Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1999, Blaðsíða 30
Gönguhópurinn staldrar við í Hólmatungum þar sem hvítfyssandi Hólmáin öslar fram í fögru gróðurlendi. DV-myndir Gunnar V. Andrésson
Gönguferð úr Ásbyrgi í Mývatnssveit
Glæsilegasta gönguleið landsins
Þjóðgarðurinn í
“ Ásbyrgi á sér fáa
líka hvað varðar
náttúrufegurð. Þang-
að er ávallt gott að
koma og aðbúnaður
allur til fyrirmynd-
ar. Margar góðar
gönguleiðir eru við
Ásbyrgi og ber Jök-
ulsárgljúfrin hæst en
þau eru stærstu og
jafnframt hrikaleg-
ustu árgljúfur lands-
ins. Gljúfrin teljast
vera um 25 km á
lengd, 1/2 km á breidd og víða yfir 100
m djúp.
Undirritaður tók nýverið þátt í fimm
daga göngu um þjóðgarðinn og var enn
og aftur djúpt snortinn yfir ægifagurri
náttúrunni sem skartaði mikilfengleika
sínum hvarvetna. Hópurinn var skipað-
ur sjö manns og hundinum Tuma. Eftir
stutta stopp í Ásbyrgi lagði hópurinn af
stað og var stefnan tekin upp á brúnir
Ásbyrgis þar sem hvammar og
skessukatlar í ýmsum litbrigðum urðu
á leið göngumanna. Síðan var haldið í
austur og upp með árgljúfrunum. Á
þessum slóðum eru gönguleiðir stikaðar
og gaman að staldra við og lesa greinar-
góðar lýsingar sem komið hefur verið
upp í þjóðgarðinum.
Fyrsta daginn var gengið i Vesturdal
um Hljóðakletta, stórbrotnar
klettaborgir sem skilja engan eftir
ósnortinn. í Vesturdal er gott tjaldstæði
a grasi grónum bölum og lækur seytlar
gegnum svæðið og allur aðbúnaður er í
besta lagi.
Að voldugasta fossi Evrópu
Daginn efitir var gengið um Hólma-
tungur og gáfu göngumenn sér góðan
tíma til að skoða og njóta fegurðarinnar
sem þar er. Umhverfi Hólmatungnanna
einkennist af frussandi lækjum i fallega
grónu landi þar sem þverhnípta kletta
ber við himin og í bland við fjölskrúð-
ugt fuglalif var þessi dagur sem helgi-
. stund sem hélt göngumönnum fóngnum
daglangt. Það voru sælir og lúnir göngu-
félagar sem gengu til náða í Vesturdal
aðra nóttina.
Dettifoss var takmark okkar þriðja
daginn og hófum við tíu stunda göng-
una þangað semma morguns. Sérleyfis-
bílar Akureyrar ferjuöu farangur hóps-
ins frá Vesturdal að Dettifossi en
.þeirrar þjónustu nutum við einnig
fyrsta daginn þar sem þeir fluttu
pjönkur hópsins í
Vesturdal.
Gönguleiðin að
Dettifossi er löng
en afar skemmti-
leg og á leiðinni
fórum við niður
að Hafragilsfossi
og dáðumst að
j a r ð 1 ö g u m
landsins sem eru
hvert ofan á öðru í
gljúfrunum.
Umhverfi Detti-
foss er afar magn-
að og maður verð-
ur ákaflega lítill og umkomulaus þegar
maður skynjar kraftinn og óbeisluðu
orkuna og sjálfsagt ekki að ófyrirsynju
að hann er stundum kallaður voldugasti
foss Evrópu. Fossinn er 45 m hár og 100
m breiður. Síðan gengum við í stundar-
Hljóðaklettarnir eru stórbrotnir.
fjórðung til viðbótar til þess að skoða
Selfoss en saman mynda fyrmefndir
þrír fossar samstæðu sem er ótrúlega
tignarleg og lætur engan ósnortinn sem
gefúr sér tíma til að njóta undursins.
Tjaldað var við Dettifoss.
Lindarvatnið gott
Fjórði dagur ferðarinnar rann upp
heiður og fagur, eins og þeir dagar sem
á undan voru gengnir. Nú skyldi stefnt
í suðurátt og að Eilífsvötnum. Þangað
var um fimm tíma gangur, ekkert vatn
er á þessari gönguleið og urðu menn að
birgja sig upp með vatni úr brúsum sem
tjaldverðir koma fyrir á tjaldstæðinu.
Gönguleið
Kópasker
Öxarfjöröur
Ásbyrgi
Hljóöaklettar \
Eilífur
/ n • Dettifoss
Krafla
f5T?l
Klappirnar á brúnum Ásbyrgis eru ægifagrar.
Hraunið í Gjástykki tekur á sig
ótrúlegustu kynjamyndir.
