Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1999, Síða 32
Sölukössum er lokað kl. 19.30 á laugardögum og dregið kl. 19.45 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið t hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Grunnskólarnir: Leiðbeinendum fjölgar ört ■4 Samtals 549 beiðnir um undan- þágu fyrir leiðbeiðendur til kennslu í grunnskólum höfðu borist mennta- málaráðuneytinu í gær, að sögn Sig- urðar Helgasonar deildarstjóra. Þar af höfðu 400 verið samþykktar, 141 hafði verið synjað, 2 vísað frá og 6 voru settar í bið. Sigurður sagði að þær kröfur sem gerðar væru færu algjörlega eftir því hvað viðkomandi ætti að kenna. Horft væri á hvort hann ætti að vera í almennri bekkjarkennslu eða kenna sérgreinar, svo sem hand- mennt, íþróttir, tónmennt eða val- greinar. Fjölmennasti hópurinn sem samþykktur væri sé fólk með há- skólapróf. Næstfjölmennasti hópur- inn væri fólk með meistaranám, fólk sem fer í handmenntakennslu, leik- skólakennarar, þeir sem kenna í 1. bekk, og þroskaþjálfar. Þriðji stærsti hópurinn, um 90 manns í fyrra, væri fólk sem er í kennaranámi og kenn- ir með því. “Aðalatriðið er að menntunin falli að þeirri grein sem viðkomandi á að kenna. Stúdentspróf nægir t.d. ekki eitt og sér til að kenna í bekkjar- kennslu. Viðkomandi þarf þá að hafa þeim mun meiri reynslu. „ «3* Lónið Nýja Bláa lóninu hefur verið líkt við hönnun Le Courbusiers. 'Hönn- uðurinn segir markmiðið í hönnun- inni hafa verið að láta bygginguna falla að umhverfinu í Illahrauni. Stefán Jóhannsson ráðgjafi hefur um skeið staðið fyrir hjónabands- námskeiðum og segir illmögulegt að ala upp börn nema annað foreldrið sé heimavinnandi. Jasshátíð í Reykjavík hefst í vikunni og þar verður ýmislegt óvenjulegt í boði. Guðjón Þórðarson segir frá æskuár- + um sínum á Akranesi og í innlendu fréttaljósi verður fjallað um þróun bensínverðs hér á landi síðasta árið. r waiPi Alþjóöarall bílabúðar Benna hófst í gærdag og var fyrsti keppnisdagur mjög spennandi. Eftir fyrsta dag eru lan Gwynne og Lyn Jenkins með einnar sekúndu forskot á Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson. Rallið heldur áfram í dag. Mikill fjöldi aðstoðarmanna fyigir keppendum og hér má sjá tvo slíka ræða málin. DV-mynd Pjetur Ríkisstjórnin leitar leiða til að slá á bensinokrið: Olíufélögin mala gull - segir formaður BSRB. Engin þjóðarvá, segir Vilhjálmur „Það má ekki gleyma þeirri staðreynd að olíufélögin mala gull á kostnað almennings," segir Ög- mundur Jónasson, alþingismaður og formaður BSRB, um þær hækk- anir á bensíni sem dunið hafa á al- menningi að undanförnu. Meðal- hækkun er um 25 prósent frá ára- mótum og það kostar eiganda venjulegs fólksbíls um 30 þúsund krónum meira á ári að kaupa elds- neyti á bíl sinn. Þá liggur fyrir að á ársgrundvelli kosta bensínhækk- anirnar meðalfjölskyldu yfir hundrOað þúsund krónur. í fyrra- dag stöðvuðu flutningabílstjórar alla umferð á Reykjanesbraut um hríð til að mótmæla hækkununum sem að stærstum hluta renna til ríkissjóðs eða sem nemur þremur krónum af 5 króna hækkun. Sam- kvæmt heimildum DV leitar nú ríkisstjórnin leiða til að milda áhrif hinna gríðarlegu bensín- hækkana og er helst horft til þess að lækka bensíngjald til ríkisins en það nemur nú um 28 krónum af hverju