Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1999, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1999
29
r^aeiiAR
w
Nýr og
snöggur
Bls. 36
Skúffubílar með tvöföldu húsi hafa reynst mörgum
notadrjúgir og hafa komið í stað hefðbundinna jeppa,
sérstaklega á liðnum árum. Minna var lagt upp úr útliti
og þægindum á þessum bflum en meira horft tii
notagildis. Nú hefur orðið breyting á.
Þessir bílar hafa fengið lagfæringu í útliti
og þægindabúnaður verið aukinn.
Einn slíkra bfla er Mazda B-2500 sem við
erum með í reynsluakstri í dag,
þægilegur og aflmikill bfll.
Skúffubíllinn Mazda B-2500 er bæði þægilegur og notadrjúgur.
DV-mynd Teitur.
Island
DV-bilar slógust nýlega í för með þýskum blaða-
mönnum sem komnir voru til íslands i boði Ford í
Þýskalandi til að kynnast Ford Explorer-jeppanum
af eigin raun á alvöru fjallavegum. Við sama tæki-
færi fengu íslensku blaðamennirnir einnig tæki-
færi til að kynnast nýjum hálfkassa-skúffubíl, Ford
Ranger. Bílamir sýndu að þeir geta ýmislegt fleira
en runnið ljúflega á sléttu malbiki
en þrátt fýrir allar tegundir af
veðri var það þó ekki síst ísland
sem sló í gegn í þessari ferð.
Bls. 35
Einn fyrsti viðkomustaðurinn var Gullfoss. Eini atvinnuljósmyndarinn í hópnum, frá Auto Biid, tyllti
sér skör hærra en blaðamennirnir sem sinna myndatökum jafnhliða öðrum verkum i grein sinni.
Mynd DV-bílar SHH
Verður næsta stóra
sameiningin
Toywagen?
Þó ýmsir bílaframleiðendur,
minni og stærri, hafi undanfarin
ár ýmist keypt hver annan eða
sameinast á jafnréttisgrundvelli
er talið nokkuð víst að þeirri
þróun sé ekki lokið. Sterkur
orðrómur er i gangi þess efnis að
sú samvinna sem nú er að takast
milli Fiat og Mitsubishi, m.a. í
aldrifsbílnum sem væntanlegur
er frá Fiat áður en langt um líð-
ur, eigi eftir að ganga lengra og
hugsanlega enda með samein-
ingu.
Volkswagen stefnir ljóst og
leynt að því að verða heimsfram-
leiðandi og er þegar kominn all-
nokkuð á leið. Undir hatti
Volkswagen er núna Audi, Seat
og Skoda og VW keppti við BMW
um Rover og Rolls Royce eins og
menn muna. Hins vegar er haft
eftir Ferdinand Piech, forstjóra
Volkswagen, að sá framleiðandi
sem hann vildi helst sjá
Volkswagen sameinast væri
Toyota.
Þetta var rifjað upp í síðustu
viku, þegar hópur þýskra bíla-
blaðamanna vai' hér í heimsókn,
en þeir töldu ýmis teikn á lofti
þess efhis að einmitt þessi sam-
eining kynni að vera nær en
menn hafa haldið. Það eru fleiri
en papparassar í stétt ljósmynd-
ara sem fylgjast með hræringum
í kringum stóru fyrirtækin og
fyrirmennina og nú hafa menn
fyrir satt að óvenjumikið hafi
verið um gagnkvæmar heim-
sóknir og kynnisferðir forráða-
manna Volkswagen-hópsins ann-
ars vegar en Toyota hins vegar
og það kunni að boða tíðindi
áður en langt um líður.
Kannski ökum við á
Toywagen áður en langt um líð-
ur? -SHH
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
Hvar er best aö gera bílakaupin?
MMC Space Star, f. skrd. 06. 1999,
ek. 4 þ., 5 d., bsk.,
verð 1.450 þús.
MMC Carisma, f. skrd. 09. 1998,
ek. 15 þ., 4 d., bsk.,
verð 1.550 þús.
Toyota Avensis, f. skrd. 03. 1998,
ek. 28 þ., 5 d., bsk.,
verð 1.560 þús.
VW Passat, f. skrd. 02. 1997,
45 þ., 4 d., bsk.,
verð 1.480 þús.
ek.
Audi A6 2,0 e, f. skrd. 09. 1995,
ek. 47 þ., 4 d., bsk.,
verð 1.850 þús.
Skoda Felicia st., f. skrd. 06. 1996,
ek. 20 þ„ 5 d„ bsk„
verð 690 þús.
Velkomin á Laugaveg 174 og www.bilathing.is
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18 og laugard. kl. 12-16
BÍLAÞINGÍEKLU
Nvw&r &iH~ í no'hZvw btlvm!
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is •