Ejallasýnin er mikil á þessu svæði
og var mikið augnakonfekt allan dag-
inn við sáum drottninguna Herðu-
breið, Snæfell og fjallgaröa alveg inn
undir jökla. Á þessari gönguleið eru
engar stikur en leiðimar á undan
voru vel stikaðar. Við tjölduðum við
Eilífsvötn og þar var dásamlegt grasi
gróið svæði með köldum lindum sem
bæði var hægt að þvo sér í og drekka
eins og maður gat í sig látið.
Stórbrotin leið
Síðasta daginn lá leiðin í Kröflu með
viðkomu í eldstöðinni í Gjástykki þar
sem hægt er að sjá eldgosið ljóslifandi
fyrir sér, þar sem hraunelfumar runnu
frá eldstöðinni.
Skemmtilegri fimm daga göngu um
eina glæsilegustu gönguleið landsins
lauk í þetta sinn með heimsókn í Víti.
Það er hiklaust hægt að mæla með
gönguferð á þessum slóðum enda nátt-
úrufegurðin stórbrotin og sífellt eitt-
hvað spennandi sem ber fyrir augu.
Þjónusta Sérleyfisbíla Akureyrar,
sem flytja tjöld og annan viðlegubúnað
fyrir göngufólk, er kærkomin og gerir
gönguferðina léttari og skemmtilegri
en ella. -GVA
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
Olíur og verjur á
hverju herbergi
Hótelgestir eru vanir að finna
búnað á borð við nál og tvinna-
kefli þegar þeir dvelja á þokka-
legum hótelum víða um heim.
Eins og flestir vita eru íbúar
f San Fransisco frjálsyndir mjög
og nýverið reið Clift-hótelið i
borginni á vaðið með spennandi
nýjung. Auk saumadótsins hafa
I gestir nú aðgang að körfu þar
sem er að finna ýmis hjálpar-
tæki ástarlífsins. Þó er alls ekk-
i ert gróft á ferðinni heldur inni-
heldur karfan ilmolíur, verjur
og þess konar hluti. Þetta kvað
hafa spurst vel út og að sögn
kváðu fleiri hótel í Bandaríkj-
unum hafa tekið upp stefnu
Clift-hótelsins að undanfomu.
Leikhús
Vissir þú að Minneapolis er
ein mesta leikhús- og menning-
I arborg Bandaríkjanna? Þar era
| meira en 50 leikhús og listvið-
burðir setja mikinn svip á borg-
arlífið. Borgin er ekki síður há-
borg íþrótta. Minneapolis er
heimabær mikilla snillinga í
homabolta, Minnesota Twins,
eins af toppliðunum í ameríska
| fótboltanum, Minnesota Vik-
ings, og hins þekkta körfuknatt-
leiksliðs í NBA, Minnesota Tim-
berwolves. Fleiri vita um að-
dráttarafl verslunarmiðstöðv-
anna en í Bloomington, útborg
Minneapolis, er Mall of Amer-
I ica, stærsta verslunarmiðstöð í
Bandaríkjunum. í Mall of Amer-
ica er einnig stærsti yfirbyggði
skemmtigarður í Bandaríkjun-
um.
Matur á mínútu
Flestir þekkja tilboð veitinga-
húsa sem hljóða upp á að menn
megi borða eins og þeir geti í
sig látið. Japanir bjóða nú enn
betur, ef svo má að orði komast,
því þarlend veitingahús bjóða
nú í sívaxandi mæli upp á til-
boð sem ganga út að það að
menn séu sem fljótastir að
borða. Gesturinn borgar fyrir
þær mínútur sem hann eyðir
inni á veitingahúsinu og má
reyndar torga eins miklu og
hann getur í sig látið. Tímakort
eru afhent við innganginn
| þannig að gestir geta sjálfir
fylgst með tímanum og reiknað
út hvað þeir skulda. Ekki fylgdi
sögunni hversu lengi viðskipta-
vinir dvelja almennt á slíkum
veitingahúsum, það fer.líklega
eftir efnahag, en þetta form
| höfðar einkum til manna úr við-
skiptalífmu sem vita að tími er
peningar. Þeir rífa i sig matinn
og sjá enga ástæðu til að sitja og
spjalla við kunningjana að
málsverði loknum.
Engar biðraðir
Fyrir ekki svo löngu þurftu
menn gjama að standa i þrjá
klukkutíma í biðröð til þess að
kaupa miða í Lovure-safnið í
París. Sem betur fer er slík
tímasóun liðin tíð því nú er
hægt að kaupa miðana fyrir-
fram með hjálp Netsins. Slóðin
er www.louvre.fr og er aðgangs-
eyririnn í kringum 300 krónur.
Með miða í hönd geta gestir
gengið inn án nokkurra tafa.