lítra. Ögmundur segist vara við því að ríkissjóður einn verði kallaður til vegna bensínok- ursins. „Stjórnvöld verða auðvitað að endurskoða sínar ákvarðanir. Ábyrgðin er þó ekki síður olíufélaganna og það má ekki firra þau ábyrgð,“ segir Ögmundur sem heldur stjórnarfúnd í samtökum sínum í dag þar sem bens- ínokrið verð- ur m.a. á dagskrá. „Vegna hinnar miklu þenslu í efnahagslífmu myndi ég segja að skattalækkun fæli í sér röng skila- boð,“ segir Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokks, um mögulegar aðgerðir ríkisins. Vilhjálmur segir að hægt væri að fresta hluta af hækkunum á bensín- gjaldi með reglugerð en hann sjái ekki að alvaran sé slík að breyta þurfi lögum vegna málsins. „Það er engin þjóðarvá fyrir dyrum þannig að það þurfi að setja bráðabirgðalög. Heimsmark- aðsverð hlýtur að fara að lækka aftur eins og alltaf hefur gerst. Ef menn vilja verjast þessum sveifl- um er spurn- ing hvort menn vilja setja sérstak- an verðjöfnun- arsjóð fyrir bensín. Það er þó frekar ólík- legt,“ segir Vilhjálmur. Ekki tókst að ná sambandi við Davíð Oddsson forsætisráðherra sem gegnir embætti fjármálaráð- herra í fjarvistum Geirs H. Haar- de. DV fékk þau skilaboð frá Dav- íð að verið væri að skoða þessi mál og tíðinda væri að vænta. -rt Nánar á bls. 2 Átla bíla árekstur Átta bila árekstur varð í morgun á Stekkjarbakka. ÖIl umferð á stóru svæði stöðvaðist, allt frá Elliðánum upp á Breiðholtsbraut. Einnig urðu margir smáárekstrar í þessu umferð- aröngþveiti. Lögreglan hafði ekki bda til að sinna öllum árekstrunum. Ekki var komið á hreint í morgun hvað olli átta bíla árekstrinum. Því miður getur DV ekki birt mynd af ósköpunum vegna þess að ljósmyndari blaðsins er fastur í umferðinni. -EIS Borgarstjóri: Skiptir um hægri hönd Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri efndi til kaffisamsætis í ráð- húsi Reykjavíkur í morgun þar sem hún kvaddi Áma Þór Sigurðsson aðstoðarmanna sinn sem hverfur til annarra starfa. í leiðinni bauð borg- arstjóri Kristínu Árnadóttur vel- komna í ráðhúsið á ný en Kristín hefur verið í ársleyfi frá störfum sem aðtoðarmaður borgarstjóra. Ámi Þór Sigurðsson fær nú starfs- aðstöðu í Hafnarhúsinu þar sem hann mun sinna ýmsum nefndar- störfum fyrir borgina en hann er meðal annars formaður Hafnar- stjórnar. -EIR Ögmundur Jónasson. Veðrið á morgun: Áfram suddi á höfuðborgar- svæðinu Á morgun verður suðvestan- og sunnanátt á landinu, 8-13 metrar á sekúndu allra austast en norð- austanátt, 8-13 metrar á sekúndu, á Vestfjörðum. Víða verða skúrir eða rigning, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti 9-15 stig, hlýjast á Austurlandi. Veðrið í dag er á bls. 29. 8= // '/sy/i /'W/ /////'(// // // /\ iW'/ Y/ATr/// '''íétí'AP/, z/wM/Y/ // Z/j^/^ZZ/ /// //Z/ úk Z//Z////Z///tá// /////////// m ///z/z V ///////////<( /////////+ 15° 12° / /// / "////// j// /// /// /// /// / ////. , /////// MERKILEGA MERKIVELIN brother pt 2 islenskir stafir Taska fylgir 8 leturgerðir, 6 stærðir 6, 9,12, 18 mm borðar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 10.925 0E ný vél .8 Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffanq: www.if.is/rafport reyklaust flug / með Nicotinell APÓTEK . SUÐURNESJA L.EIFSSTÖO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.