Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1999
25
DV
Pí
(0
N
U
CÖ
E-«
Myndasögur
Veiðivon
Fiskurinn kominn á land eftir klukkutímabaráttu. Jónas og Þorvarður Stein-
þórssynir með fiskinn sem var 22 pund og veiddist í Klöppinni.
DV-mynd Hjálmar Árnason
Grímsá í Borgarfirði:
22 punda á
fluguna Snældu
EN EG VErT BAIJA
EKKl HVERNIG EG
ÆTTI AÐ F/.RA AÐ
f NU HEF EG SFARAÐI
. MARGA DAGA OG SAMT *
IEKKI KOMINN NEMA UPT'
V 1.250 KRONUR.
- áin hefur gefið 1500 laxa
Siðustu vikur veiðitimans gefa
oft væna laxa, og þá sérstaklega
hænga sem eru ekki alveg tilbúnir
að gefa eftir svæðið sitt í ánni þegar
þeir eru búnir að velja sér maka og
bíða færis að hefja næsta leik. Síð-
ustu dagar hEifa gefið væna fiska í
mörgum veiðiám og þær eiga eftir
að gefa fleiri stóra.
Veiðivon
Gunnar Bender
„Hann var ansi leginn, blessaður,
og hann tók fluguna Snældu. Þeir
bræður Þorvarður og Jónas Stein-
þórssynir veiddu og lönduðu fiskin-
um en Þorvarður veiddi hann,“
sagði Hjálmar Árnason alþingis-
maður, en hann var að koma úr
Grímsá í Borgarfirði. Hjálmar og
veiðifélaginn, Magnús Guöjónsson
dýralæknir, veiddu 7 laxa í hollinu.
Þessi 22 punda lax veiddist í Klöpp-
inni og það tók klukkutíma að landa
honum, þetta er stærsti laxinn í
Grímsá í sumar.
„Þetta var feikilega skemmtilegt.
Laxinn tók rauðu franses-fluguna
og það var öör þegar hann negldi
sig á hana. Við vorum að veiða í
Tunguánni og þá tók fiskur fluguna
og annar elti allan tímann, þeir hafa
líklega verið búnir að para sig. Það
er mikið af fiski í ánni en frá Fimm-
strengjunum og upp úr er mest af
honum,“ sagði Hjálmar enn fremur.
Sá langstærsti sem Þorvarð-
ur hefur veitt
„Þetta var geysilega gaman og
þetta er langstærsti lax sem ég hef
veitt um ævina. Við vorum klukku-
tíma að landa flskinum, bræðurn-
ir,“ sagði Þorvarður Ellert Stein-
þórsson, en hann veiddi fiskinn
stóra í Grimsá. Hann var 22 pund og
tók fluguna Snældu.
„Grímsá hefur gefið 1500 laxa og
við eigum örugglega eftir að bæta
við okkur löxum, það er þónokkuð
eftir hjá okkur,“ sagði Sturla Guð-
bjarnarson á Fossatúni er við spurð-
um um stöðuna í Grímsá.
Sendlar óskast
á afgreiðslu blaðsins
á aldrinum 13-15 ára.
Vinnutími kl. 13-18.
Mjög hentugur vinnutími með skólanum.
Upplýsingar í síma 550 5000.