og Sebasti-
aan te Wierik. Hollensk, 1998.
0] Electrolux
Frystildstu-
tUboð
Frystikistur í
öllum stærðum
á tilboðsverði.
, 180-460 lítra.
Verð frá
31.990 kr.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
★★
Svo virðist sem höfundinum
sé mikið í mun að sýna -okktir
að hann kunni öll trixin í handbókinni
og í fyrstu ætla stælamir að gera út af
við frásögnina sem lítur út eins og
framlengt rokkvídeó. Þetta er svona
bíó um bíó, hápoppuð hugleiðing um
tíma, hreyfmgu og tilviljanir. Hins
vegar verður að viðurkennast að hug-
myndin er afskaplega hrein og tær.
Lola hefur tuttugu mínútur til að
redda hundrað þúsund mörkum (um
fjórum milljónum króna) eða Manni,
kærasti hennar sem týnt hefúr þessari
upphæð við litla hrifningu stór-
glæpona sem hann vinnur fyrir, fær að
sofa hjá fiskunum. Hvemig Tykwer
. lætur þessar tuttugu mínútur duga í
heila bíómynd er fyrir ykkur að kom-
ast að en þó skal sagt að hægt er að
hafa af því nokkurt gaman.
Af hinum hefðbundnu bálkum kvik-
mynda hefur spennumyndaformið ef til
vill gengið í gegnum hvað mesta til-
raunastarfsemi á hinum síðari árum
(sbr. myndir Tarantinos, Trainspotting,
The Matrix o.fl.). Þessi mynd tilheyrir
þeim flokki en nær því miður ekki að
verða nema mátulega áhugaverð vegna
þess að Tykwer hefur meiri áhuga á
umgjörð en innihaldi. Góðir sprettir
(reyndar í orðsins fyllstu merkingu) em
irrnan um, aðalleikkonan er afskaplega
tjaldvæn og ýmsar hugmyndir sniðug-
lega útfærðar. Hreinleiki gmnnhug-
myndarinnar minnir nokkuð á þá
ágætu Speed með Keanu Reeves en
snilld þeirrar myndar fólst í heiðskírum
fókus á sjálft undirstöðugangverk hasar-
myndarinnar um leið og hefðir hennar
(gott gegn illu, klukkan tifar, stöðugt
stærri hindranir) vora virtar og nýttar
til hins ýtrasta. Lola rennt nær ekki
slíkum hæðum en næði leikstjórinn að
hemja sig svolítið er aldrei aö vita hvað
hann gæti gert með góðan hasar.
Leikstjórn og handrit: Tom Tykwer. Að-
alhlutverk: Franka Potente, Moritz
Bleibtreu, Herbert Knaup.
Ásgrímur Sverrisson
Aiáttur og menning
í
raiarvo§saa§urinn
á
4. septemter 1999
icmmli so^iivjnn^u
Kl. 9:45
Lagt af stað frá Grafarvogskirkju kl. 9:45 og gengið að
gamla kirkjustæðinu (1150-1886) í Gufunesi.
Leiðsögumaður verður Anna Lísa Guðmundsdóttir frá
Árbæjarsafni. Boðið verður upp á sætaferðir með
Allrahanda til baka að Grafarvogskirkju og um hverfið
að lokinni guðsþjónustu.
W
íiiaira«§l>.
'áSIP
UtiSuös rjo.iuisIa
Kl. 11:00
Þjónað verður við altari gömlu kirkjunnar í Gufunesi
sem var aflögð 1886. Séra Vigfús Þór Árnason
sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Grafarvogskirkju syngur undir stjórn Harðar
Bragasonar organista og kórstjóra.
I [uot t.Vmiösloö O r.vlorvi
Kl. 13:30-16:00
Skólahljómsveit Grafarvogs setur menningarhátíðina
Afhending Máttarstólpans.
Árni Þór Sigurðsson formaður hverfisnefndar afhendir
menningarverðlaun Miðgarðs.
Grafarvogsglíman. Skólastjórar, lögreglan, o.fl. leiða
saman hesta sína í æsispennandi keppni. Dómarar
verða prestar hverfisins.
Léttsveifla. Kór Grafarvogskirkju syngur
Hundamenning Grafarvogs. Hundar úr hverfinu
sýna listir sínar á tennisvellinum
Og margt margt fleira....
Kl. 15:00-16:00
Leiksýning með Snuðru og Tuðru
Kl. 15:00
Hverfaskáldin með upplestur í hátíðarsal Fjölnis,
Kl. 17:00-21:00
Harmonikkuspil í veitingatjöldum
Veitingasala í umsjón stelpuklúbbs Grafarvogs.
Grillað á staðnum en allir geta komið með
eitthvað á grillið.
Hringekja, “Candy-flos“,hoppu-kastali, trampólín o.fl.
Andlitsmálning og blöðrur
Fornir leikir. Gestir spreyta sig
Glíma. Sýning á vegum Fjölnis
Hæsti klifurveggur landsins á súrheysturni.
Þrautabraut á vegum skátanna.
Brekkusöngur við varðeld í umsjá Dalbúa kl. 19:30
Flugeldasýning kl 21:00
ffffliWWsSS
Frítt í sund allan daginn
Neðan”sjávar” tónlist spiluð í innilauginni
Kl. 13:00-16:00
Listamenn úr hverfinu verða með verk sín til sýnis og
sölu í anddyri sundlaugarinnar
Kl. 16:00-18:00
Plötusnúðar þeyta skífuna í glæsilegu
sundlaugarpartýi í útilauginni.
@
fÉiAQs- oq
TÓMsToilDJjHÍ&STÖfi
m
MÐGARÐUR
©Œ)
.alill
í íþróttamiðstöð Grafarvogs
Kl. 21:00-24:00
Allir í fjölskyldunni eru hvattir til að mæta og skemmta
sér saman. Aðgangseyrir kr. 500.
Frítt fyrir 12 ára og yngri sem eru í fylgd með
fullorðnum