Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1999, Blaðsíða 13
JL>"\#r MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1999
vinnuvélar
Léttflutningar:
Fjölnotavagnar og
samanbrjótanlegir
gámar
Léttflutningar eru tveggja ára gam-
alt fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að
fLytja ýmsar vörur eins og búslóðir,
hitaveitupípur og
annað án þess
að kalla
til
stóra og
þunga
dráttarbíla.
Samanbrjót-
anlegir BOS-
gámar frá
Léttflutning-
um sem nota
má jafnvel
sem bílskýli.
Hafsteinn Hafsteinsson,
eigandi Léttflutninga.
nýjasta
sem fyrirtækið
kynnir eru svokall-
aðir „heisivagnar“,
eða „fiölnotavagnar“.
Þessir vagnar eru af
MAYTEC
frá framleiðandanum
Cormach Krane í
Þýskalandi. Þeir eru
með lítinn bensínmótor sem knýr
vökvakerfí vagnsins sem getur þá
sturtað af sér pailinum meðan farmin-
um er komið fyrir. Síðan er pallurinn
dreginn með lyftigetu vagnsins aftur
upp á hjólastellið. Þessi aðferð er þekkt
t.d. við ruslagáma sem eru orðnir al-
gengir víða um land. Það sem er
óvenjulegt við vagna Léttflutninga er
hins vegar léttleikinn og það að þeir
hafa sjálfstæðan vökvabúnað. Þannig
má hengja þessa vagna aftan í nánast
hvaða bíl sem er.
Að sögn Hafsteins
Hafsteinssonar,
eiganda Léttflutn-
inga, býður fyrir-
tækið líka aðra
nýjung sem er sam-
anbijótanlegir gámar
til ýmissa nota. Þessir
gámar eru afar ijölbreyttir að gerð og
stærð. Þar er t.d. um að ræða sérstaka
spilliefnagáma með tvöfóldum botni,
venjulega vörugáma og
MAYTEC-fjölnotavagnarnir eru með sjálfstætt vökvakerfi sem knúið er af litl-
um bensínmótor.
samanbijótanlega gáma sem má nota
sem vöruskemmur og jafnvel bílskúra
fyrir vörubíla. Gámamir eru einfaldir
í uppsetningu og taka lítið pláss þegar
þeir eru ekki í notkun. Frekari upplýs-
ingar má finna á Netinu og er slóðin
www.lettflutningar.ehf.is
-HKr.
dgCTI VARAHLUTAVERSLUNIN
(KMAiiiJliáHD
■SKBöjSB BRAUTARHOLTI 16 »12 562 2104
Heildarlausnir fvrir atvinnurekstur
Vörubílar Kranar Hópbílar Vinnuvélar Bátavélar
Náið samstarf með öflugum birgjum gerir Brimborg kleift að bjóða hagkvæmar heildarlausnir og tryggja hámarksgæði
(Sr
brimborg
Bíldshöfða 6 • Sími 515 7010
\
«